Morgunblaðið - 08.11.2003, Síða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 19
490 kr.
Skrautseríur
1.990 kr.
Jólajárnbrautarlest
690 kr.
Heilsársseríur
99 kr.
Ís og
jólasveinahúfa
(aðeins í Sigtúni og á Akureyri)
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
27
26
11
/2
00
3
Ótrúlegt verð
Frábær jóla
gjöf
komdu í jólalandi›
#21 LANGISJÓR
ICELAND REVIEW
ÁSKRIFTARSÍMI 512-7517
askrift@icelandreview.com
HVERS VEGNA ÍSLAND?
40 ÁSTÆ‹UR
MICHAEL Portillo, fyrrver-
andi varnarmálaráðherra og
einn af þeim, sem á sínum tíma
sóttust eftir
leiðtoga-
embættinu í
Íhalds-
flokknum,
ætlar ekki
að bjóða sig
aftur fram
til þings í
næstu kosn-
ingum.
Portillo
greindi frá þessu í gær og
sagði, að honum hefði hafnað í
sæti í skuggaráðuneyti Mich-
aels Howards, nýs leiðtoga
Íhaldsflokksins. Kvaðst hann
ekki vita hvað við tæki en hann
hefði áhuga á fjölmiðlum, ýms-
um samtökum og listum.
Portillo var varnarmálaráð-
herra í stjórn John majors
1995–’97 en missti þá þingsæti
sitt er Verkamannaflokkurinn
vann stórsigur. Hann var kos-
inn aftur á þing 1999 og litu þá
margir á hann sem hugsanlegt
leiðtogaefni. Hann hafði þó
ekki erindi sem erfiði í leiðtoga-
kjöri innan flokksins eftir að
William Hague sagði af sér og
varð í þriðja sæti.
Tunglmyrkvi
í kvöld
TUNGLMYRKVI verður upp
úr miðnætti í kvöld að íslensk-
um tíma en ef veður leyfir mun
hann sjást í Evrópu, Afríku,
Suður-Ameríku og í austan-
verðum Bandaríkjunum. Er
um almyrkva að ræða en þá eru
sólin, jörðin og tunglið í beinni
línu. Annar merkilegur atburð-
ur verður 19. nóvember en það
er Leoníta-loftsteinastraumur-
inn. Þá verður unnt að sjá allt
að 100 loftsteina á himni og
suma eins og eldhnetti.
Lenín í ný
jakkaföt
VLADÍMIR Lenín, bolsevíka-
leiðtoginn sem var fyrsti for-
ystumaður Sovétríkjanna,
klæðist senn nýjum jakkaföt-
um. Frá þessu var greint í gær
en lík Leníns er, sem kunnugt
er, til sýnis í grafhýsi á Rauða
torginu í Moskvu. 86 ár voru í
gær liðin frá rússnesku bylting-
unni.
Uppstokkun
í flokki
Bondeviks
VALGERD Svarstad Haug-
land og Einar Steensnes, for-
maður og varaformaður flokks
kristilegra demókrata í Noregi,
tilkynntu í gær afsögn sína. Var
ástæða afsagnanna slæmt
gengi flokksins í bæjar- og
sveitarstjórnarkosningum fyrr
á þessu ári. Fyrrverandi for-
maður kristilegra, Kjell Magne
Bondevik, er nú forsætisráð-
herra Noregs og Svarstad
Haugland er menntamálaráð-
herra í stjórn hans. „Þetta er
mikill léttir,“ sagði Svarstad
Haugland er hún tilkynnti um
afsögnina. „Til að geta verið
formaður þarftu að vita að
flokkurinn stendur sameinaður
að baki þér.“
STUTT
Portillo
ekki aftur
á þing
Michael Portillo
FRAKKAR munu brátt missa einn
af sínum fjölmörgu frídögum en
það er liður í neyðaráætlun um
aukna aðstoð við aldraða. Þótti það
koma vel í ljós í hitunum á liðnu
sumri, að umönnun aldraðra er
stórlega áfátt en talið er, að hit-
arnir hafi átt stóran þátt í dauða
15.000 manna og aðallega aldr-
aðra.
Jean-Pierre Raffarin, forsætis-
ráðherra Frakklands, tilkynnti á
fimmtudag, að frá og með júlí á
næsta ári yrði annar í hvítasunnu
ekki lengur opinber frídagur og
yrði það fé eða sú aukna verð-
mætasköpun, sem fengist með því,
sett í sérstakan sjóð fyrir aldrað
fólk og öryrkja. Talið er, að í
þennan sjóð muni því framvegis
renna um 150 milljarðar ísl. kr. ár-
lega og þá á meðal annars að nota
til að fjölga plássum fyrir aldraða
á elli- og hjúkrunarheimilum um
10.000 og hjúkrunarfólki um
15.000.
Opinberir starfsmenn verða að
vinna á öðrum í hvítasunnu en
einkafyrirtæki geta valið einhvern
annan dag af frídögunum 10 í
Frakklandi. Reiknað er með, að
þessi aukavinnudagur muni auka
landsframleiðsluna í Frakklandi
um 0,3% og verður atvinnurek-
endum gert að greiða í samræmi
við það 0,3% af veltu í umræddan
sjóð.
Talsmaður atvinnurekenda fagn-
aði tilkynningu Raffarins í gær en
talsmaður Sósíalistaflokksins, sem
er í stjórnarandstöðu, sagði áætl-
unina „ónóga og óréttláta“.
Frakkar fórna frídegi
Verðmætin lögð
í sjóð fyrir aldr-
aða og öryrkja
París. AFP.