Morgunblaðið - 08.11.2003, Síða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 21
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins hefur sent frá sér
síðustu árlegu matsskýrslurnar á
frammistöðu umsóknarríkja í aðild-
arundirbúningi áður en tíu þeirra fá
fulla aðild að sambandinu, en það
gerist 1. maí á næsta ári.
Í skýrslunum segist fram-
kvæmdastjórnin allviss um að
stækkunin gangi eftir samkvæmt
áætlun, en hún beinir eindregnum
tilmælum til stjórnvalda í tilvonandi
aðildarríkjunum að þau taki sig á í
ýmsum málaflokkum. Lengst í land
með að ganga frá lausum endum er
Pólland sagt eiga, þar sem gera þurfi
skurk í alls níu málaflokkum. Varar
framkvæmdastjórnin við því að
standi löndin sig ekki í því að kippa
því í liðinn sem hún bendir á að sé
enn ábótavant kunni það að koma
þeim illa fjárhagslega.
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnarinnar, sagði er hann
kynnti skýrslurnar fyrir Evrópu-
þinginu, að í þeim væri vottað hve
miklum umbótum stjórnvöld í um-
sóknarríkjunum hefðu áorkað að
hrinda í framkvæmd. Betur mætti
þó ef duga skyldi. „Ríkisstjórnirnar
tíu eru vel meðvitaðar um að hvers
konar misbrestur [á framkvæmd
umbótanna] gæti svipt þau ávinn-
ingnum af fjárstyrkjum og bættum
markaðsaðgangi,“ sagði Prodi.
Segist framkvæmdastjórnin í
skýrslunum vera „hæfilega bjart-
sýn“ á að takast muni að leysa öll
þessi vandamál í tilvonandi aðildar-
ríkjunum tíu áður en stækkunin
kemur til framkvæmda.
Auk ríkjanna tíu sem eiga að fá að-
ild á næsta ári birti framkvæmda-
stjórnin matsskýrslur um þrjú önn-
ur lönd, sem bíða aðildar, þ.e.
Rúmeníu og Búlgaríu, sem vonast til
að geta lokið aðildarsamningum
2005 og að fá aðild 2007, og Tyrk-
land, sem sækist eftir því að fá að
hefja aðildarsamninga sem fyrst.
Kýpur-málið íþyngir Tyrkjum
Mat framkvæmdastjórnarinnar á
framvindunni í Tyrklandi er tæpast
til þess fallið að auka líkur á því að í
sjónmáli sé að landið teljist uppfylla
skilyrðin fyrir aðildarviðræðum, s.s.
um mannréttindi. Tregða Tyrkja til
að hjálpa til við sameiningu Kýpur
bætir heldur ekki úr skák.
Matsskýrslur framkvæmdastjórnar ESB um væntanleg aðildarríki
Sum ríkin þurfa
að taka sig á
Brussel. AFP.
HOWARD Dean, einn af frambjóð-
endum demókrata í forvali vegna
forsetakosninganna í Bandaríkjun-
um á næsta ári,
hefur beðist af-
sökunar vegna
ummæla sem
hann lét falla ný-
verið.
Dean var
spurður af
blaðinu Des
Moines Register
á laugardag um
afstöðu sína til
þess réttar almennings að eiga
skammbyssur. „Ég er enn staðráð-
inn í að verða frambjóðandi gaur-
anna sem flagga Suðurríkjafánanum
á pallbílnum sínum. Við getum ekki
sigrað George Bush nema með því að
höfða til ólíkra hópa,“ svaraði Dean
en hann er andvígur mikið harðari
löggjöf um byssueign, ólíkt flestum
keppinautum hans um útnefninguna.
Þóttu ummælin móðgandi fyrir
svertingja – en Suðurríkjafáninn var
tákn þeirra afla í Bandaríkjunum
sem ekki vildu afnema þrælahald –
og jafnframt fyrir efnaminna hvítt
fólk í Suðurríkjunum sem Dean var
þó einmitt að reyna að höfða til.
Þrátt fyrir þetta hefur Dean for-
ystu í keppni níu demókrata um út-
nefningu vegna forsetakosninganna.
Dean biðst
afsökunar
Los Angeles Times.
Howard Dean
JAPANSKT fyrirtæki hefur
smíðað fyrsta armbandssímann
en í hann er talað með því að
stinga vísifingri í eyrað. Verður
skýrt frá þessari uppgötvun í
vísindatímaritinu New Scient-
ist á laugardag.
Frumsmíðin, sem kallast
Fingratal (Finger Whisper), er
armband, sem breytir stafræn-
um boðum í titring, sem berst
síðan niður eftir handarbeinun-
um. Þegar hringt er í símann
stingur eigandinn vísifingrin-
um í eyrað og þá breytir hljóð-
himnan titringnum í hljóð-
merki fyrir heilann. Svarað er
með því að tala í hljóðnema á
armbandinu.
Símtal er hafið eða því lokið
með því að láta vísifingur og
þumalfingur snertast en arm-
bandssíminn er raddstýrður og
þarf því ekkert talnaborð.
Það er fyrirtækið NTT Do-
CoMo, sem vinnur að síma-
smíðinni, en ekki er vitað hve-
nær hann kemur á markað.
Fyrsti armbands-
síminn
Hlustað á
fingurinn
París. AFP.