Morgunblaðið - 08.11.2003, Page 22
Morgunblaðinu í dag
fylgir blað frá Betra bak
Höfuðborgin | Akureyri | Árborg | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund skapti@mbl.is
Ungur á vélsleða | Lögregla á Akureyri
stöðvaði ökumann vélsleða í Glerárhverfi á
fimmtudagskvöld. Í ljós kom að hann var
fjórtán ára gamall og því
með öllu réttindalaus.
Vill lögregla brýna fyrir
umráðamönnum vélsleða
að sjá til þess að rétt-
indalaus ungmenni aki
ekki sleðum þeirra.
Vélsleðamenn virðast
hafa verið fljótir að koma sleðum sínum í
gang um leið og snjórinn kom en nokkuð
hefur borið á kvörtunum undan akstri
þeirra í bænum, einkum í efri byggðum
Glerárhverfis og einnig í Kjarnaskógi. Þar
voru skíðagöngumenn ekki alls kostar
ánægðir með vélsleðaaksturinn, sem hafði
truflandi áhrif á heilsubótargöngu þeirra.
Þegar lögregla kom á staðinn eftir að skíða-
menn höfðu kvartað voru ökumenn hins
vegar á bak og burt. Allur akstur vélsleða í
bænum er bannaður.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Stórleikur „á Akureyri“ | Í tengslum við
leik Liverpool og Manchester United á
morgun, sunnudag, efnir Liverpool-
klúbburinn á Íslandi til „fánadags“ í Nýja
bíói á Akureyri. Á fánadögum Liverpool-
klúbbsins eru stuðningsmenn Liverpool
hvattir til að mæta í búningum og reynt er að
skapa góða Anfield-
stemningu meðan á
leiknum stendur. Í fyrra
var sams konar dagur
haldinn og þurfti þá að
loka bíóinu 15 mínútum
áður en leikur hófst því
þá höfðu um 300 manns
mætt og yfirfyllt bíóið.
Dagskráin á morgun
hefst með upphitun kl.
12.30 og verða þá sýnd brot út gömlum leikj-
um Liverpool. Einnig verða í gangi getraun-
ir og leikir þar sem glæsileg verðlaun verða í
boði. Allar konur sem mæta í Liverpool-
búningi fá verðlaun og sá sem mætir í flott-
asta búningnum fær einnig verðlaun. Leik-
urinn hefst svo kl. 13.45.
Liverpool-klúbburinn hvetur alla stuðn-
ingsmenn Liverpool á Norðurlandi til að
mæta á þennan stórleik ársins og hvetja okk-
ar menn til sigurs. Foreldrar eru hvattir til
að taka börnin með. Ókeypis aðgangur.
Úrkoma áhöfuðborgar-svæðinu í
október var langt und-
ir meðallagi eða aðeins
helmingur þess sem
vant er. Úrkoma
mældist 37,7 mm og
hefur ekki verið minni
síðan árið 1993 en svo
þarf að fara aftur til
ársins 1960 til að finna
minni úrkomu. Á Ak-
ureyri var úrkoma
einnig um helmingi
minni en venjulega,
eða 33,1 mm.
Hitafarið var mjög
kaflaskipt í október en
meðalhiti í Reykjavík
var rúmri gráðu yfir
meðallagi, eða 5,6°C. Á
Akureyri var meðalhit-
inn 3,6°C en það er
0,6°C meira en vana-
lega. Sólskinsstundir
voru fleiri en oft áður
en í Reykjavík voru
þær tæplega 94 og á
Akureyri rúmlega 58.
Lítil úrkoma
Fagradal | Í norðanátt og roki er oft mikill öldugangur á
söndunum í Mýrdalnum og geta öldurnar orðið verulega
háar og tignarlegar, eins og sést á myndinni sem er tekin
sunnan við Víkurkauptún með Reynisfjall í baksýn dag
einn í síðustu viku. Þar gekk mikið á þegar öldurnar
börðu ströndina.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Stórar öldur í Víkurfjöru
Smári Geirsson hættií lok sumars semformaður Sam-
bands sveitarfélaga á
Austurlandi og var
kvaddur með kveðskap
og söng á aðalfundinum.
Af því tilefni orti Andrés
Björnsson vísur sem birt-
ust í Austurglugganum:
Hann barðist fyrir samein-
ingu sveita
og svöngum hreppum lifa
kenndi að nýju,
að súru áli síðan fór að leita
og sameinaði Frón og Ítalíu.
Með dýrðlingunum heima
eflaust ætti
aðallega fyrir hugsjón þessa.
Eftir honum páfinn muna
mætti
er Móður Theresu hann fer
að blessa.
Það hafa allir skoðanir
á stjórnmálamönnum.
Líkt er farið um þennan
hagyrðing, sem kýs að
láta ekki nafns síns get-
ið:
Stjórnin vinnur afrek
ýmiskonar
að því máttu gleðjast sála
mín
það er hlutverk Halldórs
Ásgrímssonar
að hlynna þeim sem betur
mega sín.
Blessun páfans
Kárahnjúkum | Félagarnir
Hreinn Halldórsson og Snorri
Sturluson, starfsmenn Arn-
arfells, voru þegar sól stóð í
hádegisstað að hreinsa ís-
hröngl og óhreinindi innan úr
steypuhrærivél á hjólum. Sú
er notuð í svokölluðum graut-
unargöngum vegna vænt-
anlegrar stífluþéttingar og
vinnugöngum við hjáveitugöng
þau sem Jökla verður leidd
gegnum meðan á stíflugerð
stendur við Fremri-Kára-
hnjúk.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Mörg viðvikin í virkjuninni
Kárahnjúkar
Sandgerði | Fulltrúar Sandgerðisbæjar
kröfðust þess á fundi með fjármálaráðherra
að ríkið bæri ábyrgð á mistökum við mat á
húseignum Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
og bættu bæjarfélaginu það tjón sem það
hefur orðið fyrir vegna þeirra. Bæjarstjór-
inn segir að ef því verði ekki sinnt verði ekki
hjá því komist að höfða mál á hendur ríkinu.
Flugstöðin er innan bæjarmarka Sand-
gerðisbæjar og leggur bærinn fasteignamat
á húseignir hennar samkvæmt fasteigna-
mati. Við endurmat kom í ljós að Fasteigna-
mat ríkisins hafði ofmetið eignirnar við út-
reikning á fasteignamati áranna 1998 til
2000. Flugstöðin krafðist endurgreiðslu úr
hendi Sandgerðisbæjar og féll nýlega sá
dómur í Hæstarétti að bænum bæri að end-
urgreiða fyrirtækinu liðlega 37 milljónir
króna. Með dráttarvöxtum og málskostnaði
er þessi upphæð rúmar 82 milljónir og hef-
ur bærinn innt hana af hendi. Þar fyrir utan
er lögfræðikostnaður og annar kostnaður
sem Sandgerðisbær hefur lagt í til að verja
sig gegn þessum kröfum á undanförnum ár-
um.
Leggja fram greinargerð
Sandgerðisbær telur að Fasteignamat
ríkisins beri ábyrgð á mistökunum og þeim
afleiðingum sem þær hafa haft á fjárhag
bæjarsjóðs og hefur rætt við stjórnendur
stofnunarinnar. Í fyrradag var málið kynnt
Geir H. Haarde fjármálaráðherra en Fast-
eignamatið heyrir undir ráðuneyti hans.
Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri
segir að mistök í opinberri stjórnsýslu, hjá
Fasteignamati ríkisins, hafi valdið bæjar-
félaginu þessum skaða. Ef eignirnar hefðu
verið rétt metnar á sínum tíma hefði bæj-
arstjórn nýtt sér betur tekjastofna sína til
álagningar gjalda til að ná endum saman. Í
þessu tilviki hafi það ekki verið unnt vegna
mistaka Fasteignamats ríkisins.
Fulltrúar ráðuneytisins óskuðu eftir því
að Sandgerðisbær skilaði inn formlegri
greinargerð um málið og segir Sigurður
Valur að nú sé unnið að henni.
Aðspurður segir hann að ef ríkið viður-
kenni ekki ábyrgð sína á málinu sé ekki um
annað að ræða en að halda áfram og höfða
mál á hendur ríkinu.
Krefjast
bóta vegna
mistaka
Fasteigna-
mats
pebl@mbl.is