Morgunblaðið - 08.11.2003, Qupperneq 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 49
Yokohamamóti
lýkur á sunnudag
Svonefndu Yokohamamóti lýkur á
sunnudag en þar keppa 12 bridspör
um keppnisrétt á bridsmót í Yoko-
hama í Japan eftir áramótin. Parið
sem vinnur mótið fær þennan
keppnisrétt og fær einnig að velja
með sér annað par til fararinnar.
Bjarni Einarsson og Þröstur Ingi-
marsson hafa forustu eftir tvær
fyrstu spilahelgarnar. Spila-
mennska hefst klukkan 10 á sunnu-
dagsmorgun en áætlað er að henni
ljúki klukkan 19:30. Spilað er í hús-
næði Bridssambands Íslands við
Síðumúla og eru áhorfendur vel-
komnir.
Bridskvöld nýliða
Spilað er öll sunnudagskvöld í
Síðumúla 37, 3. hæð, og hefst spila-
mennska kl. 19:30. Allir sem kunna
undirstöðuatriðin í brids eru vel-
komnir.
Umsjónarmaður er Sigurbjörn
Haraldsson og aðstoðar hann við að
finna spilafélaga fyrir þá sem mæta
stakir.
Íslandsmót yngri spilara
í tvímenningi
Íslandsmót yngri spilara í tví-
menningi verður spilað helgina 15.–
16. nóvember. Í flokki yngri spilara
eru þátttakendur fæddir 1. janúar
1979 eða síðar. Þátttaka er ókeypis.
Íslandsmót heldri spilara
Íslandsmót heldri spilara í tví-
menningi verður spilað sömu helgi.
Lágmarksaldur er 50 ár og sam-
anlagður aldur parsins minnst 110
ár.
Bæði mótin eru haldin í Síðumúla
37 og hefst spilamennska kl. 11 báða
dagana. Keppnisstjóri eru Sigur-
björn Haraldsson.
Skráning er hafin í s. 587 9360 eða
www.bridge.is
Bridsfélag eldri borgara
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 28. október var spil-
aður Mitchel-tvímenningur. Spilað
var á tíu borðum. Meðalskor var
216.
Úrslit urðu þessi:
Norður/suður
Þorvarður S. Guðm. – Árni Bjarnas. 234
Guðmundur Guðm. – Friðrik Hermanns 234
Björn Björnsson – Heiðar Þórðarson 230
Austur/vestur
Hermann Valsteinss. – Jón Sævaldss. 254
Jón Gunnarsson – Kristján Þorláksson 251
Þorvaldur Þorgrímss. – Ólafur Gíslas. 228
Föstudaginn 1. nóvember var
spilaður Mitchel tvímenningur. Spil-
að var á 7 borðum og meðalskor var
168.
Úrslit urðu þessi:
Norður/suður
Jón Pálmason – Kristján Ólafsson 196
Árni Bjarnason – Þorvarður S. Guðm. 175
Árni Guðmundsson –Stefán Ólafsson 172
Sveinn Jensson – Jóna Kristinsdóttir 167
Austur/vestur
Einar Sveinsson – Anton Jónsson 194
Hermann Valsteins. – Jón Sævaldsson 185
Guðmundur Árnason –Maddý Guðm. 174
Jón R. Guðmundss. – Kristín Jóhannsd. 171
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Minningarmóti um Borgþór Óm-
ar Pétursson lauk mánudaginn 3.
nóvember, en þá var síðasta lota
mótsins spiluð.
Úrslit urðu þannig:
Hafþór Kristjánss. – Óli B. Gunnarss. 77
Páll Hjaltason – Sigurður Sigurjónsson 72
Dröfn Guðmundsd. – Hrund Einarsd. 35
Atli Hjartarson – Sverrir Jónsson 32
Haukur Árnason – Sveinbjörg Harðard. 28
Þegar allar loturnar hafa verið
reiknaðar með sömu meðalskor,
252, eru heildarúrslitin þannig:
Atli Hjartarson – Sverrir Jónsson 858
Halldór Þórólfsson – Hulda Hjálmarsd. 829
Páll Hjaltason – Sigurður Sigurjónss. 825
Hlöðver Tómass. – Sigurður Tómass. 820
Sigurjón Harðars. – Kristín E. Þórar. 792
Verðlaun í mótinu verða afhent
næsta spilakvöld, en mótið var
styrkt af Sælgætisverksmiðjunni
Góa-Linda.
Næsta keppni félagsins verður
A.-Hansen mótið, sem hefst mánu-
daginn 10. nóvember. Þetta verður
þriggja kvölda tvímenningsmót og
spilað með Mitchell sniði, þar sem
slönguraðað verður eftir hvert
kvöld. Mót þetta er styrkt af Veit-
ingahúsinu A.-Hansen.
Spilað er í Flatahrauni 3 og hefst
spilamennska kl. 19:30.
Bridsfélag Reykjavíkur
Nú er lokið 2 kvöldum af 4 í hrað-
sveitakeppni BR og er staða efstu
sveita þannig:
Sævar Þorbjörnsson 1362
Grant Thornton 1309
Júlíus Sigurjónsson 1287
Þrír Frakkar 1259
Bridsfélag Reykjavíkur spilar
eins kvölds tvímenning á föstudags-
kvöldum og er aðstoðað við myndun
para á staðnum. Á þriðjudögum eru
lengri keppnir. Spilað er í húsnæði
Bridssambands Íslands í Síðumúla
37.
Stefán og Þórólfur
leiða fyrir norðan
Annarri umferð af fjórum er lokið
í Aðaltvímenningi Bridsfélags Ak-
ureyrar. Sextán pör taka þátt. Stað-
an í mótinu eftir tvær umferðir af
fjórum:
Stefán G. Stefánsson – Þórólfur Jónass. 66
Björn Þorláksson - Stefán Ragnarsson 46
Haukur Harðarson – Haukur Jónsson 38
Pétur Örn Guðj. – Grettir Frímannss. 31
Gissur Jónasson – Hjalti Bergmann 26
Úrslit úr annarri umferð:
Stefán G Stefánsson – Þórólfur Jónass. 44
Haukur Harðarson – Haukur Jónasson 40
Reynir Helgason – Stefán Sveinbjörnss. 20
Pétur Örn Guðj. – Grettir Frímannss. 19
Spilað er á þriðjudags- og sunnu-
dagskvöldum í Félagsheimilinu
Hamri klukkan 19.30. Á þriðjudags-
kvöldum eru forgefin spil og keppn-
isstjóri er á staðnum.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Það mættu 18 pör til keppni
þriðjudaginn 28. október og úrslitin
urðu þessi í N/S:
Eysteinn Einarss. – Magnús Halldórss. 257
Jón Stefánsson – Þorsteinn Laufdal 256
Einar Einarsson – Hörður Davíðsson 229
A/V:
Guðm. Magnússon – Magnús Guðmsson 258
Garðar Sigurðsson – Haukur Ísaksson 237
Jóhann Lúthersson – Ólafur Ingvarsson 229
Sl. föstudag mættu 22 pör og þá
skoruðu eftirtalin pör mest í N/S:
Júlíus Guðmsson – Óskar Karlsson 236
Helga Helgadóttir – Sigrún Pálsdóttir 236
Vilhj. Sigurðsson – Þórður Jörundsson 234
A/V:
Halla Ólafsdóttir – Jón Lárusson 268
Auðunn Guðmsson – Bragi Björnsson 264
Eysteinn Einarss. – Magnús Halldórss. 247
Meðalskor báða dagana var 216.
Guðjón efstur í Gullsmára
Tíunda og ellefta umferð í sveita-
keppni bridsdeildar FEBK, Gull-
smára, vóru spilaðar sl. mánudag.
Ellefta og síðasta umferð keppninn-
ar verður spiluð fimmtudaginn 6.
nóvember kl. 12.45 á hádegi. Eftir
tíu umferðir er staðan þessi.
Sveit Guðjóns Ottóssonar 185
Sveit Þorgerðar Sigurgeirsdóttur 175
Sveit Einars Markússonar 172
Sveit Sigurðar Björnssonar 162
Sveit Ara Þórðarsonar 159
Tvímenningur verður spilaður
mánudaginn 10. nóvember.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
ANNAR sunnudagur í nóvember
hefur um árabil verið helgaður
kristniboði. Fimmtíu ár eru nú liðin
frá því Samband íslenskra kristni-
boðsfélaga, SÍK, sendi fyrstu ís-
lensku kristniboðana til starfa í
Eþíópíu og 25 ár frá því þeir hófu
störf í Kenýa. Starf SÍK kostar í ár
um 30 milljónir króna og er meiri-
hluta fjárins varið í verkefnin ytra
en innanlandsstarfið kostar kringum
7 milljónir.
Skúli Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri SÍK, segir starfið að
mestu kostað af framlögum vel-
unnara og svo hafi verið allt frá upp-
hafi. „Fjölmargir einstaklingar um
land allt styðja kristniboðið fjár-
hagslega og þeir hafa borið starfið
uppi gegnum árin. Með því hefur
verið unnt að senda kristniboða til
starfa og styðja kirkjurnar í Eþíópíu
og Kenýa til að byggja upp söfnuði
sína. Nú eru þær löngu orðnar sjálf-
stæðar kirkjur en við styðjum áfram
fjárhagslega einstök verkefni og
fyrstu áratugina lögðum við mikla
áherslu á að byggja upp skóla enda
skiptir það sköpum til að bæta lífs-
kjör og aðbúnað fólksins,“ segir
Skúli, sem sjálfur starfaði um árabil
í báðum löndunum. Hann segir að
kostnaður kirkjunnar við starfið í
báðum löndunum sé mikill og sívax-
andi þar sem útbreiðslan sé hröð og
því styðji Íslendingar áfram við þær
fjárhagslega.
„Aðalverkefni kristniboðsins er
samt alltaf að boða fagnaðarerindið
og eftir því sem kirkjurnar eflast
sækjum við fram á nýja staði og nýir
söfnuðir eru stofnaðir,“ segir hann. Í
Eþíópíu hófst starfið í Konsó-héraði
og eru nú 93 söfnuðir og um 35 þús-
und manns í kirkjunni þar. Í landinu
öllu tilheyra um fjórar milljónir
manna lúthersku kirkjunni. Inn-
lendir starfsmenn hafa að mestu
tekið við skóla-, hjúkrunar- og þró-
unarverkefnum sem kristniboðarnir
byrjuðu með og Skúli segir svipað
uppi á teningnum í Kenýa. Þar er
aðalstarfssvæðið í Pókot-héraði og
150 söfnuðir hafa verið stofnaðir.
Sex kristniboðar
í Eþíópíu og Kenýu
Sex íslenskir kristniboðar eru nú
að störfum í Eþíópíu og Kenýa.
Skúli segir að þeir sem sinni kristni-
boðsstörfum séu ýmist menntaðir í
guðfræði, kennslu, iðngreinum og
heilbrigðisfögum og að öll menntun
á þessum sviðum nýtist vel. Sumir
sinni einkum predikun og kirkjulegu
starfi, svo sem þjálfun leiðtoga, aðrir
heilsugæslu og þróunarverkefnum
og enn aðrir séu ráðgjafar í margs
konar tæknilegri uppbyggingu sem
kirkjulegt starf krefjist.
Í tilefni kristniboðsdagsins verður
hátíðarsamkoma í húsi KFUM og K
við Holtaveg í Reykjavík klukkan 17
á sunnudag. Þá verður kristniboðs-
ins minnst við guðsþjónustur í
kirkjum landsins og hefur Karl Sig-
urbjörnsson biskup hvatt presta til
að taka upp málefni hinnar boðandi
kirkju. Á samkomunni á morgun
mun ungt fólk frá kirkjunni í Kenýa
tala, Ómar Ragnarsson fréttamaður
segir frá ferð sinni og eiginkonu
sinnar, Helgu Jóhannsdóttur, til
Eþíópíu og Kangakvartettinn syng-
ur. Að samkomu lokinni gefst gest-
um tækifæri til að smakka eþíópsk-
an mat. Þá verða samkomur í
félagsheimili KFUM og K á Ak-
ureyri að kvöldi laugardags og
sunnudags. Tekið verður við fram-
lögum til stuðnings starfinu á sam-
komum kristniboðsdagsins.
Kristniboðsstarfsins verður minnst í kirkjum og á samkomum á morgun.
Árlegur kristniboðsdagur á sunnudag
Kostnaður við
starfið um 30
milljónir á árinu
LJÓSMYNDAKEPPNI Sjómanna-
blaðsins Víkings er nú haldin í annað
sinn. Fimmtán þeirra mynda sem
tóku þátt í keppninni í fyrra voru síð-
an sendar í norræna ljósmynda-
keppni sjómanna sem Víkingurinn
er orðinn aðili að og fram fór í Osló.
Ísland hefur ekki tekið þátt í þessari
norrænu keppni fyrr en nú og er nor-
ræni hluti keppninnar í samstarfi við
flugfélagið Iceland Express.
Keppnisreglur eru þær að allar
myndir þurfa að vera teknar af sjó-
mönnum. Myndefnið má vera hvort
heldur sem er myndir teknar um
borð eða í landi í landlegum. Senda
má inn myndir í hvaða formi sem er,
á pappír, litskyggnu eða á stafrænu
formi. Myndir skulu sendar blaðinu,
merktar: Ljósmyndakeppni Sjó-
mannablaðsins Víkings, Borgartúni
18, 105 Reykjavík. Skilafrestur er til
20. nóvember. Þá er hægt að senda
myndir á tölvutæku formi á iceship-
@hn.is merkt Ljósmyndakeppni.
Ljósmyndakeppni
sjómanna
ÚT er komið skákspilið Hrókurinn,
tafl með tilbrigðum, í samvinnu Ís-
aldar og Skákfélagsins Hróksins. Í
Hróknum geta allt að fjórir teflt
skák í einu. Í spilinu eru fjórir leikir:
Hrókurinn, Skákhrókurinn, Minnis-
hrókurinn og hefðbundin skák. Í
dag, laugardag kl. 13–17, munu liðs-
menn Hróksins kynna spilið í versl-
unum Hagkaupa í Smáralind og
Kringlunni. Þar verða m.a. Ivan
Sokolov og skákdrottningin Regina
Pokorna. Gestum og gangandi verð-
ur boðið að reyna sig í spilinu.
Af hverju seldu spili renna 300 kr.
í barnastarfs Hróksins, segir í
fréttatilkynningu.
Skákspilið
Hrókurinn
STJÓRN Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur
sent frá sér ályktun þar sem því er
fagnað að Listahátíð verði haldin í
Reykjavík árlega frá árinu 2005, en
greint var frá því í vikunni.
„Heimdallur harmar hins vegar að
sú ákvörðun skuli bitna á skattgreið-
endum og útsvarsgreiðendum, en
ríkisstjórn og borgarráð hafa sam-
þykkt hærri framlög til hátíðarinnar
í tengslum við þessa breytingu. Ríki
og borg eiga að treysta einstakling-
um og fyrirtækjum fyrir því að halda
og greiða fyrir listahátíðir sem og
aðra menningarviðburði. Heimdall-
ur hvetur því ríkisvaldið og Reykja-
víkurborg til að sleppa takinu af
Listahátíðinni og leyfa henni að
blómstra án afskipta hins opinbera.“
Heimdallur
Listahátíð bitni
ekki á skatt-
greiðendum