Morgunblaðið - 08.11.2003, Síða 58
ÍÞRÓTTIR
58 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EIÐUR Smári Guðjohnsen, fyrirliði
íslenska landsliðsins í knattspyrnu,
segir mjög óvíst hvort hann verði
með í vináttulandsleiknum við
Mexíkó sem fram fer í Kaliforníu í
Bandaríkjunum 19. þessa mánaðar.
Eiður sagði við Morgunblaðið í gær
að forráðamenn Chelsea hefðu sett
sig á móti því að hann færi í leikinn
og eftir spjall Eiðs við Claudio
Ranieri í gær kom það skýrt í ljós
að knattspyrnustjórinn vill ekki að
Eiður fari umrædda ferð til San
Francisco.
„Ég er ekki í góðri stöðu hvað
þetta varðar. Ég er fyrirliði lands-
liðsins og ég lít á það sem mikinn
heiður að leika fyrir mína þjóð. Það
er hins vegar slæm tímasetning á
leiknum við Mexíkó. Þetta er langt
og strangt ferðalag og við sem leik-
um á Englandi verðum ekki komnir
til æfinga hjá okkar liðum fyrr en á
föstudag, degi fyrir leik og það er
eitthvað sem forráðamenn Chelsea
eru ekki sáttir við. Ég veit ekki
hvernig þetta endar en satt best að
segja þá er þetta erfitt fyrir mig,
bæði gagnvart landsliðinu og
Chelsea sem er minn vinnuveitandi
og greiðir mér laun,“ sagði Eiður
Smári.
Það ætlar því að reynast harðsótt
fyrir landsliðsþjálfarana Ásgeir
Sigurvinsson og Loga Ólafsson að
fá sitt sterkasta lið í Kaliforníuferð-
ina. Ensku félögin Charlton og
Reading eru heldur ekki áfjáð í að
Hermann Hreiðarsson og Ívar Ingi-
marsson taki þátt í henni.
Chelsea vill ekki að Eiður
spili gegn Mexíkó
öruggur með að halda sæti sínu í lið-
inu sama hvað þú gerir í leiknum á
undan?
„Jú, auðvitað. Maður æfir alla vik-
una til að vera tilbúinn á laugardegi
og ef maður er kannski ekki í hópn-
um þá molnar hjartað í manni. Þá er
mikilvægt að geta hallað sér að fjöl-
skyldunni þegar heim kemur og láta
hana koma jákvæðninni inn í mann
aftur. Við vissum það hins vegar allir
að við ættum ekki sæti víst í liðinu
leik eftir leik þar sem hópurinn er
það stór. En það er bara spennandi
að taka þátt í þessu og það sem mað-
ur hefur reynt að gera er að nýta
hvert einasta tækifæri sem maður
fær. Leikurinn á móti Lazio í Róm
var mjög jákvæður fyrir mig. Ég
kom inná með hörkukraft og tókst að
skora og eiga þátt í öðru marki.“
Þú segir í blaðaviðtali á Englandi
að þú hafir haft áhyggjur af stöðu
þinni í sumar þegar Crespo og Mutu
voru keyptir en faðir þinn hafi talið
þig á að vera áfram hjá Chelsea og
berjast fyrir sæti þínu.
„Það kom auðvitað upp spurninga-
merki í sumar og mikil óvissa hjá öll-
um leikmönnum liðsins. Ég spurði
mig þeirrar spurningar þegar ljóst
var að Mutu og Crespo væru að
koma hvort nota ætti mig eitthvað
meira og hvað væri í gangi. En eftir
að þetta byrjaði að mótast þá sá ég
að ég átti fullt erindi í liðið. Ég var í
sambandi við pabba daglega og hann
stappaði í mig stálinu og hvatti mig
til að sýna þolinmæði og sýna hvað í
Lið Chelsea hefur byrjað leiktíð-ina ákfalega vel en þetta stjörn-
um prýdda lið situr í öðru sæti ensku
úrvalsdeildinnar og
eftir glæsilegan sig-
ur á Lazio í Róm í
Meistaradeildinni í
vikunni er liðið á
toppi síns riðils. Sjálfur David Beck-
ham lét hafa eftir sér að með sigr-
inum í Róm hefði Chelsea sent að-
vörun til annarra liða í Meistara-
deildinni.
Eruð þið ekki búnir að sýna og
sanna að þið hafið alla burði til að
fara langt og jafnvel vinna titla í vet-
ur?
„Við höfum farið vel af stað. Fyrir
tímabilið var spurningamerki hvern-
ig þetta myndi ganga með alla þessa
nýju leikmenn og hvernig menn
myndu taka samkeppninni. Ég held
að við höfum sýnt með þessari byrj-
un að það sem við höfum gert hefur
heppnast vel. Það virðast allir vera
jákvæðir innan hópsins og að vinna í
sömu átt. Sigurinn á móti Lazio hef-
ur vakið mikla athygli enda ekki
mörg lið sem fara til Ítalíu og vinna
þar, 4:0. Ég held að úrslitin þar hafi
undirstrikað að við höfum lið sem
getur barist um titlana.“
Eiður segir að Claudio Ranieri
knattspyrnustjóri Chelsea hafi tek-
ist að halda öllum ánægðum. Hann
hefur hrært mikið í liðinu milli leikja
sem hefur þýtt að allir í hópnum eru
í góðu leikformi og ávallt tilbúnir ef
kallið kemur.
Menn hafa greint léttleikann í
hópnum en ert þú ekkert hræddur
um að einhver óeining geti skapast í
hópnum ef þið verðið fyrir mótlæti?
„Nei, við verðum bara að læra að
taka því og vinna með mótlætið ef
það kemur upp. Ég er alveg sann-
færður um að ef við lendum í mótlæti
þá þjöppum við okkur bara betur
saman. Við gerum okkur alveg grein
fyrir því að við förum ekki í gegnum
allt tímabilið án þess að einhverjir
hnökrar verði á, og við vinnum ekki
alla leiki. Ef eitthvað slær í baksegl-
in þá verðum við bara að vera fljótir
að rífa okkur upp líkt og við gerðum
eftir ósigurinn á móti Besiktas.“
Ef þú talar frá hjartanu, er ekki
svolítið pirrandi að geta aldrei verið
mér býr. Ég hef farið eftir orðum
hans enda pabbi gífurlega reyndur á
þessu sviði.“
Nú eru þið fjórir framherjarnir að
berjast um tvær stöður í liðinu. Hvar
í goggunarröðinni finnst þér þú vera
eða finnst þér Ranieri líta á ykkur
sem jafningja?
„Mér sýnist að Ranieri líti svo á að
við séum jafningjar og hann velji þá
tvo eftir því hver mótherjinn er
hverju sinni. Hann hefur róterað
okkur töluvert. Ég held að það sé
engin sérstök forgangsröð hjá hon-
um hvað þetta varðar. Við erum ólík-
ir leikmenn og Ranieri hefur valið þá
tvo sem henta leikstíl liðsins hverju
sinni. Við höfum allir náð að skora
nokkur mörk á tímabilinu og í nú-
tímafótbolta þarf lið sem ætlar sér
að ná langt að hafa fjóra góða fram-
herja.“
Nú hafa oft og iðulega komið frétt-
ir í ensku pressunni um að þú kunnir
hugsanlega að vera á förum þegar
opnað verður fyrir félagaskipti í jan-
úar. Hvað segir þú um þessar frétt-
ir?
„Ég ætla að enda þessa umræðu
hér og nú. Ég er ekkert á förum frá
Chelsea nema að einfaldlega komi
upp sú staða að þeir vilji selja mig og
að þeir segi við mig að ég eigi ekki
eftir að spila neitt meira með liðinu.
Ég vil alls ekki fara enda ákaflega
sáttur við allt sem snýr að mér og fé-
laginu. Maður veit aldrei hvort ein-
hverjar breytingar verða á hópnum
og að keyptir verði nýir menn en ég
hef ekki heyrt að neinn sé á förum.“
Það stefnir í baráttu ykkar við
Arsenal og Manchester United um
enska meistaratitilinn. Hvort lítur
þú á Arsenal eða United sem meiri
keppinaut?
„Það er erfitt að segja. Þetta eru
tvö frábær lið. Manchester United
hefur verið ákaflega sigursælt mörg
undanfarin ár og leikmenn liðsins
hafa reynsluna af að vinna titla. Ég
met þó stöðuna að Arsenal og Man-
chester United séu jafnhættulegir
mótherjar og erfitt að segja til um
hvort liðið sé sterkara. Mér finnst
sjálfum sáralítill munur á milli
Chelsea, Arsenal og United og ég
held að úrslitin ráðist ekki fyrr en á
lokasprettinum. Aðalatriðið fyrir
okkur er að taka hvern leik fyrir sig
og reyna að ná í öll þau stig sem eru í
boði og passa okkur á því að verða
ekki það lið sem gefur eftir.“
Nú eigið þið leik á móti Newcastle
á sunnudag (á morgun). Þér hefur
gengið vel gegn þeim röndóttu. Þú
skoraðir tvö gegn þeim á Stamford
Bridge á síðustu leiktíð og tvö á St.
James’s Park fyrir tveimur árum.
Ætlar þú að halda uppteknum
hætti?
„Ég vona það en aðalatriðið er
hvort ég verð í byrjunarliðinu eða
ekki. Ranieri er ekki búinn að til-
kynna liðið og hann hefur nánast
alltaf þann háttinn á að halda mönn-
um í spennu og tilkynna ekki liðið
fyrr en klukkutíma fyrir leik. Ég
verð klár ef kallið kemur.“
AP
Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði landsliðsins í knattspyrnu, á hér í baráttu við Giuseppe Favalli,
leikmann Lazio, í Meistaradeild Evrópu – þegar Chelsea vann, 4:0.
Eiður Smári fór að ráðum föður síns
og berst fyrir sæti sínu í liði Chelsea
„Ég
vil alls
ekki
fara frá Chelsea“
EIÐUR Smári Guðjohnsen er mjög sáttur við stöðu sína hjá enska
úrvalsdeildarliðinu Chelsea og þó samkeppnin um sæti í byrjunar-
liðinu sé gríðarlega hörð þá er engan bilbug að finna á íslenska
landsliðsfyrirliðanum. Hann ætlar að berjast til þrautar og segist
ekki ætla að fara fet frá félaginu nema honum verði einfaldlega
settur stóllinn fyrir dyrnar. Morgunblaðið sló á þráðinn til Eiðs
Smára í gær er hann var rétt kominn af æfingu á æfingasvæði
Chelsea-liðsins en liðið mætir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á
Stamford Bridge á morgun.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar