Morgunblaðið - 08.11.2003, Síða 59
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 59
ELFA Björk Erlingsdóttir og Rakel Logadóttir
standa sig vel í bandarísku háskóladeildinni, suður-
deild, í knattspyrnu. Þær voru í vikunni valdar í lið
ársins í deildinni.
Elfa Björk, sem lék með Stjörnunni hér heima,
leikur með liði Chattanooga Tennesee háskólans og
er þetta annað skólaárið hennar. Valsstúlkan Rakel
er hins vegar á þriðja ári með liði Greensboro North
Carolina háskólans. Báðar leika þær lykilhlutverk á
miðju sinna liða og hefur gegnið mjög vel í vetur.
Elfa Björk og félagar leika í fyrsta sinn í sögu
skólans í úrslitakeppni SonCon deildarinnar, lögðu
ETSU í fyrrinótt, 3:1 – og skoraði Elfa Björg eitt
marka liðsins. Með sigrinum komst liðið í undan-
úrslit.
J.D. Kyzer, þjálfari Elfu Bjarkar, var valinn besti
þjálfari deildarinnar. Rakel var sú eina úr sínu liði
sem komst í úrvalsliðið, en ein stúlka auk Elfu
Bjarkar er úr Chattanooga skólanum. Flestar koma
úr Fuman, eða sex stúlkur.
Rakel og Elfa Björk
í lið ársins
Það fór vel á með þeim Elfu Björk og Rakel
eftir leik liða þeirra á dögunum.
LOGI Gunnarsson, körfuknattleiks-
maður með þýska úrvalsdeildarlið-
inu Giessen, verður frá keppni og
æfingum næstu vikurnar en Logi
fór úr axlarlið á æfingu liðsins.
Logi segir á heimasíðu Njarðvíkur
að í fyrstu hafi litið út fyrir að hann
yrði frá allt fram að áramótum en
svo hafi ekki reynst vera. Logi lék í
fyrsta sinn í byrjunarliði Giessen í
síðasta leik liðsins, þar sem að aðal-
leikstjórnandi liðsins er meiddur,
en liðið lék gegn Bamberg í gær og
segir Logi að meiðslin komi á slæm-
um tíma þar sem að fyrirséð væri
að hann hefði fengið fleiri tækifæri
í næstu leikjum liðsins. Logi lék
með Ulm í þýsku 2. deildinni í fyrra
en hann lék áður með liði Njarðvík-
ur.
Logi fór úr
axlarlið
BRÆÐURNIR Brian og Michael
Laudrup, fyrrverandi landsliðsmenn
Dana í knattspyrnu, verða á ferðinni
með Lyngby er liðið mætir AGF í
tveimur stórleikjum í knattspyrnu
eldri leikmanna í Danmörku. Liðin
leika um Danmerkurmeistaratitlinn
í Lyngby í Kaupmannahöfn í dag og
á miðvikudaginn mætast liðin í úr-
slitaleik bikarkeppninnar í Árósum.
LYNGBY teflir fram fjórum Evr-
ópumeisturum frá 1992 – Claus
Christiansen, Torben Piechnik,
Henrik Larsen og Brian.
PETER Enckelman markvörður
hefur verið lánaður frá Aston Villa
til Blackburn. Hann verður Brad
Friedel til halds og trausts næsta
mánuðinn en Friedel er eini mark-
vörður Blackburn um þessar mundir
sem ekki er meiddur.
BLACKBURN fékk sérstaka und-
anþágu hjá stjórn enska knatt-
spyrnusambandsins til þess að fá
Enckelman til liðs við sig utan leyfi-
legs félagsskiptatíma vegna neyðar
hjá félaginu. Wolves fékk einnig
undanþágu í gær til að fá markvörð á
leigu næsta mánuðinn vegna meiðsla
markvarða félagsins.
DICK Advocaat, landsliðsþjálfari
Hollendinga í knattspyrnu, segist
ætla að halda fast við stefnu sína að
hafa Ruud van Nistelrooy ekki í
byrjunarliðinu gegn Skotum í und-
ankeppni EM. Advocaat segir að
skoðun sín á því að Patrick Kluivert
og van Nistelrooy geti ekki leikið
saman í fremstu víglínu hafi ekkert
breyst. Það vekur athygli að Clar-
ence Seedorf er í hópi Advocaat
vegna leikjanna við Skota en See-
dorf hefur ekki verið í landsliðinu
síðan í sumar að hann lenti upp á
kant við landsliðsþjálfarann.
REAL Madrid ætlar ekki að
greiða rúmlega jafnvirði um rúmlega
800 milljóna króna sem Alþjóða-
knattspyrnusambandið, FIFA, úr-
skurðaði að félagið skyldi greiða Int-
ernationale til viðbótar vegna kaupa
spænska félagsins á Brasilíumann-
inum Ronaldo fyrir rúmu ári. Hafa
forráðamenn Real Madrid sent
FIFA skriflegan rökstuðning fyrir
ákvörðun sinni og tekur FIFA málið
fyrir á fundi sem fram fer í Frank-
furt 4. desember.
FIFA úrskurðaði í vikunni að Real
Madrid skyldi greiða rúmlega 800
millj. króna vegna kaupanna á Ron-
aldo. Ástæðan er sú að auk nærri
jafnvirði fjögurra milljarða króna
setti Real miðvallarleikmanninn
Santiago Solari upp í kaupin sem
hluta af kaupverði. Þegar til átti að
taka neitaði Solari að flytja til Ítalíu.
Af þeim sökum telja forráðamenn
ítalska liðsins að þeir eigi inni hjá
Real Madrid sem nemur söluverði
Solaris.
FÓLK
Undanfarin ár hafa komið uppvandamál við flatir á ýmsum
golfvöllum hér á landi. Þannig berj-
ast Oddsmenn við
skemmdar flatir á
nýrri helmingi vallar
síns. Eldri flatirnar
hjá Keili voru slæm-
ar í fyrravor og í sumar voru flat-
irnar á Akureyri ekki upp á það
besta. Ástæður þess að flatir á einum
velli eru með besta móti á meðan
flatir á næsta velli við hliðna eru nær
ónýtar, eru margvíslegar. Einn
helsti vágesturinn er sveppasýking
sem fusairium-sveppurinn veldur í
flötunum. Hann lifir og dafnar þar
sem rakinn er mikill og lítið súrefni.
Slíkar aðstæður myndast í flötum á
haustin og því þarf að bregðast við
með því að lofta betur um flatirnar
og reyna að halda þeim eins þurrum
og hægt er.
Sveppur þessi þekktist vart hér á
golfvöllum fyrir nokkrum árum en
með breyttu veðurfari hefur hann
hreiðrað um sig hér. Edwin Rögn-
valdsson golfvallahönnuður segir að
sveppur þessi sé þekktur í Bretlandi
og nú sé veðurfarið hér á haustin að
verða svipað og í Skotlandi.
„Við breyttu veðurfari verður að
bregðast og menn verða að aðlaga
sig þeim breytingum sem verða við
þetta á gróðri. Sveppurinn leggst á
ákveðna tegund grass og þá tegund
notum við mikið í flatir hér á landi,
en það er ákveðin blanda af túnvingli
og língresi,“ segir Edwin.
Eldri vellir hér á landi eru með
flatir sem byggðar eru með efni sem
var á staðnum og trúlega er of mikil
mold í því efni en moldin heldur vel í
sér raka og því grasserar sveppurinn
þar. Það er dýrt að gera golfvelli og
því er freistandi að reyna að ná
kostnaði niður með því að nota efni
sem er nærri byggingarstaðnum.
Það er hins vegar ekki víst að það sé
það efni sem ákjósanlegast er í flat-
irnar og hætt við að sparnaðurinn
komi þá fyrir lítið þegar upp er stað-
ið.
Ólafur Þór Ágústsson, vallarstjóri
hjá Keili, brást við strax og búið var
að greina sveppasýkinguna hjá
klúbbnum í fyrravor. Árangurinn
var góður og flatirnar hjá Keili í
sumar voru fínar. Ólafur Þór segir
nauðsynlegt að bregðast við breyt-
ingum í veðurfari. „Það er auðvitað
ánægjulegt að íslenskir kylfingar
geti leikið sem lengst hér heima, en
því fylgja líka vandamál sem við
verðum að bregðast við. Vandamálin
breytast stöðugt og nú er komin
stétt manna sem lifa og hrærast í því
að halda grasinu á golfvöllunum og
fótboltavöllunum sem bestu. Þessi
hópur hefur mikil samskipti þannig
að við erum ekki að finna upp hjólið í
hvert sinn sem vandi steðjar að hjá
einhverjum klúbbi,“ segir vallar-
stjórinn.
Hann bendir einnig á gríðarlegt
álag á íslenskum golfvöllum. „Ef ég
tek völlinn hjá okkur sem dæmi þá er
verið að leika 35–40.000 hringi á hon-
um á ári og það er með því mesta
sem sést á heilsársvöllum úti í Evr-
ópu. Tímabilið er stutt og menn taka
það með trompi, hér er leikið yfir
sumarið frá klukkan sex á morgnana
og fram til klukkan tvö á nóttunni,“
segir Ólafur Þór og bendir einnig á
að með meiri hlýindum að hausti
lengist tímabilið enn frekar og um
leið álagið.
„En það er fleira sem getur komið
til. Íslendingar ferðast víða og spila
golf. Sveppir af erlendum golfvöllum
koma með golftækjum manna, skóm
og kylfum, og setjast hér að. Með
breyttu veðurfari verður lífvænlegra
fyrir sveppinn og hann gerir okkur
lífið leitt. Smitleiðirnar, ef svo má
segja, eru margar,“ segir Ólafur Þór.
Hann benti jafnframt á að þetta
væru nokkuð flókin fræði og ef vel
ætti að vera þyrfti að koma hér upp
tilraunaflötum þar sem menn gætu
prófað ýmislegt sem viðkemur flöt-
um. „Það er bara svo dýrt að koma
slíku upp og ég sé ekki að einstak-
lingar eða klúbbar geti gert þetta,
enda liggur við að það þyrfti að ráða
mann í fullt starf til að huga að
þessu. Ætli væri ekki best að Golf-
sambandið sæi um að koma upp og
reka svona tilraunaflöt. Það er eig-
inlega synd að við skulum ekki vera
með slíkt hér á landi,“ sagði Ólafur
Þór.
Hlýrri haust
auka vanda í flöt-
um á golfvöllum
KYLFINGAR hafa undanfarin haust getað leikið lengur á sumar-
flötum á golfvöllum landsins en oft áður. Ástæðan er fyrst og fremst
hlýrra veður en áður og yfir því gleðjast kylfingar en hlýrri haust
þýða líka aukna vinnu við flatirnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flatirnar geta verið slæmar hér á landi. Átjánda flötin í Grafarholtinu var þó góð í sumar.
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson
Jack
kominn
til Raith
MATHIAS Jack, þýski
knattspyrnumaðurinn sem
lék með Grindavík síðari
hluta sumars, er genginn
til liðs við skoska 1. deild-
ar félagið Raith Rovers.
Jack kannast við sig í
Skotlandi því hann lék þar
í nokkur ár í úrvalsdeild-
inni með Hibernian áður
en hann kom til Grinda-
víkur. Þar á undan lék
hann m.a. með Bochum í
Þýskalandi. Jack er 34 ára
og spilaði 8 leiki með
Grindavík í síðari umferð
Íslandsmótsins.