Morgunblaðið - 08.11.2003, Side 67
ALÞJÓÐLEGA leiksýningin
CommonNonsense var frumsýnd á
Nýja sviði Borgarleikhússins á
fimmtudagskvöld. Valur Freyr Ein-
arsson leikur í sýningunni ásamt
Stephen Harper, Ástu Sighvats og
Ásgerði Júníusdóttur. Verkið er
byggt á list eftir Ilmi Maríu Stef-
ánsdóttur og er mikið sprell.
Hvernig hefurðu það?
Ég er bara nokkuð góður.
Hvað ertu með í vösunum?
Lykla, snúð og 125 kall.
Uppvaskið eða skræla kartöflur?
Skræla, við gerum það svo sjald-
an.
Hefurðu tárast í bíói?
Já, já oft.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir
sem þú fórst á?
Purrkur Pilnikk á Melavellinum held
ég.
Ef þú værir ekki leikari hvað
vildirðu þá vera?
Z (ég talsetti hann á ís-
lensku).
Hvaða leikari fer mest í
taugarnar á þér?
Dálkahöfundurinn í Sex
and the City, ég man ekki
hvað hún heitir.
Hver er þinn helsti
veikleiki?
Ökklinn um
þessar
mundir, ég
datt niður
stiga.
Finndu
fimm orð
sem lýsa
persónu-
leika þín-
um vel.
Duglegur, þrautseigur, heiðarlegur,
óþolinmóður og sérlega aðlaðandi.
Bítlarnir eða Stones?
Hvorugt.
Humar eða hamborgari?
Humar.
Hver var síðasta bók sem þú last?
Harry Potter 3 fyrir börnin.
Hvaða lag spilarðu áður en þú ferð
út á laugardagskvöldi?
„Let’s get lost“.
Hvaða plötu keyptirðu síð-
ast?
Nick Cave.
Hver er unaðslegasti ilm-
ur sem þú hefur fundið?
Af nýfæddu barni.
Hvert er þitt mesta prakk-
arastrik?
CommonNonsense.
Hver er furðuleg-
asti matur sem
þú hefur borð-
að?
Djúpsteiktir
kakkalakkar.
Trúirðu á líf
eftir dauð-
ann?
Ég get nú
ekki sagt
það.
Djúpsteiktir
kakkalakkar
SOS
SPURT & SVARAÐ
Valur Freyr
Einarsson
Morgunblaðið/Ásdís
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 67
Nýr og betri
Skonrokk FM909
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg
Kvikmynd“
www .regnboginn.is
Hverfisgötu 551 9000
BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.Sýnd kl. 4.30, 6.30, 8.30 og 10.30. B.i. 10 ára.
„Frábær mynd“
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
ÞÞ FBL
Ein magnaðasta heimildarmynd
seinni ára!
ÞÞ FBL
HK DV
SV MBL
Þú deyrð úr hlátri enn og aftur!
Stærsta október opnun allra tíma í USA!
4. myndin frá Quentin Tarantino
TOPP
MYNDIN
Í USA!
Stærsta grínmynd ársins!
Kvikmyndir.com
Yfir 20.000 gestir
Grabben kl. 4 og 10.
Allan Elskar Alice kl. 6.
Tsatsiki kl. 8.
Lejontamjaren kl. 10.
Ondskan kl. 10.
Síð. sýn. lýkur á morgun
ÞAÐ BESTA FRÁ SVÍÞJÓÐ
Allar sýndar með
ísl. texta
TOPP
MYND
IN
Á ÍSL
ANDI
www.laugarasbio.is
Miða
verð
kr. 50
0
Þú deyrð úr hlátri
enn og aftur!
Stærsta október opnun allra tíma í USA!
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
TOPP
MYNDIN
Í USA!
TOPP
MYND
IN
Á ÍSL
ANDI
Stærsta grínmynd ársins!
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal.
OPEN RANGE
DV
Kvikmyndir.com
Stórkostlegur vestri frá Kevin Costner
leikstjóra DANSAR VIÐ ÚLFA
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Frábær grínmynd um strák sem skilinn er eftir heilt
sumar hjá tveimsnarklikkuðum frændum sínum.
Stórleikararnir Michael Caine, Robert Duvall og
Osment úr Sixth Sense fara á kostum.
Frumsýning!
Sýnd kl. 2 og 4.
Forsýning kl. 6.
ENSKT TAL / ÍSLENSKUR TEXTI
Sannleikurinn um Kalla
(The Truth about Charlie)
Spennumynd
Bandaríkin 2003. Skífan VHS/DVD. (99
mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn
Jonathan Demme. Byggt á myndinni
Charade frá 1964. Aðalhlutverk Mark
Wahlberg, Thandie Newton, Tim Robbins.
SUMAR endurgerðir sleppa fyrir
horn. Aðrar eru algjört klúður. Þessi
er klúður. Sem er synd því Demme
(Something Wild,
Silence of the
Lambs) er
ástríðufullur
kvikmyndagerð-
armaður sem
venjulega hefur
mikið fram að
færa. Hér á hann
hins vegar engan
veginn erindi sem erfiði. Stælana
vantar ekki. En framvindan er bara
ein stór steik og ráðlausir leikararnir
ná engan veginn að stilla saman
strengi. Þetta á að vera njósnagáta.
Leyndardómurinn um hver þessi
Kalli eiginlega er, sem er myrtur í
upphafi myndarinnar, en reynist allt
annar en hann gaf sig út fyrir að
vera. Newton leikur eiginkonu hans
nýbakaða. Ringluð og veit ekki í
hvorn fótinn hún á að stíga (bæði
leikkonan og persónan) enda hund-
elt af ókunnugu fólki. Eftir hverja
fléttuna á fætur annarri, þar sem sí-
fellt er verið að reyna að koma manni
á óvart, fer hugurinn að reika annað
og augun á teljarann á myndbands-
tækinu. Ekki bætir úr skák sérdeilis
ósannfærandi frammistaða Marks
blessaðs Wahlbergs í hlutverki dul-
arfulla bjargvættarins með alpahúf-
una – myndin gerist í París skiljiði.
Er það bara ég sem kominn er á þá
skoðun að þessi fyrrverandi nær-
buxnafyrirsæta hefur hvorki þá
hæfileika né persónutöfra sem þarf
til að bera uppi alvöru bíómynd? Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Klúður