Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 307. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Harley er
lífsstíll
Á Íslandi eiga 108 manns Harley
Davidson-mótorhjól Bílar 8
Ný túlkun á
óperunni
Unglingaóperan Dokaðu við
frumsýnd í dag Listir 22
Forvarna-
faraldurinn
Jóhann Á. Sigurðsson segir forvarnir
í of mikilli sókn Daglegt líf 20
RICHARD Armitage, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, vísaði þeirri full-
yrðingu á bug í gær, að með því að finna
lausn á deilu Ísraela og Palestínumanna
yrði hægt að binda endi á þá bylgju
hryðjuverka sem gætir víða um heim um
þessar mundir.
„Það er vert að vekja athygli á því að það
var aðeins nýlega sem Osama bin Laden
og forystumenn al-Qaeda fengu sig yfir-
leitt til þess að nefna orðið Palestínu-
menn,“ sagði Armitage á blaðamannafundi
eftir viðræður í Kaíró við Amr Moussa,
framkvæmdastjóra Arababandalagsins.
„Ég hafna því þeirri hugmynd að lausn á
átökum araba og Ísraela – eins mikilvæg
og hún annars er – myndi verða til þess að
binda endi á hryðjuverkaölduna sem hefur
beinzt gegn Bandaríkjunum, hagsmunum
Vesturlanda og konungdæminu Sádi-Ar-
abíu,“ sagði hann. Hryðjuverkamennirnir
reyndu vissulega að færa sér átökin á her-
numdu svæðunum í nyt en undirrótar
hryðjuverka al-Qaeda-liða væri ekki þar
að leita.
Al-Qaeda
sama um Pal-
estínumenn
Kaíró. AFP.
LANDSSÍMI Íslands hf. skoðar nú
möguleika á að fjárfesta í búlg-
arska ríkissímafyrirtækinu BTC
fyrir yfir 200 milljónir króna.
Stjórn Símans hefur fjallað um
málið og heimilað Brynjólfi Bjarna-
syni forstjóra að halda athugun á
því áfram. Áhugi Símans er tilkom-
inn eftir að Björgólfur Thor Björg-
ólfsson fjárfestir leitaði til fyrir-
tækisins um samstarf, en hann á
aðild að tilboði í kaup á meirihluta í
BTC.
Orri Hauksson, framkvæmda-
stjóri þróunarsviðs Símans, stað-
festir að Síminn hafi fjárfestingu í
BTC til skoðunar. „Síminn er á
hverjum tíma að skoða ótal tæki-
færi,“ segir Orri. „Þetta er áhuga-
vert verkefni á kjarnasviði fyrir-
tækisins ef af verður, bæði sem
fjárfestingarkostur og til að nýta
betur mannauðinn innan Símans. Í
peningum talið yrði þetta þó alltaf
lítil fjárfesting, samanborið við aðr-
ar fjárfestingar Símans.“
Orri segir að Símamenn horfi
m.a. til þess að geta veitt ráðgjöf
við uppbyggingu búlgarska síma-
fyrirtækisins, bæði tæknilega og
hvað almennan rekstur varðar.
„Búlgarski síminn er að mörgu
leyti í ekki ósvipaðri stöðu og
Landssíminn var fyrir svo sem 15
árum. Við sjáum ýmis tækifæri í
því að miðla okkar þekkingu um
hvernig megi byggja upp nútíma-
legt og arðvænlegt símafyrirtæki.“
Orri segir að fulltrúi Símans hafi
farið til Búlgaríu, kynnt sér starf-
semi BTC og rætt við stjórnendur
fyrirtækisins.
Björgólfur Thor
átti frumkvæðið
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins átti Björgólfur Thor
Björgólfsson frumkvæði að því að
fá Símann til samstarfs um fjár-
festingu í BTC. Frá því var greint í
Morgunblaðinu í september að
Carrera, fyrirtæki í eigu Björgólfs
Thors, væri næststærsti fjárfestir-
inn í Viva Ventures, alþjóðlegum
hópi undir forystu bandaríska fjár-
festingarfyrirtækisins Advent Int-
ernational. Hópurinn hefur boðið
yfir 25 milljarða króna í 65% hlut-
inn, sem til sölu er í BTC. Drög að
kaupsamningi við Viva Ventures
liggja fyrir og hafa dómstólar í
Búlgaríu komizt að þeirri niður-
stöðu að stjórnvöldum beri að
standa við samkomulagið sem gert
var við fjárfestahópinn. Pólitískar
deilur í Búlgaríu hafa hins vegar
staðið í vegi fyrir því að málinu sé
formlega lokið.
Síminn skoðar kaup í
búlgarska símanum
Stjórnin heimilar forstjóra að vinna
að yfir 200 milljóna fjárfestingu
MÍKHAÍL Gorbatsjov, síðasti forseti Sov-
étríkjanna, hefur skráð sjálfan sig sem
vörumerki til að koma í veg fyrir að varn-
ingur sé kenndur við
hann án leyfis.
Þetta kemur fram í
danska blaðinu Jyllands-
Posten sem segir að for-
setinn fyrrverandi hafi
fengið sig fullsaddan á
því að nafn hans sé notað
þegar vörur eru settar á
markað, allt frá núðlum
til vodka. Kornið sem
fyllti mælinn var að andlitsmynd af hon-
um var nýlega sett á merkimiða rúss-
nesks vodka, Stolichnaya. Áður hafði
þýskur vodki verið kenndur við hann.
Sjálfum þykir honum sá heiður vafasam-
ur, enda stóð hann fyrir herferð gegn
áfengisdrykkju í Sovétríkjunum og mikl-
um verðhækkunum á vodka þegar hann
var forseti.
Gorbatsjov
skráir sig sem
vörumerki
Gorbatsjov
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra fagnar
ásamt starfsbræðrum sínum, Ernst Walch frá Licht-
enstein og Jan Petersen frá Noregi, eftir að búið
var að undirrita samninginn í gær.
Reuters
Fagnað í Vaduz
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segist hafa minnkandi trú á
að Evrópusambandið fallist á end-
urnýjun EES-samningsins. ESB
hafi hafnað henni á sínum tíma, en
lofað að gera það þegar stækkunar-
samningurinn væri í höfn, „[…] en
nú er hljóðið í þeim farið að breytast
og ég hef minnkandi trú á því að það
verði að veruleika, þannig að við
verðum að búa við samninginn eins
og hann er.“ Þetta kom fram í sam-
tali Morgunblaðsins við Halldór í
gær að aflokinni undirritun samn-
ingsins um stækkun Evrópska efna-
hagssvæðisins sem fram fór í Vaduz í
Liechtenstein í gær.
Halldór segist nú telja mikilvæg-
ast að öll ný aðildarríki ESB stað-
festi stækkun EES á réttum tíma.
Verðum að
búa við
EES án
breytinga
Vaduz. Morgunblaðið.
Mikilvægast/4
ÖRYGGISMÚRINN, sem
Ísraelar eru nú að reisa, mun
valda miklum truflunum á lífi
nær þriðja hvers Palestínu-
manns á Vesturbakkanum og
auk þess munu um 14,5% af
svæðinu verða Ísraelsmegin
við múrinn. Þetta kemur fram
í nýrri skýrslu stofnunar
Sameinuðu þjóðanna er ann-
ast samræmingu hjálpar-
starfs, OCHA. Að sögn
fréttavefjar BBC fullyrða
stjórnvöld í Ísrael að stað-
reyndavillur séu í skýrslunni.
Búið er að reisa um 150
kílómetra af múrnum en hann
á að verða nær 700 kílómetrar
að lengd. Að sögn SÞ eru að-
eins um 11% af mannvirkinu á
mörkum Ísraels og svæða
Palestínumanna, „Grænu lín-
unni“. Megnið af múrnum er
inni á palestínsku landi, allt að
22 kílómetra frá Grænu lín-
unni. Múrinn verður látinn
sveigja inn á palestínskt land
til að vernda byggðir land-
tökumanna gyðinga.
„Á umræddu landsvæði,
sem að hluta til er eitthvert
frjósamasta jarðnæði á Vest-
urbakkanum, búa nú um
274.000 Palestínumenn í 122
þorpum og borgum,“ segir í
skýrslunni. „Fólkið mun ann-
aðhvort verða að búa á luktu
landi – svæðum milli múrsins
og Grænu línunnar – eða í
hólfum sem verða algerlega
umlukt múrnum.“ Einnig er
bent á að rúmlega 400.000
Palestínumenn austan við
múrinn muni verða að fara um
hliðin sem verða á múrnum
ætli þeir að komast að býlum
sínum eða á vinnustaði vestan
við múrinn. „Á að giska
680.000 manns – um 30% Pal-
estínumanna á Vesturbakk-
anum – munu því verða fyrir
beinu tjóni vegna múrsins.“
Palestínumönnum, sem
eiga land er fer undir múrinn,
hafa verið boðnar skaðabæt-
ur. En þeir hafna bótunum, að
sögn heimildarmanna af ótta
við að ella séu þeir að lýsa
samþykki við múrinn og verði
því sakaðir um að vera með-
reiðarsveinar Ísraela.
SÞ gagnrýna öryggismúr Ísraelsstjórnar
Reuters
Veldur mikilli röskun
á lífi Palestínumanna
Jerúsalem. AP, AFP.
Ísraelskur hermaður á verði við öryggismúrinn.
♦ ♦ ♦