Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UTANRÍKISRÁÐHERRAR EFTA-landanna
þriggja, Íslands, Noregs og Liechtenstein, und-
irrituðu samninginn um stækkun Evrópska efna-
hagssvæðisins í Vaduz, höfuðborg Liechtenstein, í
gær að viðstöddum sendiherra Ítala í Liechten-
stein, en Ítalir fara nú með formennsku innan Evr-
ópusambandsins. Flogið var með samninginn frá
Vaduz til Brussel þegar í stað að undirritun lok-
inni, þar sem fastafulltrúi Ítalíu skrifaði undir
samninginn.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir Ís-
lendinga hafa lagt á það mikla áherslu að fá Ítali til
að vera viðstadda undirskriftina og hann væri
þakklátur utanríkisráðherra Ítala fyrir að sýna
þessu skilning. „Við höfðum samband við Róm um
helgina og lögðum áherslu á þetta atriði,“ sagði
Halldór.
Liechtenstein neitaði í seinasta mánuði að skrifa
undir samninginn á þeirri forsendu að Tékkland
og Slóvakía hefðu ekki viðurkennt sjálfstæði
furstadæmisins með fullnægjandi hætti, sem aftur
tengist eignakröfum Liechtensteinsku furstafjöl-
skyldunnar vegna eignaupptöku í Tékkóslóvakíu
Hans-Adam II, fursti af Liechtenstein, sagði í
samtali við Morgunblaðið að það væru vissulega
mikil vonbrigði að ekki hefði tekist að fá Tékka og
Slóvaka til að breyta afstöðu sinni. Þeir hefðu ekki
verið reiðubúnir að koma á neinn hátt til móts við
kröfur Liechtenstein. Hans-Adam sagði málið
fyrst og fremst snúast um viðurkenningu á sjálf-
stæði Liechtenstein en síður um fjárhagslegar
kröfur og hann hafi lengi barist fyrir því að fá við-
urkenninguna.
Skref í átt að sameinaðri Evrópu
Jan Petersen, utanríkisráðherra Noregs, sagði
stækkun EES enn eitt skrefið í átt að sameinaðri
Evrópu.
Stækkunin skapaði mörg tækifæri fyrir EFTA-
löndin og Petersen sagðist búast við að samning-
urinn myndi gagnast löndunum vel enn um sinn.
Aðspurður um þátt Íslands í að fá Liechtenstein
til að skrifa undir segir Halldór að menn hafi lagt
sig mjög fram um að finna lausn á málinu. „Við
höfum viljað sýna Liechtenstein samúð. Þeir hafa
reynst okkur vel alla tíð. Ég er afskaplega ánægð-
ur með að þetta hefur fengið farsælan endi. Ernst
Walch, utanríkisráðherra Liechtenstein, hefur
lagt sig mjög fram í málinu og hann hefur oft sýnt
mikinn samhug með okkur og Noregi þannig að
það var eðlilegt að við gerðum allt sem í okkar
valdi stóð. En málið milli þeirra og Tékklands og
Slóvakíu er ekki leyst og það var ekki í okkar valdi
að leysa það. Það var í okkar valdi að sýna það af
fullri einurð að Liechtenstein hefði verið sjálfstætt
ríki í langan tíma. Það var mikilvægt að það kæmi
skýrt fram í dag. Það er rétt að Íslendingar hafa
lagt í þetta mikla vinnu og ég finn að menn hér í
Liechtenstein kunna að meta það,“ sagði Halldór.
Sé ekki neina stóra hættu á
vegi þessa máls eins og er
Spurður hvort tafir gætu orðið á því að öll ESB-
löndin undirriti samninginn á réttum tíma segir
Halldór ekkert hafa komið fram sem bendi til þess
að þetta geti ekki allt gengið upp. „Í mínum huga
er mikilvægast af öllu að nýju aðildarríkin stað-
festi stækkun EES á réttum tíma. Það er líka
mjög mikilvægt að allar hinar þjóðirnar geri það
en undirskriftin í dag gerir það auðveldara að
finna leið til að komast fram hjá því til bráða-
birgða. Ég sé ekki neina stóra hættu á vegi þessa
máls eins og er.“
Halldór segir liggja fyrir að framkvæmdastjórn
ESB muni gera allt sem í hennar valdi stendur til
að ýta á eftir staðfestingu samningsins. Halldór
segir menn lengi hafa rætt um endurnýjun EES-
samningsins innan EFTA-ríkjanna. ESB hafi
hafnað endurnýjun EES á sínum tíma. „Sam-
bandið lofaði því þá að gera það að þessu verki
loknu en nú er hljóðið í þeim farið að breytast og
ég hef minnkandi trú á því að það verði að veru-
leika, þannig að við verðum að búa við samninginn
eins og hann er,“ sagði Halldór.
Ernst Walch, utanríkisráðherra Liechtenstein,
þakkaði Íslendingum og Norðmönnum fyrir þeirra
þátt í að leysa ágreininginn við Tékkland og Slóv-
akíu. Það væru auðvitað vonbrigði ef það hefði
ekki tekist. Walch rakti samskiptin við Tékkland
og Slóvakíu og benti á að þau hefðu ekki við-
urkennt Liechtenstein sem sjálfstætt ríki fyrr en
1939 undir þrýstingi frá Þjóðverjum. Skömmu síð-
ar hafi Þjóðverjar hertekið Tékkóslóvakíu og
Liechtenstein hafi þá verið eitt fárra landa sem
ekki viðurkenndi hersetuna opinberlega. Þrátt
fyrir það hafi ríkisstjórn Tékkóslóvakíu lagt hald á
eignir um 30 ríkisborgara í Liechtenstein og þá
sem hluta af eigum Þjóðverja, þar sem íbúar
Liechtenstein hefðu í könnunum gefið upp þýsku
sem móðurmál sitt. Ríkisstjórn Tékkóslóvakíu
hefði þá dregið þá óleyfilegu ályktun að ekki væri
um eignir borgara Liechtenstein að ræða, heldur
eignir Þjóðverja.
Virði eignanna nemur væntanlega
hundruðum milljóna evra
Walch sagði erfitt að meta virði eignanna en
væntanlega sé það um hundruð milljónir evra.
Tékkóslóvakía hafi fallist á að greiða nær öllum
löndum sem í hlut áttu skaðabætur, einnig Aust-
urríki og Sviss. Ekkert hafi hins vegar verið rætt
við Liechtenstein. Tékkland og Slóvakía hafi allt
frá lokum stríðsins ekki viðurkennt sjálfstæði rík-
isins og enn sé það svo, að þessi lönd meðhöndli
íbúa Liechtenstein sem Þjóðverja en hljóti að sjá
að það geti Liechtenstein ekki sætt sig við.
AP
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, Ernst Walch, utanríkisráðherra Liechtenstein og starfsbróðir þeirra frá Noregi, Jan Petersen, skrifa undir.
Samningur um stækkun EES
var undirritaður í Liechten-
stein í gær. Arnór Gísli
Ólafsson fylgdist með í Vaduz.
Mikilvægast að nýju aðildarlöndin
staðfesti stækkunina tímanlega
Vaduz. Morgunblaðið.
Enn á
gjörgæslu-
deild eftir
árekstra
Sækja um
pólitískt
hæli hér-
lendis
HÓTEL Selfoss var selt í gær
og verður gengið frá samning-
um í dag, miðvikudag. Fyrri
eigandi hótelsins, Eignarhalds-
félagið Brú, var lýstur gjald-
þrota í september og nema
skuldir félagsins um einum
milljarði króna. Að sögn Stein-
unnar Guðbjartsdóttur, skipta-
stjóra þrotabúsins, barst viðun-
andi tilboð í Hótel Selfoss í gær
og var því tekið. Kaupandi og
kaupverð er trúnaðarmál.
Hótel Sel-
foss selt
KRISTINN Hrafnsson og
Kristján Guy Burgess voru
ráðnir fréttastjórar á DV í
gær. Frétt ehf. útgáfufélag
Fréttablaðsins og DV gekk frá
ráðningu þeirra í gær og verð-
ur þeim falið að reka frétta-
deild blaðsins. Báðir hafa þeir
starfað við fjölmiðla árum
saman.
Þá hafa samningar náðst við
Ísafoldarprentsmiðju um
prentun DV. Að sögn Gunnars
Smára Egilssonar, ritstjóra
Fréttablaðsins og talsmanns
Fréttar ehf., réð mestu skila-
tímar blaðsins í prentun. Með
því að prenta hjá Ísafoldar-
prenstmiðju sé unnt að halda
DV lengur opnu uns farið er í
prentun á ellefta tímanum á
kvöldin.
Ráðnir
frétta-
stjórar DV
RÚMLEGA 70% svarenda í könnun
IMG Gallup segjast búa við frekar
mikið eða mjög mikið vinnuálag. Þar
af sögðu 28% vinnuálag sitt mjög
mikið. Tómas Bjarnason, stjórnandi
fyrirtækja- og starfsmannarann-
sókna hjá IMG Gallup, kynnti nið-
urstöður könnunarinnar á ráðstefnu
Hollvina hins gullna jafnvægis á
Nordica hóteli á mánudag.
16% svarenda í könnuninni sögðu
vinnuálag sitt hafa aukist mikið á sl.
12 mánuðum og 28% sögðu álagið
hafa aukist nokkuð. Verulegur mun-
ur er á svörum kynjanna við spurn-
ingum um aukið vinnuálag. 57%
kvenna sögðu vinnuálag hafa aukist
nokkuð eða mikið samanborið við
34% karla sem sögðu vinnuálag hafa
aukist á sl. 12 mánuðum.
Skv. niðurstöðum könnunarinnar
sögðust 53% hafa unnið sveigjanleg-
an vinnutíma á undanförnum 12
mánuðum til að koma til móts við
eigin þarfir eða fjölskyldunnar, 34%
sögðust hafa nýtt sér aðstoð ætt-
ingja eða vina við heimilisstörf eða
umönnun barna. 50% sögðust hafa
unnið heima að vinnutengdum verk-
efnum og 47% sögðust hafa sinnt
einkalífi eða fjölskyldu í vinnutíman-
um. Þá sögðust 10% hafa keypt að-
stoð við hreingerningar á heimilinu
sl. ár. Í túlkun sérfræðinga Gallup
kemur fram að vinnuálag sé mikið og
vaxandi og það skýrist að mestu leyti
af vinnutíma. Ljóst sé að úrræði sem
fólk nýtir sér séu mismunandi eftir
efnum og ástæðum.
Könnunin var gerð í síðasta mán-
uði og náði til launþega og atvinnu-
rekenda á höfuðborgarsvæðinu á
aldrinum 25 til 65 ára. Alls fengust
411 svör og var svarhlutfallið 63,4%.
Um 70% undir
miklu vinnuálagi
BÚIST er við niðurstöðu Út-
lendingastofnunar í næstu viku í
máli ungs pars sem sótti um
pólitískt hæli hér á landi í mars
sl. Fólkið er um tvítugt og er
konan frá Úsbekistan og mað-
urinn frá Afganistan. Þau komu
hingað til lands frá París á eigin
vegabréfum og sóttu um hæli.
Að sögn Georgs Kr. Lárusson-
ar, forstjóra Útlendingastofnun-
ar, hefur málsmeðferðin dregist
nokkuð vegna gagnaöflunar, en
afla hefur þurft gagna frá ætt-
ingjum fólksins í Danmörku.
KONA á fimmtugsaldri sem
slasaðist alvarlega í árekstri
tveggja fólksbifreiða á Eiðs-
granda síðastliðinn föstudag,
liggur enn í öndunarvél á gjör-
gæsludeild Landspítalans í
Fossvogi. Hún gekkst undir að-
gerð skömmu eftir komu á
sjúkrahúsið og er líðan hennar
eftir atvikum að sögn læknis
þar.
Þá liggur sextug kona, sem
slasaðist alvarlega í árekstri á
Ólafsfjarðarvegi 2. nóvember,
enn á gjörgæsludeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Að sögn læknis er hin slasaða
ekki í lífshættu og er líðan
hennar eftir atvikum.
STUTT