Morgunblaðið - 12.11.2003, Qupperneq 13
náð því að eignast félag-
ið, eins og ætlun hans
hafi verið.
Ingimar starfaði hjá
Kaupási í tvö ár og
verkefni hans var sam-
kvæmt tilkynningu
hans fyrst og fremst að
vinna að því að efla fé-
lagið og bæta rekstur
þess.
„Ég er sáttur við
hvernig til hefur tekist,
sérstaklega hvað varðar
endurskipulagningu
matvörusviðs félagsins,
en nokkru er enn ólokið
í endurskipulagningu
sérvörusviðs. Ljóst er að fyrirætlanir
mínar, ásamt fleiri aðilum, um að
eignast félagið gengu ekki eftir og
voru það vonbrigði. Ég hef mikla trú á
Kaupási hf. sem hefur á að skipa afar
hæfu starfsfólki sem hefur lagt á sig
mikla vinnu við að bæta rekstur fé-
lagsins. Ég vil óska nýjum eigendum
og starfsfólki félagsins velfarnaðar í
framtíðinni,“ segir í tilkynningu Ingi-
mars.
Á hluthafafundi í Kaupási hf. fyrr í
vikunni var ný stjórn kjörin í félaginu.
Hana skipa þau Brynja Halldórsdótt-
ir, Þórður Magnússon og Jón Helgi
Guðmundsson.
Ingimar Jónsson
hættur hjá Kaupási
Vonbrigði að ná ekki að eignast félagið
INGIMAR Jónsson,
forstjóri Kaupáss hf.,
sem meðal annars rek-
ur Krónuna, Intersport,
Húsgagnahöllina og
Nóatúnsverslanirnar,
hefur látið af störfum
sem forstjóri félagsins.
Jón Helgi Guðmunds-
son mun taka við stjórn
Kaupáss sem starfandi
stjórnarformaður.
Jón Helgi er stjórn-
arformaður Norvikur,
stærsta eiganda Kaup-
áss.
Í október sl. var til-
kynnt að Framtak fjár-
festingarbanki hefði selt allt hlutafé
sitt í Kaupási, eða 53,4%. Var kaup-
andi hlutarins nýtt fjárfestingarfélag
undir forystu Ingimars Jónssonar en
meðal hluthafa í fjárfestingarfélaginu
voru Vátryggingarfélag Íslands hf.
(VÍS) og Samvinnulífeyrissjóðurinn
sem voru hluthafar fyrir í Kaupási.
Skömmu síðar tilkynnti Landsbank-
inn að hann hefði ákveðið að nýta for-
kaupsrétt sinn að hlutafénu og hefði
gert samning um að Norvik hf., móð-
urfélag BYKO, keypti hlutinn.
Í tilkynningu, sem Ingimar Jóns-
son hefur sent frá sér, segir hann að
það hafi verið vonbrigði að hafa ekki
Ingimar Jónsson
HAGNAÐUR Pharmaco á fyrstu
níu mánuðum ársins nam 23,3 millj-
ónum evra, eða jafnvirði rúmlega 2
milljarða króna, en fyrirtækið gerir
upp í evrum. Hagnaður sama tíma-
bils í fyrra var 26,9 milljónir evra
og hefur hagnaðurinn því dregist
saman um 13% milli ára. Arðsemi
eigin fjár dróst einnig saman, úr
26,0% í 12,9%.
Þessar tölur segja þó aðeins
hluta sögunnar og afkoman litast
mjög af breytingu á bæði óreglu-
legum liðum og fjármunaliðum og
hagnaður af reglulegri starfsemi
nam um 42 milljónum evra, sem er
um 56% aukning frá fyrra ári.
Ef litið er á rekstrarafkomuna
fyrir afskriftir og einnig fyrir sér-
staka niðurfærslu fastafjármuna
um 18,9 milljónir evra batnar af-
koman verulega og fer úr 31,5 millj-
ónum evra í 64,1 milljón evra. Hlut-
fall afkomu fyrir afskriftir og
sérstaka niðurfærslu af rekstrar-
tekjum hækkaði að þessu gefnu úr
22,4% í 26,9%. Ef ekki væri litið til
þessarar sérstöku niðurfærslu
myndi þetta hlutfall versna og fara
niður í 19,0%, en niðurfærslan staf-
ar af einskiptis niðurfærslu til leið-
réttingar á eignamati Balkan-
pharma í Búlgaríu. Lang-
tímamarkmiðið er að þetta
framlegðarhlutfall sé um 30%.
Breytt félag frá fyrra ári
Við samanburð á fyrstu níu mán-
uðum þessa árs og sama tímabili í
fyrra verður að hafa í huga að
Pharmaco er töluvert breytt félag.
Delta og tengd félög komu inn í
reksturinn um mitt ár í fyrra og á
þessu ári hafa verið keyptir stórir
eignarhlutir í lyfjaverksmiðju í
Serbíu og danska lyfjaþróunarfyr-
irtækinu Colotech. Þannig hefur
verið um ytri vöxt að ræða, en í til-
kynningu frá Pharmaco segir einnig
að sterkur innri vöxtur einkenni
áfram rekstur félagsins.
Vöxturinn, bæði innri og ytri, var
69% frá sama tímabili í fyrra og
rekstrartekjur á fyrstu níu mán-
uðum ársins námu 237,9 milljónum
evra, eða jafnvirði 20,9 milljarða
króna. Til ársloka 2005 er stefnt að
15%–20% innri vexti auk þess sem
stefnt er að 15%–20% ytri vexti.
Rekstrargjöld af reglulegri starf-
semi jukust minna en rekstrartekj-
urnar, eða um 57%, og námu 186,3
milljónum evra.
Eins og áður segir varð mikil
breyting á fjármunaliðunum sem
dregur hagnað félagsins niður mið-
að við sama tímabil í fyrra. Þá hafði
félagið fjármunatekjur að upphæð
9,6 milljónir evra, en í ár voru fjár-
magnsgjöld þess 1,7 milljónir evra
auk þess sem sérstök niðurfærsla
eignarhluta í óskráðum félögum var
neikvæð um 3,7 milljónir evra. Nei-
kvæð breyting fjármunaliða var því
samtals 15 milljónir evra. Niður-
færslan á óskráðu hlutabréfunum
er vegna félaga sem Pharmaco hef-
Hagnaður Pharmaco
rúmlega 2 milljarðar
Hagnaður eykst ef horft er framhjá óreglulegum liðum
ur fjárfest í á undanförnum árum
og í tilkynningu segir að verið sé að
mæta áhættu sem kunni að liggja í
rekstri þessara félaga. Niðurfærsl-
an, 3,7 milljónir evra eða 325 millj-
ónir króna, nemi helmingi af bók-
færðu verði bréfanna. Núverandi
fjárfestingarstefna miðist við fjár-
festingar í skilgreindri kjarnastarf-
semi Pharmaco, þ.e. samheitalyfja-
fyrirtækjum sem styrki
framtíðarvöxt félagsins.
Góð sala í Vestur-Evrópu
Eignir Pharmaco jukust um 8%
frá áramótum og námu 493,8 millj-
ónum evra eða 43,4 milljörðum
króna. Eiginfjárhlutfall lækkaði úr
52% í 49% á tímabilinu, en veltu-
fjárhlutfall hækkaði úr 0,95 í 2,45,
bæði vegna aukningar veltufjár-
muna og lækkunar skammtíma-
skulda.
Veltufé frá rekstri nam 54,1 millj-
ón evra eða 4,8 milljörðum króna.
Í tilkynningu frá Pharmaco segir
að reksturinn standi undir vænt-
ingum á fyrstu níu mánuðum árs-
ins. Helstu ástæður góðrar afkomu
á þriðja fjórðungi séu góður árang-
ur í sölu hjá Medis, dótturfélagi
Pharmaco í Vestur-Evrópu, en sala
inn á markað í Austur-Evrópu hafi
verið aðeins undir væntingum.
Uppgjör Pharmaco var birt fyrir
hádegi í gær. Eftir viðskipti dagsins
var lokagengi hlutabréfa félagsins
34,20 og hafði hækkað lítillega frá
fyrra degi, en verð hlutabréfa
Pharmaco hefur hækkað um 70%
frá miðju ári. Markaðsverð
Pharmaco er nú rúmir 102 millj-
arðar króna sem gerir það verð-
mætasta félagið sem skráð er í
Kauphöll Íslands.
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 13
10% kynningarafsláttur og fallegur kaupauki
Ertu á breytingaskeiðinu?
www.laprairie.comwww.laprairie.com
3 KYNNINGAR
Á morgun fim. 13. nóv. í HYGEU Laugavegi, sími 511 4533
Föstud. 14. nóv. í HYGEU Smáralind, sími 554 3960
Laugard. 15. nóv. í HYGEU Kringlunni, sími 533 4533
Alla daga frá kl. 12-17.
Með CELLULAR RADIANCE CREAM
geislar húð þín á ný!
Ath.!
Nýtt
korta-
tímabil
AFKOMA Pharmaco á fyrstu níu mánuðum ársins einkenndist mjög
af óreglulegum liðum, bæði sérstakri niðurfærslu fastafjármuna og
niðurfærslu eignarhluta í óskráðum félögum. Niðurfærsla fasta-
fjármuna veldur því að hagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, lækkar úr
26,9% í 19,0% og niðurfærsla bæði fastafjármuna og eignarhluta
minnkar hagnað tímabilsins um 18,7 milljónir evra, eða um 1,6 millj-
arða króna. Án þessara sérstöku niðurfærslna hefði hagnaður tíma-
bilsins eftir skatta því numið um 3,7 milljörðum króna.
Miklar niðurfærslur
GERT hefur verið sam-
komulag um að Gary
Wertz, framkvæmda-
stjóri Össur North Am-
erica, og þrír aðrir lyk-
ilstarfsmenn á sölu- og
markaðssviði Össur
North America muni
láta af störfum hjá fyr-
irtækinu frá og með 10.
nóvember 2003. Við
starfi framkvæmda-
stjóra Össur North
America tekur Eyþór
Bender.
Jón Sigurðsson, for-
stjóri Össurar, segir að
ástæðan fyrir starfs-
lokasamningum við þessa fjóra ein-
staklinga liggi meðal annars í að ver-
ið sé að sameina Generation II
Group, sem Össur keypti nýverið, og
Össur en að ákveðin endurskipu-
lagning hafi verið nauðsynleg vegna
kaupa á Generation II Group. „Í
öðru lagi viljum við sjá breyttar
áherslur á rekstri Össurar hér í
Bandaríkjunum, aðallega hvað varð-
ar markaðs- og sölumál
þannig að við réðumst í
þesar breytingar nú,“
sagði Jón í samtali við
Morgunblaðið.
Eyþór hefur starfað
hjá Össuri hf. frá árinu
1995 m.a. sem fram-
kvæmdastjóri hjá Öss-
uri í Luxemborg, Evr-
ópu og nú síðast sem
framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs
Össurar hf. Eyþór hef-
ur setið í framkvæmda-
stjórn fyrirtækisins
síðan 1995.
Árni Alvar Arason,
sem áður starfaði á viðskiptaþróun-
arsviði, mun taka við starfi Eyþórs.
Uppgjör vegna starfssamninga er
áætlað um 900 þúsund Bandaríkja-
dalir, sem svarar til 69 milljóna ís-
lenskra króna, og verður kostnaður-
inn allur gjaldfærður á yfirstandandi
fjórðungi. Verður afkoma félagsins
lakari sem þessu nemur, að sögn
Jóns Sigurðssonar.
Lykilstjórnendur
hætta hjá Össuri
Eyþór Bender
Eyþór Bender til Bandaríkjanna
ÍSLANDSANKI hefur nú tryggt sér nær allt hlutafé Sjó-
vár-Almennra trygginga hf., eða 99,13%. Yfirtökutilboð
sem bankinn gerði hluthöfum Sjóvár rann út sl. föstudag
og samþykktu eigendur 27,67% hlutafjár í félaginu til-
boð bankans. Fyrir átti Íslandsbanki 71,46% hlutafjár
Sjóvár-Almennra.
Tilboð Íslandsbanka hljóðaði upp á 37 kr. fyrir hvern
hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. en hluthafar
höfðu val um hvort endurgjald fyrir hluti þeirra í félag-
inu yrði í formi reiðufjár, nýrra hluta í Íslandsbanka hf.
á genginu 5,95 kr. á hlut eða samsetningu þessara
tveggja greiðsluforma. Í tilkynningu frá Íslandsbanka
kemur fram að um 76% hluthafa sem samþykktu tilboðið
hafi fengið greitt með hlutum í Íslandsbanka en um 24%
með reiðufé.
Íslandsbanki mun á næstu dögum senda út tilkynningu
um innlausn hlutabréfa þeirra hluthafa sem ekki sam-
þykktu yfirtökutilboðið á tilboðsfrestinum. Innlausnin
fer fram í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, að
því er fram kemur í tilkynningu frá Íslandsbanka.
ÍSB eignast Sjóvá að fullu
76% fengu hlutabréf
Íslandsbanki hefur eignast yfir 99% hlutafjár í Sjóvá.
Morgunblaðið/Kristinn
Tískuverslun Laugavegi 25