Morgunblaðið - 12.11.2003, Side 16
Skógar | Byggðasafninu í Skógum
var nýlega afhent bók með sögu
Litla-Hvammsskóla í Mýrdal ásamt
nöfnum allra nemenda skólans en
hundrað ár eru síðan kennsla hófst
í skólanum, einnig eru í bókinni
myndir af flestum nemendanna.
Skólahúsið er nú staðsett í byggða-
safninu í Skógum en þangað var
það flutt árið 1999. Það var Sigþór
Sigurðsson frá Litla Hvammi í Mýr-
dal sem átti mestan þátt í að safna
saman upplýsingum um skólann og
alla nemendur hans og afhenti
hann Þórði Tómassyni safnverði
bókina, og verður hún varðveitt í
gamla skólahúsinu. Að sögn Sig-
þórs voru alls 334 nemendur 10
skólastjórar og sex stundakennarar
við Litla-Hvammsskóla en í honum
var kennt til ársins 1968. Hann fékk
Sigríði J. Kristjánsdóttur á Grund
til að skreyta kápu bókarinnar sem
er fagurlega útskorin.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Þórður Tómasson, Sigga á Grund og Sigþór Sigurðsson með bókina góðu í
gamla skólahúsinu í Skógum.
Litla-Hvammsskóli 100 ára
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund skapti@mbl.is
Ræða kaup á slökkvibíl | Miklar um-
ræður urðu á fundi umhverfisráðs Dalvík-
urbyggðar um kaup á slökkvibifreið og var
farið ítarlega yfir kosti og galla tveggja til-
boða sem fyrir fundinum lágu. Annars veg-
ar er um að ræða tilboð frá MT-bílum í
Ólafsfirði og hins vegar á slökkvibíl frá
SUT ehf. á Selfossi.
Formaður umhverfisráðs Dalvík-
urbyggðar bókaði á fundinum að það væri
sín skoðun að slökkvibíll frá SUT væri betri
valkostur, „þó með þeim fyrirvörum að
ástand bílsins og þær
breytingar sem um er get-
ið í tilboðinu uppfylli þær
kröfur sem til hans eru
gerðar,“ eins og segir í
bókuninni. „Skoðun mín
mótast m.a. af eindregnum
vilja slökkviliðsstjóra og
þeim fulltrúum slökkviliðsins sem komu að
þessari umræðu,“ segir ennfremur. Eftir
sem áður telur formaðurinn að bíll frá MT-
bílum í Ólafsfirði sé vænlegur kostur, „ekki
síst með tillliti til þess að hér er um íslensk-
an iðnað að ræða og þjónustuaðilinn stað-
settur í næsta nágrenni“. Tveir nefnd-
armanna studdu bókun formannsins en
tveir töldu slökkvibíl frá MT-bílum betri
kost, m.a. vegna þess að hann geti flutt
meira vatnsmagn.
Úr
bæjarlífinu
Glaður 75 ára | Hestamannafélagið
Glaður fagnaði 75 ára afmæli félagsins á
laugardaginn með veglegri árshátíð. Verð-
laun voru veitt fyrir kyn-
bótahross sem hafa skar-
að fram úr á árinu og
hlutu þeir Skjöldur Orri
Skjaldarson verðlaun
fyrir hryssu sína Sól-
dögg frá Búðardal og
Agnar Magnússon fyrir
hryssu sína Selju frá
Miklagarði. Hesta-
íþróttamaður Glaðs þetta árið var kosinn
Sigurður Hrafn Jökulsson, sem er á mynd-
inni. Þess má geta að Glaður er næstelsta
hestamannafélagið á landinu.
Íhaust hefur verið unn-ið að bættri lýsingu íHlíðarfjalli og kemur
það til með að bæta til mik-
illa muna aðstöðu almenn-
ings og keppnisfólks. Frá
þessu er sagt á heimasíðu
Akureyrarbæjar. Þar segir
einnig að settir hafi verið
upp 13 nýir staurar við svo-
kallaðan Suðurbakka en á
hvern þeirra er hægt að
festa þrjá kastara sem gefa
góða flóðlýsingu. „Einnig
hafa stórtækar vinnuvélar
verið notaðar til að flytja til
jarðveg og fjarlægja stór-
grýti úr skíðaleiðum. Suð-
urbakkinn, Norðurbakkinn
og leiðin út Dalinn hafa
verið löguð og Andrésar-
brekkan svokallaða var
sléttuð á drjúgum kafla,“
segir á heimasíðunni.
Betri lýsing
Framkvæmdir Baðfélags Mývetninga við gerðbaðlóns og gufubaða ásamt veitulögnum eru árífandi siglingu síðan iðnaðarráðherra tók
fyrstu skóflustungu fyrir um 3 vikum.Og ekki spillir
veðrið þessa dagana. Þeir Hörður Sigurbjarnarson
framkvæmdastjóri Norðursiglingar á Húsavík og Jón
Ingi Hinriksson verktaki ræða hér framkvæmdina.En
báðir eru þeir hluthafar í fyrirtækinu. Eins og aðrir
hér um slóðir binda þeir miklar vonir við að fram-
kvæmdin verði til að styrkja ferðaþjónustuna á svæð-
inu. Ekki mun af veita eftir að helsti vaxtarbroddurinn
á undanförnum árum, sem er hvalaskoðunin, varð fyrir
miklu áfalli sl. sumar.
Morgunblaðið/BFH
Rífandi gangur
Móri kastar fram brag-
hendu og svarar með því
skollavísu Þorfinns Jóns-
sonar á Ingveldarstöðum
frá því í gær.
Við draugar eigum daufa vist í
dimmum gljúfrum,
en ljós og breið og greið er gatan
sem ganga kristnir menn og Satan.
Ósk Þorkelsdóttir var
spurð að því af hagyrð-
ingum hvort hana langaði
ekki á þing. Hún aftók
það með öllu:
Aldrei fundið ólma þrá
í það landsins mekka,
svo er ég hvorki á sakaskrá
né sólgin í að drekka.
Ósk hefur samt skoð-
anir á því sem fram fer á
hinu háa Alþingi, einkum
frumvarpinu um vændi,
þar sem lagt er til að karl-
mönnum verði bannað að
kaupa blíðu:
Vafasamt verður að telja
að verði upp á gróða að hlaupa
og andskoti erfitt að selja
ef enginn er til að kaupa.
Við draugar
pebl@mbl.is
Vestmannaeyjar | Aðkoman var með ólíkindum
þegar vitavörðurinn í Urðarvita í Vestmanna-
eyjum kom þangað síðdegis í gær. Vitinn var
óstarfhæfur eftir að unnið var á honum skemmd-
arverk um helgina, en Urðarviti stendur austast á
Heimaey og vísar sjófarendum rétta leið til hafnar
og varar við hættum.
Að sögn Guðjóns Jónssonar vitavarðar Urð-
arvita var aðkoman hörmuleg, gengið hefur verið
með þung barefli og 14 millimetra plexigler vitans
allt mölbrotið auk þess sem farið var inn í vita-
húsið og öll stjórntæki vitans eyðilögð. Guðjón tel-
ur tjónið nema hundruðum þúsunda ef ekki millj-
ónum en Vita- og hafnarmál eiga eftir að kanna
skemmdirnar og ljóst er að ljós mun ekki loga á
Urðarvita næstu daga í það minnsta og er það
ekki til að aukaá öryggi sjófarenda nú í svartasta
skammdeginu. Það þykir liggja ljóst fyrir að hér
hafa ekki verið nein börn á ferð og ótrúlegt að
slíkt skemmdarverk eigi sér stað í útgerðarbæ
eins og Vestmannaeyjum þar sem lífið er sjó-
mennska og fiskvinnsla auk þess sem Vest-
mannaeyingar hafa alla tíð staðið í fylking-
arbrjósti í öryggismálum sjómanna.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Öll tæki í Urðarvita ónýt
Skemmdarverk
Keflavíkurflugvöllur | Stjórnendur hjá
Varnarliðinu kölluðu forystumenn stétt-
arfélaganna til samráðsfunda í gærmorg-
un vegna fjöldauppsagna sem áformaðar
eru. Ekki fæst gefið upp hjá varnarliðinu
eða félögunum hvort til stendur að segja
upp fleirum en þeim níutíu sem fengu
uppsagnarbréf á dögunum.
Varnarliðið dró nýlega til baka upp-
sagnir 90 starfsmanna sem fengu bréf um
uppsögn í lok október, vegna mótmæla
stéttarfélaganna sem töldu að ekki hefði
verið farið að ákvæðum laga um hóp-
uppsagnir. Af því tilefni lýsti varnarliðið
því yfir að dráttur á því að uppsagnir
tækju gildi kynni að leiða til þess að segja
þyrfti fleiri mönnum upp störfum.
Ekki fást upplýsingar um efni fundanna
í gær, báðir aðilar vísa til þess að upplýs-
ingarnar séu trúnaðarmál. Guðbrandur
Einarsson, formaður Verslunarmanna-
félags Suðurnesja, segir að varnarliðið
hafi lagt fram hugmyndir að uppsögnum
og stéttarfélögunum hafi verið gefinn
kostur á að koma með aðrar tillögur.
Fundað verður aftur síðar í vikunni.
Á fréttavef Víkurfrétta var í gær sagt
að rúmlega 100 manns yrði sagt upp um
næstu mánaðamót. Guðbrandur Einars-
son sagðist ekki geta sagt neitt um þá
tölu en tók fram að hann væri svartsýnni
nú en þegar uppsagnirnar komu í lok
október.
Samráð við
stéttar-
félögin
Halldór langbestur | Halldór Brynjar
Halldórsson sigraði nokkuð örruglega á
Skákþingi Norðlendinga sem lauk nú fyrir
skemmstu. Halldór lagði alla andstæðinga
sína, 7 að tölu, en þetta er annað mótið í röð á
Akureyri sem hann vinnur með fullu húsi. Í
öðru til þriðja sæti með 4 1/2 vinning komu
svo þeir Björn Ívar Karlsson og Sigurður Ei-
ríksson, en Björn varð hærri á stigum. Í kjöl-
farið sigldu svo þeir Stefán Bergsson og Þór
Már Valtýsson, en þeir hlutu 4 vinninga.
HÉÐAN OG ÞAÐAN
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra
hefur skipað starfshóp sem falið hefur ver-
ið það verkefni að móta og setja fram til-
lögur að breytingum á umdæmaskipan við
löggæslu og innra starfi lögreglunnar. Til-
lögurnar skulu miða að því að styrkja og
efla starfsemi lögreglu og sýslumanna og
nýta fjármuni betur. Enn fremur er hópn-
um ætlað að móta löggæsluáætlun til
næstu ára, þar sem kynnt yrði forgangsröð
við úrlausn verkefna og þess freistað að
setja löggæslunni mælanleg markmið.
Ekki er gert ráð fyrir að tillögur hópsins
leiði til þess að sýslumannsembættum
fækki.
Í starfshópnum sitja Stefán Eiríksson
skrifstofustjóri sem er formaður, Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri og Skúli
Magnússon dósent við lagadeild Háskóla
Íslands.
Starfshópur um
breytingu á
starfi lögreglu
♦ ♦ ♦