Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 20

Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 20
DAGLEGT LÍF 20 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ N O N N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .i s / N M 0 8 5 1 6 Tölum saman fia› er ód‡rara en flú heldur! flegar flú hringir úr heimilissímanum. 15 mínútna símtal innanlands á kvöldin og um helgar kostar innan vi› 20 krónur 15 20/ kr.mín - á kvöldin og um helgar HIN eilífa barátta við kalóríur hefur nú tekið alveg nýja stefnu, ef marka má Evening Standard. Svo virðist sem kalóríufjöldinn sem fólk lætur ofan í sig skipti ekki öllu máli þegar huga þarf að holdarfarinu, heldur hvers eðlis kalóríurnar eru. Sumar kalóríur virðast meira fituvaldandi en aðr- ar. Þannig geta tveir mat- arskammtar sem innihalda sama kalóríufjölda verið mismikið fit- andi. Rannsóknir hafa m.a. leitt í ljós að kalóríur í möndlum eru mjög svo lítið fitandi því frumuveggir möndlunnar eru þess eðlis að þeir hjálpa til við að koma í veg fyrir upptöku fitu. Þó mæla vís- indamenn ekki með því að fólk taki til við að troða í sig möndl- um, því allt þetta kalli á frekari rannsóknir. Þessi uppgötvun gæti valdið straumhvörfum eða öllu heldur vonbrigðum hjá þeim sem binda allar sínar grenningarvonir við að telja ofan í sig kalóríufjöld- ann á hverjum einasta degi. En fréttirnar um að nú skuli horft til gerðar kalóría en ekki fjölda, gætu líka verið gleðiefni sem verður til þess að Bridget Jones og aðrir sem eru á valdi kalóríu- talningar geta leyft sér meira í matar- og drykkjarnautnum.  HOLDAFAR Kalóríutalning: Grenningarað- ferðir Bridget Jones og annarra, sem eru á valdi kalóríutalningar, kunna að taka nýja stefnu. Kalóría er ekki sama og kalóría yfir fyrirbyggjandi aðgerðir sem þeir eiga að nefna í viðtölunum við sjúk- linga – óháð erindi og frumkvæði hvers einstaklings. Hugmyndin er sú að slíkar fyrirbyggjandi aðgerðir geti bætt lífsgæði og lífslíkur hjá þeim sem leita til læknis.“ Jóhann Ágúst varar við þessari þróun og segir forvarnastarfsemina vera að skjóta yfir markið. Fyrirlest- urinn sem hann flytur á morgun byggir hann að á nýlegri grein í Brit- ish Medical Journal sem hann ritaði ásamt Linn Getz, trúnaðarlækni við Landspítalann og Irene Hetlevik, dósent í heimilislækningum í Noregi. Greinin hefur vakið töluverða athygli í norskum fjölmiðlum og þar kemur fram að margir læknar telja að tími sé kominn til að taka á þessari um- ræðu. Sá fyrirbyggjandi listi sem lækn- irinn er beðinn um að hafa í huga í viðtali við sjúkling hefur lengst gríð- arlega undanfarin ár, samfara mikilli fjölgun sérgreina og sérfræðinga inn- an læknisfræðinnar, að sögn Jóhanns Ágústs. „Áður gátu heimilislæknar rætt við sjúklinga sína um einstök viðhorf og lífsstílsatriði og tekið blóð- þrýstinginn. Í dag kemur langur listi af áhættuþáttum til greina svo sem áhættumat gegn hjarta- og æða- sjúkdómum, hreyfingarleysi, þyngd, sykursýki, beinþynning, mittis- og mjaðmamál. Þar næst á að minna á krabbameinsleit af ýmsu tagi. Sumir sérfræðingar mæla með því að heim- ilislæknirinn leggi staðlað mat á áfengisnotkun, aðr- ir leggja áherslur á þunglyndi. Og svona lengist list- inn stöðugt. Afleið- ingarnar eru þær að æ fleiri ein- kennalausir ein- staklingar sem leita til læknis geta lent í einum eða fleiri áhættuhópum að loknu viðtali og þurft á lækn- isfræðilegri úrlausn og eftirmeðferð að halda, án þess að hafa beðið sér- staklega um að slíkt mat fari fram.“ Þessa þróun nefnir Jóhann Ágúst forvarnafaraldurinn sem hann telur að stafi af að minnsta kosti tvennu. Í fyrsta lagi er það krafa frá heilbrigð- isyfirvöldum og sífellt fjölgandi sér- fræðingum nýrra sérgreina lækn- isfræðinnar um að vera á varðbergi gagnvart ýmsum sjúkdómum og áhættuþáttum. Í annan stað er almenningur vel upplýstur um „heilsuhættur“ þar sem í fjölmiðlum má lesa um nýju prófin sem unnt er að fara í til þess að ganga úr skugga um að þeir séu ekki í áhættuhópi. Nýjar væntingar og kröfur frá almenningi hafa þar með skapast og útgjöldin aukast. Jóhann HVER á að stjórna því semfram fer á læknastofunni? Álæknirinn að einbeita sér að þeim vanda sem sjúklingurinn hefur í huga, eða á hann að forgangsraða verkefnum sem samráðshópar fag- félaga innan læknisfræðinnar telja æskileg? Í hvaða mæli er sið- fræðilega réttlætanlegt að nota viðtal læknis og sjúklings sem vettvang fyr- ir kerfisbundnar forvarnir sam- kvæmt tilmælum utanaðkomandi fagaðila með þeim afleiðingum að er- indi sjúklingsins getur auðveldlega fallið í skuggann? Jóhann Ágúst Sig- urðsson, prófessor í heimilislækn- ingum við Háskóla Íslands, heldur fyrirlestur á morgun á ársfundi Tryggingastofnunar ríkisins sem hann nefnir forvarnafaraldurinn, sið- fræðileg og fjárhagsleg átakasvæði. Læknisfræðina segir hann í vax- andi mæli beina athyglinni að frísk- um einstaklingum og áhættu þeirra hvað varðar sjúkdóma í framtíðinni. „Víða á Vesturlöndum hafa heilbrigð- isyfirvöld talið komur sjúklinga á stofu vera kjörið tækifæri til þess að beita kerfisbundinni heilsuvernd. Heimilislæknum er ráðlagt að koma sér upp tölvukerfum með tékklistum Ágúst segir þessar nýju áherslur krefjist mun meiri tíma og fjölgunar starfsfólks ef koma á öllu að í hefð- bundnu viðtali. „Sem dæmi má nefna að á Bretlandi og Írlandi fá læknarnir greitt aukalega fyrir að nota tékklist- ana og þeir ráða til sín aðstoðarfólk til þess að sinna þessum verkefnum. Nýleg bandarísk rannsókn sýnir að ef heimilislæknar fara eftir leiðbein- ingum yfirvalda um heilsuvernd þurfi til þess um 7,4 klukkustundir dag- lega. Ef við fetum í forspor Banda- ríkjamanna gæti það endað með því að íslenskir sjúklingar hafi um eina og hálfa mínútu til að ræða sín mál nema í þeim tilvikum þegar ástæðan fyrir komu þeirra til læknisins er fyrst og fremst að ræða heilsuvernd.“ Ef koma ætti fornvarnarstarfinu hér inn í heilsugæsluna á sama máta og í Bandaríkjunum þyrfti að fjölga stöðum heimilislækna um 150.“ Markaðstorg heilsunnar? Jafnframt veltir hann því upp hvort það forvarnarstarf sem snýr að því að bjóða frísku fólki betri heilsu af þessu tagi sé að verða að stóru mark- aðstorgi. Ef það er að hluta til rétt, hverjir hafa þá mest gagn af því? Bent hefur verið á það meðal annars í þemahefti British Medical Journal að læknisfræðin sé að fara með manns- líkamann og heilsu sem söluvöru. Jóhann Ágúst telur læknisfræðina geta á vissan hátt orðið allt í senn, ígildi löggjafarvalds, dómsvalds og framkvæmdavalds því sérfræðingar í læknastétt ákveða hvað sé áhætta, hver sé í áhættu og bjóða síðan upp á eigin úrlausnir. Sem dæmi um umhugs- unarverða þróun á þessu sviði nefnir Jóhann Ágúst nýjustu leiðbeiningar fyrir forvörn gegn hjarta- og æða- sjúkdómum í Evrópu. „Þar er tekið mið af aldri, kyni, blóðfitum, blóð- þrýstingi og reykingum. Þeir sem eru yfir ákveðnum mörkum í áhættumati fá gula eða rauða „spjaldið“ og er þar með bent á þörfina fyrir frekari rann- sóknir og/eða lyfjameðferð. Hug- myndafræðin er fín út af fyrir sig en vandinn eykst hins vegar þegar í ljós kemur að yfir 90% fólks 50 ára og eldra fá að heyra að þau séu í tölu- verðu áhættu eða versta falli sjúk, en þannig virka þessir staðlar. Hvernig væri að gera áætlanir um úrlausnir sem snúa að því hvaða starfsséttir eigi að fást við þennan vanda eða hvað það kostar áður en staðlarnir eru markaðssettir? Við megum ekki gleyma því að lífslíkurnar hafa aldrei verið lengri og fjöldi lækna hér á landi á hvern íbúa er nú þegar á með- al þess sem hæst þekkist í heiminum. Ef til dæmis ætti að vísa öllum með „afbrigðileg“ próf í áhættumatinu fyrir hjarta- og æðasjúkdóma á stofu til hjartasérfræðings verður kostn- aðurinn gífurlegur og fjölga þyrfti hjartasérfræðingum um helming. Núverandi þróun leiðir til þess að flestir eru skilgreindir í áhættu sem þurfa úrræða við. Hraðbrautin liggur í gegnum heilbrigðiskerfið og Trygg- ingastofnun. Ef við viljum lækn- isfræðileg úrræði þýðir þetta allt að 100% aukningu innan vissra starfs- stétta og mikinn kostnað. Þá er spurningin hve mikið verður eftir af fjármunum fyrir önnur verkefni, jafnvel sem viðkoma þeim sjúku. Betra og hagkvæmara er að beita for- vörnum sem tengjast lýðheilsu al- mennt, en læknisfræðin kemur þar lítið við sögu.“ Leiðir og óöruggir læknar Í fagtímaritum um læknisfræði hafa á síðastliðinum 2–3 árum komið fram fagleg og vel rökstudd gagnrýni á mörg skimunar- og leitarprógrömm sem er beitt í fjölmörgum löndum. „Fagfólk er í auknum mæli að líta í eigin barm og komast að því að lækn- isfræðin getur stundum gert meiri skaða en gagn, þrátt fyrir áætlanir um að bæta lýðheilsu. Horm- ónameðferð við tíðahvörfum er einna nýjasta og einfaldasta dæmið. Þegar kembileit eða forvarnarstarfsemi er framkvæmd er ávallt sá möguleiki fyrir hendi að sjúkdómur sé rangt greindur, meðal annars vegna þess að falskt jákvætt skimunarpróf leiði til frekari rannsókna til greiningar á sjúkdómnum. Þessar greining- araðferðir geta stundum valdið skaða. Kembileit er því sjaldnast áhættulaus og við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að heilbrigt fólk getur dáið af fyrirbyggjandi að- gerðum.“ Þá segir Jóhann Ágúst vert að hafa í huga að tölfræðilega séð hafa for- varnir mjög ófyrirsjáanlega útkomu fyrir einstaklinginn og þess vegna verði læknisfræðin ekki eins tilgangs- rík og áður. „Til dæmis þarf um 7.000 manns til þess að taka þátt í kembileit gegn ristilkrabbameini til þess að bjarga einum frá dauða og við vitum ekki hver það verður.“ Jóhann Ágúst segir ennfremur að rætt og ritað hafi verið um það er- lendis að þegar árangur af lækn- isverkum verður jafnóljós og raun ber vitni en kröfur að sama skapi miklar, verða afleiðingarnar þær að læknar verða óöruggir og leiðir á sínu starfi. Leggja þurfi nýtt mat á allt forvarnarstarf og heilsuvernd. Kvíði og ótti við sjúkdóma „Ekki á einungis að taka tilliti til einstaklinganna og þeirra nánustu heldur þarf einnig að taka mið af samfélaginu, menningu, og gild- ismati. Til þess að lífa góðu lífi þarf manneskjan að eiga sér hugsjónir og markmið sem snúast ekki bara um hana sjálfa. Um það snýst að mínu mati heilbrigði. Þegar kvíði og ótti við sjúkdóma er að taka yfirhöndina og forvarnir að verða yfirgnæfandi þátt- ur í lífi fólks í samfélagi sem nú þegar er á toppnum hvað lífslíkur varðar, er tími kominn til að staldra við.“  HEILSA | Læknisfræðin beinist í vaxandi mæli að frískum einstaklingum Morgunblaðið/Jim Smart Jóhann Ágúst: Læknisfræðin gerir stundum meiri skaða en gagn. Forvarnir í of mikilli sókn Vandamál og upplifanir sjúklings eru ekki leng- ur aðalatriði í hefð- bundnu læknisviðtali þar sem tékklistar hafa tekið völdin, að sögn Jó- hanns Ágústs Sigurðs- sonar, sem fræddi Hrönn Marinósdóttur um forvarnafaraldurinn og afleiðingar hans. Forvarnafaraldur: Krafa frá heilbrigðisyfirvöldum og sérfræðingum um að vera á varðbergi gagnvart ýmsum sjúkdómum og áhættuþáttum. Samkvæmt nýjustu leiðbeiningum í forvörn gegn hjarta- og æða- sjúkdómum eru um 90% fólks yfir fimmtugt í töluverðri áhættu eða í versta falli sjúk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.