Morgunblaðið - 12.11.2003, Qupperneq 22
LISTIR
22 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ný íslensk unglingaópera,Dokaðu við, verður frum-sýnd í Íslensku óperunnií dag. Sýningar fyrir
skólanema verða í Óperunni næstu
daga, en almenn sýning verður á
sunnudag kl. 16.00.
Óperan er ætluð unglingum á aldr-
inum 12-15 ára, og er samstarfsverk-
efni Strengjaleikhússins og Íslensku
óperunnar.
Í óperunni er rakin þroskasaga
drengs. Hann fæddist í þjóðsögu en
ferðast í gegnum margbrotið landið
til nútímans. Þá er hann orðinn að
ungum manni og kynnist ástinni. Lít-
ill drengur með selsaugu fæðist í
borginni, í nútímanum, og ungi mað-
urinn ákveður að leggja sitt af mörk-
um til að heimurinn geti litið bjartari
daga.
Mátulega kurteis ungmenni
Garðar Thór Cortes fer með hlut-
verk piltsins. „Við sjáum þennan
dreng vaxa og verða að þroskuðum
manni. Við fylgjumst með honum allt
frá því að hann er með mömmu sinni
sem kennir honum ýmislegt um lífið,
en það kemur að því að hann kynnist
ungu stúlkunni sem hann fellur al-
gerlega fyrir. Hann er bara of ungur,
en þroskast líka við það að finna ást-
ina, og á endanum eignast þau barn.“
Garðar segist vona að unglingarnir
sem óperan er ætluð hrífist af verk-
inu. „Sýningin er mjög heilsteypt;
lýsingin er falleg og búningarnir.
Tónlistin er mjög blönduð; ekki bara
klassískar aríur heldur líka popp, raf-
tónlist og fleira, en allt mjög mel-
ódískt. Ég hef ekki sungið mikið
popp áður, en allt hitt er með klass-
ískum blæ og kunnuglegt úr því sem
ég hef verið að gera. Ég held ég nái
poppinu þó bara ágætlega. Það er
mjög gaman að hafa tónlistina svona
blandaða og vonandi að það höfði til
unga fólksins.“
Garðar Thór hefur ekki tekið þátt í
verkefni áður sem sérstaklega er
ætlað skólakrökkum – en líst vel á
það.
„Samstarfskona mín, Marta Hall-
dórsdóttir, sagði einmitt að ungir
krakkar væru svo mátulega kurt-
eisir, – ekki svo að skilja að þeir væru
þó nokkuð dónalegir. Ef þeim finnst
gaman, hlusta þeir af athygli og
fylgjast með. En ef þeim finnst leið-
inlegt eru þau ekkert að sýna af sér
kurteisi, bara til að vera kurteis.
Þetta verður örugglega erfitt, en
gaman, og ég hlakka mjög til.“
Fjölbreytileiki í tónlistinni
Kjartan Ólafsson tónskáld segir að
þegar hann hafi verið búinn að liggja
undir feldi, að íhuga hvað gera ætti,
hafi hann ákveðið að tónlistin yrði að
vera mjög fjölbreytt, eins og hún
væri frá ýmsum tímabilum tónlistar-
innar, en með allri þeirri nútíma-
tækni sem völ væri á. „Mér fannst
tónlistin eiga að höfða til unglinga í
dag, en líka unglinga frá öðrum tím-
um, og blanda saman sönglögum,
elektróník, poppi, klassík, tangó-
tónlist og fleiru. Þetta er eitthvað
sem einkennir músíklífið í dag og það
umhverfi sem unglingarnir hrærast í;
það er allt í boði – mikill fjölbreyti-
leiki. Við erum með þriggja manna
hljómsveit á sviðinu, en líka tónlist á
bandi.“
Kjartan segir að ljóðin sem Mes-
síana Tómasdóttir notar í handritið,
hafi líka á sinn hátt stýrt sköpun tón-
listarinnar. „Sum lögin spruttu al-
sköpuð út úr ljóðunum, og ég hjálpaði
bara aðeins til. Ljóðin höfðu því mikil
áhrif á tónlistina. Fyrir vikið er sýn-
ingin frekar ljóðræn en dramatísk –
og það er mikilvægt til að textinn
njóti sín vel.“
Eins og í hefðbundnum óperum
eru líka atriði sem eingöngu eru spil-
uð; forleikur og eftirspil til dæmis.
„Það eru þó engin resitatíf – eða tal-
söngur í óperunni; hlutverk dans-
arans og hreyfingar söngvaranna
koma í þess stað. Ópera er oft skil-
greind sem ákveðið tónlistarform, en
í rauninni má líka líta á hana sem það
sem nafnið gefur til kynna: samsafn
af ólíkum ópusum. Dokaðu við er
þannig ópera – og má segja að við
túlkum hugtakið óperu á nýjan hátt,
sem á kannski ekki svo mikið skylt
við klassíska óperu. Það er heldur
ekki til nein formúla fyrir því hvernig
unglingaópera á að vera, frekar en að
það sé til formúla um það hvernig
unglingar eigi að vera. Þess vegna
vildum við frekar reyna að höfða til
unglinga frá ýmsum tímum með fjöl-
breytileikanum sem er í þessari óp-
eru.“
Tónlistin úr Dokaðu við er komin
út á geisladiski, sem gefinn er út af
ErkiTónlist sf og dreift af Smekk-
leysu. Nótur með lögunum fást hjá
Íslenskri tónverkamiðstöð. Ljóðin og
tónlistin í sýningunni verða auk þess
notuð sem kennsluefni í tónmennt á
vegum Námsgagnastofnunar fyrir
mið- og unglingastig.
ÓPERA eftir Messíönu Tóm-
asóttur, byggð á ljóðum eftir
Theodóru Thoroddsen, Þor-
stein frá Hamri og Pétur
Gunnarsson.
Leikstjórn: Messíana Tóm-
asdóttir.
Tónlist: Kjartan Ólafsson.
Lýsing: David Walters.
Leikmynd, búningar og brúð-
ur: Messíana Tómasóttir.
Sönghlutverk: Garðar Thór
Cortes tenór og Marta Guðrún
Halldórsdóttir sópran.
Danshöfundur og dansari:
Aino Freyja Järvelä.
Hljómsveit: Kjartan Ólafsson
hljómborð, Kolbeinn Bjarna-
son flauta og Stefán Örn Arn-
arson selló.
Dokaðu við
Ég held ég nái
poppinu bara
ágætlega
Unglingaópera er nýtt fyrirbæri í íslenskri
tónlist, en nýtt verk þeirrar tegundar
verður frumsýnt í Íslensku óperunni
í dag. Bergþóra Jónsdóttir ræddi við
Garðar Thór Cortes sem fer með aðal-
hlutverkið í óperunni og Kjartan
Ólafsson tónskáld, sem segir tónlistina
eiga að höfða til ýmissa kynslóða unglinga.
Morgunblaðið/Þorkell
Ungi pilturinn með móður sinni: Söngvararnir Marta Halldórsdóttir og
Garðar Thór Cortes, ásamt Aino Freyju Järvelä, dansara.
Morgunblaðið/Þorkell
Ungi pilturinn kynnist ástinni.
Garðar Thór Cortes og
Aino Freyja Järvelä.
begga@mbl.is
CAROL J. Clover, prófessor í
kvikmyndum og norrænum fræð-
um við Kaliforníu-háskóla í
Berkeley, hefur um árabil verið
einn af fremstu fræðimönnum á
sviði íslenskra miðaldabók-
mennta. Eftir hana liggja bækur
og greinar sem sumar hverjar
hafa haft veruleg áhrif á framþró-
un norrænna miðaldafræða og má
þar nefna bókina The Medieval
Saga sem út kom 1982. Einnig
hefur hún haslað sér völl sem
kvikmyndafræðingur og skrifað
athyglisverðar greinar og bækur,
m.a. um hryllingsmyndir og ber
þá að nefna bók hennar Men,
Women and Chain Saws frá árinu
1992.
Clover heldur í dag opinberan
fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla
Íslands, í aðalbyggingunni, kl.
16.15 í boði lagadeildar, heim-
spekideildar, Árnastofnunar,
Stofnunar Sigurðar Nordals og
Hugvísindastofnunar. Í fyrirlestri
sínum hyggst Clover skoða Gísla
sögu Súrssonar sem glæpasögu
og hvað það sé í frásagnarhætt-
inum sem höfði svo til nútímales-
enda. Allir eru velkomnir og að-
gangur er ókeypis.
„Mér skilst að margir þeirra
sem lesi og fjalli um Gísla sögu
Súrssonar líti fyrst og fremst á
hana sem útlagasögu, en ég hef
engan áhuga á því. Ég skoða að-
eins fyrstu sautján kaflana, þ.e.
hvernig morðið á Vésteini er
kynnt til sögunnar og ráðgátuna
sem felst í þessu morði. Ég hef
sérstakan áhuga á frásagnarstíl
þessa hluta sögunnar, því merkja
má afar sérkennilegt samband
milli höfundarins og lesenda eða
áheyrenda sem er algjörlega ein-
stakt í svona fornri sögu,“ segir
Carol J. Clover spurð um fyr-
irlestur sinn í dag.
Gísla saga sem
nútíma glæpasaga
„Í fyrsta lagi hegðar Gísli sér
nánast eins og leynilögreglumað-
ur í textanum, en við lesendur er-
um sett í stöðu sjálfstæðra rann-
sakenda utan textans. Og það er
alveg ótrúlegt að þetta samspil sé
að finna í svona gömlum texta. Í
raun má lesa Gísla sögu Súrs-
sonar sem nútíma leynilögreglu-
sögu eða glæpasögu. Samkvæmt
skilgreiningu kom nútíma glæpa-
sagan fyrst fram á sjónarsviðið
árið 1841 með sögu Edgars Allans
Poes Murders in the Rue Morgue
og að mati margra er tilkoma
glæpasögunnar eitt af því fáa sem
menn telja sig geta dagsett full-
komlega í bókmenntasögunni.
En auðvitað er afar freistandi
að reyna að finna einhvers konar
forvera glæpasögunnar og margir
hafa reynt að rekja þetta frásagn-
arform glæpasögunnar til m.a.
Biblíunnar og grískra bókmennta.
Stungið hefur verið upp á ýmsum
sögum og uppáhald margra er
sagan af Ödipusi konungi eftir
Sófókles, því Ödipus hagar sér að
mörgu leyti eins og leynilögreglu-
maður. Hann veit hins vegar ekk-
ert hvað hann er að gera á meðan
við lesendur vitum nákvæmlega
hvað er að gerast vegna þess að
kórinn segir okkur það. Þess
vegna m.a. tel ég söguna um
Ödipus konung enga alvöru
glæpasögu, en Gísla saga Súrs-
sonar er það tvímælalaust þar
sem hún spilar leikinn rétt. Í fyr-
irlestri mínum í dag mun ég sýna
fram á hvernig ég kemst að þess-
ari niðurstöðu. Að lokum mun ég
síðan greina þau sögulegu skilyrði
sem urðu til þess að saga eins og
Gísla saga Súrssonar var samin á
Íslandi á 13. öld.“
Tengsl miðaldatexta
og nútímaafþreyingar
Eins og gat um hér að ofan hef-
ur Clover ekki aðeins skrifað um
miðaldatexta heldur líka skoðað
bandarískar nútímakvikmyndir,
þar á meðal hrollvekjur og svo-
kallaðar hnífsstungumyndir
(e.slasher films). Það liggur því
beint við að forvitnast hvað mið-
alda fornbókmenntir og nútíma
afþreyingarkvikmyndir eigi sam-
eiginlegt. „Að mínu mati eiga
bæði Íslendinga sögurnar og
fornbókmenntir í heild mjög
margt sameiginlegt með nútíma
bandarískri alþýðumenningu.
Með því á ég við að hvoru tveggja
er skipulagt samkvæmt ákveðinni
forskrift. Þannig koma fram á
sjónarsviðið ákveðnir flokkar eða
greinar mynda eða sagna sem
hverfa síðan aftur.
Ég finn þess vegna að ég get
notað sömu fræðikunnáttuna
hvort sem ég er að rannsaka Ís-
lendinga sögur eða hryllings-
myndir, því í báðum tilfellum
skoða ég ógrynni af textum til að
greina hvað þeir eigi sameigin-
legt, ég skoða hvernig fyrstu text-
arnir eða myndirnar í viðkomandi
flokki eru öðruvísi en þær sem
framleiddar eru undir lok flokks-
ins og hvað það er í samfélaginu
sem veldur því að verið er að
framleiða og skapa svona texta
eða myndir skipti eftir skipti.
Að sama skapi er ótrúlega
margt líkt í hugsunarhættinum
varðandi kynjahlutverkin bæði í
miðaldatextum og í nútíma hryll-
ingsmyndum, sem raunar á rætur
að rekja aftur til sýnar Aristóles-
ar á kynjunum. Margir þeirra
sem lesið hafa Men, Women and
Chain Saws, þar sem ég greini
nútíma hryllingsmyndir og vita að
ég er miðaldafræðingur, halda því
raunar fram að aðeins miðalda-
fræðingur hefði getað skrifað þá
bók. Sumir halda því meira að
segja fram að aðeins sérfræðing-
ur um Íslendinga sögurnar hefði
verið fær um að skrifa bókina.“
En þess má geta að ritstjóri
Speculum, eins virtasta tímarits
um miðaldafræði, bað Clover að
skrifa grein um kynjahlutverk í
miðaldatextum eftir að hann hafði
lesið bók hennar um nútíma hryll-
ingsmyndir.
Leitin að uppruna
glæpasögunnar
Morgunblaðið/Sverrir
Carol J. Clover heldur fyrirlestur
um Gísla sögu Súrssonar í hátíð-
arsal Háskóla Íslands í dag.
silja@mbl.is