Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 34
MINNINGAR
34 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Victor Páll Jó-hannsson fæddist
í Reykjavík 9. maí
1995. Hann lést af
slysförum fimmtu-
daginn 30. október
síðastliðinn. Foreldr-
ar Victors Páls eru
Jónína Auðbjörg
Sigurbjörnsdóttir, f.
17. apríl 1968, og Jó-
hann Helgi Hlöð-
versson, f. 16. októ-
ber 1966. Foreldrar
Auðbjargar eru
Bjarndís Steinþóra
Jóhannsdóttir og
Sigurbjörn Hrólfur Jóhannesson,
d. 18. mars 1975, seinni maður
Bjarndísar var Páll Sævar Krist-
insson, d. 11. október 1996. For-
eldrar Jóhanns Helga eru Elísa-
bet Þóra Gunnlaugsdóttir og
Hlöðver Jóhannsson, seinni mað-
ur Elísabetar er
Reynir Heide, seinni
kona Hlöðvers er
Jónína Jónsdóttir.
Seinni kona Jóhanns
Helga er Margrét
Ormsdóttir, f. 15.
desember 1972. For-
eldrar hennar eru
Ingibjörg Jónsdóttir
og Eiríkur Ormur
Víglundsson. Systk-
ini Victors Páls eru
Elísabet Ögn, f. 2.
ágúst 1988, og Sig-
urbjörn Hlöðver, f.
8. apríl 1990. Synir
Margrétar eru Almar Yngvi
Garðarsson, f. 15. desember 1992,
og Daníel Aron Davíðsson, f. 3.
desember 1997.
Útför Victors Páls verður gerð
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Elsku besti Victor minn. Það er svo
sárt að hugsa til þess að geta ekki
tekið þig í fangið og knúsað þig aftur
eins og við gerðum svo oft.
Helgina áður en þetta hræðilega
slys gerðist, áttum við svo frábæran
tíma saman.
Við þurftum eittvað svo mikið á
hvor öðrum að halda. Þú leiddir mig
um allt og vékst varla frá mér. Við
hjálpuðum tengdapabba að flytja í
nýja húsið á laugardeginum og höfð-
um svo „skrautlegan dag“ (eins og við
kölluðum það okkar á milli) á sunnu-
daginn en þá fórum við í Bláa lónið,
bíó og út að borða. Um kvöldið leyfði
ég þér svo að sofna uppí hjá mér og
sagði þér sögur. Ég er mjög þakk-
látur fyrir að hafa fengið að vera
pabbi þinn og kynnst þér svona vel á
þinni allt of stuttu ævi. Við verðum að
trúa því að allt hafi sinn tilgang og
guð og englarnir hafi þurft á litla
spekingnum að halda. Þú vart svo
frábær persónuleiki, yfirvegaður,
þrjóskur, framsýnn og áttir svo auð-
velt með að gefa frá þér ást og kær-
leika til þeirra sem þú elskaðir. Þú
varst mjög uppfinningasamur og
mikill business-maður.
Alltaf að koma með einhverjar
hugmyndir um business, t.d semja
sögur, teikna myndir og selja, hvattir
Almar stjúpbróður þinn til þess að
selja steina afnið sitt sem var farið að
fylla svalirnar hjá okkur. Þið sátuð
svo fyrir framan innganginn að Nóa-
túni og selduð fullt af grjóti. Eins í
fyrra vetur þegar þú komst til mín og
sagðir „pabbi“ ég er kominn með
góða hugmynd að vinnu fyrir mig. Ég
ætla að safna dósum. Frábært sagði
ég. Svo hitti ég þig aftur tveim dögum
síðar og spurði hvernig gengi og þú
sagðir það ganga vel, værir kominn
með 7 stóra ruslapoka, fulla af dósum.
Hvernig fórstu að því að safna öllum
þessum dósum? spurði ég. Nú ég
gekk bara í hús sagðir þú. Þú hringd-
ir í mig rétt áður en þið lögðuð af stað
suður og varst svo spenntur að fá að
vera hjá okkur aftur, en ...
Það má þakka guði fyrir að Sig-
urbjörn bróðir þinn, mamma þín og
Inga sluppu lifandi úr bílslysinu. Vic-
tor þú verður ávallt í huga og hjarta
mér og ég veit að þú ert í góðum
höndum, þarna uppi. Það eina sem er
öruggt í þessu lífi er að við förum öll
þangað að lokum. Hittumst þá...
Þinn
pabbi.
Elsku besti Victor minn, litli stúf-
urinn...
Það er svo skrítið að hugsa til þess
að þú munir ekki fylla húsið okkar af
nærveru þinni. Þú varst alveg ein-
stakur persónuleiki, ástkær, einlæg-
ur, staðfastur, fékkst hugmyndir sem
fáir aðrir fengu, hafðir spurningar
sem maður vissi oft ekki svörin við og
stundum nokkuð þrjóskur. Ég vil
þakka þér fyrir allar þær fjölmörgu
góðu stundir sem ég fékk að eiga með
þér síðastliðin tvö ár, allt sem þú
kenndir mér og gafst mér með þínum
frábæru uppátækjum. Allar þær
góðu minningar sem búa í hjarta mér
mun ég varðveita og minnast.
Megi guð og englarnir vera með
þér, alltaf, elsku besti Victor minn.
Þín stjúpmóðir og vinur alltaf,
Margrét Ormsdóttir (Magga).
Elsku litli bróðir, ó hversu sárt ég
sakna þín. Þú varst alveg einstakur
strákur og hafðir mjög skemmtilegan
og hugljúfan persónuleika. Þú varst
þrjóskur en mjög einlægur eins og
allir sem hafa þekkt þig vita. Það sem
ég mun aldrei gleyma er röddin þín,
lyktin af þér og þín fagra ásjóna. Ég
mun líka alltaf muna eftir öllum þín-
um snjöllu hugdettum og framtíðar-
draumum. Já þú ætlaðir þér mikla
hluti og hafðir allt sem til þarf. Þú
varst mjög sköpunarglaður og hafðir
gaman að því að skrifa sögur eða litl-
ar bækur. En skemmtilegast fannst
þér að lesa þær upphátt og deila með
fjölskyldu þinni og vinum. Þú áttir
ekki alltaf auðvelt með lífið og til-
veruna, því þú þurftir oft að leggja
hart að þér. Þegar ég loka augunum
þá sé ég þig fyrir mér með bros á vör
og geislandi glampa í augunum. Það
sem er mér minnisstæðast um þig,
litli bróðir, er hversu friðsæll þú varst
þegar þú svafst. Það mætti segja að
þú brostir í svefni og hafðir gaman af
draumum þínum. Þú varst alltaf heit-
ur og það var alltaf hægt að hlýja sér
upp að þér, en nú verðum við að láta
okkur nægja að hlýja okkur við til-
hugsunina um þig. Ég elska þig svo
heitt. Ég vona svo innilega með öllu
mínu hjarta að þú hafir það gott og
vitir hversu heitt þú ert elskaður og
hversu sárt þín er saknað. Ég mun
aldrei gleyma þér, elsku hjartans litli
bróðir. Ég mun geyma minningarnar
í hjarta mér þangað til við samein-
umst á ný og þá vonandi skapað nýj-
ar. Það voru forréttindi að fá að
þekkja þig og eiga þig að sem bróður.
Þín systir og vinur að eilífu
Elísabet Ögn Jóhannsdóttir.
Elsku besti og mesti Victor Páll, þú
sem varst mér svo líkur.
Ég þekkti þig betur en allir aðrir,
og vissi alltaf hvernig þér leið.
Ég sakna þín svo ótrúlega heitt. Ég
er mjög ánægður yfir að við gátum
haft svona yndislega daga saman áð-
ur en þú gafst upp andann og nú þarf
ég aldrei að vera hræddur því að ég
veit að þú munt hjálpa mér, en ég vil
bara segja að það var æðislegt að
kynnast þér. Þú varst yndislegur
strákur, algjör business-maður og
mjög þroskaður miðað við aldur. Það
var æðislegt að fá að þekkja þig,
kynnast þér og fá að vera í kringum
þig.
Ég vil bara láta þig vita að ég skal
aldrei hætta að vera fyrirmyndin þín,
þú skalt ekki óttast það. Þinn vinur,
bróðir og fyrirmynd.
Sigurbjörn Hlöðver Jóhannsson.
Af hverju fórstu frá mér, Victor
minn. Þú varst svo góður strákur. Þú
ert bestur, bróðir minn. Þú verður
alltaf í hjarta mínu Victor Páll.
Þinn einlægur bróðir
Almar Yngvi.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið loga skæra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(Friðrik Guðni Þórleifsson.)
Elsku hjartans ömmustrákurinn
minn, stóra ljósið í hjarta mínu og
einstakur drengur alla tíð. Yndislegu
augun þín, bjarta brosið þitt, glettni
þín og húmorinn þinn. Þú varst biss-
nessmaður mikill og uppfinningar
þínar frumlegar. Þú varst einstak-
lega sterk persónugerð og frábært
mannsefni sem ömmu Betu óraði
ekki fyrir að öðlaðist ekki fullorðins-
ár, en mennirnir ákvarða og Guð ræð-
ur. Það er okkur hulinn lífstími mann-
anna á þessari jörð. Victor Páll minn,
8 ára. Hafðu ástarþakkir, elsku hjart-
ans ömmudrengurinn minn, fyrir allt
það sem þú gafst mér. Algóði guð
styrki og blessi alla þá sem syrgja.
Elsku Jóhann Helgi minn, Auðbjörg,
Elísabet, Sigurbjörn, Magga, Almar
og Daníel, sorg ykkar er mikil en
minning hans er ljós í lífi okkar. Ég
elska þig, Victor Páll minn.
Þín amma Beta,
Elísabet Þóra.
Mamma, ekki gráta mig, ég veit þú saknar mín.
Mig langar að vera hjá þér og þerra tárin þín.
Ég fékk aldrei að sjá þig og blíðu brosin þín,
Guð vantaði lítinn engil og kallaði mig til sín.
Segðu pabba að ég elsk’ann því pabbi á líka
bágt,
faðmaðu hann fyrir mig og hvíslaðu ofurlágt.
Segð’onum frá stjörnunni sem á himnum
skærast skín,
kennd’onum að þekkja hana því hún er stjarnan
mín.
Núna áttu lítinn engil sem vakir yfir þér,
ég passa líka pabba, segðu honum það frá mér.
Það eru hér svo margir sem þykir vænt um mig,
fjöldi fallegra engla sem gæta mín fyrir þig.
Tendraðu lítið kertaljós til að lýsa þér til mín,
láttu á leiðið mitt hvíta rós, það læknar sárin þín.
Þegar sorgarinnar skuggi dvín, þá muntu
minnast mín
og tár þín verða gleðitár því ég verð ávallt þín.
(Höf. ók.)
Elsku Victor Páll minn.
Það er sárt að þurfa að kveðja
ömmustrákinn sinn aðeins átta ára
gamlan. Þú áttir allt líf þitt framund-
an, en svona eru örlögin. Þú sem
hlakkaðir svo til að flytja norður á
Hóla ásamt mömmu þinni og Sigur-
birni og vera þar í skóla.
Þegar þú varst lítill varstu mikið
hjá ömmu og afa meðan mamma þín
og pabbi voru að standsetja Mána-
stíginn, þá var alltaf fjör í kringum
þig. Þú varst að skríða upp í rúm til
afa og lúlla með gula púðann eða að
reyna að plata nammi hjá afa. Fyrir 2
árum voru þið hjá ömmu í 3 mánuði.
Þegar þú áttir að fara að sofa og bú-
inn að tannbursta þig, kominn upp í
rúm þá varðstu allt í einu svo svangur
og sagðir ömmu að þú hefðir ekki
borðað í allan dag, sem ég vissi að
væri ekki satt.Það verða tómleg og
erfið jól hjá mömmu þinni, Elísubetu
og Sigurbirni, eins hjá pabba þínum,
Möggu, og eins okkur öllum hinum.
Við verðum öll að reyna að lifa með
sorginni. Minning um yndislegan
strák mun lifa í hjörtum okkar öllum.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Auðbjörg mín, Elísabet, Sig-
urbjörn, Jói, Magga og synir, ég votta
ykkur alla mína samúð vegna fráfalls
Victors Páls.
Megi almátturinn hjálpa ykkur í
þessari stóru sorg sem er yfir okkur
öllum.
Amma Steina.
Bjarndís Steinþóra.
Elsku Victor Páll minn, aldrei datt
mér í hug að þú mundir deyja svona
ungur og í blóma lífsins. Það sem hef-
ur hjálpað mér mjög mikið er að mjög
fljótlega komumst við að því að þú
værir kominn alla leið og að það hefði
verið tekið vel á móti þér og útskýrt
fyrir þér að þú værir dáinn. Þú spurð-
ir þá mennina að því hvað þú þyrftir
að borga mikinn pening til að komast
aftur til mömmu þinnar því þú ættir
svo mikinn pening. En því miður var
það ekki hægt.
Við erum nokkuð viss um það að
þessir menn séu afar þínir báðir sem
munu hjálpa þér að komast í gegnum
þetta allt saman með tímanum.
Þessi setning lýsir þér allra best,
þú varst svo mikill peningur. Þú
máttir ekki koma í heimsókn án þess
að þú spyrðir hvort ég ætti pening,
því að þig vantaði svo rosalega mikið
10, 50, 100 krónur eða svo. Það þurfti
ekki mikið hjá þér til að koma mér
eða öðrum til að hlæja. Þegar þú
varst yngri þá var alltaf svo gaman að
heyra þig segja frá einhverju sem þú
varst alveg viss um að væri rétt en
var nú ekkert annað en hvít lygi eða
svo, ekki blikkaðir þú augunum við að
segja frá.
Fyrstu árin þín má segja að ég hafi
bara átt þig ein og sér. Á meðan
mamma þín og pabbi voru að stand-
setja í húsið sem þau keyptu sér á
Mánastígnum var ég með þig frá
morgni til kvölds. Það liggur við að þú
þyrftir ekki neitt á mömmu þinni að
halda því þú hafðir hug minn allan.
Ekki nóg með það því þú kallaðir mig
alltaf Dæju og varst sá eini sem gerð-
ir það fyrir utan Sævar afa þinn og
það fannst mér mjög gott. Reyndar
leið ekki á löngu þar til hin frænd-
systkinin mín byrjuðu á því líka, þau
vildu líka vera með í þessum nafna-
leik.
Ég hef aldrei lofað að brautin sé bein
og gullskrýddir blómstígar alla leið heim.
Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar
á göngunni löngu til himinsins borgar.
En lofað ég get þér aðstoð og styrk
og alltaf þér ljós þó að leiðin sé myrk.
Mundu svo barnið mitt að lofað ég hef
að leiða þig sjálfur hvert einasta skref.
(„Loforð Guðs til barnsins“.)
Þú hefur oft komið upp í hugann
minn þegar ég hef verið að horfa á
Kristján Sindra son minn. Við höfum
svo margar góðar minningar um þig.
Minningar eru eitt af því dýrmæt-
asta sem til er, allavega að mínu mati.
Elsku systir mín, þið eigið alla
mína samúð í þessari sorg sem er yfir
okkur öllum.
Ég sendi ykkur alla mína orku til
að styðja ykkur þegar sorgin er sem
mest.
Einhversstaðar í framhaldinu mun
birta til og fyrir það reynir maður að
lifa lífinu lifandi.
Megi Guð og englar vaka yfir ykk-
ur að eilífu.
Þín móðursystir
Særós (Dæja).
Elsku litli frændi minn Victor Páll,
það er sárt og óskiljanlegt að vita til
þess að þú sért farinn frá okkur héð-
an þó ég viti að þú ert alltaf hjá mér.
Mikið ofboðslega var gaman að
hafa kynnst þér og hafa upplifað með
þér yndislega tíma, því án efa varst
þú sá alfyndnasti strákur sem ég hef
vitað um, þvílíkur gullmoli og grallari
þú varst.
Síðasta skiptið sem við vorum tveir
saman þá sagði ég þér í fyrsta sinn að
ég væri guðfaðir þinn, en þá leistu á
mig og sagðir: „nei þú ert ekki pabbi
minn“ og glottir sem lýsti þér allvel.
Sama dag gerðistu spádómsmaður
mikill í lófalestri og spurðir hvort ég
og Katrín kærastan mín værum farin
að gera „dodo“. Svona varstu þegar
mjög vel lá á þér engillinn minn.
Ég veit að þú ert á besta stað í
englaríki og þú átt eftir að verða
stjórnandi þarna.
Elskulega fjölskylda, við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð.
Þinn guðfaðir
Gunnlaugur og Katrín.
Okkar hinsta kveðja.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku Auðbjörg, Jóhann, Margrét,
Elísabet Ögn, Sigurbjörn Hlöðver,
Almar, Daníel og aðrir aðstandendur,
við vottum okkar dýpstu samúð.
Megi Guð styrkja ykkur og leiða í
ykkar sáru sorg.
Hugur okkar er hjá ykkur.
Guðmunda og Marinó,
Rúnar Örn, Friðjón og Ásdís,
Gunnlaugur og Magnea og börn.
Hví fölnar jurtin fríða
og fellir blóm svo skjótt?
Hví sveipar barnið blíða
svo brátt hin dimma nótt?
Hví verður von og yndi
svo varpað niður í gröf?
Hví berst svo burt í skyndi
hin besta lífsins gjöf?
(Björn Halldórsson frá Laufási.)
Þau eru þung sporin sem við stíg-
um í dag. Það að kveðja barn og
fylgja því til grafar er bara svo rangt,
svo óendanlega óréttlátt. Yndislegur
drengur hefur verið tekinn í burtu frá
foreldrum sínum og systkinum sem
elska hann svo heitt.
Victor Páll var fjörugur og
skemmtilegur strákur. Hann kallaði
alltaf fram bros með hnyttnum til-
svörum. Við eigum eftir að sakna
hans sárt.
Minningin um Victor Pál mun allt-
af lifa í hjörtum okkar.
Elsku Auðbjörg, Jói, Magga, El-
ísabet, Sigurbjörn, Almar og Daníel.
Guð gefi ykkur styrk í ykkar miklu
sorg.
Við sendum ykkur og fjölskyldum
ykkar okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Hjördís og Guðmundur, Hrafn
og Guðlaug, Kjartan og María,
Árni og Katrín, Kristján og
Halldóra, Þór og Ásthildur.
Í daglegu amstri okkar fullorðna
fólksins er það tilbreyting og fagn-
aðarefni ef góða gesti ber að garði,
einkum og sér í lagi ef gestirnir eru
ungir að árum og búnir þeirri gáfu að
sjá ævintýrin gerast við hvert fótmál.
Oft var það, að lítill maður með blik
í augum og bros á vör birtist í dyra-
gættinni. Hann kom ekki alltaf bein-
ustu leið heim að húsi. Stundum lá för
hans yfir kletta og klungur, því hann
notaði ferðina til að kanna umhverfið
um leið og hann heimsótti ættingja
sína.
Í þessum heimsóknum þurfti að
ýmsu að gæta, hvað voru dýrin í garð-
inum mörg og hvað hétu þau? Var
hænan búin að verpa? Hafði litli kött-
urinn stækkað? Var hundurinn alltaf
jafn óþægur?
Stundum dvaldi hann góða stund,
þáði mjólk og brauð, lék við köttinn,
klappaði hundinum, athugaði hvort
lítandi væri á eitthvað í sjónvarpi eða
myndbandstæki, stillti upp taflinu á
skákborðinu, leit í bók, eða bara
spjallaði við heimilisfólkið, athugull
og spurull og bar með sér fögur fyr-
irheit.
Stundum var hann á hraðferð og
þurfti að drífa sig, annaðhvort heim á
leið eða að vinirnir biðu eftir honum
til að leika.
Stundum hittumst við líka á förn-
um vegi, oft var hann einn á ferð,
sjálfum sér nógur og upptekinn að
skoða veröldina. Veður og vindar
skiptu engu máli eða hvort húfa og
vettlingar voru með í för. Engar
áhyggjur af svoleiðis smámunum,
miklu frekar að hafa með sér geisla-
sverð, eða eitthvað í þá veru, ef
hrekkjusvín eða annað illþýði yrði á
vegi manns.
Á þeim tíma, sem leið hans lá suður
á Hlíðarbraut, var honum boðin fylgd
áleiðis. Það taldi hann mesta óþarfa,
en vitandi hve kvenfólk er erfitt við-
fangs – og því verra sem það er eldra
– þá lét hann sig hafa það að vera
VICTOR PÁLL
JÓHANNSSON