Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert einstaklega hæfi-
leikarík/ur og aðlaðandi. Þú
leitar sjálfsþekkingar og
fegurðar. Nánustu sambönd
þín verða í brennidepli á
árinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er hætt við deilum um
stjórnmál og trúmál í dag. Þú
hefur sterkar skoðanir á hlut-
unum en mátt ekki láta það
spilla góðri vináttu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú finnur fyrir sterkum
ástríðum í dag. Þú hefur
mikla orku og þarft að fá út-
rás fyrir hana.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur sterkar skoðanir á
hlutunum. Þú vilt fá þitt fram
og ert óhrædd/ur við að deila
skoðunum þínum með yf-
irmönnum þínum. Gættu
þess að fara ekki yfir strikið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú færð góðar hugmyndir um
samvinnu og hagræðingu í
vinnunni. Kappsemi þín hvet-
ur aðra til samstarfs við þig.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ástríður þínar eru vaktar í
dag. Þú vilt lifa lífinu lifandi.
Þú ættir þó að fara varlega
því annars er hætt við að
bæld óánægja komi upp á yf-
irborðið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver er tilbúin/n að að-
stoða þig við að gera breyt-
ingar á heimilinu eða innan
fjölskyldunnar. Gríptu tæki-
færið og þiggðu alla þá hjálp
sem þér býðst.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það gæti komið þér á óvart
hvað þú laðast sterkt að ein-
hverjum í dag. Það er einhver
spenna í þér sem veldur
þessu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það getur enginn talið þig af
því að eyða peningum í
skemmtanir í dag. Þú ert
ákveðin/n í að skemmta þér
og þínum nánustu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er einhver spenna í þér
sem þarf að fá útrás. Þér
finnst lífið skemmtilegt og þá
sérstaklega breytingar sem
eru að verða á heimilinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Íhugaðu hvernig þú getur
bætt samskipti þín við sam-
starfsfólk þitt. Vertu óhrædd/
ur við að sýna öðrum vænt-
umþykju.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhvers konar samtök fara
fram á fjárstyrk frá þér í dag.
Þótt málefnið sé gott þarftu
að gæta þess að gefa ekki
meira en þú hefur efni á að
missa.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er kraftur í þér í dag. Þú
vilt hrinda hugmyndum þín-
um í framkvæmd en þarft að
muna að aðrir geta verið jafn-
spenntir fyrir eigin hug-
myndum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁLFADANS
Í tunglsljósi á ís yfir Tungufljót ég reið,
teygða ég þar hestinn á snarpasta skeið;
en viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.
Hart greip hann sprettinn og sparði ei afl,
spegilhált var svellið og stæltur var skafl.
En viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.
Allt í einu fældist og frýsaði hátt
fákurinn og öfuga snerist í átt.
Því viðsjált, viðsjált er á vetrardegi vötnin að ríða.
- - -
Grímur Thomsen
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 12.
nóvember, er sjötug Hafdís
Helgadóttir, Stórholti 19.
Ættingjum og vinum er boð-
ið að samfagna með henni
laugardaginn 15. nóvember
kl. 15-19 í safnaðarheimili
Seljakirkju.
50 ÁRA afmæli. 16. nóv-ember nk.verður
Jóna Björg Jónsdóttir, leik-
skólakennari fimmtug. Hún
og eiginmaður hennar,
Snorri Tómasson, taka á
móti gestum laugardaginn
15. nóvember kl. 20 í Kiw-
anishúsinu, Smiðjuvegi 13a,
Kópavogi. Þeim sem vilja
gleðja hana með blómum
eða skrautmunum er bent á
minningarsjóð um Kristján
Eldjárn gítarleikara, reikn:
0513-18-430830 kt. 650303-
3180.
ENN hefur ekkert óvænt
gerst í keppninni um
Bermudaskálina. Átta liða
úrslitum lauk á mánudaginn
og þær fjórar sveitir sem
fyrirfram voru taldar bestar
unnu allar öruggan sigur á
mótherjum sínum. Þetta eru
báðar bandarísku sveitirnar,
Ítalía og Noregur. Fjögurra
liða úrslit hófust í gær, en
lýkur í dag. Bandarísku
sveitirnar keppa innbyrðis
og Ítalía og Noregur. Úrslit-
in í kvennaflokki voru líka
„eftir bókinni“, en þar keppa
Kínverjar og Hollendingar,
og tvær bandarískar sveitir í
fjögurra liða úrslitum. Hægt
er að fylgjast með framvind-
unni á Netinu, til dæmis á
worldbridge.org, þar sem
úrslit koma jafnharðan, og
svo má skoða beina útsend-
ingu af spilamennskunni á
bridgebase.com.
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ 4
♥ KG102
♦ kG76
♣10654
Vestur Austur
♠ K98753 ♠ DG
♥ 953 ♥ 86
♦ Á2 ♦ D109543
♣87 ♣932
Suður
♠ á1062
♥ ÁD74
♦ 8
♣ÁKDG
Bandaríska B-sveitin
lenti í slæmum kafla í rað-
keppninni og komst naum-
lega áfram. Sveitin mætti
Pólverjum í átta liða úrslit-
um og vann þá viðureign
örugglega með tæplega 100
IMPa mun í 96 spilum. Pól-
verjar fóru þó vel af stað og
unnu 11 IMPa strax í byrjun
leiks.
Vestur Norður Austur Suður
Morse Zawinslak Wolff Krupowicz
-- -- -- 1 lauf
Pass 1 hjarta Pass 3 grönd *
Pass 4 hjörtu Allir pass
Zawinslak og Krupowicz
eru nýliðar í pólska landslið-
inu. Þeir enda hér í fjórum
hjörtum eftir víðáttu lauf-
opnun (pólskt lauf), hjarta-
svar og sterka hækkun í
fjögur hjörtu. Útspilið var
tígulás og Krupowicz var
fljótur að innbyrða tólf slagi:
480.
Á hinu borðinu sögðu
Landen og Pratap sex
hjörtu gegn Jassem og
Gawrys:
Vestur Norður Austur Suður
Jassem Landen Gawrys Pratap
-- -- -- 1 lauf
1 spaði Dobl Pass 2 spaðar *
Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass 3 spaðar* Dobl Redobl
Pass 4 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Jassem fann besta út-
spilið, eða tromp. Pratap tók
slaginn í borði, fór heim á
spaðaás og spilaði tígli að
blindum. Þar eð Gawrys
hafði doblað fimm tígla
ákvað Jassem að dúkka tíg-
ulinn. Það reyndist banvæn
vörn, því auðvitað lét sagn-
hafi gosann úr borði og aust-
ur fékk á drottninguna.
Gawrys trompaði aftur út og
sagnhafi gat nú aldrei fengið
nema ellefu slagi. Frábær
vörn, en eitt spil af 96 segir
litla sögu.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
HLUTAVELTA
Morgunblaðið/Ásdís
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu til styrktar Regn-
bogabörnum og söfnuðu 14.050 kr. Þau eru: Daníel Jak-
obsson, Jónas Sturla Gíslason, Anna Guðný Sigurðardóttir
og Kristín Dóra Ólafsdóttir.
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5
d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6.
Bd3 Be7 7. O-O Rc6 8. c4
Rb4 9. Be2 Be6 10. Rc3 O-O
11. Be3 Rxc3 12. bxc3 Rc6
13. cxd5 Bxd5 14. c4 Be4 15.
Dd2 Bf6 16. Had1 b6 17.
Rg5 Bf5 18. Bf3 Dd7 19. Re4
Be7 20. Dc3 Bg4 21. Bxg4
Dxg4 22. f3 Df5 23. d5 Ra5
24. c5 Hfd8 25. d6 cxd6 26.
cxd6 Bf8 27. Hd4 Hd7 28.
Hfd1 Had8 29. Hd5 De6 30.
Bg5 f6
Staðan kom upp í Áskor-
endaflokki Mjólk-
urskákmótsins sem lauk
fyrir skömmu á Hótel Sel-
fossi. Annar sigurvegara
flokksins, Tomas Oral
(2550) hafði hvítt gegn Tóm-
asi Björnssyni (2238). 31.
Bxf6! gxf6 32. Rxf6+ Kf7
33. Rxd7 Hxd7 34. Dd3 Kg8
35. f4! Hvítur þjarmar hægt
og sígandi að svörtum með
því að ryðja úr vegi hindr-
unum fyrir innrás þungu
manna sinna. 35...Rb7 36.
He5 Dxa2 37. Dg3+ Kh8 38.
Dc3 Kg8 39. Hg5+ Kf7 40.
Dh8 Dc2 41. Dg8+ og svart-
ur gafst upp. Hinn geðþekki
og skemmtilegi skákmaður
Henrik Danielsen fékk sjö
vinninga af 9 mögulegum
eins og Oral. Hróksverj-
arnir Róbert Harðarson og
Tómas Björnsson stóðu sig
með prýði á mótinu en Stef-
án Kristjánsson missti flug-
ið eftir að hann hóf mótið
vel.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
KIRKJUSTARF
Bústaðakirkja. Starf eldri borgara. Kl. 13–
16.30. Handavinna, spilað, föndrað.
Danshópur kemur í heimsókn. Þeir sem
óska eftir að láta sækja sig fyrir samveru-
stundirnar láti kirkjuverði vita í síma
553 8500.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl.
14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og
spjall.
Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8. Hug-
leiðing, altarisganga, léttur morgunverður.
Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–
12. Samverustund fyrir 6 ára kl. 14.30.
Samverustund fyrir 7–9 ára kl. 15.30.
Samverustund fyrir 10–12 ára kl. 17. Tólf
sporin – andlegt ferðalag kl. 20.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11.
Súpa og brauð borið fram í Setrinu kl. 12.
Brids í Setrinu kl. 13–16. Kvöldbænir kl.
18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 kyrrðarstund
og bænagjörð með orgelleik og sálma-
söng. Kl. 12.30 súpa og brauð (300 kr.).
Kl. 13–16 opið hús eldri borgara. Söngur,
tekið í spil, upplestur, föndur, spjall, kaffi-
sopi o.fl. Allir eldri borgarar velkomnir. Þeir
sem ekki komast á eigin vegum geta
hringt í kirkjuna og óskað eftir því að verða
sóttir. Síminn er 520 1300.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10
undir stjórn Aðalbjargar Helgadóttur. Nýjar
mömmur velkomnar með börnin sín.
Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af stað
frá kirkjudyrum kl. 10.30 alla miðviku-
dagsmorgna. Kirkjuprakkarar kl. 14.10.
Starf fyrir 1.–4. bekk. Umsjón Aðalheiður
Helgadóttir, hjónin Kristjana H. Þorgeirs-
dóttir Heiðdal og Geir Brynjólfsson auk sr.
Bjarna. Fermingartími kl. 19. Unglinga-
kvöld Lauganeskirkju kl. 20 (8. bekkur).
Umsjón hafa Sigurvin Jónsson og Sigríður
Rún Tryggvadóttir.
Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12.
Fræðsla um hvernig má hlúa að geðheilsu
og efla hana. Dóra Guðrún Guðmundsdótt-
ir, markaðs- og fræðslufulltrúi Geðræktar.
Umsjón Elínborg Lárusdóttir. 7 ára starf kl.
14.30. Sögur, söngur, leikir og föndur. Op-
ið hús kl. 16. Upplestur og umræður kl.
17. Lesið upp úr ævisögu séra Árna Þór-
arinssonar. Umsjón sr. Örn Bárður Jóns-
son. Fyrirbænamessa kl. 18. Prestur sr.
Örn Bárður Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund í hádeg-
inu kl. 12. Altarisganga. Léttur hádegis-
verður eftir stundina. Allir velkomnir.
Fríkirkjan í Reykjavík. Í hádegi er fólki
boðið til bænastunda í kapellu safnaðar-
ins á annarri hæð í safnaðarheimilinu.
Sérstök áhersla er lögð á bæn og íhugun,
en einnig flutt tónlist og textar til íhugunar.
Koma má bænarefnum á framfæri áður en
bænastund hefst.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há-
deginu. Léttur málsverður í safnaðarheim-
ilinu að stundinni lokinni. Kl. 13–16 opið
hús í safnaðarheimilinu. Þorvaldur Hall-
dórsson kemur í heimsókn fyrsta miðviku-
dag hvers mánaðar.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Kirkjuprakkarar starf fyrir 7–9
ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12
ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Unglingastarf KFUM og
KFUK kl. 20–21.45. (Sjá nánar:
www.digraneskirkja.is)
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Fyr-
irbænir og altarisganga. Boðið er upp á
léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni
stundinni. Allir velkomnir. KFUM fyrir
drengi á aldrinum 9–12 ára kl. 17.30–
18.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. TTT
(10–12 ára) starf kl. 17. Tólf spora nám-
skeið kl. 20.
Lindakirkja í Kópavogi. Unglingadeild
KFUM og K í Lindasókn í safnaðarheim-
ilinu, Húsinu á sléttunni kl. 20. Allir krakk-
ar í 9. og 10. bekk velkomnir.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega
velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í
kirkjunni í síma 567 0110. SELA eldri
deild kl. 20–22.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12
með Nönnu Guðrúnu í Vídalínskirkju.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Kyrrð-
arstund í kirkjunni kl. 12, íhugun, orgel-
leikur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur
hádegisverður kl. 12.30 í Ljósbroti Strand-
bergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Góður kostur fyrir þá
sem vilja taka frá kyrrláta og helga stund í
erli dagsins til að öðlast ró í huga og frið í
hjarta. Hægt er að koma fyrirbænaefnum
til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Boðið er
upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu
að kyrrðarstund lokinni. Opið hús fyrir eldri
borgara í dag kl. 13. Verið velkomin í viku-
legar samverur í safnaðarheimili kirkjunn-
ar í spil, spjall, góðar kaffiveitingar og
fleira.
Bessastaðasókn. Miðvikudagur er dagur
kirkjunnar í Haukshúsi. Foreldramorgnar
eru frá kl. 10–12. Þar koma saman for-
eldrar ungra barna á Álftanesi með börnin
og njóta þess að hittast og kynnast öðrum
foreldrum sem eru að fást við það sama,
uppeldi og umönnun ungra barna. Opið
hús eldri borgara er síðan frá kl. 13.00–
16.00. Dagskráin verður fjölbreytt en um-
fram allt eru þetta notalegar samveru-
stundir í hlýlegu umhverfi.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í
dag kl. 10–12.
Lágafellskirkja. AA-fundur kl. 20.30 í
Lágafellskirkju. Unnið í 12 sporunum.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í Kapellu von-
arinnar kl. 12.10. Samverustund í Kirkju-
lundi kl. 12.25. Súpa, salat og brauð á
vægu verði. Allir aldurshópar. Umsjón
Ólafur Oddur Jónsson. Æfing hjá Barnakór
Keflavíkurkirkju kl. 16–17. Æfing Kórs
Keflavíkurkirkju frá kl. 19–22.30. Stjórn-
andi Hákon Leifsson. Biblíulestur á vegum
Alfa hópsins í minni sal Kirkjulundar kl.
20. Umsjón Ólafur Oddur Jónsson.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 17.30
TTT yngri og eldri saman. 9–12 ára krakk-
ar í kirkjunni. Gluggað verður í bókina Dag-
ar með Markúsi. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson og
leiðtogarnir. Kl. 20 opið hús hjá Æskulýðs-
félagi og KFUM&K í félagsheimili
KFUM&K. Ester Bergsdóttir, æskulýðs-
fulltrúi, sr. Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtog-
arnir.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10–
12. Eyrún Ingvadóttir talmeinafræðingur
kemur í heimsókn.
Glerárkirkja. Hádegissamverur alla mið-
vikudaga kl. 12. Opin fræðslukvöld eru í
kirkjunni á miðvikudagskvöldum kl.19.30.
Léttur kvöldverður, fræðsla, umræður og
bænastund. Námskeiðið er ókeypis. Allir
velkomnir.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 20 hjálp-
arflokkur, allar konur velkomnar.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Samvera, lofgjörð, fræðsla og lest-
ur orðsins. Nánari upplýsingar á: www.-
kefas.is
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20. Jesús huggar.
Lúk. 7.11–17. Ræðumaður sr. Ólafur Jó-
hannsson. Bylgja Dís Gunnarsdóttir syng-
ur einsöng. Kaffiveitingar eftir samkom-
una. Allir velkomnir.
Samhygð. Samtök um sorg og sorgarvið-
brögð á Akureyri og nágrenni verða með
opið hús fimmtudaginn 13. nóvember kl.
20.30 í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Sr. Arnaldur Bárðarson ræðir um líðan
fólks eftir slys og veikindi. Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Ómar
Skoðið úrvalið á heimasíðunni
www.lifoglist.is - sími 544 2140
kakóbollar
kr. 1.240