Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 44

Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 44
ÍÞRÓTTIR 44 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ SINISA Mihajlovic, serbneski varn- armaðurinn í liði Lazio, ætlar ekki að áfrýja dómi aganefndar evrópska knatt- spyrnusambandsins, UEFA, sem dæmdi leikmanninn í átta leikja bann fyrir dólgslega framkomu gagnvart Rúmen- anum Adrian Mutu, framherja Chelsea, í leik liðanna í Meistaradeildinni í síðustu viku. Mihajlovic sýndi ótrúlega rudda- mennsku í leiknum. Það var ekki nóg með að hann sparkaði viljandi í leikmenn Chelsea heldur hrækti hann framan í Mutu og fyrir það var hann dæmdur í keppnisbann en Mihajlovic var gripinn glóðvolgur við athæfi sitt af sjónvarps- myndavélum á vellinum. Leikmaðurinn hafði frest til mánudagskvölds til að áfrýja dómnum en hann ákvað í samráði við forráðamenn Lazio að gera það ekki. Mihajlovic áfrýjar ekki Reuters Adrian Mutu, Chelsea, og Sinisa Mihajlovic, Lazio, fjær. SILFURMARKREGLAN verður notuð í viðureignunum fimm – þegar keppt verður um fimm síðustu farseðlana á Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu í Portúgal 2004. Fyrri viðureignirnar fara fram á laugardaginn og síðan verður aftur leikið miðvikudaginn 19. nóvember. Hér er um að ræða rimmur Skotland – Holland, Spánn – Noregur, Rúss- land – Wales, Lettland – Tyrkland og Króatía – Slóvenía. Ef jafnt verður með þjóðunum eftir seinni viðureignirnar verður framlenging. Munurinn á reglunni um gullmark og silfurmark er þannig að lið sem fær á sig mark í framleng- ingu fær tækifæri til að rétta sinn hlut. Gullmarksreglan var einfaldlega þannig að það lið sem var á undan til að skora mark í framlengingu stóð uppi sem sigurvegari. Silfurmarksreglan er þannig að ef lið skorar í fyrri hluta framlengingar fær hitt liðið tækifæri til að jafna sinn hlut í fyrri hlutanum. Ef það teks ekki stendur liðið sem skoraði uppi sem sigurvegari. Ef liðinu tekst að jafna verður seinni hálfleikur framlengingar leikinn. Ef staðan er þá jöfn fer fram vítaspyrnukeppni. Boðið verður upp á „silfurmark“ Fyrst var farið að útnefna knatt-spyrnumann Evrópu hjá France Football 1956, en þá var enski landsliðsmaðurinn Sir Stanley Matthews, sem lék þá með Black- pool, fyrir valinu – Argentínumað- urinn/Spánverjinn Di Stefano hjá Real Madrid var í öðru sæti og Frakkinn Kopa, Real Madrid, í þriðja sæti. Di Stefano var síðan út- nefndur leikmaður Evrópu 1957 og 1959, og Kopa 1958. Á listanum nú eru átta leikmenn frá Evrópumeisturum Real Madrid – Ronaldo, David Beckham, Iker Casillas, Luis Figo, Raúl Gonzalez, Robert Carlos, Michel Salgado og Zinedine Zidane. Sex leikmenn frá Juventus og fimm leikmenn frá Ars- enal eru á listanum. Frakkar og Ítalir eiga flesta leik- menn á listanum, eða átta, Brasilía er með fimm leikmenn. Knattspyrnumaður ársins 2002 er Ronaldo sem á möguleika á að verða fyrsti leikmaðurinn sem er ekki Evr- ópumaður til að verða knattspyrnu- maður ársins í þriðja skipti. Þrír leikmenn hafa náð því að verða knattspyrnumenn Evrópu þrisvar. Fyrst Hollendingurinnn Jo- hann Cruyff – 1971 sem leikmaður Ajax og 1973 og 1974 sem leikmaðir Barcelona. Frakkinn Michael Platini er eini leikmaðurinn sem hefur verið út- nefndur þrjú ár í röð – 1983, 1984 og 1985, en þá lék hann með Juventus. Hollenski framherjinn Marko van Basten var útnefndur, sem leikmað- ur AC Milan, 1988, 1989 og 1992. Hér er listinn yfir leikmennina, sem eru útnefndir í ár. Þýskaland Michael Ballack, Bayern München Oliver Kahn, Bayern München England David Beckham, Real Madrid Sol Campbell, Arsenal Michael Owen, Liverpool Paul Scholes, Manchester United Ítalía Gianluigi Buffon, Juventus Alessandro Del Piero, Juventus Filippo Inzaghi, AC Milan Paolo Maldini, AC Milan Alessandro Nesta, AC Milan Francesco Toldo, Inter Francesco Totti, Roma Christian Vieri, Inter Gianluca Zambrotta, Juventus Spánn Iker Casillas, Real Madrid Raúl, Real Madrid Michel Salgado, Real Madrid Úkraína Andriy Shevchenko, AC Milan Rúmenía Christian Chivu, Roma Adrian Mutu, Chelsea Argentína Pablo Aimar, Valencia Portúgal Deco, FC Porto Luis Figo, Real Madrid Pedro Miguel Pauleta, París SG Brasilía Dida, AC Milan Elber, Lyon Roberto Carlos, Real Madrid Ronaldinho, Barcelona Ronaldo, Real Madrid Kamerún Samuel Eto’o, Mallorka Frakkland Ludovic Giuly, Mónakó Thierry Henry, Arsenal Claude Makelele, Chelsea Robert Pires, Arsenal Lilian Thuram, Juventus David Trezeguet, Juventus Patrick Vieira, Arsenal Zinedine Zidane, Real Madrid Sylvain Wiltord, Arsenal Svíþjóð Zlatan Ibrahimovic, Ajax Henrik Larsson, Celtic Holland Patrick Kluivert, Barcelona Roy Makaay, Bayern München Ruud van Nistelrooy, Man. Utd Tékkland Jan Koller, Borussia Dortmund Pavel Nedved, Juventus Serbía-Svartfjallaland Darko Kovacevic, Real Sociedad Tyrkland Nihat Kahveci, Real Sociedad Túnis Hatem Trabelsi, Ajax Fimmtíu leikmenn hafa verið útnefndir hjá France Football fyrir kjör knattspyrnumanns Evrópu 2003 Átta leikmenn frá Real Madrid Reuters Leikmenn Real Madrid fagna marki hins smávaxna Brasilíu- manns Roberto Carlos. Zidane og Ronaldo eru til hægri. FIMMTÍU knattspyrnumenn hafa verið útnefndir á lista yfir leikmenn sem eiga möguleika á að vera knattspyrnumaður Evr- ópu 2003. Það er franska knatt- spyrnutímaritið France Football sem sér um útnefninguna og fær sá leikmaður sem er út- nefndur hinn fræga Gullbolta.  OLOF Mellberg, varnarmaður Aston Villa og sænska landsliðsins, hefur verið útnefndur knattspyrnu- maður ársins í Svíþjóð. Melberg var að auki valinn varnarmaður ársins. Andreas Isaksson, markörður Djurgården og sænska landsliðsins, var valinn varnarmaður ársins, Frederik Ljungberg, Arsenal, miðjumaður ársins og Henrik Lars- son, Celtic, sóknarmaður ársins.  KNATTSPYRNUMENN í Noregi völdu Claus Lundakvam leikmann ársins. Lundekvam er leikmaður Southampton í ensku úrvalsdeild- inni þar sem hann hefur leikið stórt hlutverk í vörn liðsins sem og í norska landsliðinu. Hjá konunum varð Dagny Mellgren fyrir valinu en hún varð markahæsti leikmaður bandarísku atvinnumannadeildar- innar.  MILLWALL hefur ráðið Dennis Wise sem spilandi knattspyrnustjóra liðsins út tímabilið en hann var ráð- inn tímabundið í stöðuna þegar Mark McGhee hrökklaðist úr starfi í síðasta mánuði. Aðstoðarmaður Wise er gamall refur úr boltanum, Ray Wilkins, fyrrum leikmaður Manchester United, Chelsea og AC Milan.  EDDIE Gray, sem ráðinn hefur verið tímabundið í starf knatt- spyrnustjóra Leeds United í stað Peter Reids, vill gjarnan verða ráð- inn næsti stjóri liðsins. Gray er goð- sögn á Elland Road en hann lék 559 leiki með liðinu á árunum 1965–1983.  GRAY nýtur gífurlegrar vinsæld- ar á meðal stuðningsmanna félagsins og einn af fyrrum samherjum hans á árum áður, Peter Lorimer, sagði við Sky sjónvarpsstöðina í gær að Gray ætti að taka alfarið við liðinu því ef einhver gæti bjargað því úr vand- ræðunum sem það er í þá væri það Eddie Gray.  MARK Hughes, landsliðsþjálfari Walesverja í knattspyrnu, á í nokkr- um vandræðum með leikmannahóp sinn fyrir leikina á móti Rússum í umspilinu um sæti í Evrópukeppn- inni í Portúgal. Simon Davis, Adrian Williams og Robert Page hafa allir þurft að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla og er ljóst að þeir geta ekki tekið þátt í leikjunum tveimur.  JUVENTUS og AC Milan hafa bæði mikinn hug á að fá Kevin Kuranyi, 21 árs, miðherja Stuttgart, til liðs við sig. Það eru einnig fleiri lið sem hafa áhuga á þessum mark- sækna leikmanni, sem fæddist í Brasilíu, en er landsliðsmaður Þýskalands.  ÞÁ hefur AC Milan áhuga á að fá brasilíska varnarmanninn Lucio frá Bayer Leverkusen. Chelsea og Real Madrid hafa einnig sýnt Lucio áhuga. FÓLK ÞESSIR leikmenn hafa verið útnefndir knattspyrnumenn Evrópu síðustu tíu ár: 1993: R. Baggio, Juventus 1994: Stoitchkov, Barcelona 1995: Weah, AC Milan 1996: Sammer, Dortmund 1997: Ronaldo, Inter 1998: Zidan, Juventus 1999: Rivaldo, Barcelona 2000: Figo, Real Madrid 2001: Owen, Liverpool 2002: Ronaldo, Real Madrid Knattspyrnu- menn Evrópu LEIKMENN HK voru afar grimmir í varnarleiknum gegn Drott í fyrri leik liðanna í Evrópukeppni bikar- hafa í Halmstad síðasta laugardag, eftir því sem staðarblaðið Hallands Posten skrifar. Þótti heimamönn- um sem dómararnir, sem komu frá Danmörku og Færeyjum, leyfa HK- liðinu að leika alltof mikilli hörku og eru þeir gagnrýndir harðlega í blaðinu. Einnig er viðtal við Tékkann Daniel Kubes sem spilar með Drott og þess getið að blóðblettir hafi verið á keppnispeysu hans eftir leikinn. „Þetta var ekki auðveldur leikur,“ segir Kubes. „Íslendingar leika alltaf mjög fast og eru góðir í því en ég hef aldrei kynnst annarri eins hörku í vörninni og að þessu sinni, þó hef ég reynslu úr tékk- nesku deildinni þar sem menn kalla ekki allt ömmu sína og leika nokk- uð fast,“ sagði Kubes sem einnig á að baki leiki með landsliði Tékka. „Í hvert sinn sem maður kom nærri vörninni var maður sleginn, annaðhvort í magann eða andlitið. Þá raun verðum við að standast í síðari leiknum.“ Þá vakti það athygli blaðsins að dómararnir skyldu hafa sýnt Árna Stefánssyni, þjálfara HK, þá þolin- mæði að leyfa honum að stjórna sínu liðið til leiksloka frá vara- mannabekknum, slíkur hafi bægslagangurinn verið. „Þetta var í samræmi við annað hjá dönsku dómurunum,“ segir í Hallands Posten. „Ég átti alveg von á því að Sví- arnir vældu yfir okkur, en það má ekki gleyma því að þeir léku fast og meðal annars fengu tveir leikmenn Drott rauða spjaldið, annar fyrir mjög gróft brot,“ sagði Árni í sam- tali við Morgunblaðið í gær. HK-menn þóttu mjög harðir í horn að taka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.