Morgunblaðið - 12.11.2003, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 12.11.2003, Qupperneq 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 45 ÍSLENSKAR landsliðs- konur í handknattleik komu mikið við sögu þeg- ar Tvis/Holstebro vann Brabrand, 28:13, í vestur- riðli dönsku 1. deild- arinnar í handknattleik. Inga Fríða Tryggvadóttir var markahæst hjá Tvis í leiknum, skoraði fimm mörk og Hanna G. Sigurð- ardóttir var með 4 mörk. Þá skoraði Hrafnhildur Skúladóttir þrjú mörk, en hún er markahæsti leikmaður liðsins það sem af er leiktíðinni, líkt og tvö undanfarin keppnistímabil. Helga Torfadóttir stóð á milli stanganna í marki Tvis/Holstebro og varði vel. Færeyingurinn Gunnleyg Berg, sem lék fyrir nokkrum ár- um með ÍBV, var mark- hæst hjá Brabrand með 4 mörk. Fimmti Íslendingurinn sem er á mála hjá Tvis/ Holstebro, Kristín Guð- mundsdóttir, meiddist illa á fæti í leik fyrir skömmu og eftir því greint er frá á heimasíðu félagsins er ekki reiknað með að hún verði klár í slaginn á næst- unni. Það er talsvert áfall fyrir Tvis/Holstebro þar sem Kristín hef- ur verið leikstjórnandi liðsins það sem af er leiktíðar. Liðið er í fjórða sæti deildarinnar með 6 stig eftir fimm leiki, fjórum stigum á eftir toppliði Esbjerg. Íslendingar umsvifamiklir hjá Tvis/Holstebro Kristín ÍSLANDSMEISTARAR Hauka koma til með að fá góð- an stuðning í leiknum við Barcelona í Meistaradeild Evrópu í handknattleik sem fram fer á Spáni 22. þessa mánaðar. Stuðningsmenn Hauka ætla að fjölmenna á leikinn en 190 gallharðir Haukamenn verða á leiknum og er þegar orðið uppselt í ferðina sem Haukar settu upp í samvinnu við ferðaskrifstof- una Úrval-Útsýn. Stuðningsmenn Hauka hafa verið mjög duglegir að fara með sínum mönnum í Evrópu- leiki á síðustu árum – til Portúgals og Spánar. Haukarnir hafa í nógu að snúast þessa dagana. Í kvöld sækja þeir Eyjamenn heim á Íslandsmótinu og á sunnudag- inn mæta þeir þýska liðinu Magdeburg í Meistaradeild- inni. Sá leikur fer fram að Ás- völlum. Haukar fjöl- menna til Barcelona  HENRIK Larsson, framherji Celtic, er um þessar mundir sterk- lega orðaður við Barlcelona. Hermt er að Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, langi ekki að klófesta neinn framherja meir en Larsson ef undan er skilinn Michael Owen hjá Liverpool. Samningur Larsson og Celtic rennur út næsta sumar en því getur Larsson hafið viðræður við Barcelona í byrjun næsta árs sé áhuginn gagnkvæmur.  MIKIL óvissa ríkir um það hvort Wayne Rooney geti leikið með enska landsliðinu gegn því danska á Old Trafford á sunnudaginn í vin- áttulandsleik þar sem Rooney ligg- ur nú í flensu og má sig vart hræra. Þá er David Beckham með slæmsku í baki og hefur af þeim sökum fengið þriggja daga frí frá æfingum hjá Real Madrid.  CHRISTIAN Fitzek, þjálfari þýska handknattleiksliðsins Göpp- ingen sem Jaliesky Garcia lands- liðsmaður leikur með, hættir þjálfun liðsins í vor. Þetta var tilkynnt í gær. Engu máli skiptir hvernig lið- inu gengur á leiktíðinni en það er á meðal neðstu liða þýsku 1. deildar- innar.  LEIKMENN sænska handknatt- leiksliðsins Drott, sem er andstæð- ingur HK í Evrópukeppni bikarhafa, töpuðu í fyrrakvöld fyrir GUIF í sænsku úrvalsdeildinni í handknatt- leik, 26:24. Diego Perez Marne var markahæstur hjá Drott, rétt eins og á móti HK á dögunum, og skoraði 9 mörk. Drott er í sjöunda sæti af 14 liðum í sænsku úrvalsdeildinni með 8 stig eftir 9 leiki en átta efstu liðin halda áfram keppni um sænska meistaratitilinn eftir áramót.  MANCHESTER United hefur ákveðið að endurtaka leikinn frá sl. sumri, að fara með lið sitt til Banda- ríkjanna í æfinga- og keppnisferð næsta sumar. Liðið mun leika þrjá leiki í ferðinni og líklegt er að fyrst verði leikið gegn David Beckham og samherjum hans hjá Real Madrid í Chicago, síðan verði leikiði í New York, en þriðji keppnistaðurinn hef- ur ekki verið ákveðinn.  ÞAÐ getur farið svo að Spánverj- ar leiki án tveggja sterkra leik- manna í fyrri leiknum gegn Norð- mönnum um sæti á EM í Portúgal næsta sumar, en þjóðirnar mætast í Valencia á laugardaginn. Þetta eru útherjinn Joaquin, 22 ára leikmaður Real Betis, og varnarmaðurinn Ivan Helguera, Real Madrid. Þeir voru ekki með á æfingu hjá Spánverjum í gær. Mikil spenna er fyrir viðureign við Norðmenn á Spáni.  STEVEN Gerrard, 23 ára, fyrir- liði Liverpool, skrifaði í gær undir fjögurra ára samning við Mersey- liðið – til ársloka 2007. FÓLK Viðureign Fram og HK í bikarn-um fer að þessu sinni fram á heimavelli Fram, en félögin háðu harða orrustu í undanúrslitum bik- arkeppninnar á síðustu leiktíð í íþróttahúsinu í Digranesi. Þá hafði HK betur í tvíframlengdum leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á síð- ustu andartökunum. Verður hörkuleikur „Ég get lofað því að þetta verður hörkuleikur,“ sagði Árni Stefánsson, þjálfari bikarmeistara HK við Morg- unblaðið í gær, en félagið vann bik- arkeppnina í fyrsta sinn undir stjórn Árni með öruggum sigri á Aftureld- ingu eftir rimmuna við Fram í und- anúrslitum. „Það er virkilega gaman að fá slík- an hörkuleik í átta liða úrslitum. Fram er á meðal efstu liða í norður- riðli Íslandsmótsins og liðin hafa því ekki mæst til þessa á keppnistíma- bilinu. Þá verður einnig gaman að fást við Framarana í ljósi þess hversu eftirminnilegur leikur lið- anna var í fyrra. Þetta gæti orðið sama baráttan núna á milli liðanna,“ sagði Árni og var hress að vanda. Auðvelt hjá Fylki Athygli vekur að Fylkir, sem hvorki tekur þátt í Íslandsmótinu né utandeildarkeppninni, er enn með í bikarkeppninni eftir að hafa lagt B- lið ÍBV í 16-liða úrslitum, 27:20, og utandeildarliðið Strumpana í 32-liða úrslitum. Á sama tíma eru t.d. Hauk- ar, ÍR, Grótta/KR og FH úr leik og hafa menn gagnrýnt þessa stað- reynd. Nú fá Fylkismenn erfiðari mótherja þegar þeir taka á móti KA í Fylkishöllinni. Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ, segir að oft hafi verið rætt á ársþingum HSÍ hvort rétt væri að breyta fyrirkomulagi bikarkeppninnar þannig að lakari lið komist ekki svo langt í keppninni með því að leika eingöngu við and- stæðinga sem væru í svipuðum gæðaflokki. Ekki hafi reynst vera hljómgrunnur fyrir breytingum. „Mörgum hefur þótt vera ákveðinn sjarmi yfir keppninni þegar minni spámenn komast langt í keppninni og því ekki viljað koma í veg fyrir þann möguleika. Eins hefur verið rætt um að leika heima og að heiman í bikarkeppninni líkt og gert er í Evrópukeppninni. Þá ráði saman- lögð úrslit tveggja leikja því hvort liðið heldur áfram. Um þessi mál hef- ur oft verið rætt en það hefur skort vilja til breytinga,“ sagði Einar. Undanúrslit kvenna fara fram eftir þrjá mánuði Um leið og dregið var í 8-liða úrslit karla þá var dregið um hvaða lið mætast í undanúrslitum kvenna, en áætlað er að leikirnir í undanúrslit- unum fari fram eftir þrjá mánuði, þ.e. 3. og 4. febrúar. Bikarmeistarar Hauka mæta Gróttu/KR á fjölum íþróttahússins á Seltjarnarnesi. Þá drógust Íslandsmeistarar ÍBV gegn FH og á Eyjaliðið heimaleik. ÍBV tapaði fyrir Haukum í úrslitaleik bikarkeppninni á síðustu leiktíð, en Eyjaliðið varð bikarmeistari árið áð- ur. Endurtekið efni hjá Fram og HK? BIKARMEISTARAR HK í handknattleik karla drógust gegn Fram í átta liða úrslitum bikarkeppni HSÍ er dregið var í gær. Víkingur fær Aftur- eldingu í heimsókn, Valur mætir ÍBV á heimavelli og Fylkir spilar gegn KA í Fylkishöllinni, en Fylkismenn taka ekki þátt í Íslandsmótinu að þessu sinni. Leikirnir eiga að fara fram 2. - 4. desember nk. Morgunblaðið/Þorkell Andrius Rackauskas, leikmaður með HK, skorar hér í Evrópuleik gegn rússneska liðinu Stepan frá St Pétursborg í Digranesi á dögunum. HK mætir Drott þar á laugardaginn. KARLAR 8-liða úrslit: HK - Fram Valur - ÍBV Víkingur - Afturelding Fylkir - KA  Leikirnir fara fram 2. til 4. desember. KONUR Undanúrslit: Haukar - Grótta/KR ÍBV - FH  Leikirnir fara fram 3.-4. febrúar 2004.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.