Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR 46 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ SJÖUNDA alþjóðlega bandmin- tonmótið á vegum Badminton- sambandsins, Iceland Express- mótið, verður haldið um helgina í húsi TBR. Aldrei hafa fleiri þátttak- endur keppt á badmintonmóti hér á landi en þeir eru 150 frá 22 löndum, þar af 105 erlendir keppendur. Allir sterkustu bandmintonspil- arar Íslands verða meðal keppenda og þar á meðan Ragna Ingólfsdóttir og Sara Jónsdóttir, en þær keppast nú við að styrkja stöðu sína á al- þjóðlega listanum til að komast á Ólympíuleikana í Aþenu á næsta ári. Mót þetta er liður í evrópsku mótaröðinni og gefur því stig á heimslistann, en staða manna þar hinn 1. maí á næsta ári ákvarðar hvaða spilarar komast á Ólympíu- leikana. Á listanum telja tíu bestu mót manna síðustu tvö árin og nú keppast menn um allan heim við að laga stöðu sína á listanum til að komast til Aþenu. Það má því búast við mikilli baráttu í TBR-húsinu um helgina því flestallir keppendur eru að berjast við að komst á Ólympíu- leikana. Mótið hefst á morgun kl. 16 með undankeppni því keppendur eru svo margir að nauðsynlegt var að hafa undankeppni. Á föstudaginn verður keppt frá 9 árdegis til 21.30, á laugardag milli kl. 10 og 13.30 og síðan undanúrslit milli klukkan 16.30 og 20.30. Úr- slitaleikirnir verða á sunnudaginn og hefjast kl. 11. 150 keppendur frá 22 löndum Í TBR-húsinu TEITUR Þórðarson, knatt- spyrnuþjálfari í Noregi, reikn- ar með að halda áfram að þjálfa á næsta keppnistímabili en hann hefur verið án at- vinnu í faginu síðan hann sagði starfi sínu lausu hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lyn í lok ágúst. „Ég er búinn að fá margar fyrirspurnir, bæði frá félögum í Noregi og Svíþjóð og eins frá liðum í öðru löndum en í Skandinavíu. Ég er ekki kom- inn með nein formleg tilboð upp á borðið ennþá en málin ættu að skýrast á næstu dög- um eða vikum. Þó svo að ég sé búinn að vera lengi að þjálfa er enginn leiði kominn í mig og ég vill endilega halda áfram að starfa í kringum fót- boltann,“ sagði Teitur í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Teitur með margar fyrirspurnir BJARNI Guðjónsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, braut bein í fæti á æfingu hjá þýska liðinu Boch- um í gær og verður frá keppni til áramóta. Bjarni var einmitt í gær valinn í landsliðshópinn sem fer til Mexíkó í næstu viku en þurfti jafn- harðan að draga sig út úr honum og var Ólafur Ingi Skúlason valinn í hans stað. „Þetta gerðist á æfingu hjá okk- ur, ég stökk upp með öðrum leik- manni til að skalla boltann, fætur okkar flæktust saman og þegar við duttum lenti hann ofan á mér. Ég var mjög heppinn, fyrst leit út fyrir að ökklinn hefði brotnað og fleira farið úr skorðum þar, en síðan kom í ljós að svokallað dálkbein í legg- um, fyrir ofan ökklann, fór í sund- ur. Ég verð með spelku í sex vikur og á að geta farið af stað eftir það. Þá verður hins vegar komið vetr- arfrí í deildakeppninni hér í Þýska- landi, þannig að ég spila væntan- lega ekki fyrr en deildin hefst að nýju, í lok janúar,“ sagði Bjarni við Morgunblaðið í gær. Bjarni leikur nú sitt fyrsta tíma- bil með Bochum eftir að hafa spilað með Stoke í Englandi síðustu árin. Hann hefur komið við sögu í fjórum leikjum liðsins af tólf til þessa í 1. deildinni og skorað eitt mark. Bjarni brotnaði á æfingu HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, RE/MAX-deildin: Vestmannaeyjar: ÍBV – Valur ..................18 1. deild karla, RE/MAX-deildin, suðurriðill: Vestmannaeyjar: ÍBV – Haukar...............20 Í KVÖLD Árna úr umferð en til að byrja með hafði það lítil áhrif á Þórsara. Þegar 10 mínútur voru til leiksloka var Þór yfir, 26:22, og þeir skoruðu meðal annars fjórir á móti sex. Lokamínúturnar voru æsispenn- andi. KA saxaði jafnt og þétt á for- skotið og þegar fjórar mínútur voru eftir jöfnuðu þeir 27:27. Á þessum kafla féllu ýmsir skrítnir dómar og naut KA góðs af flestum þeirra. Þórsarar lögðu samt ekki árar í bát og komust tvívegis yfir á nýjan leik en KA jafnaði í 29:29 þegar 40 sek- úndur voru eftir. Þórsarar náðu ekki að nýta sér síðustu sóknina og jafn- tefli staðreynd. KA lék afspyrnuilla lengst af þessum leik og margir leikmann- anna voru hreinlega áhorfendur langtímum saman. Arnór var sá eini sem gerði eitthvað af viti, raðaði inn sautján mörkum, en varnarleikurinn var slakur og markverðirnir þrír vörðu ekki nema sjö skot samtals. Leikurinn fór rólega af stað og KAskoraði þrjú fyrstu mörkin. Þá vöknuðu Þórsarar til lífsins um stund og jöfnuðu 5:5. KA seig aftur fram úr en Þórsarar náðu þeim fyrir leikhlé og staðan var 14:14 þegar gengið var til búningsher- bergja. Arnór Atlason hafði þá gert níu af mörkum KA og hreinlega sá eini sem var með lífsmarki í þeim herbúðum. Þórsarar voru stirðir til að byrja með en jókst smám saman ásmegin. Fyrri hluta hálfleiksins áttu þeir í vandræðum með að koma skotum að marki KA utan af velli en Árni Þór Sigtryggsson hrökk í gang og gerði fjögur falleg mörk fyrir hlé. Hann hélt uppteknum hætti í seinni hálfleik og bætti við fimm stykkjum í upphafi hans. Á þessum kafla léku Þórsarar firnavel og eftir 10 mínútur í seinni hálfleik voru þeir komnir fimm mörkum yfir, 22:17. KA tók „Þetta var hræðilegur leikur, ég veit ekki hvað var að. Engu líkara en góður árangur í síðustu leikjum hafi stigið okkur til höfuðs og við höfum haldið að við þyrftum ekki að leggja okkur fram á móti Þór, sem var ekki með neitt stig,“ sagði Arnór Atlason að leik loknum. „Sóknarleikurinn var lélegur, við klikkuðum í vörninni og markvarslan var lítil. Miðað við að hafa lent fimm mörkum undir er ég ánægður með að hafa náð einu stigi,“ sagði Arnór. Þórsarar sýndu og sönnuðu að of snemmt er að afskrifa þá. Leikmenn börðust vel, Jónas varði fantavel í markinu og Árni var óstöðvandi í sókninni þegar hann losnaði úr gæsl- unni. Þá skoraði Davíð Már Sigur- steinsson falleg mörk í seinni hálf- leik og mætti að ósekju vera áræðnari í sókninni. Sigurpáll Árni Aðalsteinsson þjálfari var hund- svekktur yfir að hafa ekki náð báð- um stigunum. „Ég er ánægður með að strákarnir gerðu það sem fyrir var lagt, ég get ekki farið fram á meira,“ sagði hann. „Það hefur verið stígandi í þessu hjá okkur undanfar- ið, ef leikurinn við Aftureldingu er frátalinn, og við vitum alveg hvað við getum. En við áttum bæði stigin skilið hér í kvöld,“ sagði Sigurpáll Árni. Morgunblaðið/Kristján Arnór Atlason, KA-maður, fór á kostum með liði sínu gegn Þór í gærkvöld og skoraði grimmt, 17 mörk alls, og hér er eitt þeirra í uppsiglingu. Mörkin hans dugðu þó aðeins til jafnteflis. Heppnin með KA gegn Þór KA-MENN voru sannarlega heppnir í gærkvöldi þegar þeir tóku á móti hinu Akureyrarliðinu, Þór. Fyrirfram var búist við KA-sigri, enda liðið búið að vera í miklum ham undanfarið en fátt gengið upp hjá Þór sem hafði tapað sjö fyrstu leikjum sínum. En það sannaðist enn og aftur að staða liðanna í deildinni skiptir engu máli þegar þau mætast. Þórsarar voru betra liðið, þeir náðu mest fimm marka forskoti í seinni hálfleik en með góðum endaspretti og aðstoð dómara náði KA að stela öðru stiginu. Jafntefli, 29:29, og fyrsta stig Þórs í höfn. Valur Sæmundsson skrifar HANDKNATTLEIKUR KA - Þór 29:29 KA-heimilið á Akureyri, 1. deild karla, RE/ MAX-deildin, þriðjudagur 11. nóv. 2003. Gangur leiksins: 3:0, 4:3, 7:6, 10:8, 13:10, 14:14, 16:15, 17:22, 21:25, 24:26, 27:27, 28:29, 29:29. Mörk KA: Arnór Atlason 17/6, Jónatan Magnússon 3, Einar Logi Friðjónsson 3, Bjartur Máni Sigurðsson 2, Andrius Stelmokas 2, Þorvaldur Þorvaldsson 1, Sævar Árnason 1. Varin skot: Stefán Guðnason 5/1, Hans Hreinsson 2, Hafþór Einarsson 0. Utan vallar: 10 mínútur. Mörk Þórs: Árni Þór Sigtryggsson 11, Gor- an Gusic 6/4, Davíð Már Sigursteinsson 5, Páll V. Gíslason 3, Þorvaldur Sigurðsson 3, Halldór Oddsson 1. Varin skot: Jónas Stefánsson 18 (þar af 7 til mótherja). Utan vallar: 12 mínútur. Dómarar: Valgeir Ómarsson og Bjarni Viggósson. Heldur hallaði á Þór á mikil- vægum augnablikum. Áhorfendur: 500. Staðan í norðurriðli: Valur 7 5 1 1 191:158 11 KA 8 5 1 2 233:210 11 Grótta/KR 7 4 2 1 182:166 10 Fram 8 4 2 2 212:207 10 Víkingur 8 2 2 4 198:212 6 Afturelding 8 2 1 5 195:219 5 Þór 8 0 1 7 199:238 1 Þýskaland Nordhorn - Lemgo ............................... 32:32 KNATTSPYRNA England 2. deild: QPR - Bradford ........................................ 1:0 Blackpool - Wrexham............................... 0:1 Staða efstu liða: Plymouth 17 8 7 2 38:20 31 QPR 17 8 7 2 28:13 31 Barnsley 17 8 5 4 22:20 29 Brighton 17 8 4 5 26:18 28 Bournem. 17 7 7 3 24:18 28 Colchester 17 8 4 5 21:20 28 Wrexham 17 8 3 6 20:17 27 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Cleveland - New York...........................94:80 San Antonio - Utah................................87:78 Memphis - LA Lakers ........................105:95 Denver - Chicago.................................105:97 Phoenix - Golden State .........................99:96 1. deild karla ÍS - Skallagrímur................................ 97:106  Eftir tvær framlengingar. Selfoss - Ármann/Þróttur .................... 89:99 Staðan: Valur 5 5 0 441:393 10 Skallagrímur 5 4 1 485:407 8 Fjölnir 5 4 1 445:372 8 Stjarnan 5 3 2 388:390 6 Þór A. 5 3 2 424:427 6 Ármann/Þróttur 4 2 2 332:325 4 ÍS 5 1 4 410:437 2 Höttur 5 1 4 378:423 2 ÍG 5 1 4 401:452 2 Selfoss 4 0 4 313:391 0 ÚRSLIT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.