Morgunblaðið - 12.11.2003, Side 48

Morgunblaðið - 12.11.2003, Side 48
FÓLK Í FRÉTTUM 48 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ erling Fös 14.11 kl. 20 UPPSELT Lau 22.11. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS Fös 28.11. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS Lau 06.12. kl. 20 LAUS SÆTI Ósóttar pantanir seldar daglega Miðasala í síma 552 3000 Miðasala opin 15-18 virka daga Ósóttar pantanir seldar daglega loftkastalinn@simnet.is Einnig sýnt í Freyvangi Stóra svið Nýja svið og Litla svið LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 15/11 kl 14 - UPPSELT, Su 16/11 kl 14 - UPPSELT, Lau 22/11 kl 14 - UPPSELT, Su 23/11 kl 14 -UPPSELT, Su 23/11 kl 17 AUKASÝNING Lau 29/11 kl 14 - UPPSELT, Lau 29/11 kl 17 - UPPSELT, Su 30/11 kl 14 - UPPSELT, Lau 6/12 kl 14 - UPPSELT, Lau 6/12 kl 17 - UPPSELT, Su 7/12 kl 14 - UPPSELT, Lau 13/12 kl 14, - UPPSELT, Su 14/12 kl 14, - UPPSELT, Lau 27/12 kl 14, Su 28/12 kl 14, Lau 3/1 kl 14,Su 4/1 kl 14 Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 NÝJUNG - GLEÐISTUND Í FORSALNUM Forsalurinn opnar klukkutíma fyrir kvöldsýningu Girnileg smábrauð og léttar veitingar á tilboðsverði Njótið þess að gefa ykkur góðan tíma í leikhúsinu ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN SÝNIR: THE MATCH eftir Lonneke Van Leth -heimsfrums. SYMBIOSIS eftir Itzik Galili PARTY eftir Guðmund Helgason Su 16/11 kl 20 Ath: Síðasta sýning COMMONNONSENSE e. CommonNonsense byggt á myndlist Ilmar Stefánsdóttur Fi 13/11 kl 20, Lau 15/11 kl 20 ATH. Takmarkaður sýnngafjöldi KVETCH e. Steven Berkoff í samstarfi við á SENUNNI Fö 14/11 kl 20, - UPPSELT, Su 16/11 kl 20, - UPPSELT, Su 23/11 kl 20, Fö 28/11 kl 20, Lau 29/11 kl 20Su 30/11 kl 20 Ath: SÍÐUSTU SÝNINGAR 15:15 TÓNLEIKAR - Atli Heimir Sveinsson CAPUT - Grand dui conceretante Lau 15/11 kl 15:15 ANDARTAK - ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Margrét Eir - hljómsveit Mi 19/11 kl 22 - kr. 2.000 PERLU-TVENNA PLÚS HANDASPIL HRINGILHYRNINGUR OG KROPPA-GRÍN Frumsýning su 16/11 kl 15 - 1000 kr www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is Meira (en) leikhús! PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht Lau 15/11 kl 20 Síðasta sýning ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Fö 14/11 kl 20, Lau 22/11 kl 20, Fö 28/11 kl 20 MIÐ. 12/11 - KL. 19 UPPSELT FIM. 13/11 - KL. 18 UPPSELT ATH! BREYTTUR SÝN.TÍMI MIÐ. 19/11 - KL. 19 ÖRFÁ SÆTI LAUS ATH! SÝNINGUM FER FÆKKANDI ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA Forsala miða í Tónastöðinni Skipholti 50 d, hjá kórfélögum og í símum 893 6276, Þóra og 848 8364, Birna. VOX ACADEMICA og RÚSSÍBANARNIR Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran. Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla. Stjórnandi: Hákon Leifsson. Endurtekning tónleika frá í vor, á efnisskránni lög úr ýmsum áttum og Hjörturinn eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. SELTJARNARNESKIRKJA fimmtudaginn 13. nóvember kl. 20.00 Miðasala sími 866 0011 Leikhópurinn Á senunni Ævintýrið um Augastein nýtt barnaleikrit eftir Felix Bergsson sun. 16. nóv. kl. 14.00 sun. 23. nóv. kl. 14.00 lau. 29. nóv. kl. 14.00 sun. 7. des. kl. 14.00 Miðasala í síma 562 9700 www.idno.is Mitt fólk hefur aldrei átt skíði Tónleikar í minningu Einars Kristjáns Einarsonar gítarleikara Mið. 12. nóvember Kl. 20:30 Edda Björgvinsdóttir tekur á móti gestum og losar um hömlur á hádegi föstudaga kl. 11.45. Tenórinn Sun. 16. nóv. kl. 20.00. Örfá sæti Lau. 22. nóv. kl. 20.00. Örfá sæti Lau. 29. nóv. kl. 20.00. Lau. 6. des. kl. 20.00. Sellófon Gríman 2003: „Besta leiksýningin“ að mati áhorfenda 150 sýning Fös. 14. nóv. kl. 21.00. UPPSELT Lau. 15. nóv. kl. 21.00. UPPSELT Mið. 19. nóv. kl. 21.00. Nokkur sæti Fös. 21. nóv. kl. 21.00. UPPSELT Fim. 27. nóv. kl. 21.00. Örfá sæti Lau. 29. nóv. kl. 23.00. AUKASÝNING WWW.sellofon.is og sellofon@mmedia.is Opið frá kl. 18 fimmtudags- sunnudagskvöld. FYRIR rúmum 25 árum var met- söluplöturnar Einu sinni var og Út um græna grundu að finna á mörg- um reim- og mótorknúnum plötu- spilurum þessa lands. Þar sóttu Gunnar Þórðarson og Björgvin Hall- dórsson ásamt fleiri listamönnum innblásturinn í hina vinsælu Vísnabók og útfærðu í takt við tíðarandann. Íslenska vísnaplat- an gengur að vissu leyti út frá þeim en lagavalið er þó að mestu annað, ellefu lög af sautján er ekki að finna á gömlu plötunum. Allt eru þetta vin- sæl og sígild barnalög og þjóðvísur. Vandinn er að finna nýjar hliðar á lögunum til að réttlæta verkið og skila lögunum áfram til nýrrar kyn- slóðar. Jón Ólafsson ber hitann og þungann af því starfi en hann útset- ur lögin. Sú leið sem hann velur er að nota klassíska hljóðfæraskipan, ein- faldar útsetningar og leyfa röddun- um að njóta sín og platan verður fyr- ir vikið hlýleg og blátt áfram. Írsk þjóðlagatónlist og kántrítónlist eru áhrifsgjafar í mörgum lögum án þess þó að flaututrillur og fiðlusprettir hljómi í hverju horni, og þetta fer vísunum vel. Það er líka vel til fundið af fá söngvara af ungu kynslóðinni til að túlka lögin. Jón leggur til eina nýja lagið á diskinum, lag við ljóð Steingríms Arasonar, „Sagan af Sigga“. Boð- skapur lagsins um nauðsyn þess að borða hollan mat og leika sér eins og skemmtilegt fólk hlýtur að falla í kramið hjá Latabæjaraðdáendum fyrir utan að lagið sjálft er grípandi og glaðlegt og Ragnheiður Gröndal flytur það á líflegan og tilgerðarlaus- an hátt. Hún fær líka í sinn hlut eitt skemmtilegasta lagið, „Kvæðið um litlu hjónin“, sem er hér í hressileg- um rokkbúningi, og nú fær ný kyn- slóð barna tækifæri til að velta fyrir sér af hverju litla Gunna elskar hann litla Jón svo lítið. (Leiðindavilla er á umslagi þar sem stendur að Jón Jós- ep syngi lagið.) Hún fer líka mjög vel með hið fallega lag Gunnars Þórð- arsonar „Kvölda tekur“ og mjúk og hlý röddin fellur vel að trega og hægð lagsins. Annað lag engu síðra er „Gekk ég upp á hólinn“ sem Jón Jósep syngur á afslappaðan og ang- urværan hátt (hangir þó dálítið mik- ið á n-unum) og sveitasælustemmn- ingin er undirstrikuð með kántríkeim og slide-gítar. Jóhanna Guðrún hefur sterka og sérstaka rödd og lög sem bjóða upp á nokkra dramatík og tilþrif eins og „Kvæðið um fuglana“ eftir Atla Heimi og „Bráðum kemur betri tíð“ eftir Gunnar Þórðar henta henni vel þar sem hún fær að reyna á röddina. Það kemur ekki á óvart að hin karlmann- legu kvæði „Nú er frost á Fróni“ og „Á Sprengisandi“ eru lögð í hendur strákanna, þeirra Jóns Jóseps og Sverris Bergmann, sem syngja þau hressilega, og spaghettívestrabún- ingurinn á Sprengisandslaginu smellpassar og gefur því nýja vídd og gaman að heyra „hitt“ Sprengi- sandslagið notað í gítarköflunum. Sverrir Bergmann nær næstum að eyða fordómum mínum gagnvart laginu „Bokki sat í brunni“, sem mér þótti afar leiðinlegt í æsku, væmið og endurtekningasamt, en hann syngur það yfirlætislaust og kántrísvipurinn lyftir laginu upp. „Maístjarnan“ stingur dálítið í stúf við vísna- stemmninguna á plötunni og þótt Þórunn Antonía syngi hana ágæt- lega finnst mér túlkunin heldur of „sæt“ og dálítið gleitt sungið, hið sama loðir við „Smaladrenginn“. Betur tekst til í „Í Hlíðarendakoti“, þar sem tær og björt rödd hennar passar vel við fjörlega útsetningu lagsins, og hún nær að blása nýju lífi í hin lúnu lög „Ég langömmu á“ og „Aravísur“ og nær sérlega fallegum tónum í því síðarnefnda. Frágangur allur er prýðilegur, textabók fylgir eins og nauðsynlegt er með barnaplötu og inngangur Jónatans Garðarssonar fróðlegur og gefur ýmsar upplýsingar um laga- og textahöfunda. Foreldrar ættu svo að setja sig í stellingar og vera við- búnir að svara hvað hvítleit hringaskorðan, keifað og geyjað og fleiri skemmtileg orð þýða. Tónlist Keifað og geyjað Íslenska vísnaplatan Ýmsir flytjendur Steinsnar Þjóðvísur og ljóð við lög ýmissa tón- skálda. Söngvarar: Jóhanna Guðrún, Jón Jósep Snæbjörnsson, Ragnheiður Grön- dal, Sverrir Bergmann, Þórunn Antonía. Hljóðfæraleikarar: Guðmundur Pét- ursson, gítar o.fl., Jón Ólafsson hljóm- borð, bakraddir, Jóhann Hjörleifsson, trommur, Róbert Þórhallsson, bassi, Egg- ert Þorleifsson, flautur, Dan Cassidy, fiðla. Upptökustjórn og útsetningar: Jón Ólafsson. Steinunn Haraldsdóttir Morgunblaðið/Ómar Sterk og sérstök rödd Jóhönnu Guðrúnar nýtur sín vel á Íslensku vísnaplötunni. Bílasmáauglýsingar með mynd 995 kr. fyrir áskrifendurbílar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.