Morgunblaðið - 12.11.2003, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
TVEIR kambar á einum hana geta
varla talist algengir, en hænsni af ís-
lenska stofninum eru sérstök að því
leyti að þau hafa margar kambgerð-
ir og taka kambarnir á sig hinar
ýmsu myndir.
Tvíkamburinn á hananum á
myndinni er eins og tveir vængir á
höfðinu og er fuglinn því vígalegur í
útliti. Benedikt Kristjánsson, bóndi
á Hólmavaði, segist ekki hafa séð
svona kamb áður og geta víst margir
tekið undir það.
Á Hólmavaði er mikið af skraut-
hænsnum, en þar gala hanarnir hver
í kapp við annan og hefur fjöl-
skyldan mikla ánægju af þessu lit-
skrúðuga fiðurfé.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Furðufugl með
tvo kamba
Laxamýri. Morgunblaðið.
MIKLAR skemmdir hafa verið unnar í
Urðarvita í Vestmannaeyjum. Upp komst
um skemmdarverkið er vitavörðurinn
kom í vitann í gærdag. Eftir skemmd-
irnar er vitinn óvirkur.
Urðarviti stendur austast á Heimaey
og vísar sjófarendum rétta leið til hafnar
og varar við hættum.
Að sögn Guðjóns Jónssonar, vitavarðar
Urðarvita, var aðkoman hörmuleg, geng-
ið hefur verið með þung barefli og 14
millimetra plexigler vitans allt mölbrotið
auk þess sem farið var inn í vitahúsið og
öll stjórntæki vitans eyðilögð. Guðjón tel-
ur tjónið nema hundruðum þúsunda ef
ekki milljónum.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Urðarviti
óvirkur eftir
skemmdarverk
Öll tæki/16
SAMÞYKKT var á fundi ríkis-
stjórnarinnar í gær að leggja til við
Alþingi að greiddar verði 140 millj-
ónir króna til sauðfjárbænda og er
miðað við að greiðslan verði innt af
hendi fyrir áramót. Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra segir að
þessi ákvörðun sé liður í því að
koma til móts við vanda sauðfjár-
bænda, en talið sé að tekjuskerðing
þeirra á þessu ári nemi um 250
milljónum.
Jóhannes Sigfússon, formaður
Landssambands sauðfjárbænda,
segist vera alveg þokkalega sáttur
við samþykkt ríkisstjórnarinnar í
gær. Jóhannes segir úrræðin sem
um er að ræða vegna vanda sauð-
fjárbænda tvíþætt. „Í fyrsta lagi er
brugðist við þessari miklu kjara-
skerðingu sauðfjárbænda. Það er
gert að hluta til og það munar veru-
lega um það. Í annan stað eru
menn að samþykkja að fara í
ákveðna framhaldsvinnu til að
reyna að komast út úr þessu hjól-
fari. Það er ekki síður mikilvægt,“
segir Jóhannes en hann átti sæti í
nefnd landbúnaðarráðherra sem
falið var að gera tillögur um lausnir
á vanda sauðfjárbænda. Samþykkt
ríkisstjórnarinnar felur í sér að
þessi sérstaki stuðningur við
bændur miðist að hálfu við bein-
greiðslurétt sauðfjárbænda í ár og
að hálfu við framleitt magn dilka-
kjöts á lögbýlum.
Hver bóndi fær 100 þúsund
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtaka Íslands, segir að sauðfjár-
bændur á landinu öllu séu um 2.000
og ef þessu sé deilt jafnt niður fái
hver og einn bóndi um 80 þúsund
krónur. Hann sagðist telja að með-
alsauðfjárbú fengi um 100 þúsund
krónur.
Ennfremur samþykkti ríkis-
stjórnin að heimila þeim sauðfjár-
bændum er náð hafa 63 ára aldri að
halda óskertum beingreiðslum til
loka samnings um framleiðslu
sauðfjárafurða til 2007, án skyldu
um sauðfjáreign. Þá var samþykkt
að fela utanríkisráðuneytinu að
styðja við markaðssetningu dilka-
kjöts erlendis í samstarfi við aðila
er unnið hafa að málaflokknum.
Ríkisstjórnin samþykkir aðgerðir vegna vanda í sauðfjárrækt
Sauðfjárbændum
greiddar 140 milljónir
Fá greiddar/11
FRIÐRIK Ólafsson hefur forystu í einvígi þeirra
Bents Larsens með einn og hálfan vinning gegn
hálfum eftir tvær skákir. Róbert Harðarson, vara-
forseti skákfélagsins Hróksins, segir fyrstu við-
ureign meistaranna hafa einkennst af vinarþeli. Í
seinni skákinni tefldi Friðrik fram svörtu og hafði
betur. Upp kom Sikileyjarvörn, sama byrjun og í
fyrri skákinni. „Kapparnir skiptust snemma upp á
drottningum og upp kom endatafl þar sem Friðrik
hafði biskupaparið, en það skipti sköpum. Seinni
skákin var mun snarpari og meira í anda hins gamla
sóknarstíls Friðriks Ólafssonar, sem nýtti sín færi til
fullnustu og knúði Larsen til uppgjafar, við mikið
lófaklapp fjölmargra áhorfenda.“
Mikill fjöldi fylgdist með þetta fyrsta kvöld einvíg-
isins og var fjöldi uppsettra taflborða til reiðu fyrir
gesti ef þeir vildu grípa í eins og eina skák. Fjöldi
gesta nýtti sér þessa aðstöðu í hléinu. Einar Karl
Haraldsson og Össur Skarphéðinsson voru meðal
þeirra sem fylgdust með einvíginu. Þeir sögðu gam-
an að sjá þessa gömlu kappa leika á ný á Hótel Loft-
leiðum. „Það er náttúrlega stórkostleg upplifun að
sjá hvað þessir gömlu víkingar eru eldhressir og
skemmtilegir ennþá,“ sagði Einar Karl, sem sagði
miklar tilfinningar hafa fylgt einvíginu í gamla
daga, sérstaklega vegna sambandsins við Dani, en
nú einkenndust tilfinningarnar af frændskap og
norrænu bræðralagi. Össur sagði Bent Larsen vera
einn allra skemmtilegasta skákmann sem hann hefði
fylgst með, hann hefði mikla persónutöfra og
skemmtilega framkomu. „Þeir eru líka svo hlýir
hvor í annars garð. Það er gaman að tala við Larsen,
hann þekkir Ísland vel og virðing hans fyrir Friðriki
er mikil.“
Stórmeistarinn Predrag Nikolic skýrði skákirnar.
Sagði hann þá félaga þekkja skákstíl hvor annars
svo vel að þeir tefldu grimmt til vinnings með svört-
um.
Morgunblaðið/Ómar
Friðrik Ólafsson stórmeistari hugsar djúpt í einvíginu við Bent Larsen á Hótel Loftleiðum í gærkvöldi.
Friðrik lagði Larsen
Fyrsta viðureignin
einkenndist af vinarþeli
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir brosti breitt þegar
ljóst var að Friðrik Ólafsson hafði unnið aðra skák-
ina gegn Bent Larsen. Við hlið hennar er slóvakíska
skákkonan Regina Pokorna.
ALLS skipta 33 skip og bátar með sér
byggðakvóta Akureyrar á yfirstandandi
fiskveiðiári eða 5,5 tonnum. Akureyrarbær
mun ekki hlutast til um ráðstöfun kvótans
og því skiptist hann á öll skip með skráða
heimahöfn á Akureyri, eftir aflahlutdeild
þeirra.
Sjávarútvegsráðuneytið úthlutar á þessu
fiskveiðiári 1.500 þorskígildistonna byggða-
kvóta til byggðarlaga sem lent hafa í vanda
vegna samdráttar í sjávarútvegi. Þar sem
sveitarstjórnir munu ekki hlutast til um
ráðstöfun byggðakvótans mun sjávarút-
vegsráðuneytið skipta þeim veiðiheimildum
sem koma í hlut hvers sveitarfélags milli
einstakra fiskibáta sem skráðir eru frá við-
komandi sveitarfélagi.
Úthlutað eftir aflahlutdeild
Akureyrarbær er eitt þeirra þrettán
sveitarfélaga sem ætla ekki að hlutast til
um ráðstöfun byggðakvótans en bæjar-
félaginu var úthlutað 5,5 tonnum af kvót-
anum. Alls eru gerð út 33 aflamarksskip og
krókaaflamarksbátar frá Akureyri og verð-
ur kvótanum úthlutað til þeirra allra eftir
aflahlutdeild í botnfiski. Ljóst er að byggða-
kvóti einstakra skipa verður talinn í kílóum
fremur en tonnum en ætla má að stærstur
hluti kvótans komi í hlut stóru útgerðar-
félaganna tveggja, Útgerðarfélags Akur-
eyringa og Samherja.
Ísafjarðarbær mun heldur ekki hafa af-
skipti af ráðstöfun byggðakvótans en sveit-
arfélaginu hefur verið úthlutað 119 tonna
byggðakvóta. Alls eru 57 bátar og skip gerð
út frá Ísafirði, Flateyri, Suðureyri, Þing-
eyri og Hnífsdal og skiptist byggðakvótinn
á milli þeirra eftir aflahlutdeild.
Eins mun byggðakvóti Bolungarvíkur,
rúm 66 tonn, skiptast á milli 31 báts sem
þar á heimahöfn og á Hornafirði fá 41 skip
og bátar hlutdeild í 26 tonna byggðakvóta,
svo dæmi séu tekin.
33 skip á Akureyri fá saman
5,5 tonna byggðakvóta
Mest kemur
í hlut Sam-
herja og ÚA
UNGLINGSPILTUR, sem fannst
meðvitundarlaus á botni Breiðholts-
laugar klukkan rúmlega sex í gær-
dag, var fluttur á bráðadeild Land-
spítala – háskólasjúkrahúss. Sund-
laugarvörður, sem var uppi í
eftirlitsturni við laugina, sá drenginn
á botni laugarinnar, hljóp þegar nið-
ur og maður í lauginni kafaði niður
að drengnum og náði honum upp.
Hófu þeir þegar lífgunartilraunir,
vörðurinn reyndi að blása lífi í
drenginn og sundlaugargestur hóf
hjartahnoð. Læknir, sem var gest-
komandi í lauginni, kom til hjálpar
og hélt lífgunartilraunum áfram.
Tókst að koma hjartslætti í gang og
hóstaði drengurinn upp vatni. Var
honum gefið súrefni og var því haldið
áfram í sjúkrabílnum á leiðinni á
bráðamóttöku.
Ekki fengust frekari upplýsingar
um líðan drengsins í gærkvöldi.
Hætt
kominn í
sundlaug
♦ ♦ ♦