Vísir - 16.10.1980, Blaðsíða 9

Vísir - 16.10.1980, Blaðsíða 9
HH0f r><ibiio 41 ’UKtíi'íinmil Fimmtudagur 16. október 1980. 9 „Skyldi til dæmis vera fráleitt aö finna dæmi um tlfaldan launamun milli tveggja Dagsbrúnarmanna eftir daginn? Og hvernig skyldi það vera innan sjómannastéttarinnar?” í BUNDGðTU Hún er býsna einkennileg staðan i samningamálunum núna. Samningamálin virðast komin i algera blindgötu og reyndir verkalýðsforingjar verða undarlegir á svipinn og fara að reyna að telja stjörnurn- ar um hábjartan daginn, ef á þá er gengið með spurningar um hvað raunverulega sé á seyði. I fyrsta skipti sem ég man eftir !fara valdamiklir verkalýðsfor- ingjar að tala um að leysa beri vinnudeilu með lagasetningu. Til skamms tima hefur frjáls samningsréttur verið grund- vallaratriði i munni verkalýðs- foringja og þeir hafa af göflun- um gengið um sinn, þegar laga- setning hefur bundið enda á vinnudeilur. Lög eöa ekki lög? Að visu hefur það orðið ofan á i verkalýðshreyfingunni að biðja ekki um lagasetningu — i orði að minnsta kosti. En það er langt i frá að menn séu einhuga um þá lausn. Margir reyndir verkalýðsforingjar fara ekkert dult meö þá skoðun sina að deil- una nú eigi að leysa með laga- setningu. Þessir menn eru rót- tækir, margir gamlir jaxlar, og finnst timi til kominn að „nota andskotans völdin” eins og einn þeirra hreytti út úr sér. um dag- inn. „Lög hafa ekki svo sjaldan verið notuð til að klekkja á okk- ur” bætti hann við, ,,að það mætti nota þau einu sinni i okk- ar þágu”. En hvað á þá að lögfesta og hvernig? Hætt er við að um það séu menn hvergi nærri sam- mála. Sumir tala um BSRB samkomulagið sem fyrirmynd, aðrir tillögu sáttanefndar, enn aðrir vilja blöndu úr þessu. En til þess að fallast á lögbindingu verður að fara krókaleiðir, segja þeir, sem vilja halda i „prinsippiö” Þá væri t.d. hægt að láta Reykjavikurborg riða á vaðið og semja i anda sáttatil- lögunnar, sem verkalýðs- heyfingin hefur viðurkennt sem umræðugrundvöll, svo kæmi Sambandið á eftir og svo kannski fleiri kaupstaðir. Þá væri komið það mikið fordæmi, að unnt væri að sætta sig við lagasetningu, segja þessir menn. „Það er bara hvort Reykjavík er nógu rauð . . .” bæta þeir hugsandi við. En hvers vegna . . .? Þetta er allt gott og blessað. En sé gengið á menn og þeir spuröir hvers vegna að minnsta kosti hluti verkalýðshreyfingar- innar gæti sætt sig við að leysa þessa deilu meö lögum, ja þá vandast málið. Vinsælasta skýringin i augnabiikinu er sú að vinnuveitendur ætli sér alls ekki að semja, vegna þess að þeir vilji fella rikisstjórnina. Það standi verkalýðshreyfing- unni næst að vernda hana og hjálpa henni til að koma á ýms- um félagslegum umbótum og þvi væri þolandi að vikja einu sinni frá þeirri meginstefnu að neita lagasetningu um samn- inga. Allt kann þetta að vera rétt, en ekki man ég eftir þeirri vinnudeilu, þar sem forkólfar verkalýðshreyfingarinnar voru ekki handvissir um að einmitt nú ætluðu vinnuveitendur alls ekki að semja. Það er þvi alveg Magnús Bjarnfreðsson f jallar að þessu sinni um samningamálin og segir meðal annars um Alþýðu- sambandið/ að það sé orð- inn hálfgerður óskapnað- ur, sem hangi að því er best verði séð helst sam- an á vananum og óttanum við breytingar. Það sé ekki lengur samband lág- launafólks, heldur vett- vangur hálaunafólks og sérréttindastétta, ekkert siður en verkamanna. á mörkunum að þessi skýring sé mér næg. Nokkrir raunsæis- menn benda á aö þing ASl sé framundan og það sé útilokað fyrir forystumennina að mæta þar eftir að hafa gert samninga um eitthvert litilræði. Þetta þing verði fyrst og fremst valdabaráttuþing milli stjórnarliða og stjórnarand- stöðu og reynslan sýni að völd i Alþýðusambandinu séu svo mikilvæg pólitiskt að menn geti ekkert gert sem tefli þeim i tvi- sýnu. Nú er það að visu óþolandi að pólitiskt skæklatog verka- lýösforingja skuli halda efna- hagsmálum þjóðarinnar i heljargreipum, en liklega kom- ast þessir menn þó svolitið ná- lægt kjarna málsins. Óskapnaður Alþýðusamband Islands er orðið hálfgeröur óskapnaöur, sem hangir að þvi er best veröur séð helst saman á vananum og óttanum við breytingar. ASl er ekki lengur samband láglauna- fólks, það er vettvangur há- launafólks og sérréttindastétta, ekkert siður en verkamanna. Lifskjör og hagsmunir þess fólks sem á aðild að ASl eru svo gjöróllk, að engu tali tekur. Launamismunurinn er marg- faldur. Hann er ekki bara milli sérsambanda — ég er ekki að tala um uppmælingaaðalinn svonefnda — hann er einnig inn- an stéttarfélaganna. Skyldi til dæmis vera fráleitt að finna dæmi um tifaldan launamun milli tveggja Dagsbrúnar- manna eftir daginn? Og hvernig skyldi þaö vera innan sjó- mannastéttarinnar? Ætli það sé ekki tilfellið að þeir sem vinna erfiðustu og hættulegustu störf- in á litlu bátapungunum, sem farast einn eða fleiri I illviðrum á hverju ári, séu með margfalt minna kaup en þeir sem vinna I yfirbyggöum skipum, þar sem slys verða vart nema fyrir handvömm sjómanna sjálfra? Allt byggist þetta á samningum um einhver sérréttindi eða aukagreiðslur, þvl allt er þetta fólk láglaunafólk samkvæmt grunntöxtum. Sum þessara sér- réttinda eru ný, önnur gömul og löngu úrelt. En enginn vill sleppa neinu þvi sem hann hefur fengið. Þess vegna er engu hægt að breyta. Með betri atvinnu- tækjum og aukinni hagræðingu vex launamunurinn enn, — og um leið óskapnaðurinn. Verkalýðshreyfingin er eins og púðurtunna. óánægjan meö launamismuninn, sem forystan ver I líf og blóð I raun, um leið og hún reynir að breiða yfir hann, vex sifellt. Þetta vita vinnuveit- endur og spila auðvitað á það — þótt þeir þræti lika fyrir það. Verkalýðshreyfingin er að verða risi á brauðfótum, svo notuð sé samliking, sem er vin- sæl nú til dags I umræðum um ákveðinn stjórnmálaflokk. Er á meðan er! Einhvern tlmann verður sprenging I þessari púöurtunnu og menn fara að tala hrein- skilnislega. En frestur er á illu bestur og enginn veit hvað slík- ar breytingar hafa i för með sér. Þær geta gerbreytt valdahlut- föllum I hreyfingunni og ómögu- legt er að segja hverjar þær breytingar verða. Þess vegna sér samtrygging verkalýðs- foringjanna um að viðhalda óbreyttu ástandi eins lengi og unnt er. Það gæti verið stór- hættulegt að koma inn á ASI þing eftir að hafa gert samn- inga, sem enn hafa aukið launa- biliö milli taxtanna 600, eða hvað þeir eru nú margir. Þá er aö skömminni til skárra að hafa fengið lög, sem gera kleift að fresta raunhæfri umræðu i a.m.k. eitt ár. Stjórnarand- stæðingar geta þá skammaö rikisstjórnina að vild, hinir brosa I kampinn og fá sér I nef- ið. Magnús Bjarnfreösson. Eru leiktækja- sallrnir undan- fari tívoiís? Ein er sú grein atvinnurekstr- ar sem séð hefur dagsins ljós slðustu ár I höfuðborginni er kallast „leiktækjasalir”. ls- lendingum hefur ávallt veriö gjarnt að draga fólk og jafnvel fyrirtæki I dilka og flokkast þessi grein fyrirtækja undir þau ( siöari. Hver er ástæðan til þess? Þessu er erfitt aö svara, en stærstan hlut á þar þröng- sýni. Þá spilar eigingimi og öfund llka nokkuö inn i þessa afstöðu. Imynd margra er, að eigendur viðkomandi fyrirtækja „græði” offjár á þessum rekstri og eins og allir vita er „gróöi” vltavert fyrirbrigði, alla vega meðan hann fer I vasa náung- ans. Leiktæki þessi eru og „stórvarasöm” fyrir viökom- andi iðkendur og miklar likur á að þeir verði háðir þessum „apparötum” um aldur og ævi. Maður setur einn eða jafnvel tvo 50 kr. peninga I rauf og svo þeytir maður kúlu fram og aftur eftir fleti og að launum fær maður stig, mismunandi há eftirleikni manns með kúluna. I öðru tæki situr maöur og heldur um stýri og bifreiö birtist á skermi fyrir framan mann á fleygiferð og galdurinn er að halda henni á götunni gegnum beygjur og yfir hæðir. Já, þetta er greinilega hættu- legt, mannákemmandi og ekk- ert menningarlegt og maður getur ekki grætt neitt eins og I Rauða kross kössunum (þar fer „gróðinn” til llknarstofnunar og er þar tvennu óllku saman að jafna!) en þeir gefa peninga til baka sé maður heppinn. Hver er //lýðurinn?" Svo er nú það alversta. Þessir staðir laða aö sér urmul ung- linga, sem flokkast undir lýð I okkar samfélagi. Þessi „lýður” er oft að fara I eða koma úr gagnfræðaskólum, verslunar- skóla, iðnskóla, menntaskóla, kvennaskóla og jafnvel vinnu. Og þvi miður er þetta ekki samansafn tossanna úr viðkom- andi skólum heldur er meðal nemandinn I meirihluta og dúx- arnir llta einnig inn. Þá væri nú hollara fyrir þau að hanga inni I næstu sjoppu eða á hallæris- planinu, fyrst þau geta ekki set- ið heima og séð menningarbæt- andi rússneskan „vestra” I sjónvarpinu. Og hvað með alla unglingaskemmtistaðina I borg- inni, sem allir vita jú að eru á hverju horni? T.d. Tónabær, væri ekki skynsamlegra að safna aurunum saman sem i leiktækin fara og skreppa i Tónabæ. Slikt kvöld kostaöi að- eins eitt par þúsund, ef vinandi og leigubill eru frátaldir, því is- lenskir unglingar drekka jú ekki. Leiktæki hér og þar Sem betur fer eru ekki allir sem horfa þessi fyrirtæki þess- um augum. Undirritaður, fyrr- um meðeigandi og stofnandi eins þessara fyrirtækja (varð að selja, gróðinn farinn að há mér) er nú sem stendur búsettur i Bandarikjunum, nánar tiltekiö Memphis Tennessee og er þar viö háskólanám. Hér lltur fólk svona leiktæki öðrum augum en heima þ.e.a.s. meötekur þau sem leiktæki til afþreyingar. Leiktækin eru bæöi I sérstökum sölum eða dreyft eitt eða fleiri i verslunum, matsölustööum, skemmtistöðum, brautarstöð- um, kvikmyndahúsum og meira segja i skólum. Ekki þykir þetta mannskemmandi hér, heldur jafn sjálfsagt og sjón- varpsherbergin og staðsett hér I kjarna æöstu menningarstofn- unar borgarinnar. Draumurinn um tívolí Nei, tslendingar sem ferðast hafa erlendis vita hvað um er aö ræða og vita að tæki þessi eru eingöngu smæstu leiktækin sem öll tlvoli og skemmtigaröar bjóöa upp á. Þarna erum við komin aö draum okkar er stofn- uöum leiktækjasal þann er ég átti aðild aö. Þaö var að byrja meö smæstu tækin og þróa þetta með tlmanum upp i lltinn inni- skemmtigarð, tivoli, með til- heyrandi hringekjum, spegla- sal, draugagöngum, bilapalli o.s.frv. Einhvers staðar verður aö byrja og betra er smátt en aldrei! En varla vorum við búin aö opna dyrnar er „kerlingarnar” sáu draugana og byrjuöu að gráta. „Lokiðþessum hættulegu fyrirtækjum eöa i þaö minnsta takmarkið inngöngu við 12-15 ára aldur”. Nokkrir borgarfull- trúar sáu þarna hugsanleg at- kvæði, ákváðu aö auka vin- sældirnar og vörpuöu þessu fram á fundum. Auðvitaö kem- ur það málinu ekkert við þó flokkar þessara „fulltrúa”, væru búnir að hafa það á stefnu- skrá (að visu fyrir kosningar) aö koma upp skemmtigarði, tivoli I borginni. Við biðum með öndina i hálsinum. Yröi það raunverulega tilfellið að ráöa- neðanmóls Þorsteinn Fr. Sigurösson, námsmaöur í Bandaríkj- unum hefur sent Vísi meðfylgjandi grein um leiktækjasali þar sem hann undrast afstööu ým- issa aöila, sem hafa horn i síðu þess konar fyrir- tækja hérá Islandi og bið- ur um að þeim verði gef- inn starfsfriður. menn settu reglugerð, er I fram- tiðinni þýddi að skemmtigarður væri bannaöur börnum og jafn- vel unglingum? Nú slikt getur ekki skeð. Aurar í vél eða hendi Hverjum datt i hug að skammast eða rifa niöur fram- takssemi aðstandenda heimilis- sýningarinnar, er þeir leigðu ferðativoli hingáö I haust. I stað þess að stinga peningunum i rauf á tækjunum sjálfum, stóð maður hjá og tók við aurunum og setti svo I gang. Skyldi hafa hvarflað að einhverjum borgar- fulltrúa að setja aldurstakmark þarna á? Agætu lesendur, þó undir- ritaður eigi ekki lengur aðild aö þessum rekstri er það honum kappsmál að frjáls rekstur at- vinnufyrirtækja verði, sem lengst viö lýði á Islandi. Það er von min að greinar- korn þetta hafi aðeins opnaö augu þeirra er litu leiktækjasali hornauga. Gefið eigendum þeirra starfsfrið og von um að i framtiöinni eigi þeir stóran þátt I að færa okkur hiö langþráða tivoli sem hentar okkar erfiðu aðstæðum þ.e. inmtivoli. Þorsteinn Fr. Sigurðsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.