Vísir - 16.10.1980, Blaðsíða 32

Vísir - 16.10.1980, Blaðsíða 32
vtsm f t.t * M • ♦ Fimmtudagur 16. október 1980 síminnerdóóll Veöursoá dagsíns Yfir tslandi og hafinu suður- undan er minnkandi 1036 millibara háþrýstisvæöi, held- ur mun hlýna i veðri. Suðurland Faxafldi, suð- vesturmiö og Faxaflóamiö: suöaustan gola eða kaldi, skýjaö og hætt við slydduélj- um á stöku stað á miöum. Breiðafjörður, Vestfirðir, Breiðafjarðarmið og Vest- fjaröarmið: suðvestan kaldi og viða él. Strandir og Noröur- land vestra, Norðuriand eystra, norðvesturm ið og norðausturmið : sunnan og suöaustan kaldi, skýjað en úr- komulaust að mestu. Austur- land að Giettingi, austurmið og Austfjarðarmið: norövest- an. gola eða kaldi, skýjað og dálitil él á miðum. Suðaust- urland og suöausturmiö: norðaustan gola, skýjað. VeðríOhér ogbar Akureyriskýjaö -r5, Bergen léttskýjað-r 2,Helsinkiskýjað 8, Kaupmannahöfn þoka 6, Osló léttskýjaö 1, Reykjavikskýjaö 1, Stókkhólmurskýjaö 3, Þórs- höfn léttskýjað 2, Aþena heið- skirt 20, Berlfn hálfskýjað 9, Frankfurt þoka 9, Nuukskýj- að 5, Chicago alskýjað 12, Feneyjar rigning 12, London alskýjaö4, Luxemborgþoka 9, Las Palmas skýjað 22, New Yorkskýjað 14, Rómskýjaö20 og Vin skýjað 10. Loki ASt-menn boöa allsherjar- verkfali 29. október, sem er afmælisdagur Þorsteins Páls- sonar, framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambandsins. Þettaer sennilega gert til þess að launþegar geti fjölmennt f afmælið hans! Allsherjarverkfall á afmæii Þorsteinsi Vlnnuveitendasambandiö undirbýr verkbannsaögerðir Aðalsam ninganefnd ASt ákvað á fundi sinum i gær, að lagt yrðitil viö alildarfélögin, að þau boði til vinnustöðvunar um land alit 29. nóvember n.k. og þrýsti þannig á um samnings- gerö. Athygli hefur vakið aö þennan dag á Þorsteinn Páls- son framkvæmdastjóri VSt af- mæli. Þá fól nefndin 14 manna viöræöunefnd ASt að leita eftir samningum við riki og bæjarfé- lög, og jafnframt að taka ákvörðun um frekariaðgerðir ef þörf krefur. A fundi 43ja manna nefndar- innar voru vinnubrögð Vinnu- veitendasambandsins I fyrir- standandi samningaviðræðu harölega fordæmd. Segir m.a. I ályktun frá fundinum, að neiti VSl samningum, hljóti að koma til vinnustöövunar á ábyrgð þess. Sambandsstjórn Vinnuveit- endasambandsins sat einnig á fundi I gær, og var þar m.a. itrekuð afstaða VSl til tillögu sáttanefndar. Varðandi áfram- haldandi viðræður, kvaöst stjdrnin reiöubúin til að hefja þri'hliða viðræöur ásamt ASl og stjórnvöldum um skattalækk- anir og fjölskyldubætur. Aöilar komi sér saman um 4 ára áætl- un um skipan starfsaldurs- hækkana i' kjarasamningi, áfram veröi unniö að samkomu- lagi um 11-12 mánaöa launa- greiöslur i veikinda-og slysatil- fellum og að samningar gildi til 1. nóv. 1982. Loks segir f ályktun frá VSl, að i framhaldi af verkfallshót- unum ASl hafi sambandsstjórn VSl ákveðiö að skipa 11 manna nefnd til að gera tillögur um verkbannsaögerðir i varnar- skyni, ,,ef nauðsyn krefur”. — JSS Umræður ulan dagskrár um Flugleiðamállð: „öboi- andi bið" - segir FriðríK Sophusson „Þetta er orðin óþolandi biö fyrir starfsfólk Flugleiða, sem á alit sitt undir ákvörðunum rikis- stjórnarinnar, bæöi er varðar bein framlög vegna Atiantshafs- flugsins og eins vegna rikis- ábyrgðarinnar,” sagöi Friðrik Sophusson, alþingismaður, f sam- tali við Visi I morgun. Friðrik verður málshefjandi við umræður utan dagskrár, sem fram fara i Sameinuðu þingi i dag, að ósk þingflokks Sjálf- stæðisflokksins. Búast má við liflegum umræð- um um þetta mál á Alþingi í dag og þarf Friðrik Sophusson liklega á öllu sinu að halda, þvi að hann veiktist af umgangspest i gær- kvöldi og var illa haldinn, er Visir ræddi við hann i morgun. — SG Kvennalang- elsi opnað! „Það er stefnt að þvi að kvennafangelsiö á Akureyri verði komið i notkun i næstu viku. Eftir er að ganga frá ráðningu kven- fangavaröa og verður það gert á morgun eða um heigina, en 20-30 umsóknir bárust um þessi störf”, sagði Þorsteinn Jónsson, fuiltrúi I dómsmálaráðuneytinu, I morgun. Afplánunardeild hefur verið starfrækt við lögreglustöðina á Akureyri i nokkur ár og er það rúm fýrir fjóra fanga I þremur klefum. Engin aðstaöa hefur veriö fyrir hendi til aö láta konur afplána langa dóma, en tvær kon- ur eiga nú að taka út afplánun sem skiptir árum. Þorsteinn Jónsson sagði, að á þessari stundu væri rætt um að reka þama kvennafangelsi i tvö ár eöa svo, en reynslan yrði aö skera úr um hvort áframhald yrði á. — SG Þyrla varnariiðsins lendir með sjómanninn rétt fyrir kl. 11 í morgun. Vfsismynd: BG. Sðtti slasaðan sjðmann í morgun kom þyrla varnar- liðsins með mikið slasaðan mann til Reykjavikur. Hafði hann fallið niöur f lest um borð i togaranum Júni og skaddast mikið á öxi og baki. Var hinn slasaði fluttur á Borgarspitalann. Togarinn var staddur um 57 sjómllur suðvestur af Reykja- nesi, þegar slysið átti sér stað, snemma i morgun. Var leitað eftir aðstoð hjá varnarliðinu, þar sem hin nýja þyrla Landhelgis- gæslunnar er ekki tilbúin tii slikr- ar notkunar ennþá. Len ti þyrlan með hinn slasaða við Borgarspit- alann um ellefu-leytið i morgun. NÝR INNHEIMTUSTJORI UTVARPSINS: FRÉTTI UNI STÖÐU- VEITINGUNA FRÁ VÍSII Theódór S. Georgsson, héraðs- dómslögmaður, hefurveriö settur innheimtustjóri rikisdtvarpsins frá 1. nóvember 1980 að telja. Tilkynning um þetta barst Vfsi I gær, 15. október, en hún er dag- sett hinn 14. þessa mánaðar. I tilefni af ráðningu Theodórs hafði Visir strax samband við hinn nýja innheimtustjóra, sem hafði þá ekki hugmynd um stöðu- veitinguna! Theódór hafði ekki fengiö neina tilkynningu þess efnis, aö hann væri ráöinn I stööuna og varö aö taka orö blaöamanns Vfsis trúan- leg fyrir ráöningunni. „Mér þykir nú hæfa, aö ég fái formlega tilkynningu um þetta áöur en ég fer aö láta hafa eitt- hvaö eftir mér f þessu sam- bandi”, sagöi Theódór og i þvi voru menn þó hjartanlega sam- mála. Visir haföi samband viö Knút Hallsson, skrifstofustjóra i menntamálaráöuneytinu. vegna þessarar sérkennilegu afgreiðslu á ráöningunni. Knútur benti á, að bréf hefði veriö sent til Georgs á þriöjudag, sem liklega heföi ekki veriö kom- ið i gær. „Þá hafði menntamála- ráðherra ætlaö að ná til Georgs i gær, en hann virðist ekki hafa náð til hans”, sagði Knútur og ákvað að kippa málinu I liöinn á stund- Theódór er þvi væntanlega bú- inn aö fá ráöninguna staöfesta, þegar þetta er lesiö. Tlieódór er fimmtugur lögfræö- ingur, fæddur og uppalinn I Vest- mannaeyjum. Eiginkona hans Asta Þóröardóttir, er einnig frá Eyjum, en hún heldur upp á fimmtugsafmæli sitt f dag, svo aö simhringing ráöherra hefur þvi margfalt gildi. —AS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.