Vísir - 16.10.1980, Blaðsíða 22

Vísir - 16.10.1980, Blaðsíða 22
22 Fimmtudagur 16. október 1980. mcmnlíí „Dauda- sveitin” , frá íslandi Þaö muna sjálfsagt margir eftir Brooke Shields, sem varð heimsfræg er hún tólf ára gömul lék gleðikonu i kvikmyndinni „Pretty Baby" sem sýnd var hér i Háskólabiói ekki alls fyrir löngu. Frami Shieldsá hvita tjaldinu virðist ætla að verða skjótur, enda er móöir hennar talin ein sú alharð- asta í umboðsbransanum og unir hún sér engar hvíldar við að koma dótturinni á framfæri við framleiðend- ur. Shields, sem nú er fimmtán ára gömul, hefur nýlega lokið við að leika í nýrri mynd sem ber heitið „Bláa lónið" en mótleikari hennar i myndinni er sautján ára unglingspiltur, Christopher Atkins. Myndin hefst árið 1901 er skip, sem er á leið milli Evrópu og Ameríku ferst en aðeins þrír komast af, mat- sveinninn og tveir krakkar. Þau hef ja nýtt lif á eyðieyju og eftir að matsveinninn hefur kennt börnunum að komastaf á eyjunni drukkn- ar hann. Börnin verða því að berj- ast upp á eigin spýtur og auðvitað fer ekki hjá því, að ástin kviknar í brjóstum þeirra og ekki liður á löngu þar til þeim fæðist sonur. Lifi þeirra á eyjunni er líkt við Paradís og þrátt fyrir ýmsa erfiðleika fær myndin hinn ákjósanlegasta endi eins og vera ber. Engum getum skal að þvi leitt hve- nær „Bláa lónið" verður tekin til sýninga hér á landi en meðfylgjandi Ijósmyndir eru úr myndinni. Brooke Shields og Christopher Atk- ins í hlutverkum sinum sem ung- lingarnir á eyöieyjunni. Ást í Para- dts Þeir eru átta saman og ganga undir nafninu „Dauöa- sveitin frá Islandi”. Þeir hafa vakiö mikla athygli i Noregi, en eru ekki hópur hryðju- verkamanna eins og jafngiftin gæti bent til. Þessir átta tslendingar eru . mættir til starfa i Noregi þar sem sláturtiðin stendur sem hæst eins og hér heima á Fróni. I sláturhúsinu i Lille- hammer hafa þeir vakið mikla athygli fyrir störf sin og þess vegna ganga þeir undir nafn- giftinni „Dauöasveitin”. Þeir þykja meö eindæmum flinkir viö aö flá skinnin af Umsjón: Sveinn Guöjónsson. kindaskrokkunum þegar skrokkarnir koma á færibandi frá þeim sem bindur enda á lif þeirra. Þar bíður „Dauöa- sveitin” meö hnifana á lofti og skjótar en augu á festir svipta þeirgærunum af skrokkunum. Hefur leikni þeirra i þessu starfi vakiö mikla athygli Norömanna. Fóstbræörakonur annast létt skemmtiatriöi svo sem ballettdans... Fóstbrædur bregða Haustskemmtanir karlakórsins Fóstbræöra eru nú aö hefjast en þær veröa haldnar föstudags- og laugardagskvöld nú næstu vikurnar og veröur sú fyrsta á laugardagskvöldiö kemur. Skemmtanir þessar eru haldnar fyrir styrktarfélaga kórsins og gesti þeirra og kennir þar ýmissa grasa. A skemmtununum syngur kór- inn nokkur létt lög undir stjórn Ragnars Björnssonar og einnig d leik veröur einsöngur og kvartett- söngur. Þá munu Fóstbræörakon- ur hafa I frammi gamanmál og létt skemmtiatriöi og aö sjálf- sögöu veröur svo stiginn dans fram eftir nóttu. Stjórnandi skemmtananna veröur einn af félögum kórsins, Þorgeir Ast- valdsson. Meöfylgjandi myndir tók Ella ljósmyndari VIsis á æfingu i Fóst- bræðraheimilinu viö Langholts- veg nú i vikunni. .... og dramatíska harmleiki. VIsismynd:Ella Hér sjást tveir félagar „Dauöasveitarinnar” aöstörfum I slátur- húsinu 1 Lillehammér. Ekkifór hjá þviaöástin kviknaöi 1 brjóstum unglinganna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.