Vísir - 16.10.1980, Side 12
12
Fimmtudagur 16. október 1980.
Til sölu
er þessi gullfallegi
PEUGEOT 504 GL SJÁLFSK.
ÁRG. 1978
Bifreiðin er til sýnis hjá
BÍLASÖLU GUÐFINNS simi 81588
og á kvöldin í sima 41438
Til sölu
Mazda 121 árgerð 1977
Bíll i sérflokki. Ekinn 39 þús. km.
Góð snjódekk fylgja.
Billinn er sem nýr. Uppl. í síma 71280 e. kl.
18.00 næstu kvöld.
Gjalddagi G-lána Húsnæölsmálaslolnunar i. nóvemöer.
tllkynningar ekki sendar úl
Nú liður senn að þvi að einstak-
lingar, sem tekið hafa húsnæðis-
málalán út á eldra húsnæði, þurfi
að fara að greiða skerf sinn til
baka.
Ekki mun vera send út tilkynn-
ing þessa efnis, en mönnum er
ætlað að vita, að gjalddagi er 1.
nóvember ár hvert.
Til þess að glöggva fyrir les-
endum hvað G-lántakar þurfa að
greiða, fengust eftirfarandi upp-
lýsingar hjá Veðdeild Lands-
bankans:
G-lán (lán til eldra húsnæðis) á
að greiðast upp á 15 árum. Það
þýðir þvi að sú upphæð
sem lánuð var upphaflega greið-
ist með 15 jöfnum afborgunum en
ofan á það leggjast 2,25% grunn-
vextir.
Einstaklingur, sem þannig fékk
lán 1. nóvember i fyrra til dæmis
2,7 milljónir, greiðir þvi um 214
þúsund krónur i afborgun og
vexti. Auk þessa gjalds bætist of-
an á 100% visitölutrygging, sem
samsvarar 51,8% hækkun frá
nóvember 1979 til nóvember i ár.
Þessi prósentutala kemur siðan
ofan á afborgunartöluna og
grunnvextina.
Þetta þýðir að sá sem fékk 2,7
milljóniraðláni (G-láni) hjá Hús-
næðismálastofnun, fyrir ári sið-
an, greiðir um 325 þúsund krónur
i afborgun.
Dráttarvextir reiknast siðan
frá 1. desember og eru fljótir að
kalla þessa upphæði himinhæðir,
greiði menn ekki hiö snarasta.
Rekstrarstyrkir til sumardvalarheimila
í fjárlögum fyrir áriö 1980 eru veittar 2,5 millj. kr. til
rekstrar sumardvaiarheimila og vistheimila fyrir börn úr
bæjum og kauptúnum.
Styrkir þessir eru einkum ætlaðir féiagasamtökum, sem
reka barnaheimili af framangreindu tagi.
Umsóknir um styrk af fé þessu vegna rekstrarins 1980
skulu sendar ráðuneytinu, ásamt upplýsingum um tegund
heimiiis, tölu dvalarbarna og aldur, dvalardaga samtais á
árinu miðað við heils dags vist, fjárhæð daggjalda, upp-
lýsingar um húsnæði (stærð, búnað og aöra aðstöðu) og
uppiýsingar um starfsfólk (fjölda, aldur, starfsreynslu og
menntun). Ennfremur fylgi rekstrarreikningur heimilis-
ins fyrir árið 1980.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamáiaráöuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, en umsóknir skulu hafa borist ráðu-
neytinu fyrir 30. nóvember næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
14. október 1980.
Auglýsing
um breytingu á reglugerð fyrir
Biðreikning lífeyrisgjalda
lögjöld launþega af launum í október 1980 svo
og framvegis verða 4% í stað 4.25%. Þá ber
framvegis að greiða iðgjald af vaktavinnuá-
lagi.
14. október 1980.
SÉRVERSLUN MEÐ
GJAFAVÖRUR
CORUS
HAFNARSTRÆTI17
simi 22850
AVANABINDANDI
MEGRUNARLYF
Á MARKAGINUM
Tvð ár síðan að landiækniróskaðl eftlr að pau yrðu aiskráð
Sænska læknaráðið hefur á-
kveðið að taka þrjú megrunarlyf
af markaðnum 1. janúar næst-
komandi. Lyf þessi eru MIRA-
PRONT, DANYLEN og OBESI-
DYL. Telur sænska læknaráðið að
hér sé um örvandi lyf að ræða,
sem engin áhrif hafi á umfram-
þunga sjúklinga er neyta þessara
lyfja, en hafi aftur á móti slæm á-
hrif á taugakerfi sjúklinganna.
Vegna þessarar fréttar höfðum
við samband við Ólaf Ólafsson
landlækni og spurðum hann hvort
aö umrædd lyf væru gefin af
læknum hér á landi.
„Mirapront hefur verið hér á
markaönum I yfir tuttugu ár. Hin
tvö lyfin Danylen og Obesidyl eru
sams konar lyf og Mirapront að-
eins undir öðrum nöfnum. Menn
trúðu á það „i den tid” að þessi lyf
drægju úr matarlyst, en komið
hefur I ljós að þau hafa ávana-
hættu i för með sér.
Það eru liklega ein tvö ár siðan
að ég óskaöi eftir að þetta lyf (og
önnur skyld) væri tekið út af skrá
hérlendis, þvi að ég tel þetta
gagnslaust megrunarlyf. En þvi
miður hefur ekki orðið samstaða
um aisKranmgu rairapronts meo-
al lækna og lyfjafræðinga. En
tekið skal fram aö Mirapront er
litið notað og aðeins undir sér-
stöku eftirliti”, sagði ólafur
Ólafsson landlæknir. —ÞG.
Megrunarlyfin OBESIDYL OG MIRAPRONT veröa tekin af markaön-
um I Svlþjóð um áramót.