Vísir - 16.10.1980, Page 21
Fimmtudagur 16. október 1980.
21
VÍSIR
Viö stall.
HAUSTVERKIN
Varla er þörf á að benda les-
endum Visis á, aö umtalsverðar
breytingar hafa verið gerðar á
blaðinu. Ég vona að allir geti orð-
ið sammála um, að þessar breyt-
ingar eru til bóta, enda hefur
blaðið stækkað, útlit þess hefur
batnaðog siðast en ekki sist hefur
það orðið fjölbreyttara að efrii.
Einn þáttur þeirra breytinga,
sem gerðar voru, er að nú er ein
ákveðin siða i blaðinu helguð
áhugamálum manna, eða eigum
við að segja tómstundamálum
manna. Þvi fylgdi nokkur röskun
fyrir Hófatak. Aður var reynt að
koma þvi inn i blaðið á föstudög-
um, en þvi er ekki að neita, að
stundum varð Hófatakið að vikja
fyrir öðru efni, og féll þá niður
þá vikuna. Nú er Hófataki ætluð
tómstundasiðan á miðvikudög-
um, og er það von min og annarra
hér við blaöið að það þurfi ekki aö
raskast að neinu ráði. Það að
Hófatakið kemur nú á fimmtu-
degi, flokkast undir byrjunarörð-
ugleika.
Fyrstu frost voru hér á Suður-
landi fyrir nokkrum nóttum og
vafalaust löngu fyrr fyrir norðan
og liklega hafa flestir landsmenn
séð fyrstu snjóföl vetrarins. Þeg-
ar svo vetrarlegt er orðið fara
hestamenn gjarnan að hugsa til
hesthúsanna og undirbúnings
undir veturinn. Það er ákaflega
mikið skemmtilegra að taka hest-
ana á hús, sem er vel undir vetur-
inn búiö.
Við byrjum utanhúss. Hafi ein-
hverju okkar orðiö á að safna
rusli eða haug utan við húsin,
hefjum við hauststörfin á að f jar-
lægja það. Siðan dyttum við að
gerði, bætum nýrri möl i, ef þörf
krefur og jöfnum úr, þar sem ó-
jöfnurhafa myndast. Næst tökum
viö til við húsið sjálft, þrifum
veggina að utan og málúm þak og
veggi, gerist þess þörf.
Ef einhver hefur trassað að
moka út og hreinsa i vor, eftir að
hestunum var sleppt, er byrjað á
þvi eftir að útistörfunum er lokiö.
Siðan er allt þvegið hátt og lágt.
Lausar grindur eru teknar upp og
þvegnar og skipt um borö i þeim,
eftir þörfum. Þar sem milligerðir
og stallar eru úr tré, er það allt
saman yfirfarið og lagfært. Skipt
er um borð eöa planka, sem hafa
brotnað eöa eru mikið nöguð og
umfram allt, gætið þess vel aö
hvergi standi naglar út i loftið i
innréttingu hesthússins, né neitt
annað þvi likt, þvi af sliku hafa
hlotist mörg sár, og sum þeirra
slæm. A brúnir milligerða og
stalla úr tré er ágætt að negla
giröi, þá naga hrossin þaö ekki.
Stalla úr tré er gott að klæöa að
inna með blikki, það ver þá sliti
og þá tapast fóðurbætir ekki niður
um rifur. Næst eru gluggarnir
teknir og hreinsaðir upp og siðan
bornir fúavarnarefni. Aö þvi
loknu er húsið málað að innan.
Margir mála neðri hluta veggj-
anna og innréttinga i dökkum lit
en ljósara að ofán, jafnvel hvitt.
Allt tilbúiö
Hér er ekki fýsilegt aö láta hest inn.
Texti og
myndir:
Sigurjón
Valdimars-
son
Þá er komið aö brynningar-
tækjunum. Þar sem sjálfbrynn-
ingartæki eru i húsum þarf að
hreinsa allt vel upp og aögæta að
hvergi sé neitt fast af ryði. Þar
sem slik þægindi eru ekki, eru
viða notaðar stórar oliufötur til að
hafa vatnið i, og þær henta ágæt-
lega. Þessar fötur eru ekki gerðar
ur úrvals málmum né heldur
þykkum. Þær ryðga fljótt og eru
þá litil til skrauts eða þrifnaðar.
Þess vegna er sjálfsagt að
hreinsa .þær vel upp, strax i byrj-
un, og mála með sterkri máln-
ingu, utan og innan, sem ekki
flagnar af og þolir álagiö. Þar
sem notaöir eru járnstampar,
sem venjulega eru sundursagað-
ar tunnur, er sjálfsagt að hafa
sömu aöferð, aö þrifa vel og
mála, en fyrst þarf að ganga vel
frá brúnum svo tryggt sé að þær
meiöi ekki. Hvort sem fötur eða
stampar eru notaðar, er sjálfsagt
að smiða utan um það góöar
skorður, þvi annars velta hrossin
þvi um koll, bleyta i kringum sig
og skemma ilátin.
Rétt er aö benda á að viða á
hjólbarðaverkstæðum má fá
keypta sóla af hjólbörðum, sem
þykja góð gólfklæðning i bása.
Sólarnir eru lagðir langs i bás-
ana, meö 2-3 sm millibili. Margir
telja að það fari betur með fætur
hestanna að standa á gúmmii en
timbri og það slitnar minna.
Hér hefur verið stiklað á stóru
og auðvitað má margt fleira tina
til. Það veröur þó ekki gert i þetta
sinn, en rétt er að benda mönnum
á, aö vanmeta ekki kosti þess að
undirbúa hesthúsið vel, Þaö er ó-
likt miklu skemmtilegra aö
hirða i hreinu og heilu húsi en við
lélegri aðstæður. Kostnaðurinn
ætti ekki að gera iTt af við neinn,
þvi þetta er mest vinna.
Og að lokum: Gleymið ekki að
athuga að slökkvitækiö sé i ör-
uggu lagi.
SV.
m
Smurbrauðstofan
BJORTSJirSJINJ
Njólsgötu 49 — Simi 15105