Vísir - 07.11.1980, Side 6
er lokiO”
■
■
i
■
■
■
■
- segir Guðni Kiartansson
landsliðsðiáliari
— Mlnu starfi hjá K.S.Í. er
lokið — ég var aðeins ráðinn til
að stjórna landsliöinu I sumar,
sagði Guðni Kjartansson,
landsliðsþjálfari i knatt-
spyrnu. — Ég veit ekki hvað
ég geri, en ég reikna með að
halda áfram knattspyrnu-
þjálfun, sagði Guðni.
Guðni náði góðum árangri
með landsliðið i sumar —
undir hans stjórn náði það
jafntefli 1:1 gegn Svium i
Halmstad og lagði Tyrki að
velli 3:1 i Izmir.
Það hefur ekkert verið rætt
við Guðna um áframhaldandi
starf sem iandsliðsþjálfara.
Það er i verkahring nýrrar
stjórnar K.S.I., sem verður
kosin á næsta ársþingi.
-SOS.
ðiafur
meiddist
- fékk skurð
undir auga
óiafur Jónsson, landsliös-
fyrirliði I handknattleik úr
Vikingi, varð fyrir smávægi-
iegum meiösium i leiknum
gegn Fylki. ólafur fékk högg á
auga með þeim afleiðingum,
að skuröur opnaöist fyrir
neðan auga. Ólafur var fluttur
á slysavarðstofuna, þar sem
saumuð voru 3 spor — til að
ioka sárinu.
-sos.
Létt hjá
Viklngum
- unnu stórsigur
22:14 yfir Fylki
Vikingar unnu auðveldan
sigur 22:14 yfir Fylki i
Laugardalshöliinni i gærköldi.
Það var rétt I byrjun, aö
Fylkismenn veittu Vikingum
keppni, en síöan tóku Vikingar
leikinn aigjörlega I sinar
hendur og unnu stórsigur.
Það er óhætt að segja, að
Islmandsmótið sé búið, þegar
aðeins 6 umferöir hafa verið
leiknar — Vikingar hafa náð
góðu forskoti (4 stiga), sem
verður erfitt að vinna frá
þeim.
Mörkin i leiknum skoruðu
þessir leikmenn:
VÍKINGUR: — Þorbergur 6,
Steinar 4, Arni 4 (3), Guð-
mundur 3, Páll 2 1). og
Óskar 1.
FYLKIR: — Gunnar B. 8
(4), Einar 3, Stefán 1, Andrés
1 og Magnús 1.
-SOS.
STAÐAN
Staðan er nú þessi I 1.
deildarkeppninni I handknatt-
leik:
Vikingur.... 6 5 1 0 110:92 11
Valur........6 3 1 2 126:99 7
KR...........6 3 1 2 125:124 7
FH ..........6 3 1 2 121:130 7
Þróttur......5 3 0 2 107:97 6
Haukar.......6 2 1 3 118:122 5
Fylkir......5 1 0 4 89:116 2
Fram........6 0 1 5 104:120 1
Markhæstu menn:
Siguröur Sveinss. Þrótti . 52/11
Kristján Arason FH......51/28
Axel Axelsson Fram ....45/23
Aifreð Gislason KR......41/8
Leik-
menn
Lazio i
verkfaii
Leikmenn Italska liðsins
Lazió frá Róm hafa tilkynnt
forráöamönnum féiagsins,
aö þeir séu farnir i verkfall,
vegna þess að þeir hafa ckki
fcngið greidd launin sin i
þrjá mánuði — frá þvi i
ágúst. Miklir erfiöleikar eru
hjá Lazio, sem var dæmt úr
1. deildarkeppninni — vegna
mútumálsins fræga, sem
komst upp á Italíu.
-SOS
ATLI HILMARSSON.... sést hér gnæfa yfir vörn Valsmanna og
skora. Litla mýndin niðri t.v. sýnir Hannes Leifsson. (Visismyndir
Friðþjófur).
Framarar náðu jafntefli gegn val 18:18:
„ÉG SKAUT EINS FAST
OG EG MÖGULEGA GAT'
- sagði Hannes Leitsson sem skoraði iðfnunarmark Fram
— Ég skaut eins fast og ég gat —
það var stórkostlegt að sjá knött-
inn hafna i netinu fyrir aftan ólaf
Benediktsson, markvörð, sagði
Hannes Leifsson, eftir að hann
hafði jafnað 18:18 fyrir Fram
gegn Val — aöeins 10 sek. fyrir
leikslok. — Það var ekkert annað
hægtað gera — ég varð að skjóta.
Bjarni stóð aftur við linuna —
kom ekkert út á móti mér. Ég sá
þá strax tækifæriö og nýtti það.
Ólafur Ben. var illa á veröi, enda
hélt hann að ég myndi skjóta i
fjær horniö — en ég valdi nær
hornið, sagði Hanncs.
Framarar börðust hetjulega
gegn Val og var leikurinn æsi-
spennandi — þegar 10 min.voru til
leiksloka, var staöan 15:15. Þá
skorar Atli Hilmarsson 16:15 fyrir
Fram, en Stefán Halldórsson
jafnaði fyrir Val og hann jafnaöi
aftur 17:17, eftir að Atli haföi
komið Fram yfir 17:16.
Þegar 47 seic. voru til leiksloka
átti Axel Axelsson feilsendingu —
Bjarni Guömundsson náöi
knettinum og brunaði fram og
skoraöi 18:17 fyrir Valsmenn.
Hannes jafnaði siöan á elleftu
stundu, eins og fyrr segir.
Ólafur Benediktsson var hetja
Valsmanna I leiknum — hann
varði hvað eftir annaö mjög vel
og á mjög þýðingarmiklum augna
blikum. ólafur var Framliðinu
afar erfiður — kom I veg fyrir að
Framarar ynnu sinn fyrsta sigur.
Framarar léku sinn besta leik I
1. deildarkeppninni — mikil bar-
átta var hjá leikmönnum liðsins i
vörninni, en aftur á móti gerðu
þeir mörg mistök I sókn — sér-
staklega var skotnýting þeirra
slæm. Atli Hilmarsson átti mjög
góðan leik og lifgaði hann mikiö
upp á sóknarleik Framliðsins —
hann er greinilega búinn að ná sér
eftir meiöslin.
Mörkin i leiknum skoruöu þess-
ir leikmenn:
FRAM: — Atli 6, Axel 5(2),
Björgvin 2, Theódór 2, Hannes 2
og Hermann 1.
VALUR: — Þorbjörn G. 6(4),
Stefán H. 4, Þorbjörn J. 4, Bjarrii
2, Jón Pétur 1, og GIsli Blöndal 1.
-SOS
MacDonaid til Fulham
- sem iramkvæmdasliöri
Malcolm MacDonald, fyrrum knattspymuferil sinn hjá Ful-
leikmaður með Newcastle og ham, tekur við af Bobby Camp-
Arsenal, hefur tekiö við starfi bell, sem hættí fyrir fjórum vik-
framkvæmdastjóra Lunddnaliðs- um.
ins Fulham. MacDonald sem hóf —SOS
UMSJÓN: Sigmundur Ó.
Steinarsson og Gylfi
Kristjánsson
Hvað
„Þeir voru hungraöir í|
vinning" J
— Já, ég átti svo sannarlega i
von á leikmönnum Fram svona
grimmum — þeir börðust vel og |
það var erfitt að eiga við þá — i
þeir voru hungraðir i sigur, |
enda tapað 5 leikjum i röð. Við |
erum ánægðir með jafnteflið — (
það er ekki alltaf hægt að vinna
sigra.
• Þetta sagði Þorbjörn
Jensson, fyrirliði Vals,
eftir leikinn gegn Fram.
Við gerðum of mörg mis-
tök
— Við gerðum of mörg mistök
I i sókninni gegn Vikingum —
færðum þeim knöttinn á silfur-
fati, þannig að þeir gátu brunað
upp og skorað úr hraöupphlaup-
um. Þaö má segja að viö höfum
gefið þeim 4-5 mörk i fyrri hálf-
leiknum.
— Vikingar léku sterkan
varnarleik gegn okkur — komu
vel fram á völlinn og gáfu okkur
ekki tækifæri til að byggja upp
sóknarlotur. Þá voru strákarnir
ekki með nægilega reynslu, til
að koma með svar við þessu. Ég
örvænti þó ekki — mótið er rétt
að byrja.
• Stefán Gunnarsson, þjálf-
ari Fylkis, hafði þetta að
segja, eftir leikinn gegn
Vikingi.
Enginn leikur öruggur
— Það er enginn leikur unninn
fyrirfram. Við komum til leiks
til aö vinna sigur, en ekki meö
sama hugarfari og KR-ingar
fóru til Hafnarfjarðar, þar sem
þeir ætluðu að ná auðveldlega i 2
stig gegn Haukum. Við vorum
sterkari en Fylkir og slökuöum
á , þegar á leikinn leið — eins og
alltaf vill verða, þegar forskotiö
er oröið mikiö.
• Þetta sagöi Kristján Sig-
mundsson, landsliðs-
markvörður úr Vikingi.
-sos