Vísir - 25.11.1980, Blaðsíða 13

Vísir - 25.11.1980, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 25. nóvember 1980 13 VlSIR Unglíngurinn fiölskyldan „Okkur langaði til aö halda fræðslufund fyrir foreldrana og fyrir valinu varð þetta efni „Ung- lingurinn, skólinn og l'jöl- skyldan'’,og fengum við tvo aðila " til að flytja inngangserindi, þá Ásþór Ragnarsson og Hugó Þórisson, sem báðir starfa hjá sálfræðideild skóla”, sagði Krist- in Glsladóttir formaður Foreldra- og kennarafélags Hagaskóla I viðtali við VIsi.' Fimm manna stjórn hefur verið kjörin úr hópi íoreldra i stjórn félagsins,sem stpfnað var fyrir rúmum mánuði. Einnig eiga sæti I stjórn einn kennari og skóla- stjórinn. Viö vorum mætt á fyrsta fund sem hið nýstofnaða For- eldra-og kennaraíélag boðaöi til i bókasafni Hagaskóla fyrir nokkru siðan. Inngangserindin tvö voru mjög fróðleg og fjölluðu meöal annars um tengslin á milli bakgrunns nemenda og einkunna og hlutverk ráðgjafae. og sálfræöiþjónustu i grunnskólum. Eftir að inngangs- erindum þeirra Ásþórs Ragnars- sonar og Húgó Þórissonar lauk, fóru fram hópumræður. t einum hópnum var til dæmis rætt um hvort foreldrum beri skylda til og hafi rétt á að hafa meira að segja um daglegt innra starf i skólanum. 1 öðrum hópi var meðal annars rætt um ein- kunnir, sem eru einhliða mat skólans á þvi hvernig nemandi hefur tileinkað sér kennsluna, en eru ekki beint mat á þvi hversu góð kennslan hefur verið. Þriðji hópurinn fjallaði um fjölskylduna og stöðu unglingsins innan hennar I dag*oft er rætt um tilgangsleysi og verkefnaskort hjá unglingum. Stutt dæmisaga var lögð fyrir þennan hóp og útfrá henni rætt um hvort þörí væri á aö breyta einhverju, ef svo væri, hvaða raunveruleg verkefni og þar með ábyrgð væri hægt að fela ungling- unum, a) innan fjölskyldunnar b) utan fjölskyldunnar. Til gamans viljum við segja ykkur þessa stuttu dæmisögu: Það voru einu sinni hjón sem bjuggu á afskekktum stað úti á landi. Þau bjuggu i frumstæðu húsi, þar sem hvorki var renn- andi vatn né rafmagn. Hann stundaði sjóinn og var fengsæll. Hún var heima með börnin, enda varnóg aðgera, meir en nóg. Þau áttu þrjá stráka fjöruga og hressa, sem hlupu um á strönd- inni og söfnuðu rekavið og brenni, þeir hjuggu það i búta og stöfluðu þvi. Þeir báru það inn og kyntu upp I húsinu. Einn þeirra sá um að fylla á lampana og að sækja vatn i brunninn, annar um að ryðja sér leið út i útihúsin þegar þess þurfti. Og ef þessi verkefni þrutu, þá var alltaf nóg annað að sem þurfti að gera og sem hægt var að nota tápmikla stráka tiþað hreinsa kartöflur eða annað innanhúss. Svo fluttu þau til borgarinnar, þar sem vatnið rann úr krönunum, hiti frá stillan- legum ofnum og kveikjari á veggnum við dyrnar. Kartöflur voru keyptar i smápokum i næstu búð, þvi það var engin geymsla i nyju ibúðinni þeirra. Umræðulióparnir ræddu siðan sameiginlega niðurstöður hvers hóps og var það mál manna að öll umræða i' þjóöfélaginu um ung- linginn — skólann og fjölskyld- una væri nauðsynleg og foreldra- félög i grunnskólum hlytu að stuðla að auknum skilningi milli þessara þriggja aðila. Að sögn formanns foreldrafélagsins i Hagaskóla,Kristinar Gisladóttur, eru mörg verkefni framundan og góður hugur i fólki til samstarfs innan skólans og utan. „ wi. .... - __þQ Foreldrar og kennarar á fræðslufundi i bókasafni Hagaskóla. mest selda tímaritió ■ iÁÍ.\' át9 5.^;.a.900 Fróðlegt, skemmtilegt og spennandi lesefni fyrir konur og karla, unga sem aldna. Kaupum Líf, lesum Líf, geymum Líf. Áskriftarsímar 82300 og 82302 Til tiskublaðsins Lif, Armúla 18. pösthblf 1193 Rvik Oska eftir áskrift Nafn ----------------------------------------------- Heimilisfang Nafnnr._______ Sími skólinn og

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.