Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ...núna á þremur stöðum Smáralind Sími 545 1550 Glæsibæ Sími 545 1500 Kringlunni Sími 575 5100 www.utilif.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 28 82 11 /2 00 3 Hugmynd að jólagjöf SCARPA verð frá 11.990kr. MEINDL verð frá 9.990kr. Sérlega vandaðir göngustafir, mikið úrval. Verð frá 4.990kr. Gönguskór frá SCARPA og MEINDL svíkja engan. Íslenska stangaveiðiárbókin 2003 Samantekt um stangaveiði Íslenska stangaveiðiár-bókin er að koma út í16. sinn. Útgefandi hennar er prentsmiðjan Litróf ehf. í Reykjavík, sem Konráð I. Jónsson stýrir. Höfundur er Guð- mundur Guðjónsson, blaðamaður á Morgun- blaðinu og umsjónarmað- ur Eru þeir að fá’ann? Guðmundur hefur skrifað bókina frá upphafi, en fyrstu árin var Gunnar Bender meðhöfundur og annaðist myndaumsjón. Litróf hefur komið að út- gáfunni frá 1995, fyrst í fé- lagi við aðra en er nú eitt útgefandi. Skyldi veiði- áhugi eiga þátt í því að Konráð gefur út bókina? „Já, ég er áhugamaður um stangaveiði. Hef stundað hana frá barnsaldri og fer nokkrum sinnum í laxveiði á hverju sumri. Útgáfa Stangaveiðiárbókarinnar er líka áhugamál. Ef ég ætti ekki og ræki þessa prentsmiðju væri ekki hægt að gefa bókina út með þessu sniði, alla litprentaða. Eins leggja margir hönd á plóginn, með myndefni og fleira, án þess að þiggja greiðslu fyrir og eiga þeir þakkir skildar.“ – Ferðu víða til veiða? „Já, ég hef farið í Straumfjarð- ará tvisvar til þrisvar á sumri. Undanfarin sumur einnig í Þverá, Flekkudalsá, Breiðdalsá og Hrútafjarðará. Þetta má segja að séu fastir viðkomustaðir nánast á hverju sumri.“ – Hefur þú komist í Íslensku stangaveiðiárbókina? „Já, hef orðið svo heppinn að það hafa birst einhverjar sögur um mig í tengslum við stóra fiska og óvenjulegar tökur.“ – Hvað er þinn stærsti lax stór? „Hann var 18 pund og ég veiddi hann 1996 í Straumfjarðará. Svo missti ég „þennan stóra“ í Laxá í Aðaldal í sumar. Sá var einhvers staðar í kringum 20 pund. Þá miða ég við fiska sem komu upp sama dag og daginn eftir. Annar var 18 pund og hinn 22. Þessi var í þeim stærðarflokki.“ – Hvaða agni beitir þú á laxinn? „Ég er fluguveiðimaður og nærri eingöngu kominn út í það. Enn sem komið er hnýti ég lítið sjálfur. Ég á allt sem þarf til fluguhnýtinga og hef gert örlítið af því en þarf að herða mig.“ – Hvað er í Íslensku stanga- veiðiárbókinni? „Þar er fjallað um það sem helst bar á góma á árinu um stangaveiði og málefni henni skyld. Síðan er farið hringinn í kring um landið og teknar fyrir helstu ár og veiðisvæði og greint frá því sem markvert er, annars vegar í laxveiði og hins vegar í sil- ungsveiði. Það er reynt að greina svolítið þar á milli. Allt er þetta kryddað með veiðisögum og fjölda litmynda. Einnig er kynning á starfi SVFR, aðallega á barna- starfi félagsins. Loks er útdráttur á ensku. Þar er fróð- leikur fyrir þá útlend- inga sem koma hingað til veiða. Við erum að velta því fyrir okkur að safna saman ensku köflunum úr nokkrum nýjustu ár- göngunum og gefa sérstaklega út í bók á ensku. Búa þannig til annál á ensku um stangaveiðina hér á landi og bæta jafnvel við nokkrum veiðisögum. Þetta gæti verið mjög skemmtilegt, þótt markhóp- urinn sé ekki mjög stór. Við eig- um allt þetta efni til svo það þarf ekki nema þýðingarvinnu á við- bótarefni til að ljúka þessu.“ – Er þörf á efni fyrir útlenda stangaveiðimenn? „Mér finnst vanta efni fyrir útlenda stangaveiðimenn, sem koma hingað til veiða. Með svona útgáfu gætu þeir flett upp því sem hefur verið að gerast í stangaveiði hringinn í kringum landið undanfarin ár og skoðað fallegar myndir. Löngun okkar er að koma þessu á laggirnar í vor svo bókin verði tilbúin fyrir næstu vertíð.“ – Er þetta ekki orðinn mikill fróðleikur um íslenska stanga- veiði? „Stangaveiðiárbókin er gríð- arlega merkileg heimild um það sem hefur verið að gerast í helstu veiðiám og vötnum landsins. Þarna er bæði fróðleikur og skemmtun. Við eigum svolítið til af eldri árgöngum af bókinni og erum að bjóða bókapakka á afsláttarverði í veiðihús og til einstaklinga sem vilja byrja að safna þessu, frekar en að láta þetta liggja í geymslu úti í bæ.“ – Er mikil eftirspurn eftir Ís- lensku stangaveiðiárbókinni? „Það eru engir áskrifendur, en ákveðnir menn sem kaupa hana alltaf. Obbinn af upplaginu fer á þessum árstíma. Það er ákveðin stemning fyrir bókinni og ég vona að hún sé að aukast. Menn vilja komast yfir eintak þegar bókin kemur út, sjá hverjir eru í henni, skoða myndir, jafnvel af sér og veiðifélögunum.“ – Eru breytingar á döfinni? „Við höfum velt því fyrir okkur að bjóða bókina í áskrift, en það er eftir að útfæra það nánar. Það er spurning hvort við bætum við viðtölum við veiðikappa af eldri kynslóðinni. Fá frá þeim gamlar veiðisögur og upplýsingar. Það er helst að þeir láti leyndarmálin af hendi. Annars eru menn léttir á því og ekkert mikið að liggja á leyndarmálunum. Reyndar er einn og einn sem ekki vill segja allt um veiðiaðferðirnar, en það er þá áskorun fyrir hina að finna út hver „trikkin“ eru sem duga!“ Konráð I. Jónsson  Konráð Ingi Jónsson er einn eigenda og framkvæmdastjóri prentsmiðjunnar Litrófs og út- gefandi Íslensku stanga- veiðiárbókarinnar. Konráð fæddist í Reykjavík 14. janúar 1956. Hann lauk námi í prent- myndagerð við Iðnskólann í Reykjavík 1980 og var iðnnemi í Myndamótum. Konráð tók við rekstri prentsmiðjunnar Litrófs 1. janúar 1983 og nokkru síðar keypti hann hlut í félaginu. Eig- inkona Konráðs er Anna Sigurð- ardóttir og eiga þau þrjár dætur, Sesselju, Lilju og Eddu. Merkileg heimild um stangaveiði HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt tvítuga konu til að greiða tryggingarfélagi 718 þúsund krónur vegna tjóns sem hún olli á bifreið þeg- ar hún ók henni ölvuð á ljósastaur á nýársdag árið 2000. Þá var konan 16 ára og hafði tekið bifreiðina í heimild- arleysi en akstrinum lyktaði með því að bifreiðin hafnaði á ljósastaur við Grjótháls í Reykjavík. Trygginga- félagið leysti bifreiðina til sín og greiddi eiganda hennar 960.000 krón- ur en seldi síðan flakið á 214.000 og krafði því konuna um tæplega mis- muninn eða um 718.334. Þá var konan dæmd til að borga 125 þúsund krónur í málskostnað. Dóminn kvað upp Eggert Óskarsson héraðsdómari. Dæmd til að greiða bifreið LAGT var hald á eina rjúpu og skotvopn hjá veiðimanni sem stöðvaður var í bíl sínum á leið niður af heiðum í Þistilfirði seinnipartinn á sunnudag. Lög- reglan á Húsavík í samvinnu við lögregluna á Þórshöfn var með eftirlit á svæðinu. Þetta er fyrsti veiðimaðurinn sem lögreglan grípur á þessu svæði, en að þeirra sögn hafa nokkrar ábendingar borist um veiðimenn á ferð. Þá var maður tekinn á rjúpnaveiðum á Vopnafjarðar- heiði í vikunni og var sá með þrjár rjúpur. Rjúpnaskytt- ur stöðvaðar TENGIVAGN aftan í flutningabif- reið valt við Gljúfurárbrú í Stafholts- tungum ofan við Svignaskarð um þrjúleytið í fyrrinótt. Hálka var á veginum og hafnaði tengivagninn úti í kanti. Í vagninum voru fimm bretti af frystum fisk og rækju ásamt öðr- um vörum sem fluttar voru í aðra bif- reið með aðstoð björgunarsveitar. Ökumaður bifreiðarinnar slasaðist ekki en tengivagninn er skemmdur. Björgunarsveitin Heiðar í Varma- landi var kölluð út kl. 3.57 og fóru 6 björgunarsveitarmenn á vettvang til að bjarga verðmætunum úr tengi- vagninum og koma honum aftur á hjólin. Verkefninu lauk á áttunda tímanum í gærmorgun. Tengivagn valt við Svignaskarð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.