Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 46
DAGBÓK 46 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Skrif- stofa s. 551 4349, fax 552 5277, mataraðstoð kl. 14–17. Fjölskylduhjálpin Eskihlíð 2–4, Fjósinu við Miklatorg. Út- hlutun: fimmtud. kl. 14– 17. Móttaka: miðvikud. kl. 13–15. S. 551 3360. Bókatíðindi 2003. Númer miðvikud. 10. des. er 054913. Mannamót Norðurbrún 1, Furu- gerði 1, Hvassaleiti 56– 58 og Hæðargarður 31. Aðventuferð, mánud. 15. des. Lagt af stað kl. 12.30 frá Norðurbrún 1 og teknir farþegar í Furugerði. Skráning í Norðurbrún s. 568 6960, Furugerði s. 553 6040, Hvassaleiti s. 535 2720 og Hæð- argarði s. 568 3132. Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa og postulín, kl. 13 postulín. Að- ventuferð að Hest- heimum í Holtum mánud. 15. des. kl. 13. Uppl. í s. 561 0300 . Árskógar 4. Kl. 9–12 handav. kl. 10.30–11.30 heilsugæsla, kl. 13– 16.30 smíðar og handav. kl. 13 spil. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9– 12 glerlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 13– 16.30 brids/vist, kl. 13– 16 glerlist. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 10 leik- fimi, kl. 14.30 bankinn, kl. 14.40 Bónus. Félagsstarfið, Dal- braut 27. Kl. 8–16 handavinnustofan opin, kl. 10–13 opin versl- unin, kl. 13.30 bankinn, kl. 11–11.30 leikfimi. Félagsstarfið, Furu- gerði 1. Kl. 13 leikfimi og kl. 14 sagan. Sameiginlegt jólahlað- borð í Hæðargarði 12. des. kl. 17, miðar seldir á skrifstofum. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9 postu- lín, kl. 9–16 leir- munagerð. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 9.30 hjúkr- unarfræðingur á staðn- um, kl. 10–12 verslunin, kl. 13 föndur og handa- vinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, myndmennt kl. 10–16, línudans kl. 11, glerlist kl. 13, pílukast og bilj- ard kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Dans kl. 14.30–16.30, húsið opnað kl. 14. . Einar Kárason les úr nýju bókinni sinni. Söngfélag FEB kóræf- ing kl. 17, línudans kl. 19.15. Gerðuberg, félagsstarf. Vinnustofur opnar kl. 9–16.30, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, frá há- degi spilasalur opinn, kl. 13.30 leggur Gerðu- bergskórinn af stað í Víðines. Miðvikud. 17. des. er jólahlaðborð í hádeginu í Kaffi Bergi skráning í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handavinna, kl. 9.30 boccia, kl. 9.30 og kl. 13 glerlist, kl. 13 fé- lagsvist, kl. 16 hring- dansar, kl. 17 bobb. Kl. 13 jólaskreytingamark- aður, kl. 15.15 kynnir Viðar Jónsson nýjan geisladisk sinn. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 og kl. 9.55 leikfimi, kl. 10 ganga, kl. 11 boccia, kl. 17 línudans. Hlín Agnarsdóttir les upp úr bók sinni Að láta lífið rætast, Þorvaldur Halldórsson spilar og syngur nokkur lög. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður og banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9–15 handmennt, kl. 9– 10 og kl. 10–11 jóga, kl. 9.30–10.30 sögustund, kl. 14.30 spænska, byrj- endur, kl. 15–18 mynd- list. Korpúlfar, Grafarvogi. Á morgun pútt á Korp- úlfsstöðum kl. 10. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 vinnustofa, kl. 13– 13.30 bankinn, kl. 14 fé- lagsvist. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10.30 sund, kl. 10–11.30 ganga, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 12.15- 14.30 verslunarferð, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Vitatorg. Kl 8.45 smiðja, kl. 10 búta- saumur, bókband, kl. 13 föndur og kóræfing, kl. 12.30 verslunarferð. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13– 16 keramikk, taumálun, föndur, kl. 15 bókabíll- inn. Hana-nú, Kópavogi. Fundur í bókmennta- klúbbi á Bókasafni Kópavogs kl. 20. Vinahjálp. Brids spilað á Hótel Sögu kl. 13.30. Hafnargönguhóp- urinn. Kvöldganga kl. 20. Lagt af stað frá horni Hafnarhússins. Slysavarnakonur í Reykjavík. Jólafund- urinn verður fimmtud. 11. des. kl. 20 í Höllu- búð Kvenfélagið Aldan. Jólafundur og jóla- pakkar í kvöld kl. 19.30, ath. breyttan fund- artíma. Í dag er miðvikudagur 10. des- ember, 344. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Hver er sá, er mun gjöra yður illt, ef þér kappkostið það sem gott er? (1Pt. 3, 13.)     Á sínum tíma hefðiþurft að segja Stefáni Pálssyni það tvisvar að hann ætti hálfpartinn eft- ir að sakna Ingibjargar Pálmadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra. „Hvað svo sem segja má um feril Ingibjargar, var ólíkt meiri töggur í henni en eftirmanninum. Heil- brigðisráðuneytið er eitt erfiðasta viðfangsefni sem stjórnmálamenn geta tekist á við. Sá mála- flokkur krefst þess að menn þori að standa á sínu, spyrna við fæti þeg- ar nauðsyn krefur og sitja undir gagnrýni án þess að skipta litum.“     Stefán segir í pistli sín-um á Múrnum að and- úð sé oft betri en með- aumkun. Að vera úthrópaður þrjótur, svik- ari og ójafnaðarmaður sé hart, en hálfu verra sé þó að hljóta stimpilinn nyt- samur sakleysingi, vesa- lingur sem viti hvorki né geti betur. „Fyrir margt löngu lenti embættis- maður í klandri, var sak- aður um bruðl og óráð- síu, nánast að hafa dregið sér fé. Fyrir vikið fékk hann á baukinn, var húð- skammaður í blöðum og beðinn hvergi þrífast. Sárust hlýtur honum þó að hafa þótt greinin sem skrifuð var honum til varnar, þar sem ýmislegt var tínt til málsbóta – það helst að maðurinn hefði svo falleg augu. Af tvennu illu er hlutskipti illfyglisins skárra en gúmmíandarinnar.     Jón Kristjánsson heil-brigðisráðherra er sjálfskipuð gúmmíönd. Það hefur glögglega komið í ljós á undan- förnum dögum. Á stutt- um ráðherraferli sínum hefur Jón Kristjánsson fest sig rækilega í hlut- verki fórnarlambsins, nytsama sakleysingjans sem fær ekki rönd reist við vélráðum illra manna,“ segir Stefán. Í yfirheyrslu fréttamanna í Sjónvarpinu í síðustu viku hafi ráðherrann sýnt öll svið tilfinningaskalans þegar hann skipti litum allt frá ljósgráu yfir í dökkgrátt. „Með titrandi röddu og óvænt blótsyrði á vörum sagði Jón Krist- jánsson með þunga að honum þætti helvíti hart að fá á baukinn vegna svikanna við öryrkja. Ráðherrann vill nefnilega vera almennilegur og vinalegur kall með falleg augu. Ef hann hefur gefið loforð sem hann getur ekki staðið við, þá er við aðra að sakast – viðsemj- andann, undirmenn ráð- herrans eða illskeytta sjálfstæðismenn. Alla nema Jón Kristjánsson sjálfan.“     Af þessum sökum segistStefán hálfpartinn sakna Ingibjargar enda sé Jón sjálfskipuð gúmmíönd, sem töggur vanti í. „Þeir sem kjósa hlutskipti gúmmíand- arinnar ættu að halda sig heima í baðkarinu,“ segir á Múrnum. STAKSTEINAR Saknar Ingibjargar Pálmadóttur Víkverji skrifar... Ungur sonur Víkverja kom á dög-unum með ágæta nýyrðasmíði eftir að hann hafði séð atriði með grínistunum í Spaugstofunni. Voru bankamálin og meint græðgi fjármálastofnana hafðar þar í flimt- ingum. Ef Víkverji man þetta atriði nokkurn veginn rétt þá fékk maður þá greiningu hjá augnlækni að hann þjáðist af siðblindu á háu stigi, svo mikilli að það sáust dollaramerki í augunum á honum. Fannst þeim litla þetta áhugavert og er hann var að túlka atriðið fyrir frænda sínum, sem hafði ekki séð Spaugstofuna þetta kvöld, sagði hann manninn í sjón- varpinu hafa verið með „seðlasýk- ingu“ í auganu. Veltir Víkverji því fyrir sér hvort ekki sé þar með loks- ins komin hin eina rétta „sjúkdóms- greining“ á íslenska fjármálakerfinu og að hluta til á þjóðaríþrótt okkar Íslendinga; að eyða um efni fram. Víkverji er nefnilega ekki frá því að hann fái vott af seðlasýkingu í jóla- innkaupunum. x x x Fyrst Spaugstofan er til umræðulangar Víkverja að koma með eina föðurlega ábendingu til þeirra ágætu manna sem þar ráða för við gerð handrits. Oftar en ekki fáum við að sjá barsmíðar og ofbeldi af ýmsu tagi og er þá höndin yfirleitt laus hjá Erni Árnasyni, sem er látinn slá fé- laga sína í hausinn af minnsta tilefni. Víst er að stundum getur þetta verið fyndið en Spaugstofumenn mega ekki gleyma fyrirmyndarhlutverki sínu. Ungur og óþroskaður hugur getur misskilið þann boðskap að það sé fyndið að berja mann og annan. Strætóbílstjóri hafði sambandvið Víkverja eftir að hafa lesið pistil hans á dögunum um hraða- hindranavæðingu á götum höf- uðborgarinnar. Sagðist hann geta tekið undir hvert orð Víkverja um að þessar hindranir væru orðnar helst til of margar. Skiljanlega væru þær settar upp í nágrenni við skóla eða á fjölförnum götum, en víðast væru þær til óþurftar og ama. Sagðist hann aka yfir 20 hindranir í einni ferð og yfir dag- inn færi hann þ.a.l. yfir 400 hraða- hindranir. „Þegar ég kem heim líður mér eins og eftir siglingu með Akraborginni sálugu, slíkur er veltingurinn,“ sagði bílstjórinn, greinilega búinn að fá sig full- saddan af ástandinu. Sagði hann strætisvagnana að auki verða fyrir skemmdum þegar farið væri yfir há- ar hindranir og dempararnir væru orðnir ónýtir í flestum vögnum. „Engu er líkara en að þessar hindr- anir séu blekslettur á teikningum hönnuðanna,“ sagði bílstjórinn. Ekki vill Víkverji ganga svo langt en er að öðru leyti sammála strætóbílstjór- anum og vonar að borgin kunni sér hóf í þessum efnum í framtíðinni. Víkverji vonar að hann fái ekki seðla- sýkingu á háu stigi. Morgunblaðið/Kristinn Þjóðarböl ÞAÐ ER sorgleg staðreynd, að nú, í árlegu jólabókaflóði skuli vera a.m.k. 3 reynslu- sögur þekktra kvenna af alkóhólisma. Ekki ber að skilja orð mín svo að færri karlmenn lendi á þessari braut en ég held að það taki lengri tíma hjá körlum að gera sér grein fyrir hvenær drykkjan er orðin að vandamáli. Það skapast líklega af eldri hefð- um í þessu landi. Þegar ég var unglingur þótti það ekki í frásögur færandi að sjá karlmenn með flösku í strengnum þegar þeir fóru á dansleik eða aðrar samkomur. En drukkna konu sá ég ekki á almannafæri fyrr en löngu síðar. En hvar á að leita skýr- inga á þessu þjóðarböli, sem ofneysla áfengis er? Vafa- laust eru gildrurnar víða og alltaf verð ég jafn undrandi þegar ég opna dagblað eða tímarit og við blasa á hverri síðunni af annarri meintar auglýsingar á víni og ágæti þess að neyta víns við allar hugsanlegar athafnir. Nú í vikunni heyrði ég viðtal við mann í Ríkisút- varpinu í tilefni útkomu bókar hans um víntegundir og drykkjusiði (hafi ég skilið rétt). Þar hvatti hann til (berum orðum) að fólk fái sér vín með matnum, ekki aðeins um helgar, fólk ætti ekki að veigra sér við að trekkja upp flösku af góðu borðvíni í miðri viku, t.d. byrja á fimmtudegi. Mátti lesa úr orðum hans að sjálf- sagt væri að neyta þessara veiga a.m.k. 4 daga vikunn- ar. Þó að margir geti fengið sér glas af borðvíni með mat og stansað þar er þarna viss hætta á ferðum, upphaf að stærra vandamáli sem fólk áttar sig ekki á fyrr en það er komið í vítahringinn. Í Fréttablaðinu í dag birt- ist mér auglýsing frá einu kaffihúsi í borginni þar sem eigandi staðarins býður gestum upp á „glögg“. Og fyrirsögnin er: Glöggin ylj- ar. Veitingakonan gefur auk þess blaðinu uppskrift að þessum ágætu veigum, en uppistaðan reyndist vera sykurvatn, rúsínur og rauð- vín. (Varla gott fyrir þá sem kljást við offituvandamál.) Það er löngu vitað að alkóhólistar láta það sitja í fyrirrúmi að kaupa áfengi þótt ekki séu til peningar fyrir brýnustu nauðsynjum. Ég hef staðið í þeirri trú að það sé bannað að auglýsa vín hér á landi. Þess vegna spyr ég: Er búið að afnema bann við vínauglýsingum, eða er ekkert eftirlit með slíku? María K. Einarsdóttir. Bókatíðindi ÉG VIL taka undir með konunni sem skrifar í Vel- vakanda um síðustu helgi um að hún væri ekki búin að fá Bókatíðindin. Ég hef ekki heldur fengið Bókatíðindi og bý ég í nágrenni við hana, eða í Goðheimum. Inga. Díana og Soffía ÉG ER að leita að snyrti- stofu þar sem konur að nafni Díana og Soffía vinna. Þær voru í sjónvarpinu í Ís- land í bítið fyrir nokkru, þar sem þær sýndu hvernig hægt er að laga hrukkur. Þeir sem kannast við þetta vinsamlega hringið í Lilju í síma 820 2845. Tapað/fundið Karlmannsúr í óskilum KARLMANNSÚR fannst við Holtaveg laugardaginn 29. nóvember sl. Úrið er „gamaldags“ gyllt með gylltri keðju og gylltri og svartri skífu. Eigandinn getur hringt í síma 691 2806. Dýrahald Kettlingur óskast ÓSKA eftir loðnum kett- lingi, helst læðu. Vinsam- lega sendið sms-skilaboð í gsm-síma 659 1123. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LEIKFIMIHÓPUR úr starfi aldraðra í Hall- grímskirkju fór dásam- lega aðventuferð í Hest- heima 2. desember sl. Gestgjafar í Hestheimum eru hinir kunnu Skagfirð- ingar Ásta Begga og Gísli. Gestrisni þeirra er ótrú- leg og kræsingarnar hjá þeim ólýsanlegar. Þar rík- ir sérstök skagfirsk stemning þar sem menn hafa gleði af að fá gesti og tjalda öllu því besta sem til er í húsinu, ásamt því að umvefja gestina með hlýju. Ég hvet alla sem ætla að gera sér dagamun á að- ventunni að drífa sig aust- ur í Hestheima og upplifa forskot á jólin. Kærar þakkir fyrir móttökurnar. F.h. leik- fimihóps Hallgrímskirkju, Jóhanna Sigr. Sigurðardóttir. LÁRÉTT 1 hörmuleg, 8 ganga, 9 metta, 10 fúsk, 11 sat við stjórn, 13 nytjalönd, 15 sorgmædd, 18 klámfeng- ið, 21 hægur gangur, 22 slagi, 23 eldstæði, 24 drambsfull. LÓÐRÉTT 2 nautnameðal, 3 ís, 4 nirfilsháttur, 5 bál, 6 heitur, 7 nagli, 12 drátt- ur, 14 eldiviður, 15 ræma, 16 úlfynja, 17 hrekk, 18 skarð, 19 skap- vond, 20 verkfæri. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 ásátt, 4 skróp, 7 totta, 8 niður, 9 nón, 11 auðn, 13 gróa, 14 ættin, 15 harm, 17 ýsan, 20 err, 22 takki, 23 endum, 24 leifa, 25 leiði. Lóðrétt: 1 áætla, 2 ástúð, 3 tían, 4 senn, 5 ræður, 6 perla, 10 Óttar, 12 næm, 13 gný, 15 hótel, 16 rakki, 18 suddi, 19 nammi, 20 eira, 21 rell. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Þakkir til Hestheima
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.