Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 22
LANDIÐ 22 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Mývatnssveit | Jólasveinninn tók nýlega á móti börnum og full- orðnum í Dimmuborgum í sól- skini og sunnanvindi. Á Hallarflöt inn milli fagurra klettaborga hef- ur hann komið sér fyrir til fastr- ar búsetu framvegis. Einnig hef- ur hann tekið vel í að líta inn í Skjólbrekku eftir kl. 3 á daginn. Í samræmi við tíðaranda hefur hann svo samið við Íslandspóst um að fá afhentan allan jóla- sveinapóst beinustu leið í Dimmu- borgir. Þaðan mun svo jóla- sveinninn svara pósti hvaðan sem hann berst. Alla daga fram að jólum mun hann taka móti gest- um í Dimmuborgum frá kl. 13 til 15 og síðan í Skjólbrekku frá 15 til 17. Hann verður því sann- arlega önnum kafinn eins og fleiri fram til jóla. Jólamarkaður í Skjólbrekku Í samráði við jólasveininn hef- ur verið settur upp jólamarkaður í Skjólbrekku þar sem fjöl- breyttar jólavörur eru á boð- stólum. Gríðarstórt jólatré er á miðju gólfi og Mývetnskar hand- verkskonur eru þar með fjöl- breytt úrval af ullarvörum og fleiru frá Dyngjunni. Leikaðstöðu hefur verið komið upp fyrir börn og hásæti fyrir jólasveininn. Súkkulaði, kaffi og rjómavöfflur eru þar á boðstólum. Jóla- sveinninn í Dimmu- borgum Morgunblaðið/BFH Börnin fá mynd af sér með jólasveininum á Hallarflöt í Dimmuborgum. TUTTUGU og fjórar konur útskrif- ast í dag af námskeiðinu Brautar- gengi, sem þær hafa tekið þátt í gegn- um fjarfundabúnað frá því í september. Námskeiðið, sem haldið er af Impru nýsköpunarmiðstöð, Iðn- tæknistofnun, er fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í fram- kvæmd og stunda eigin atvinnurekst- ur. Það var nú í haust kennt í tíunda sinn en hóf göngu sína í Reykjavík ár- ið 1996. Í fréttatilkynningu segir að nám- skeiðið hafi í haust í fyrsta sinn verið haldið utan höfuðborgarsvæðisins, en það hófst 13. september sl. og lýkur með útskrift í dag. Þátttakendur voru 24, frá Akureyri, Ísafirði og Egils- stöðum, og voru staðirnir tengdir saman með fjarfundabúnaði. Námskeiðið er samtals 75 klst og er eingöngu fyrir konur en það hefur sýnt sig að mikil þörf er fyrir slíkan vettvang fyrir konur sem eru að stíga sín fyrstu skref í viðskiptalífinu. Mikil fjölbreytni var í þeim verkefn- um sem unnin voru á námstímanum og má sem dæmi nefna ýmsar tegundir ráðgjafarþjónustu sem á án efa eftir að koma sér vel á þeim stöðum þar sem hún verður byggð upp, matvælafram- leiðslu, ýmiss konar þjónustu við ferðamenn og verslun og þróun á nýj- um vörum og vörumerkjum sem ætl- aðar eru bæði á heimamarkað og til landkynningar erlendis. Á námskeið- inu kom einnig glögglega í ljós að kon- ur á Austfjörðum ætla sér að nýta þau tækifæri sem gefast með þeirri fólks- fjölgun sem mun verða á svæðinu. Brautargengi var styrkt af Byggðastofnun, Akureyrarbæ, Ísa- fjarðarbæ, Austur-Héraði, At- vinnuþróunarfélagi Vestfjarða og Þróunarstofu Austurlands. Tuttugu og fjór- ar konur með brautargengi Akranes | Námsmenn á Akranesi létu til sína taka í bæjarstjórninni á dögunum og héldu fund þar sem átta grunnskólanemar héldu tölu um ým- is málefni. Að auki tók fulltrúi úr röðum nemenda Fjölbrautaskóla Vesturlands þátt í umræðunum. Í bæjarsþingsalnum sátu margir af kjörnum bæjarfulltrúum Akra- ness og hlýddu á ræður ungu kyn- slóðarinnar og að mati þeirra sem á hlýddu kom þar margt áhugarvert fram. Forvarnir voru áberandi í ræðum og stjórnaði Gísli Gíslason bæjar- stjóri fundinum. Þar var m.a. rætt um auglýsingar á áfengi en fundar- menn töldu að slíkar auglýsingar væru í umferð þrátt fyrir að slíkt væri bannað. Aðalsteinn Hjartarson, sviðsstjóri tómstunda- og forvarnarsviðs Akra- nesbæjar, sagði í útvarpsþætti sem sendur var út s.l. föstudag í útvarpi Akraness að ungt fólk hefði gríðar- lega margt til málanna að leggja í forvarnarstarfi. Sagði Aðalsteinn m.a. að margt af því sem ungling- arnir hefðu lagt til á bæjarstjórnar- fundinum yrði tekið til athugunar á næstu misserum. „Það var ótrúlega gaman að hlýða á ræður fundar- manna. Unga kynslóðin sér hlutina í öðru ljósi en við sem eldri erum og ég er fullviss um að margt af því sem þar var sagt verður haft að leiðar- ljósi í þeirri vinnu sem snýr að for- vörnum. Ræðurnar voru beinskeytt- ar og mikil vinna lá þar að baki. Við erum mjög ánægðir með hvernig til tókst,“ sagði Aðalsteinn. Þetta er annað árið í röð sem ungir Akurnes- ingar fá tækifæri til þess að tjá sig um málefni unga fólksins á þessum vettvangi. Bæjarstjórn Akraness hefur ákveðið að sami háttur verði hafður á að ári og verði fastur liður í tilveru Skagamanna. Bæjarstjórnarfund- ur unga fólksins Morgunblaðið/Sigurður Elvar Maren Ósk Elíasdóttir undirbýr ræðu sína en Una Harðardóttir fylgist með gangi mála á bæj- arstjórnarfundi unga fólksins á Akranesi. Þórshöfn | fjölmenn aðventuhátíð var í Þórshafnarkirkju fyrsta sunnudag í aðventu og börnin tóku þátt í helgihaldinu. Nem- endur tónlistarskólans léku á hljóðfæri, fermingarbörn lásu úr Nýja testamenti og yngstu börnin, bæði úr sunnudagaskóla og grunn- skóla, sungu með kirkjukórnum. Að messu lokinni voru allir vel- komnir í safnaðarheimilið þar sem Kvenfélagið Hvöt var með kaffi- veitingar. Þar var einnig sýning á ýmiss konar handverki eftir hag- leiksfólk í byggðarlaginu og margt fallegt þar að sjá sem freistaði bæði barna og fullorð- inna. Morgunblaðið/Líney Margs konar handverk var á sýningunni og jólalegt um að litast auk þess sem kaffiborð kvenfélagsins var vinsælt að venju. Aðventuhátíð í Þórshafnarkirkju
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.