Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 11 eitt vinsælastaspil í heimistækkar 15 milljónir spilara í Evrópu Á hverju ári er haldið heimsmeistaramót í Catan og í haust kepptu Gunnar Jóhannsson og Baldur Már Jónsson fyrir Íslands hönd. Þeir stóðu sig með mikilli prýði og komst Gunnar í 16 manna úrslit. Fljótlega eftir áramót verður haldið Íslandsmót í Catan og fara sigurvegarar þess á heimsmeistaramótið haustið 2004. Keppir þú fyrir Íslands hönd á HM í Catan á næsta ári? Ert þú efni í heimsmeistara? Catan - Landnemarnir er eitthvert vinsælasta spil í heimi og hefur m.a. verið valið „Spil ársins“ í Þýskalandi og Bandaríkjunum. Auðvelt er að læra spilið en það krefst útsjónarsemi og dirfsku (Strategy). Spilið er fyrir alla aldurshópa. Catan - Landnemarnir kom út í fyrsta sinn á íslensku í fyrra. Nú er hægt að fá stækkun við spilið, sem og framhalds-spilið Sæfararnir. Klaus Teuber, höfundur spilsins, hefur nýlega greint frá því að landnám Íslands sé uppspretta Catan. Catan er spil sem brúar kynslóðabil og þig langar að spila aftur og aftur. www.spil.is M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN NORÐMENNIRNIR sem stöðvað- ir voru við komuna hingað til lands á dögunum segjast forviða og sárir yf- ir framkomu íslenskra yfirvalda við hópinn, en fimm úr hópnum var vís- að úr landi. Þeir segjast hafa verið á leið til landsins í jólateiti í boði jarð- vinnufyrirtækisins LarsGuldbjörn- rud, sem þeir starfa hjá við vega- og jarðgangagerð og fleira. Yfirmaður þeirra Lars hafði boðið þeim til Íslands vegna þess að vel hafði gengið í verkefnum og hann fann ódýrt tilboð á ferðum til Ís- lands í dagblaði og vildi bjóða þeim í skemmtiferð með jólaveislunni. Ekki óvenjulegt að menn með sakaskrá vinni harðjaxlavinnu Þeir Kristofer Bentz og Henning Rumsdal starfa hjá LarsGuldbjörn- rud og segja þessa uppákomu hafa verið afar óþægilega og niðurlægj- andi, sérstaklega vegna þess að hóp- urinn hafði ætlað sér að skemmta sér saman á Íslandi. Fimm mönnum af sextán í hópnum var vísað af landi brott, en að sögn þeirra eru einungis tveir í hópnum í Hell’s Angels sam- tökunum. „Mér finnst fáránlegt að það sé hægt að banna fólki að ferðast milli landa vegna þess að það er með sakaskrá. Margir eiga sér sakaskrá og ekki síst í svona harðjaxlavinnu eins og jarðvinnu, en þessir menn voru búnir að taka út sinn dóm og borga samfélaginu sína skuld. Það er fáránlegt að banna þeim að gleðj- ast með vinnufélögunum. Lars (yf- irmanni fyrirtækisins) var vísað úr landi út af einhverri sakaskrá sem hann er með, en hann er ekki í Hell’s Angels eða neitt, þetta eru einhverjir smávægilegir glæpir og heimskupör sem tilheyra fortíð hans,“ segir Kristofer. Starfsmenn- irnir voru miður sín að eiganda fyr- irtækisins skyldi vísað frá landinu, en ferðin var í boði hans. „Við höfðum heyrt að það væri gott að koma til Íslands og hlökk- uðum til að sjá landið, því þetta er heimaland Víkinganna. Síðan var tekið á móti okkur eins og glæpa- mönnum og myndir settar í blöðin og fyrirsagnir blásnar upp, að það hefðu verið einhverjir brjálæðingar á leið til landsins sem hefðu ógnað öryggi þjóðarinnar. Þessir strákar sem við erum að vinna með eru allt bestu skinn, meira að segja gutt- arnir sem eru í Hell’s Angels. Þeir eru ekkert í neinu eiturlyfjasmygli eða glæpastarfsemi, þeir vildu bara vera með í jólagleðinni.“ Vildu skoða Gullfoss og Geysi Spurður um tengsl við íslenskan mótorhjólaklúbb segir Kristofer að þeir hafi ekki þekkt neinn á Íslandi til að sýna sér landið, en þá hafi Hell’s Angels meðlimirnir sagt að þeir þekktu menn í mótorhjóla- klúbbi sem gætu sýnt þeim Gullfoss og Geysi. „Þess vegna höfðu þeir samband við íslenska klúbbinn og létu vita að þeir væru á leiðinni.“ Kristófer var ekki stöðvaður á leiðinni í gegnum tollinn og hringdi strax í norska sendiráðið þegar hann gerði sér grein fyrir því að vinnufélagar hans höfðu verið hand- teknir. „Norski sendiherrann fór strax í málið, en síðan varð hann al- veg brjálaður þegar íslenska lög- reglan sagði honum að einhver mótorhjólaklíka hefði komið á völl- inn til að taka á móti okkur. Hann ætlaði þá ekki að hjálpa okkur meira og kallaði okkur illum nöfnum. Það voru hins vegar algjör ósannindi að mótorhjólaklíka hefði komið að sækja okkur. Við stóðum tveir fyrir utan á meðan við biðum og við sáum aldrei neina menn koma að leita að okkur. Lögreglan hefur ekki sagt allan sannleikann þarna. Við hringd- um síðan í klúbbinn og þeir sögðust ekki kannast við að neinn hefði kom- ið á móti okkur, enda ætluðum við að taka flugrútuna til Reykjavíkur.“ Smyglaði heyi frá Svíþjóð Henning blöskrar hvernig ís- lenskir fjölmiðlar tóku á málunum og segir manninn sem steytti hnef- ann framan í ljósmyndara Morgun- blaðsins engan glæpamann. „Enda kom hann inn í landið og var ekki vísað burt. Hann var að vísu mjög drukkinn, enda höfðum við sopið fullmikið í vélinni, við vorum í skemmtiferð og áttum okkur einskis ills von. Okkur leið líka mjög illa, eins og glæpamönnum sitjandi í þessu horni og svo komu ljósmynd- ararnir og gerðu illt verra. En síðan var skrifað að við hefðum verið „í annarlegu ástandi“ sem er algjör vitleysa og er þar verið að gefa í skyn að starfsmenn fyrirtækisins okkar séu að dópa í starfsmanna- ferðum.“ Varðandi meintan brotaferil þeirra sem vísað var úr landi segir Kristófer að einn af þeim hafi verið rekinn frá Íslandi vegna þess að hann hefði smygl á sakaskránni. „Þessi meinleysisgutti, hann smygl- aði einu sinni heyi fyrir hestinn sinn frá Svíþjóð til Noregs því hey er miklu ódýrara í Svíþjóð, hann vissi ekki einu sinni að það væri ólöglegt. Það er nú allur glæpaferilinn.“ Kristófer segir að þeir vinnufélag- arnir reyni þó að taka þessu með hæfilegum húmor og ætlar að búa til jólakort með myndunum sem birt- ust í blöðunum svo menn geti að minnsta kosti hlegið að þessari nið- urlægjandi reynslu. „En það særði okkur mjög hvernig umfjöllunin gaf í skyn að við værum glæpamenn og fyrirtækið okkar væri glæpasam- steypa.“ Norðmennirnir sem stöðvaðir voru í Keflavík eru óánægðir með hvernig komið var fram við þá „Niðurlægjandi uppákoma“ Morgunblaðið/Svavar Kristofer Bentz og Henning Rums- dal furða sig á umfjöllun fjölmiðla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.