Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 37 ✝ Ásdís María Þórð-ardóttir fæddist á Uppsölum í Seyðis- firði við Djúp 10. mars 1908. Hún lést 3. desember síðastlið- inn. Foreldrar Ásdís- ar voru Þórður Krist- jánsson, sjómaður á Uppsölum, og kona hans, Halldóra Rögn- valdsdóttir. Maður Ásdísar var Jón Oddsson, en þau slitu samvistir. Sonur Ásdísar er Guðni Björgólfsson kennari, f. 8. ágúst 1949. Ásdís ólst upp hjá fósturforeldr- um sínum á Hesti í Hestfirði, Hálf- dáni Einarssyni og Daðeyju Daða- dóttur. Við átta ára aldur skyldi hún til foreldra sínna á Upp- sölum. Hún fór fimm- tán ára til fósturfor- eldra sinna í Bolungarvík og var þar í þrettán ár. Ás- dís vann mikið við saltfiskverkun á reit- unum í Bolungarvík. Hún flutti til Reykja- víkur 1940 og var þar í vist í fleiri en einum stað sem algengt var á þeim tíma. Hún vann sem fóstra við Barnaheimilið á Vesturborg en for- stöðukona þar var Ingibjörg Jóns- dóttir frá Flatey á Breiðafirði. Hún fluttist til Akraness 1948. Ásdís verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30 Góður er hver genginn og illur aft- ur fenginn. Rætur móður minnar stóðu á æskustöðvum hennar á Hesti í Hest- firði, þar var hennar skjól og öryggi, þar átti hún heima. Tilhögun þessi mun hafa verið tilkomin vegna veik- inda móður hennar en hún lést aðeins 42 ára að aldri. Móður minni var síður hlíft en öðrum er kom að vinnu enda sveitavargurinn verið laginn við það fyrr og síðar að halda fólki til vinnu. Þegar vinnu á reitunum var lokið, þar sem ósjaldan þurti að brjóta klaka af kerum að morgni biðu hennar önnur skylduverk, meðan aðrir flöttu út svæfil eða voru úti að skemmta sér. Ekki er að efa að það hafði áhrif fyrir lífstíð að hún var slitin frá æsku- stöðvum sínum á Hesti í Hestfirði. Á 96. aldursári hafði hún þetta um það að segja: „Ég er nú ekki enn búin að skrifa undir það.“ Hún var í vist á Ísa- firði og á Siglufirði og hafði margar skemmtisögur að segja frá frá þeim tíma. Þá er hún fluttist til Reykjavíkur réðst hún fljótlega til starfa við Barnaheimilið Vesturborg og var vel látin þar. Það var einmitt þar sem hún hitti fyrir það gerpi sem hér skrifar og ákvað að áeggjan forstöðu- konu að taka sveinstaula þennan til fósturs í ágúst 1951. Sú ákvörðun átti eftir að draga dilk á eftir sér því eiginmanni hennar hafði snarsnúist hugur hvað þetta varðaði og taldi enga ástæðu til að standa í því að ala upp annarra manna börn, það gætu þeir sjálfir gert sem hefðu ungað þeim út í heim- inn. Móðir mín hafði gert samkomu- lag við móður mína, Ingibjörgu Kon- ráðsdóttur, um þessi mál og alla tíð áttu þær farsæl og góð samskipi. – Móðir mín tilkynnti eiginmanns- myndinni að hún hefði gert sam- komulag sem hún ætlaði að standa við og yrði hann að gera það upp við sig hvort hann gerði slíkt hið sama eða hypjaði sig. Búið var farsælla og auraráð meiri að honum gengnum jafnvel þó yfirvöld í Ytri Akranes- hreppi hefðu komið því svo fyrir að ekki var borguð króna með krógan- um og í engu tekið tillit til aðstæðna hennar þá er kom að skiptum við sambúðarslit. Ásdís var dugnaðarforkur og missti helst aldrei dag úr vinnu en hún vann lengst af í Hraðfrystihúsinu Heimaskaga á Akranesi. Hún bjó fyrst í Gamla Sandgerði í 10 ár en síð- ar í um 30 ár á Kirkjubraut 25. Breyting varð á högum hennar um 1994 þá er hún fluttist á Dvalarheim- ilið Höfða á Akranesi. Merkileg breyting var því samfara og víst er um það að henni leið betur þar en nokkru sinni fyrr um sína ævidaga, þökk sé því úrvali starfsmanna sem þar vinnur sem var boðið og búið til að aðstoða hana við hvern einn hlut. Þá skulu ekki síður færðar þakkir þeim er drifu í því að af þessu gæti orðið enda einungis tímaspursmál að hennar dagar yrðu taldir við frekari dvöl á Kikjubraut 25 en stigar voru þar erfiðir og hættulegir þeim sem ekki áttu auðvelt með gang. Þetta sama haust fluttist undirritaður til Reykhóla á sunnanverðum Vestfjörð- um til starfa þar og fór svo að þessar umbreytingar í lífi okkar urðu okkur báðum til velfarnaðar og nánast í fyrsta skipti að sæi til sólar í því amstri sem áður hafði verið. Árið 1948 þá formyrkvaðist himinn og aðsteðjanda sterkviðris mátti lesa úr bliku við útjaðra himinsins. Það var útgerðarfyrirtæki á Akranesi sem annaðist flutning móður minnar til Akraness en á þeim dögum var Andakílsárvirkjun í mótun og við bættist að svartur himinn mætti móð- ur minni á hafnarbakkanum en eig- inmaður hafði metið það meira að sitja að spilum en að annast konu sína. Á þessum dögum var Ytri Akra- neshreppur ígildi þeirra frumstæðu þjóðflokka er byggja Gíneu og er einnig að finna í Ástralíu og Nýja Sjá- landi; íbúar litu á aðkomufólk sem að- skotadýr og ógn við tilveru sína hvað varðaði vinnu, voru óvanir því og lá mörgum við að snúa sig úr hálsliðnum við að virða slíkt undur fyrir sér. Þeir létu ekki heldur sitt eftir liggja við að bregða fæti fyrir það og loddi það lengi við þennan stað myrkurs og ættartengsla. Móðir mín lét sér fátt um finnast, aðlagaðist fljótt þessum stað og eign- aðist fjölda vinkvenna jafnt á vinnu- stað sem utan hans. Hún var fé- lagslynd að eðlifari og naut það sín vel í Hraðfrystihúsinu Heimaskaga þar sem líkja mátti starfsmönnum við eina stóra fjölskyldu og Björgvin verkstjóri að sjálfsögðu höfuð þeirrar fjölskyldu. Alltaf var borgað út í Heimaskaga en fyrir kom að ekki stóð vel á og svaraði þá Óli Frímann: „Kjölurinn er undan Skipaskaga og Heimaskagi er upp í slipp,“ og hló að öllu saman eins og allir sannir útgerð- armenn gera sbr. Bersa Hjálmarsson (Óskar Halldórsson) í Guðsgjafaþulu Laxness. Ég man að hún gerði gott gaman úr orðum hans og í litla eld- húsinu á Kirkjubraut 25 var Óli Frí- mann ásamt flestum úr Heimaskaga kominn þó svo að vera víðsfjarri og nutu margir á góðri stundu þessara hæfileika móður minnar. Þess er einnig að geta að hún lék forkunn- arvel á munnhörpu og náði takti og tækni sem fullgildur meðlimur í hljómsveit hefði verið fullsæmdur af. Ég veit að það var henni gleðiefni að gefinn var út geisladiskur með lög- um hennar fyrir nokkrum árum. Móðir mín var með afbrigðum frænd- rækin og mundi til síðasta dags jafnt liðna tíð sem þær breytingar sem urðu í þeim stóra ættlegg er henni fylgdi. Ef til vill má halda því fram að best sé að heimsækja fólk ekki eftir áttrætt því það er svo gott að minnast þess eins og það var. En ekki sem skorpið, hrukkótt, forljótt, minnis- laust og vitlaust. Móðir mín fékk að halda öllu sínu hvað vitsmuni snerti til hinstu stundar þó svo að líkaminn undir það síðasta gæfi sig nokkuð. Þessi kona kom mér sífellt og æv- inlega á óvart með óvæntum og hnit- miðuðum stuttum setningum um menn og málefni. Hún las fólk auð- veldlega og tók afstöðu til málefna líð- andi stundar. Ég man að hún var ein- dreginn talsmaður bjórsins og hafði þá bjargföstu trú að hann mundi draga úr neyslu sterkra drykkja. Hún skipaði sér aldrei í flokk með þeim mönnum sem sýnt hafa hvað mesta mannfyrirlitningu á Íslandi, réttnefndir mannhatarar í þessum efnum þó svo að þar sé auðvitað að finna heiðarlegar undantekningar. Eiga ofstækismenn þessir þó drjúgan þátt í því að öll umræða um heilbrigð- ismál er a.m.k. 10 árum á eftir því sem gerist hjá nágrannaþjóðum auk annarra hagsmunaaðila sem þar koma að máli. Ótalinn er sá þáttur í fari móður minnar að mega ekkert aumt sjá og áttu málleysingjar alla tíð athvarf og griðastað hjá henni ekki síst að vetri þegar erfitt var um aðföng; síðar komu stoltar kattarmæður og sýndu henni afkvæmi sín auk þess að þiggja veitingar í boði hússins. Ég veit að móðir mín mun ekkert gera með það við hið Gullna hlið hvort henni sjálfri verði boðið þar til inn- göngu eða ekki en vei þeim Pétri sem hleypir ekki í gegn þeirri fylkingu katta sem í för verða og þeirri fjöld fugla sem mun syngja Guði sinn dýrð- aróð. Farnist þér nú vel, mamma mín, og hafðu eilífa þökk fyrir að taka strákpjakkinn að þér og ala önn fyrir honum og kærleika þinn og væntum- þykju í hans garð. Guðni Björgólfsson. ÁSDÍS M. ÞÓRÐARDÓTTIR Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, INGA RAGNARSDÓTTIR, lést á krabbameinsdeild Landspítala háskóla- sjúkrahúss sunnudaginn 23 nóvember sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Karítas. Fyrir hönd aðstandenda, Eyjólfur Kristjánsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Ingibjörg Eyjólfsdóttir, Haraldur Guðbjörnsson, Aníta Ósk, Andri Snær og Elísa Líf. Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og vinur, HALLDÓR BJÖRNSSON bóndi, Engihlíð, Vopnafirði, varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn 7. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Þorgeir Hauksson, Guðbjörg Leifsdóttir, Jóna Kristín Halldórsdóttir, Gunnar Smári Guðmundsson, Björn Halldórsson, Else Möller, Ólafía Sigríður Halldórsdóttir, Þorsteinn Kröyer, Gauti Halldórsson, Halldóra Andrésdóttir, Herdís Þorgrímsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, HELGA GUÐRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR, Albany, Ástralíu, lést í Ástralíu mánudaginn 8. desember. Útför auglýst síðar. Aðstandendur. Móðir okkar og tengdamóðir, RÓSA GUÐNADÓTTIR frá Eyjum í Kjós, lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 8. desember. Amalía H. Skúladóttir, Leonhard I. Haraldsson, Hallur Skúlason, Lilja Kristófersdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, GÍSLI HELGASON, Holtastíg 10, Bolungarvík, lést á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar laugar- daginn 6. desember. Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 13. desember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Jónína Hálfdánsdóttir, Anna Svandís Gísladóttir, Atli Freyr Einarsson, Hálfdán Gíslason, Íris Axelsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, EIRÍKUR BJARNASON bóndi, Sandlækjarkoti, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, verður jarðsunginn frá Skálholtsdómkirkju föstudaginn 12. desember kl. 13.30. Jarðsett verður að Stóra-Núpi. Margrét Jóna Eiríksdóttir, Ásgeir S. Eiríksson, Sigrún M. Einarsdóttir, Eiríkur Kr. Eiríksson, Þórdís Eiríksdóttir, Stefán F. Arndal, Svanhildur Eiríksdóttir, Gísli G. Guðmundsson, Arnar Bjarni Eiríksson, Berglind Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir og afi, HELGI JÓNSSON Ásvegi 12, Dalvík, lést á heimili sínu aðfaranótt mánudagsins 8. desember. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn 16. desember kl. 14.00 Þóra Rósa Geirsdóttir, Ingvar Kristinsson, Kolbrún Þorsteinsdóttir, Elín Gísladóttir, Hermann Hrafn Guðmundsson, Magnea Kristín Helgadóttir, Halldór K. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.