Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 23
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 23 Hólmavík | Notaleg stemning ríkti á aðventukvöldi í Hólmavíkurkirkju í síðustu viku. Börn úr Grunnskól- anum sáu að stórum hluta um dag- skrána undir stjórn kennara í tón- list og tjáningu. Einnig komu fram Kvennakórinn Norðurljós og kirkjukór Hólmavíkurkirkju. Báðir kórarnir höfðu á efnisskrá falleg jólalög, sem sum hver hafa ekki heyrst mikið áður. Atriðin sem börnin æfðu voru m.a. helgileikur, upplestur á jólasögum, tilbrigði við jólasálm þar sem leikið var undir lestur hins kunna sálms Með vísna- söng ég vögguna þína hræri og kór- söngur. Þá fluttu fermingarbörn þulu um tíu kerti sem tendruð voru jafn- óðum. Sr. Sigríður Óladóttir sókn- arprestur flutti ávarp og ritning- arlestur. Þetta kvöld var þétt setinn bekkurinn í kirkjunni sem mun taka á annað hundrað manns í sæti. Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Helgileikur í flutningi 4. og 5. bekkjar Grunnskólans og barnakórsins. Þétt setinn bekkurinn á aðventukvöldi Stöðvarfjörður | Á vefsíðunni Bæj- arslúðrinu, sem skrifuð er af Björg- vin Val Guðmundssyni á Stöðv- arfirði, kennir ýmissa grasa og eru kímnin og hugarflugið þar í öndvegi. Eftirfarandi frétt birtist á dögunum í Bæjarslúðrinu: Þeim brá heldur betur í brún, starfsmönnum við Fáskrúðsfjarð- argöng, þegar þeir komu inn í stóran helli og sáu þar stóran mann sitjandi á stól. Þar sem bormennirnir kalla nú ekki allt ömmu sína gáfu þeir sig á tal við manninn og í ljós kom þarna var enginn annar en Leppalúði, eig- inmaður Grýlu og faðir jólasvein- anna. Grýla var ekki heima þegar gestina bar að garði en hún hafði skroppið í heimsókn til sona sinna til að stappa í þá stálinu fyrir komandi vertíð. Þegar Leppalúði uppgötvaði í hvaða erindagjörðum bormennirnir voru brást hann hinn versti við og var lítið hrifinn af því að fá þjóðveg í gegnum stofuna sína. Hyggst hann kæra málið til Skipulagsstofnunar, því að hans mati var ekki staðið nægilega vel að grenndarkynningu fyrir þessar framkvæmdir. „Bíðið bara þar til kerlingin fréttir af þessu,“ sagði hann við tíðindamann Bæjarslúðursins. „Sú verður aldeilis brjáluð!“ Bormenn fundu bústað Grýlu og Leppalúða Búðardalur | Það var fjölmennt þegar kveikt var á stóru, fallegu jólatré við Dalabúð á mánudaginn. Þetta er einn af föstum viðburðum aðventunnar hér í Dölum. Eftir að ljósin voru tendruð var tekin dans- æfing í kringum tréð. Þá komu tveir jólasveinar akandi á fjórhjóli og gáfu krökkunum nammi. Dala- byggð bauð upp á kakó og pip- arkökur inni í Dalabúð. Þar inni voru nemendur tónlistarskólans og spiluðu þeir fyrir gestina jóla- lög. Morgunblaðið/Helga H. Jólasveinar í Búðardal Komu akandi á fjórhjóli og gáfu börnum nammi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.