Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 17 Fjárfestingarfélagi› Straumur hf. hefur sótt um starfsleyfi sem fjárfestingarbanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Stjórn félagsins bo›ar hér me› til hluthafafundar í félaginu sem ver›ur haldinn flann 18. desember 2003 klukkan 11.00 a› Grand Hótel, í Hofteigi á 4. hæ›. Óski hluthafi eftir a› fá ákve›i› mál teki› til me›fer›ar á fundinum skal ósk hans komi› í hendur stjórnar eigi sí›ar en sjö dögum fyrir fundinn. Fundargögn og atkvæ›ase›lar ver›a afhentir á fundarsta›. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Breytingar á samflykktum félagsins. Meginefni tillagnanna er eftirfarandi: 1. gr. - Breyting á nafni félagsins í Straumur Fjárfestingarbanki hf. og tilvísun til laga sem félagi› starfar eftir. 3. gr. – Breyting á tilgangi félagsins er felur í sér a› hann ver›ur a› veita fjármálafljónustu. 4. gr. – Breyting á or›alagi og aukin heimild til handa stjórn til a› gefa út n‡tt hlutafé. 7. gr. – Breyting á or›alagi. 8. gr. – Einföldun frá eldra ákvæ›i um eigin hluti félagsins. Bann vi› lánveitingu út á bréf félagsins fellt ni›ur. 19. gr. – Fjölgun stjórnarmanna úr fjórum í fimm. 21. gr. – Undirskrift flriggja stjórnarmanna bindi félagi› í sta› tveggja á›ur. 27. gr. – Breyting á or›alagi. 28. gr. – Tilvísun til laga um fjármálafyrirtæki og annarra laga. 2. fióknun stjórnarmanna. 3. Kosning n‡rrar stjórnar a› félaginu. Tillögurnar munu liggja frammi á skrifstofu félagsins til athugunar fyrir hluthafa viku fyrir fundinn. Reykjavík, 9. desember 2003. Stjórn Fjárfestingarfélagsins Straums hf. Bo›un til hluthafafundar Fjárfestingarfélagsins Straums hf. Útsölustaðir Apótek og lyfjaverslanir Töskur Ekta leður Verð frá kr. 2.800 FIMMTÍU og átta bandarískir hermenn særðust í tveimur sjálfsmorðsárásum í Írak í gær. Tveir er maður sprengdi sig upp við bandaríska herstöð við Bagdad og hinir í sams konar árás í bænum Talafar, sem er 380 km norðvestur af höfuð- borginni. Þar var bíl ekið að að- alhliðinu en þegar verðir skutu á hann, var hann sprengdur upp. Bandarískri herþyrlu var nauð- lent vestur af Bagdad í gær og er haft eftir fólki þar, að skotið hafi verið á hana en talsmaður bandaríska hersins vildi ekki staðfesta það. Nægar sannanir BÚIST er við, að Mijailo Mij- ailovic, manninum, sem er grun- aður um að hafa myrt Önnu Lindh, utan- ríkisráð- herra Sví- þjóðar, verði birt ákæra í næsta nán- uði og rétt- arhöld yfir honum hefj- ist skömmu síðar. Hing- að til hefur hann neitað allri sök en sænskir fjölmiðlar hafa eftir lögreglunni, að sannanir gegn honum séu yf- irþyrmandi og nægi til að fá hann sakfelldan án játningar. Huldumenn lofa lyfin BRESKA dagblaðið The Observer hefur skýrt frá því, að lyfjafyrirtækin stundi það að láta huldumenn á sínum snær- um skrifa greinar um lyf í virt læknatímarit en fá síðan lækna til að setja nafn sitt undir þær. Hefur þessu máli einnig verið fylgt eftir í dagblaðinu The Guardian. Segja blöðin, að um sé að ræða hundruð greina, sem eignuð séu fræðimönnum og læknum, sem vafalaust hafi feng- ið vel greitt fyrir að lána nafnið sitt. Læknatímaritin njóta mikill- ar virðingar og geta ráðið miklu um það hvaða lyf eru notuð. Landtöku- menn hóta „stríði“ PINHAS Wallerstein, einn af leiðtogum ísraelskra landtöku- manna, sagði í gær, að „stríð“ myndi brjótast út ef Ísr- aelsstjórn reyndi að fylgja eftir ákvörðun sinni um að leggja af átta gyðingabyggðir á Vestur- bakkanum. Shaul Mofaz, varn- armálaráðherra Ísraels, lét þó hótanir Wallersteins sem vind um eyru þjóta og ítrekaði, að byggðirnar væru ólöglegar, það er að segja, þær hefðu ekki verið samþykktar af Ísraelsstjórn. Talsmaður samtakanna „Friður nú“ sagði í gær, að yfirlýsingar Ísraelsstjórnar um að leggja niður gyðingabyggðir á palest- ínsku landi væru raunar blekk- ing og skrípaleikur. Þær gengju út á að flytja landtökumennina burt í auglýsingaskyni en leyfa þeim síðan að snúa aftur síðar. STUTT Sjálfs- morðs- árásir í Írak Mijailovic ÞRJÁR dætur Sukarnos heitins, fyrsta forseta Indónesíu, eru leiðtog- ar stjórnmálaflokka og munu því berjast hver við aðra í þingkosn- ingunum í land- inu á næsta ári. Þeirra á meðal er Megawati Suk- arnoputri, núver- andi forseti landsins. Rachmawati Sukarnoputri, Sukmawati Suk- arnoputri og Megawati voru meðal 24 flokksleiðtoga, sem mættu á fund með yfirkjörstjórninni á mánudag en þá var dregið um röð flokkanna á kjörseðlinum. Eru flokkar þeirra Rachmawati og Sukmawati að vísu ekki taldir nein ógn við flokk Mega- wati, systur þeirra, Lýðræðislega baráttuflokkinn, en sýna þó vaxandi óánægju með stjórnarhætti hennar. Rachmawati, sem gagnrýnir syst- ur sína harðlega, leiðir Frum- herjaflokkinn en Sukmawati fer fyr- ir Þjóðlega Marhaenista-flokknum. „Marhaenismi“ var kjarninn í pólitík föður þeirra og táknaði bændur og örsnauðan almúgann. Sukarno, faðir systranna, stýrði Indónesíu á árunum 1950-65 en þá tók Suharto við og var forseti í 32 ár. Systraslagur í Indónesíu Jakarta. AFP. Megawati Sukarnoputri á, að núverandi lindir séu smám saman að tæmast og enginn meiri háttar olíufundur hafi átt sér stað síðan 1997. Það er nokkuð langur tími þeg- ar þess er gætt, að það líða jafnan nokkur ár á milli olíufundar og vinnslu. Mikið í húfi Olían er langmesta tekjulind Norðmanna enda eru þeir þriðju mestu olíuútflytjendurnir á eftir Sádi-aröbum og Rússum. Er hún 22,6% af landsframleiðslunni og 41,5% af útflutningnum. Dragist olíuvinnslan saman að einhverju marki mun það segja til OLÍULINDIR Norðmanna í Norðursjó þverra óðum og nú eru þeir farnir að gjóa augunum norð- ur á bóginn, að svæðinu við Lófót. Olíufélögin styðja það en um- hverfisverndarsinnar eru aldeilis á öðru máli. Norska stjórnin verður að ákveða það fyrir áramót hvort til- raunaboranir verða leyfðar við Lófót og deilurnar um það harðna með degi hverjum. „Vandinn er sá, að stjórnin þarf að hafa alla góða á sama tíma, sjómennina, umhverfissamtökin og olíuiðnaðinn, og það er ekki alltaf hægt,“ segir Torger Reve, yfirmaður efnahagsáætlanadeildar verslunarháskólans í Ósló. Lindirnar að tæmast Norsku olíurisarnir, Statoil og Norsk Hydro, leggja áherslu á, að verði ekkert að gert muni olíu- ævintýrinu, sem gert hefur Norð- menn ríka, brátt ljúka. Þeir benda sín í samdrætti í öllu efnahagslíf- inu. Það, sem er meðal annars í húfi, er fjármögnun norska lífeyriskerf- isins en mestallar olíutekjurnar fara í sjóð, sem ætlað er að standa undir því. Í þessum sjóði voru í septemberlok tæplega 9.000 millj- arðar ísl. kr. Viðkvæm kóralrif Sú erfiða ákvörðun, sem norska stjórnin stendur nú frammi fyrir, snertir ekki aðeins olíuiðnaðinn, heldur sjálfa framtíð Noregs á næstu áratugum. Margir stjórn- málamenn eru sammála hinum efnahagslegu röksemdum fyrir tilraunaborunum við Lófót en aðrir hafa skipað sér í sveit með umhverfisverndarsamtökunum. Norska kirkjan hefur líka snúist á sveif með þeim og kunnir menn eins og Jostein Gaarder, höf- undur bókarinnar „Veröld Soffíu“. Talið er, að við Lófót sé að finna um 30% af þeirri olíu, sem enn er ófundin við Noreg, en þar eru líka einhver auðugustu fiskimiðin. Þar hafa menn dregið þorsk úr sjó og veitt síld frá ómunatíð og þar er að finna mjög viðkvæm kóralrif og ákaflega auðugt fuglalíf. „Eyjarnar við Lófót má kalla sjávarréttahlaðborðið í þessu landi,“ sagði Tor Traasdahl, tals- maður Alþjóðanáttúruvernd- arsjóðsins (WWF). Ríkisstjórnin klofin í málinu Hafa deilurnar valdið klofningi innan stjórnarinnar en Kristilegi þjóðarflokkurinn og Venstre eru andvígir borunum en Hægriflokk- urinn meðmæltur þeim. Norðmenn leggja hins vegar mikið upp úr því að ljúka mál- unum í sátt og samlyndi og því er allt gert til að finna einhverja málamiðlun. Hún gæti hugsanlega falist í því að banna boranir við Lófót en leyfa þær norðar í Barentshafi þar sem Rússar eru þegar byrjaðir að bora. Umhverfið og olían takast á Olíufyrirtæki segja að finnist ekki nýjar lindir við Lófót fari að halla undan fæti fyrir norska olíuævintýrinu Ósló. AFP. ’ Eyjarnar við Lófót má kalla sjáv- arréttahlaðborðið í þessu landi. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.