Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 9 Ný samkvæmispils Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—16 Glæsilegar dragtir Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið í dag frá kl. 10.00—18.00. Gullsmiðja Hansínu Jens Seljum eingöngu Laugaveg 20b v/ Klapparstíg • sími 551 8448 Íslenskt handverk Hansínu og Jens Guðjónssyni smíðað af Mjúkar og hlýjar jólagjafir Húfa kr. 1.990 Ullarteppi kr. 4.900 Kringlunni - sími 568 1822 undirfataverslun Síðumúla 3 - Sími 553 7355 undirföt Gjöfin hennar OPIÐ ALLA DAGA TIL JÓLA Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardag frá kl. 11-18 Laugavegi 84, sími 551 0756 Svartar samkvæmisdagtir Kringlunni - Smáralind ÚLPA Í JÓLAPAKKANN Jólatilboð á úlpum Verð frá kr. 1.990 ÚTSALA - ÚTSALA Dæmi um verð: Áður: Nú: Jakkapeysa 7.900 3.900 Yrjótt peysa 4.600 2.300 Jakki m. satíni 4.900 1.900 Dömubolur 3.400 1.700 Hettupeysa 5.700 3.500 Mokkavesti 4.100 1.900 Vatteruð úlpa 6.800 2.900 Mokkakápa 9.900 5.900 Kjóll 6.500 3.900 Velúrpils 4.700 2.300 Dömubuxur 4.900 1.900 Satínbuxur 6.700 2.900 ...og margt margt fleira 40—60% afsláttur Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík. Opið frá kl.10.00-18.00 Stærðir 34-52 Ótrúlega lágt verð HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða hálffimmtugri konu 600.000 krónur í miskabætur vegna gæslu- varðhalds sem hún sætti án nægilegs tilefnis í fyrra vegna rannsóknar á láti manns í Kópavogi. Kröfum karl- manns vegna gæsluvarðhalds í sama máli var hins vegar hafnað. Konan krafðist 15 milljóna í bætur á þeirri forsendu að ekki hefðu verið lögmæt skilyrði, eða í öllu falli eins og á stóð, ekki nægilegt tilefni til hand- töku hennar 11. mars í fyrra eða til að úrskurða hana í gæsluvarðhald 12. mars og því síður að framlengja gæsluvarðhaldið og láta hana sitja í gæsluvarðhaldi allt til 11. apríl í fyrra. Dómari segir að aðstæður á vett- vangi hafi verið þannig, að allt bendi til þess að andlát mannsins hafi ekki borið að með eðlilegum hætti. Bráða- birgðaniðurstaða krufningar hafi sýnt fram á að dánarmein hins látna yrði rakið til áverka á kvið. Þá hafi einnig legið fyrir niðurstaða tækni- deildar um að blóð hefði verið þrifið í svefnherberginu þar sem hinn látni lá. Að þessu virtu og ruglingslegum framburði konunnar á vettvangi og samtali hennar við neyðarlínu yrði að telja að hún hafi verið undir rök- studdum grun um að hafa átt þátt í refsiverðum verknaði. Því hafi borið nauðsyn til að handtaka hana til þess að koma í veg fyrir að sakargögnum væri spillt. Dómari komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að konan hefði setið lengur í varðhaldi en rannsókn- arnauðsynjar gáfu tilefni til eða í 24 daga, frá 18. mars til 11. apríl 2002. Við ákvörðun bóta sagði dómarinn að gæta þyrfti þess að fram til 18. mars hefði hún sætt réttmætu gæslu- varðhaldi. Í dómi sínum finnur dóm- ari að fullyrðingum í kröfugerð sýslu- mannsins í Kópavogi um gæsluvarðhald yfir konunni og síðar framlengingu þess um að allt hafi bent til þess að hún, ein eða ásamt öðrum manni, hafi lent í rifrildi við hinn látna, líklega út af peningum sem hann hefði sagt að hann ætti. Það hafi svo endað með átökum. Þessar ályktanir lögreglu virtust dómara að miklu leyti byggðar á get- gátum sem ekki voru studdar hald- bærum gögnum. Dómarinn hafnaði því að framkvæmd gæsluvarðhalds- vistar konunnar hefði verið mun hættulegri og meira særandi og móðgandi en þörf hefði verið á. Hann felldi gjafsóknarkostnað hennar að fjárhæð 988.500 krónur, þar með tal- in 985 þúsund króna málflutnings- þóknun lögmanns hennar, á ríkissjóð. Tæplega fertugur maður, sem ásamt konunni var handtekinn í íbúð hins látna, fór einnig í mál við ríkið og krafðist tveggja milljóna króna í bæt- ur fyrir tilefnislaust gærsluvarðhald. Var öllum kröfum hans hafnað. Mað- urinn fékk gjafsókn í málinu og var kostnaður hans, þar með talin 560.000 króna málflutningsþóknun lögmanns hans, felld á ríkissjóð. Ákveðið var í fyrrahaust að ekki yrði höfðað refsimál vegna andláts mannsins í Hamraborg í Kópavogi. Af hálfu stefnanda flutti málið Guðjón Ólafur Jónsson hdl. en Sigrún Guðmundsdóttir hrl. af hálfu stefnda. Greta Baldursdóttir héraðsdómari kvað upp dóminn. Ríkið dæmt til að greiða konu bætur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.