Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 34
UMRÆÐAN 34 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ É g er ein þeirra fjölda íslenskra kvenna sem eru í nokkrum saumaklúbbum – þótt lítið fari fyrir saumaskap í þeim félagsskap. Saumaklúbbarnir ganga nefnilega aðallega út á að hittast með jöfnu millibili og ræða um það sem hæst ber hverju sinni í lífi okkar klúbb- kvenna. (En auðvitað fjöllum við þó af og til einnig um önnur mik- ilvæg málefni.) Í klúbbunum tölum við um sigra og sorgir hver annarrar og þar eru mörg álitamálin leyst. Allar erum við á svipuðum aldri og höfum því verið nokkuð samstiga í göngu okkar í gegnum lífið. Hófum fram- haldsnám á sama tíma, fórum á vinnumarkaðinn á svip- uðum tíma, giftum okkur um svip- að leyti, eignuðumst börn, ein- hverjar fóru utan og aðrar komu heim. Og svo mætti lengi telja. Á þann hátt höfum við haft sameig- inleg áhugamál og sameiginleg verkefni á ákveðnum tímaskeiðum. Margt hefur því fengið ítarlega umfjöllun í klúbbunum okkar. Fyrir alllöngu hófust til dæmis umræður um samskipti okkar við hitt kynið – þau samskipti eru reyndar rædd aftur og aftur með reglulegu millibili. Þá fór langur tími í að ræða námið, sem okkur langaði til að stunda, og einnig sögðum við hver annarri gjarnan frá framtíðardraumum okkar í tengslum við nám og starf. Einhverjir saumaklúbbar fóru í að ræða brúðarkjóla og giftingar og þá hafa mörg saumaklúbbs- kvöldin farið í það að ræða með- göngu og fæðingu, bleiur, maga- kveisu ungabarna, ljósmæður, barnalækna og fleira því tengt. (Þær sem ekki voru búnar að eign- ast börn urðu að láta sér það lynda að hlusta á endalausar bleiuum- ræður og nákvæmar lýsingar á því hve ógeðslega vont það er að fæða börn í þennan heim.) Og eftir því sem við eldumst og félagslegar aðstæður okkar breyt- ast taka umræðuefnin stakkaskipt- um. Á síðustu misserum hefur t.d. verið nokkuð rætt um helgarferð- irnar, sem við plönuðum fyrir margt löngu, til helstu nágranna- borga okkar Íslendinga. Við höfum þó enn ekki farið í margar slíkar ferðir, þar sem við erum ekki sam- mála um hvort þær eigi að vera með eða án maka.Við sem erum einhleypar erum til dæmis á því að makar eigi ekki að vera að þvælast með í slíkum ferðum – með annars fullri virðingu fyrir mökum. Við teljum að ferðirnar verði miklu mun skemmtilegri án maka – en hinar eru að sjálfsögðu ekki sam- mála. En eftir því sem við verðum eldri líður líka lengri tími á milli saumaklúbbanna. Hver hefur í nógu að snúast; sinna vinnunni, heimilinu, börnunum og öllum hin- um skyldunum. Ég stakk því upp á því um daginn að í staðinn fyrir fjörlegar borgarferðir færum við allar á ódýrt heilsuhæli í Póllandi, í viku eða svo. Sjálfri fannst mér hugmyndin alveg „brillijant“ en vinkonurnar voru ekki á sama máli. Skemmst er frá því að segja að hugmyndin var kæfð í fæðingu og ég beðin um að geyma hana í tíu ár eða svo. Ég geri ráð fyrir því að þangað til ætli þær að rækta heimilið og börnin með aðstoð fröken Flylady. Að minnsta kosti ef nokkrar þeirra fá að ráða. Já, ég held nefnilega að klúbb- arnir mínir séu rétt í þann mund að ganga inn í nýtt tímaskeið – svo- kallað Flylady tímaskeiðið. Áður en lengra er haldið er rétt að út- skýra nánar hver Flylady er. Hún er samnefnd heimasíða á Netinu: flylady.net. Ég er ekki búin að kynna mér heimasíðuna í þaula og þann boð- skap sem þar er að finna en ef marka má samtöl mín við vinkonur mínar tvær, sem þreytast ekki á því að dásama þetta nýja fyr- irbrigði, er markmið hennar að hjálpa fólki að halda heimilinu í röð og reglu á sem einfaldastan máta. Þar er lögð áhersla á að eitt skref sé tekið í einu. Fyrsta skrefið felst t.d. í því að búa um rúmið á hverj- um morgni. Síðan bætast við fleiri verkefni, svo sem að stinga óhreina tauinu í vélina, áður en farið er í vinnuna, og hengja upp og brjóta saman þvott þegar heim er komið. Hægt er að fá betri aðstoð í þessum málum með því að skrá sig á síðuna. Þannig fær maður reglu- lega sendan rafpóst, frá Flylady, sem minnir mann á að gera hin og þessi húsverkin; búa um rúmið, vaska upp, þrífa klósettið og svo framvegis. Já vel á minnst, heima- síðan er rekin af bandarískri konu sem hafði lengi vel viðurnefnið Flylady, þar sem hún hafði mikinn áhuga á fluguhnýtingum. (En það er annað mál.) Vinkonur mínar, sem eru virkir þátttakendur á síðunni, segja að það hafi aldrei verið eins fínt hjá þeim. Og ég get reyndar staðfest það. Þær eru líka sannfærðar um að ég eigi að gefa síðunni tækifæri og ganga í Flylady klúbbinn. Ein þeirra kom í heimsókn til mín um daginn og er hún sá óreið- una hjá mér, sagði hún: „Arna, þú verður að fara að kynnast Fly- lady.“ Og þegar ég ræði við hina (um þjóðmálin að sjálfsögðu) kem- ur alltaf einhvern tíma að setning- unni: „Jæja, ég verð að fara að þrífa eldhúsvaskinn. Flylady var að minna mig á það.“ Lengi vel hefur allt tal þeirra um Flylady farið inn um annað eyrað og út um hitt. Enda hafa heimilisþrif aldrei verið mitt helsta áhugamál. En nú fer að líða að jól- um og krafan um hreint og fallegt heimili fer að verða æ meira áber- andi. Allir eru að taka til – margir eru búnir að því – og Flylady vin- konur mínar eru löngu búnar að því. Kannski ég láti undan þrýst- ingnum og kíki á heimasíðuna. Aldrei að vita nema ég skelli mér bara af krafti út í nýja tímabil okk- ar saumaklúbbskvenna, þ.e. Fly- lady-tímabilið. Nútíma- konur á Netinu „Þær eru líka sannfærðar um að ég eigi að gefa síðunni tækifæri og ganga í Flylady klúbbinn.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is KRISTINN Pétursson, fiskverk- andi á Bakkafirði, hvetur til þess í Morgunblaðsgrein 4. desember sl. að sjávarútvegsmál séu rædd ,,fag- lega og yfirvegað“. Vandalaust er að samsinna því og reynd- ar gefa spurningar og athugasemdir sem Kristinn viðrar í grein- inni tilefni til að hann sé tekinn á orðinu. ,,Stenst það siðferð- islega, samkeppnislega eða lagalega að senda vikulega hundruð tonna af óunnum fiski (óvikt- uðum?) úr landi meðan atvinnuleysi ríkir eins og t.d. í Vestmanna- eyjum?“ spyr Kristinn Pétursson. Svarið er einfalt og skýrt já. Eyjamenn hafa löngum nýtt sér nálægðina við erlenda ferskfiskmarkaði með þeim árangri að enn eru í Eyjum sterkar og vel reknar útgerðir, bæði einyrkja sem og stærri fyrirtækja með og án fisk- vinnslu. Auðvelt er að skýra með einföldu dæmi ferskútflutninginn frá Vestmannaeyjum. Fyrir karfa upp úr sjó fást 100–140 kr./kg á fersk- fiskmarkaði í Þýskalandi, einkum að vetrarlagi. Ef þessi karfi væri unn- inn í hefðbundnar pakkningar, laus- fryst flök, fengjust fyrir hann 60–70 kr./kg umreiknað í fisk upp úr sjó. Verðið er sem sagt 40–70 kr./kg lægra fyrir unninn karfa á markaði ytra og þá á eftir að draga frá kostn- að við að vinna fiskinn í landi í frost. Niðurstaðan er skýr. Fyrirtækin í Eyjum yrðu af verulegum tekjum ef þau væru neydd til að vinna þennan karfa í landi og selja frystan. Sjó- menn yrðu líka af tekjum en rétt er það, útflutningurinn skapar ekki landverkafólkinu vinnu, tímabundið. ,,Er það siðlega og lagalega boð- legt að fyrirtæki keppi á ,,jafnrétt- isgrundvelli“ um kvóta þegar þorsk- ur sem veiðist fyrir Suðurlandi er þyngri og verðmeiri (40–70%) en smærri þorskur fyrir Norður- og Norðausturlandi?“ spyr Kristinn Pétursson. Svarið er aftur einfalt og skýrt já. Okkur Sunnlendingum finnst frá- leitt að drepa 1,5 kg þorsk fyrir vestan og norðan og fá fyrir hann um 180–210 krónur á fiskmarkaði þegar 5,5 kg þorskur, veiddur við suður- ströndina, leggur sig á 880–990 krónur þrem- ur til sex árum síðar. Þetta svarar til 30– 65% ávöxtunar á ári ef dæminu er snúið upp á fjármálaheiminn. Slíkt hlýtur að teljast býsna gott búsílag fyrir þjóð- ina, ekki bara í hugum verðbréfaguttanna heldur líka í hug- um fólksins í landinu sem veit að meiri verðmæti úr hafinu eru ávísun á betri lífskjör. ,,Málið er einfalt. Við eigum að segja satt í stað þess að ljúga meira með þögninni. Í stað þagnarinnar á að ræða málin – faglega og yfirveg- að“, ályktar svo fiskverkandinn á Bakkafirði. Sannarlega skulum við segja satt og ræða málin. Nú stendur til að ívilna þeim sérstaklega sem koma með línufisk að landi á dagróðrabát- um. Þeir sem þekkja til í fiskvinnslu vita að afli smábáta er oft á tíðum mun lakara hráefni en af stærri bát- um sem stunda línuveiðar. Hráefn- ismeðferð er iðulega ófullnægjandi vegna þess að aðstæður um borð bjóða ekki upp á annað, fiskurinn er smærri auk þess sem fiskur af grunnslóð er oft fullur af hringormi. Sem dæmi má nefna að verð á slægðum þorski á fiskmörkuðum veiddum á færi hefur verið tæplega 23% lægri en trollfiskur að meðaltali undanfarin 6 ár. Þessi verðmunur endurspeglar lægra afurðaverð handfærafisks en trollfisks. Afleið- ingin er sú að tekjur þjóðarinnar dragast saman eftir því sem smábát- ar taka til sín stærri hluta fiskveið- anna. Um þetta ríkir þögn. Á einum áratug hafa 70–100 störf verið flutt frá Vestmannaeyjum með því að færa aflaheimildir frá fiski- skipaflota Eyjamanna til smábáta. Það svarar hér um bil til fjölda fólks á atvinnuleysisskrá í Vest- mannaeyjum nú um stundir. Um þetta ríkir þögn, æpandi þögn. En það eru ekki bara fyrirtækin, fólkið og bæjarsjóður í Eyjum sem verða af umtalsverðum tekjum heldur þjóðarbúið í heild og þar með talinn fiskverkandi á Bakkafirði. Með því að knýja fram þvingunar- aðgerðir í sjávarútvegi á borð við takmörkun á útflutningi á ferskum fiski eða línuívilnun getur vel verið að Kristinn Pétursson og kollegar hans verði betur settir en áður. Þjóðin í heild verður hins vegar verr sett því aukin verðmæti sjávarafla gagnast þjóðarbúinu í heild, styrkja atvinnulífið og þar með byggð í land- inu. Vel má vera að línuívilnun leiði til þess að fleira fólk fái vinnu fyrst í stað á tilteknum stöðum en þegar til lengdar lætur getur atvinnugrein í fjötrum og án hagnaðar ekki staðið undir blómlegri byggð og atvinnu. Það er mál sem ekki á að ríkja nein þögn um. Bakkfirðingur tekinn á orðinu Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson skrifar um sjávarútvegsmál Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson ’Tekjur þjóðarinnardragast saman eftir því sem smábátar taka til sín stærri hluta fiskveiðanna.‘ Höfundur er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar hf. í Vest- mannaeyjum. TALSMENN ríkisstjórnarinnar hafa talað mikið um það undanfarið, að þeir séu að veita öryrkjum gíf- urlega miklar hækkanir á lífeyri. Einkum hefur Pétri Blöndal, alþing- ismanni, orðið tíðrætt um það. Er ljóst, að honum finnst, að ör- yrkjar séu að fá full- mikið og að þetta verði erfitt fyrir skattgreið- endur! Það er því fróð- legt að líta á hvað ör- yrkjar eru í rauninni að fá. 6 þús. á mán. hafðar af 35 ára öryrkjum Samkvæmt frumvarpi Jóns Krist- jánssonar, heilbrigðisráðherra, fá yngstu öryrkjarnir, þeir sem verða öryrkjar 18 ára, mesta hækkun á grunnlífeyri eða tvöföldun, þ.e. hækkun um 20.613 kr. á mánuði en þeir greiða síðan skatt. Hækkunin fer síðan minnkandi og verður eng- in hjá elstu öryrkjum, þeim sem verða öryrkjar 67 ára. Sem dæmi má nefna að þeir sem verða öryrkjar 49 ára fá aðeins 516 kr. hækkun á grunnlífeyrinum. En samkvæmt samkomulaginu við Ör- yrkjabandalagið frá 25. mars sl. áttu þeir að fá tæplega 8 þús. kr. hækkun. Þeir sem verða öryrkjar 35 ára fá 8 þús kr. hækkun á grunnlífeyri en samkvæmt sam- komulaginu áttu þeir að fá 14 þús kr. hækkun. Og þannig mætti áfram telja. Síðan segir rík- isstjórnin, að hún sé að standa við samkomulagið við ör- yrkja! Valtað yfir Jón Kristjánsson Óskiljanlegt er, að Jón Kristjánsson, heil- brigðisráðherra, skuli hafa svikið sam- komulagið við öryrkja. Hann var áður talinn heiðarlegur stjórn- málamaður en eftir að ljóst var, að hann ætl- aði ekki að standa við samkomulagið við ör- yrkja hefur álit almennings á hon- um minnkað. Hann er nú kominn í hóp þeirra stjórnmálamanna, sem rangtúlka og hártoga málin til þess að fá niðurstöðu sér í hag. Jón var búinn að viðurkenna, að það vantaði 500 millj. kr. til þess að standa við samkomulagið við öryrkja. Hann sagði þá, að samkomulagið yrði efnt að 2/3 nú en 1/3 eftir ár. En sam- komulagið átti að koma að fullu til framkvæmda 1. janúar n.k. En síð- an venti hann sínu kvæði í kross og fór að halda því fram, að það væri verið að efna samkomulagið að fullu. Jón var beygður af Sjálfstæð- isflokknum og öðrum ráðherrum Framsóknar. Það var valtað yfir hann. Verður nýtt dómsmál? Öryrkjabandalagið útilokar ekki að fara með svikin á samkomulaginu fyrir dómstólana. Ljóst, að um gjör- unnið mál er að ræða. Það er alveg ljóst í samkomulaginu hvað átti að hækka grunnlífeyri öryrkja mikið. Það liggur alveg fyrir hvað hver aldurshópur átti að fá. Það eina sem ekki lá alveg fyrir var hvað framkvæmdin mundi kosta. En það er eins og með aðra kjarasamninga. Það er ekki alltaf alveg ljóst hvað framkvæmd þeirra kostar. Þeir eru ekki skornir niður þó kostnaður fari eitthvað fram úr áætlun. Rík- isvaldið meðhöndlar öryrkja öðru vísi en aðra þegna þessa lands. Kjarasamningar við opinbera starfsmenn og aðra launþega eru hafðir í heiðri. En kjarasamningur við öryrkja er svikinn. Öryrkjar um fimmtugt fá 516 kr. hækkun! Björgvin Guðmundsson skrifar um lífeyri öryrkja ’Óskiljanlegt er, að JónKristjánsson, heilbrigð- isráðherra, skuli hafa svikið samkomulagið við öryrkja.‘ Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.