Morgunblaðið - 10.12.2003, Page 20
AKUREYRI
20 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Lestrarleikur Morgunblaðsins
15561
Taktu þátt á mbl.is
NEMENDARÁÐ Glerárskóla stóð fyrir Gleróvision –
söngkeppni nemenda í vikunni og kom eitt atriði frá
hverri bekkjardeild í 7.–10.bekk.
Söngkeppnin fór fram í íþróttahúsi skólans og því
gafst öllum nemendum í skólanum tækifæri til að fylgj-
ast með. Mikil stemning var í salnum, frábærir söngv-
arar tróðu upp og einhverjir þeirra eiga vafalaust eftir
að láta enn frekar að sér kveða í framtíðinni. Hljóm-
sveitin Bird-House fór með sigur af hólmi en sveitin er
skipuð nemendum í 9. bekk. Frumlegasta atriðið var
flutt af drengjum úr 10. bekk, sem voru með frumsamið
efni.
Morgunblaðið/Kristján
Söngvarar framtíðarinnar á Gleróvision
Gjaldskrárhækkanir | Fyrir fundi
skólanefndar Akureyrarbæjar í vik-
unni lá tillaga að breytingu á fjár-
hagsáætlun fræðslu- og uppeldis-
mála 2004 þar sem ákveðinn hefur
verið nýr rammi fyrir málaflokkinn
að upphæð tæpir 2,2 milljarðar
króna. Í tillögunni er m.a. gert ráð
fyrir því að nýr leikskóli við Tröllagil
taki til starfa haustið 2004. Meiri-
hluti skólanefndar samþykkti fyr-
irliggjandi tillögu, en í henni felst að
heildarkostnaður við rekstur mála-
flokksins verður kr. 2.181.057.000. Í
forsendum er gert ráð fyrir því að
gjaldskrár leikskóla, skólavistunar
og Tónlistarskólans hækki um 4%
frá áramótum, ásamt því að gjald-
skrá skólavistunar verði tekin upp í
skólavistun fatlaðra í Árholti. Her-
mann Tómasson og Marsibil Fjóla
Snæbjarnardóttir sátu hjá við af-
greiðslu málsins og óskuðu bókað að
þau séu andvíg þeirri hækkun á
gjaldskrám umfram almennar verð-
lagshækkanir sem gert er ráð fyrir í
fjárhagsáætluninni.
Skólamötuneyti | Á fundi skóla-
nefndar Akureyrarbæjar í vikunni
var kynnt niðurstaða í rekstri skóla-
mötuneyta í grunnskólum frá jan-
úar–nóvember 2003. Fram kom að
nýting nemenda er aðeins 32,31% að
meðaltali á þessu tímabili og í heild
eru skólamötuneytin rekin með
halla. Skólanefnd samþykkti að
breyta reglum um skráningu í skóla-
mötuneytin þannig að kaupa verði
að lágmarki 10 máltíðir í mánuði að
jafnaði. Þessi breyting tekur gildi
frá og með 1. janúar 2004.
Sorphirðugjald | Framkvæmda-
ráð Akureyrarbæjar tók á síðasta
fundi sínum fyrir nýlega bókun nátt-
úruverndarnefndar þar sem því er
beint til ráðsins að hið fyrsta verði
hafinn undirbúningur þess að sorp-
hirðugjald heimila taki mið af magni
þess úrgangs sem frá þeim kemur. Í
tilefni af bókun náttúruvernd-
arnefndar lagði Valgerður H.
Bjarnadóttir fram eftirfarandi til-
lögu: „Lagt er til að á árinu 2004
verði unnið að undirbúningi skipu-
lagðrar flokkunar og endurvinnslu
sorps, í því augnamiði að minnka
sem frekast er unnt þann úrgang
sem fer til urðunar. Sérstök áhersla
skal í byrjun lögð á fyrirtæki og
stofnanir í eigu Akureyrarbæjar, en
stefnt skal að því, að á næstu þrem-
ur árum náist einnig að koma á al-
mennri flokkun á heimilum. Til
verksins verði áætluð sérstök fjár-
veiting 2004, að lágmarki ein og hálf
milljón.“ Framkvæmdaráð sam-
þykkti að fela framkvæmdadeild að
leggja fram áætlun um hvernig að
slíkum undirbúningi verði staðið.
Viðbygging | Framkvæmdasýsla
ríkisins hefur fyrir hönd heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins aug-
lýst eftir áhugasömum hönn-
unarteymum til að hanna viðbygg-
ingu við dvalarheimilið Hlíð á
Akureyri. Um er að ræða hæfnisval
og útboð. Viðbyggingin verður 3.600
fermetrar og er ætluð fyrir 60 hjúkr-
unarrými og stoðrými vegna þeirra.
Viðbyggingin verður byggð á lóð
Hlíðar. Hönnun byggingarinnar skal
að fullu lokið eigi síðar en í lok sept-
ember á næsta ári.
Sigurganga | Halldór Brynjar
Halldórsson heldur sigurgöngu sinni
áfram á skákmótum á Akureyri og
varð nokkuð öruggur Bikarmeistari
Akureyrar um síðustu helgi. Hann
hlaut 8 vinninga úr 9 skákum. Þór
Valtýsson varð annar með 4/2 vinn-
ing úr 8 skákum. Sigurður Eiríksson
varð svo þriðji og Skúli Torfason
fjórði.
Fischerklukkumót | Skákfélag
Akureyrar heldur svokallað Fisch-
erklukkumót á fimmtudagskvöld en
þar fá keppendur 3 mínútur á skák
auk 2 sekúndna sem bætast við við
hvern leik. Að venju er teflt í
Íþróttahöllinni og hefst taflið kl. 20.
SKÍÐASTAÐIR í Hlíðarfjalli hafa
fengið nýjan og fullkominn snjó-
troðara af gerðinni Leitner Prinoth
T4S til afnota. Hann er búinn 328
hestafla vél, með 5,5 metra tönn,
5,5 metra snjómyllu og fjallaspili
með 650 metra löngum vír. Spilið er
notað til að halda troðaranum í
snarbröttum brekkum og með heil-
snúnings armi er mögulegt að
keyra út og inn af spilinu sjálfvirkt
eftir því hvort troðaranum er ekið
upp eða niður brekku. Hann er
einnig búinn svokölluðum hálfpípu-
fræsara, sem notaður er til að gera
sérstakar stökkbrautir fyrir snjó-
brettafólk. Troðarinn er fluttur inn
af Vélaveri hf. og kostar um 27
milljónir króna með öllum búnaði.
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður Skíðastaða, var ánægð-
ur með nýja tækið, sem hann von-
ast til að geta farið að nota sem
fyrst. Töluvert hefur snjóað norðan
heiða en þó vantar enn nokkuð upp
á að hægt verði að opna skíðasvæð-
ið í Hlíðarfjalli. Guðmundur Karl
sagði að spáin væri góð, snjór í
kortunum og ef fram heldur sem
horfir er mögulegt að Akureyringar
komist á skíði um jólin. Göngu-
brautin í fjallinu er að verða góð og
styttist í að hún verði opnuð al-
menningi.
Morgunblaðið/Kristján
Nýr snjótroðari fyrir Hlíðarfjall afhentur. F.v. Magnús Ingþórsson, fram-
kvæmdastjóri Vélavers, Jóhann Sigurðsson, formaður stjórnar Vetrar-
íþróttamiðstöðvar Íslands, Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður
Skíðastaða, og Sigurjón P. Stefánsson, sölustjóri Vélavers.
Nýr snjótroðari
í Hlíðarfjall
Á SÍÐASTA fundi umhverfisráðs
Akureyrar var tekið fyrir erindi frá
Hafnasamlagi Norðurlands, þar sem
sótt var um að loka Oddeyrar-
bryggju með tveggja metra hárri
vírnetsgirðingu samkvæmt alþjóða-
samþykkt um siglinga- og hafnar-
vernd. Skipulags- og bygginga-
fulltrúi hafði heimilað
framkvæmdina fyrir fundinn.
Umhverfisráð átelur þau vinnu-
brögð sem viðhöfð hafa verið í þessu
máli og bendir á að samkvæmt
skipulags- og byggingarlögum eru
skipulags- og byggingarmál á for-
ræði bæjarstjórnar og girðingar í
bæjarlandinu falla undir þau lög.
Samkvæmt þeim tillögum sem
liggja fyrir er verið að rýra fullgert
útivistarsvæði að hafnarsvæði og
óskar umhverfisráð eftir við stjórn
Hafnasamlags Norðurlands að hún
endurskoði legu girðingarinnar og
leggi fram tillögu að nýrri staðsetn-
ingu fyrir umhverfisráð.
Jón Ingi Cæsarsson óskaði bókað:
„Það er óviðunandi að hér liggi
fyrir erindi þar sem búið er að fram-
kvæma það sem verið er að sækja
um. Ég legg því til að Hafnasamlag-
inu verði gert að taka niður girð-
inguna og ákveða síðan aðra stað-
setningu í samráði við
umhverfisdeild.“
Girðingin
burt?