Morgunblaðið - 10.12.2003, Qupperneq 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 21
Reykjavík: Kringlan 6 • Stóri turn • Sími 550 2000 • www.sphverdbref.is
Hafnarfjörður: Strandgata • Reykjavíkurvegur Garðabær: Garðatorg Verðbréf
Ávöxtun ...fyrir þig og þína
Síminn hefur lækka› stofngjöld heimilissíma og ISDN um allt a› helming.
Heimilissími ISDN Ver›: 6.900 kr.Ver›: 3.900 kr.
Ver› á›ur: 7.000 Ver› á›ur: 12.900
• Númerabirtir (50 númer)
• Símaskrá (20 númer)
• Hle›sla allt a› 150 klst. í bi›
• Taltími allt a› 12 klst.
• Dregur 50-300 metra
• Hægt a› tengja aukahandtæki
• 20 mismunandi hringingar
• Klukka/vekjaraklukka
• Endurval (10 númer)
• S‡nir lengd samtals
Panasonic TCD-652
Glæsileg jólagjöf
tveir fyrir einn
Allt a›
helmings-
lækkun á
stofngjöldum
heimilissíma
1.000 kr. færast mána›arlega á
símreikning næstu 12 mánu›i.
Léttkaupsútborgun 1.990 kr.
Ver› 13.990 kr.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
S
Í
A
/
N
M
1
0
8
5
1
Forstöðumaður Náttúru-stofu Reykjaness í Sand-gerði reiknar með aðfljótlega verði skipaður
starfshópur til að vinna að undir-
búningi Þjóðgarðs í sjó og ráðinn
starfsmaður til að gera skýrslu um
hugmyndina. Vonast hann til að
undirbúningsvinnu ljúki fyrir lok
næsta árs þannig að unnt verði að
taka ákvarðanir um framhaldið á
grundvelli hennar.
Sveinn Kári Valdimarsson, for-
stöðumaður Náttúrustofu Reykja-
ness, hefur kynnt hugmynd sína
um friðun svæðis í sjónum og
rannsóknir á áhrifum hennar á líf-
ríkið. Fékk Náttúrustofan fimm
milljóna króna fjárveitingu til að
byggja upp aðstöðu fyrir rann-
sóknir á hegðun fiska og til að
stofna vinnuhóp um verkefnið
Þjóðgarður í sjó. Sveinn Kári segir
að þetta sé heldur minna fjármagn
en sótt var um en hann vonast þó
til að hægt verði að koma verkefn-
inu af stað.
Út af Reykjanesi
Sveinn Kári segir að hugmyndin
sé upprunnin í Suðurhöfum þar
sem fiskur hafi vaxið og dafnað í
skjóli friðunar kóralrifa. Víðar hef-
ur verið gripið til friðunar til að
vernda kóral, meðal annars í Nor-
egi þar sem verið er að friða 1400
staði fyrir tilteknum veiðarfærum.
Upphaflega var Sveinn Kári að
velta fyrir sér möguleikanum að
friða svæði úti af Reykjanesi.
Hann segir þó ekki tímabært að
segja til um það nú. Fyrst verði að
fara í gegnum það hvers virði slík
friðun sé og ef niðurstaðan verði
jákvæð þá þurfi að ákveða hvaða
svæði henti best, hversu stórt það
eigi að vera og hvernig standa
skuli að friðun. Allt velti þetta á
niðurstöðum væntanlegs starfs-
hóps.
Verkefnið Þjóðgarður í sjó geng-
ur út á það að kanna hvort slík
friðun geti verið í sátt við þá sem
nýta hafið sem auðlind og hvort
slík svæðafriðun geti nýst við veiði-
stjórn. Í kynningu sinni á verkefn-
inu vekur Sveinn Kári athygli á því
að sú stefna í fiskveiðistjórnun sem
flestar þjóðir hafi tileinkað sér hafi
verið gagnrýnd harkalega á undan-
förnum árum. Rætt hafi verið um
að skoða þurfi hafið sem meiri
heild og að vernd og friðun bú-
svæða þurfi að fá aukið vægi. Ekki
megi byggja eingöngu á veiði-
stjórnun á einstökum stofnum
nytjafiska. Sveinn Kári segir að
nýlegar rannsóknir sýni að fiskar
verði stærri á friðuðum haf-
svæðum, stofnarnir verði þéttari
og nýliðun meiri en á sambæri-
legum óvörðum svæðum. Síðan hafi
veiðar aukist í kjölfar friðunar.
Sveinn segir að hugmyndin byggist
strangt til tekið fremur á ræktun
ákveðinna svæða en náttúruvernd.
Sveinn Kári leggur mikla
áherslu á að verkefnið verði ekki
unnið nema í góðri sátt við sjó-
menn. Því hefur hann lagt til að
sjómenn á starfssvæði Náttúru-
stofu Reykjaness eigi fulltrúa í
starfshópnum ásamt fulltrúum um-
hverfis- og sjávarútvegsráðuneyta,
Hafrannsóknastofnunar og
Náttúrustofu Reykjaness.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Í sátt við sjómenn: Sveinn Kári Valdimarsson segir að enginn þjóðgarður
verði stofnaður í sjónum nema með stuðningi þeirra sem hafið nýta.
Ræktun fremur
en náttúruvernd
Undirbúningur verkefnisins
Þjóðgarður í sjó hefst á næstunni
Suðurnes | Styrktafélag Heilbrigð-
isstofnunar Suðurnesja vill að heil-
brigðisþjónusta á Suðurnesjum
verði færð til sveitarstjórnanna. Á
aðalfundi félagsins sem nýlega var
haldinn var samþykkt ályktun þar
sem tekið er undir tillögu bæjar-
stjórnar Grindavíkur í þessu efni.
Miklar og heitar umræður urðu á
aðalfundinum um stöðu heilbrigðis-
mála á svæðinu og tillögur vegna
þess samþykktar, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu. Hörmuð
var staða læknismála á svæðinu og
skorað á heilbrigðisyfirvöld að finna
lausn á henni. Einnig óskaði fund-
urinn eftir skýrum svörum um
stefnu stjórnenda HSS og heilbrigð-
isyfirvalda um nýtingu D-álmunnar
en hún hafi verið byggð fyrir aldraða
sjúka á Suðurnesjum.
Í ályktuninni eru allir sem komið
hafa að uppbyggingu stofnunarinnar
hvattir til að tryggja að staðið verði
við gefin loforð og fyrri áform um
nýtingu D-álmunnar. Fram kemur í
fréttatilkynningu frá félaginu að
þörfin fyrir legudeild aldraðra sjúka
væri enn brýn þótt heimaþjónusta
hafi sem betur fer aukist á undan-
förnum árum. Enn væru í fullu gildi
markmið félagsins, sem og markmið
D-álmu samtakanna, að veita beri
öldruðum sjúkum sem fullkomnasta
þjónustu í heimabyggð.
D-álman fyrir aldraða
Stálu hljóðfærum | Hljómsveitar-
græjum að andvirði um hálf milljón
króna var stolið úr iðnaðarhúsnæði í
Njarðvík. Lögreglan fékk tilkynn-
ingu um þjófnaðinn síðdegis í fyrra-
dag. Úr bíl sem er í húsinu hurfu
einnig tvö staðsetningartæki, tal-
stöðvar og útvarpstæki.