Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 38
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRODDUR SÆMUNDSSON, Lerkilundi 30, Akureyri, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð miðvikudaginn 3. desember verður jarðsunginn frá Akureyr- arkirkju föstudaginn 12. desember kl. 13.30. Jarðsett verður í Lögmannshlíðarkirkjugarði. Birna S. Guðjónsdóttir, Katrín Þóroddsdóttir, Sæmundur Þóroddsson, Baldvin Þóroddsson, Petra Verschüer, Snjólaug Þóroddsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Kristín S. Þóroddsdóttir, Guðjón S. Þóroddsson, Kristín Magnadóttir, barnabörn og langafabörn. MINNINGAR 38 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Gyða ÞórdísJónsdóttir fædd- ist á Vatnsleysu í Biskupstungum í Ár- nessýslu 23. desem- ber 1922. Hún lést í Orlando í Flórída í Bankaríkjunum 29. nóvember síðastlið- inn. Foreldar hennar voru Margrét Gísla- dóttir, f. á Felli í Biskupstungum í Ár- nessýslu 2.7. 1881, d. 30.4. 1955 í Reykja- vík, og Jón Ágúst Jónsson, f. í Næfra- nesi í Mýrarhreppi í V-Ísafjarðar- sýslu 3.8. 1886, d. 10.2. 1933 í Reykjavík. Systkini Gyðu voru Gísli Matthías Jónsson, f. 24.12. 1909, d. 10.9. 1921 á Vatnsleysu í Bisk. í Árn., og Ingibjörg Jóns- dóttir, f. 26.6. 1912 á Vatnsleysu í Bisk., d. 4.11. 1999 í Reykjavík. Eiginmaður Ingibjargar var Grímur Gíslason, f. 6.10. 1913, d. 8.8. 1979. Börn þeirra eru: Margrét Gríms- dóttir, f. 3.9. 1934, d. 10.12. 1934; Gísli Ís- leifur Grímsson, f. 22.2. 1938, d. 1.4. 1939; Lucinda Grímsdóttir, f. 26.7. 1940; Almar Gríms- son, f. 16.4. 1942. Hinn 6. apríl 1951 giftist Gyða Ragnari Guðmundi Berg- sveinssyni, f. 15.7. 1922 í Aratungu í Steingrímsfirði í Strandasýslu. Börn þeirra eru: Margrét Ragn- arsdóttir, f. 9.3. 1953, eiginmaður: Magnús Steinþórsson, f. 30.7. 1949; Jón Ágúst Ragnarsson, f. 13.5. 1956. Útför Gyðu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Nú er hún látin hún elsku tengda- mamma mín, hún Gyða Jónsdóttir. Ég kynntist Gyðu minni er við Mar- grét byrjuðum saman fyrir allmörg- um árum. Gyða mín var alveg einstök mann- eskja, talaði alltaf svo fallega um alla og vildi öllum svo vel. Gyða hafði marga hæfileika, meðal annars gat hún sest fyrir framan pí- anóið og spilað allt sem maður vildi heyra og hef ég nú gaman af að segja frá því að er við Margrét vorum að kynnast komu Gyða, Ragnar og Jón niður í Torquay í Suður-Englandi þar sem ég rak hótel og gleymi ég því seint þegar Gyða settist niður við pí- anóið, sem var í salnum uppi rétt hjá barnum, og byrjaði að spila. Voru margir Íslendingar hjá mér þá, heil áhöfn að norðan, og varð nú mikil stemmning á staðnum, barinn opinn, Gyða spilaði, allir voru farnir að syngja gömlu slagarana, menn féllust í faðma og Íslendingar urðu Íslend- ingar á erlendri grund og hélt Gyða uppi fjörinu allt kvöldið og var þetta yndislegt kvöld. Eitt var það sem við Margrét gerð- um, að við gáfum mömmu og tengda- foreldrum mínum ferð til Orlando í jólagjöf. Þetta styttir jú alltaf vetur- inn hjá öllum og varð þá til þetta Or- lando-gengi eins og við fimm vorum kölluð af fjölskyldu okkar. Móðir mín og Gyða voru bestu vin- konur og veit ég að mikill er missirinn hjá móður minni. Það var einmitt í einni slíkri ferð sem hún Gyða mín veiktist. Var hún á sjúkrahúsi í nokkrar vikur, kom heim, búin að vera heima hjá okkur í nokkra daga, allt var mjög gott, hún farin að ná sér. Ég þurfti að skjótast til Lond- on. Þangað fékk ég hringingu um að Gyða mín væri dáin, hefði látist um nóttina. Ég gleymi aldrei þessari hlýju og góðu manneskju sem laðaði að sér alla. Þetta er mikill missir fyrir Ragn- ar en þau Gyða voru búin að vera gift í meira en 50 ár. Fyrir Margréti og Jón verða hlutirnir aldrei þeir sömu. Ég vil þakka fyrir það að hafa haft þá ánægju að eiga hana Gyðu fyrir tengdamömmu í þessi ár – alltof fá ár. Tengdasonurinn Magnús Steinþórsson. Þegar lokakallið kemur er maður jafnan óviðbúinn enda þótt hækkandi aldur leiði af sjálfu sér að hið jarð- neska líf fari að styttast. Móðursystir okkar kær, Gyða Jónsdóttir, lést skyndilega þegar við vorum að sam- fagna henni með bata eftir skurðað- gerð og sjúkdómslegu á Flórída. Gyða var okkur miklu meira en móðursystir. Hún bjó í foreldrahús- um okkar ásamt ömmu Margréti fram á unglingsár okkar og samband fjölskyldnanna eftir að hún giftist Ragnari og stofnaði sitt eigið heimili og börnin Margréti og Jón Ágúst var svo náið að eftirtekt vakti. Gyða bjó í Reykjavík frá 1929 en það ár fluttu foreldrar hennar úr Biskupstungum til Reykjavíkur. Hún gekk þar í skóla og þegar hún hafði aldur til fór hún að sinna ýmsum störfum. Gyða var mjög listræn og vann m.a. við að mála á lampaskerma í skermagerð, sem var til húsa í Lækj- argötu og þóttu hennar skermar bera af. Einnig vann hún um tíma í Út- vegsbanka Íslands og þá kynntist hún manni sínum, Ragnari, sem þá starf- aði í Lögreglunni í Reykjavík, síðast sem yfirvarðstjóri. Eftir að börnin voru komin á legg fór hún aftur út á vinnumarkaðinn og vann í mörg ár hjá Rammagerðinni og síðar hjá Islandia. Þar starfaði Gyða allt til síðustu áramóta og er okkur ofarlega í hug þakklæti til þeirra hjóna, Ástu og Bjarna, sem eiga þá verslun, fyrir elskusemi og tryggð við Gyðu. Á þessum tíma sorgar í fjölskyldu okkar minnumst við einnig foreldra okkar, Gríms og Ingibjargar, og hvernig þau náðu með Ragnari og Gyðu og okkur börnunum að mynda þessa sterku fjölskylduheild. Það er ekkert sjálfgefið í því en var svo mikið grundvallaratriði því að fjölskyldan var lítil eftir mikil áföll vegna skæðra sjúkdóma á fyrri hluta 20. aldarinnar. Systurnar tvær, Gyða og Inga, voru saman flestum stundum og allt svo samtvinnað að sem ein fjölskylda væri. Þannig höfum við ávallt litið á Möggu og Jón Ágúst sem yngri systkini okkar og á sinn hátt var Gyða eins og stóra systir. Hún var ávallt barnslega glöð og einlæg og sannkall- aður gleðigjafi ekki síst þegar hún settist við píanóið og lék af fingrum fram alla þá músík sem um var beðið. Var hún jafnvíg á gömlu lögin og nýj- ustu smellina. Það er því með þakklæti efst í huga sem við kveðjum Gyðu móðursystur og biðjum algóðan Guð að styrkja okkar góða vin Ragnar og frænd- systkini okkar Margréti og Jón Ágúst. Okkur er huggun í þeirri fullvissu að systurnar Inga og Gyða njóta nú samvista á æðri stað. Almar Grímsson, Lucinda Grímsdóttir. Ef ég væri orðin lítil fluga, ég inn um gluggann þreytti flugið mitt. Og þó ég ei til annars mætti duga, ég eflaust gæti kitlað nefið þitt. Litla Flugan, eftir Sigfús Halldórs- son. Þetta lag, eins og svo mörg önnur frá sama tímabili, mun ætíð minna mig á hana Gyðu frænku mína. Þrátt fyrir árangursríkan uppskurð og góð- ar batahorfur lést hún skyndilega. Einungis viku áður hafði ég náð tali af henni í síma, þar sem hún var í Flór- ída með manni sínum, dóttur og tengdasyni. „Paradís“ kallaði Gyða staði eins og þann. Ég hringdi í hana frá heimili mínu í Boston til að óska góðs bata og til að segja henni hversu spennt fjölskylda mín væri að fara heim um jólin. Þá var afráðið að við skyldum koma í hangikjötið til henn- ar á jóladag. En nú hefur þetta allt breyst og það minnir á hvað lífið er óútreiknanlegt. Í mínum huga var hún besta ömmusystir sem hægt er að hugsa GYÐA ÞÓRDÍS JÓNSDÓTTIR Erfidrykkjur Heimalöguð kaffihlaðborð Grand Hótel Reykjavík Sími 514 8000 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður, ömmu, langömmu, systur og mágkonu, BÁRU FRIÐBERTSDÓTTUR, Borgartúni 30a. Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónustunnar Karitasar. Friðbert Hafþórsson, Anna María Halldórsdóttir, Sigurþór Friðbertsson, María Ósk Friðbertsdóttir, Ólafur Þór Þorláksson, Óskar Bertel Friðbertsson, Birta Ósk Friðbertsdóttir, Nikulas Leó Sigurþórsson, Ingibjörg Friðbertsdóttir, Lára Friðbertsdóttir, Ármann Ármannsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR JÓNSSON fyrrverandi forstjóri Véltækni, sem andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, fimmtu- daginn 4. desember,verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 12. desember kl. 13.30. Kristinn Pétursson, Björk Þórarinsdóttir, Sunneva Pétursdóttir, Steinunn Pétursdóttir, Friðrik V. Guðmundsson, Pétur Már Sveinsson, Kári Friðriksson, Bára Friðriksdóttir, Alexander Kristinsson, Þröstur Kristinsson. Öllum þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur vinarhug, samúð og hlýju vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGIMARS RÓSARS SIGURTRYGGVASONAR blikksmíðameistara, Skólagerði 24, Kópavogi, færum við okkar innilegustu þakkir. Guðrún Jóna Zóphóníasdóttir, Sigurður Ingi Ingimarsson, Helga Óskarsdóttir, Soffía Margrét Ingimarsdóttir, Kristján Rögnvaldur Einarsson, Hafdís Ingimarsdóttir, Hugrún Ingimarsdóttir, Gunnar Vignir Guðmundsson, barnabörn og langafabörn. Ástkær sonur okkar og bróðir, ATLI THÓR BIRGISSON, lést af slysförum í Kaupmannahöfn laugar- daginn 29. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju föstu- daginn 12. desember kl. 13.30. Þið eruð öll velkomin. Við þökkum alla þá ástúð, þann kærleik og góða hug, sem okkur hefur verið sýndur á þessari erfiðu stundu. Guð blessi ykkur öll. Birgir Þór Bragason og Maríanna Friðjónsdóttir, Andri Thor Birgisson, Arnar Birgisson og Árni Heiðar Pálmason. Ástkær faðir minn, afi og langafi, EGILL SIGURGEIR JÓHANNESSON, andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn 8. desember. Sigríður Jóna Egilsdóttir, Sólveig Heiða Ingvadóttir, Arnar V. Grétarsson, Kristinn Þór Ingvason, Anna María Reynisdóttir, Egill Jóhann Ingvason, Sigurður Hrafn Sigurðsson og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BRYNHILDAR KRISTINSDÓTTUR, Víðilundi 24, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks kvennadeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Kristinn G. Jóhannsson, Guðbjörg Sigurðardóttir, Arngrímur B. Jóhannsson, Þóra Guðmundsdóttir, Ingi Þór Jóhannsson, Davíð Jóhannsson, Þórdís Sigtryggsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.