Morgunblaðið - 10.12.2003, Side 48
ÍÞRÓTTIR
48 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍT ferðir, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal,
sími 588 9900.
itferdir@itferdir.is www.itferdir.is
* Helgarferð til Manchester 6.-8. febrúar
Bolton-Liverpool, Everton-Manchester Utd.
Meðal gleðigjafa og skemmtanastjóra eru Guðni Bergs.,
Jón Ólafsson og Stefán Hilmarsson.
* Knattspyrnuskóli Bobbys Charlton
fyrir stráka og stelpur 12-17 ára.
Einnig tilvalið sem afmælis- eða fermingargjöf.
Nánar á heimasíðu okkar www.itferdir.is
ÍT ferðir - fyrir þig
Jólagjöf íþróttamanna
á öllum aldri er
íþróttaferð með ÍT
FÓLK
DAVID Moores, stjórn-
arformaður enska knatt-
spyrnufélagsins Liverpool,
hefur tilkynnt hluthöfum
félagsins að ekkert annað
sé viðunandi en að félagið
nái í það minnsta fjórða
sætinu í ensku úrvalsdeild-
inni í vetur og komast í
Meistaradeild Evrópu.
Liverpool hafnaði í
fimmta sæti úrvalsdeildarinnar í
fyrra en náði að vinna deildabik-
arinn. Moores sagði að sú útkoma
yrði að dæmast sem slakur árangur.
„Við förum í hverja keppni til að
vinna hana en meistaradeildarsæti á
hverju ári er okkar lágmarks mark-
mið. Árangurinn í fyrra var ekki í
samræmi við þær kröfur
sem við gerum til sjálfra
okkar og það sem okkar
stuðningsmenn vænta af lið-
inu,“ sagði Moores.
Orð stjórnarformannsins
eru túlkuð sem skýr skila-
boð til Gerards Houlliers,
knattspyrnustjóra, um að
hann verði látinn fara að
þessu tímabili loknu ef til-
skilinn árangur næst ekki. Liverpool
er í fimmta sætinu, þremur stigum á
eftir Fulham, en fjórða sætið gefur
keppnisrétt í lokaumferðinni fyrir
Meistaradeild Evrópu. Liverpool er
hins vegar 12 stigum á eftir Man-
chester United sem er í þriðja sæti
deildarinnar.
Gerard Houllier hjá
Liverpool fær aðvörun
Houllier
MARTRÖÐ NBA-liðsins Orlando
Magic er lokið en liðið lagði
Phoenix að velli í fyrrinótt,
105:98. Magic hafði fyrir leikinn
tapað 19 leikjum í röð en vinn-
ingshlutfall liðsins er samt sem
áður skelfilegt, 2 sigrar og 19
töp. Liðið er að sjálfsögðu í
neðsta sæti deildarinnar.
Þar með komu leikmenn liðsins
í veg fyrir að Magic kæmist í úr-
valshóp sex liða sem hafa tapað
20 leikjum í röð. Ekkert lið hafði
tapað jafnmörgum leikjum í röð
frá því að Denver Nuggets tapaði
23 leikjum í röð tímabilið 1997–
1998 líkt og Vancouver Grizzlies
sem tapaði 23 leikjum í röð 1995–
1996.
Cleveland Cavaliers á hins veg-
ar metið en liðið tapaði 24 leikj-
um í röð 1981–1982.
Þetta er aðeins í fjórða sinn á
tímabilinu sem Orlando skorar
meira ein 100 stig gegn andstæð-
ingum sínum.
„Vonandi getum við notað sig-
urinn sem stökkpall og í raun er
keppnistímabilið að hefjast á ný
hjá okkur. Það hefur verið öm-
urlegt að upplifa aðeins ósigra í
rúman mánuð,“ sagði Tracy
McGrady, stjarna Magic-liðsins,
eftir leikinn. Magic þarf að vinna
átta leiki til viðbótar til þess að
forðast vafasamt met Philadelphia
76’ers, sem vann aðeins 9 leiki af
alls 82 tímabilið 1972–1973.
Möguleikar Keflvíkinga á að náefsta sæti riðilsins felast
helst í því að ná hagstæðum úrslit-
um á heimavelli
gegn Toulon. Síð-
ustu tveir leikir ís-
lenska liðsins verða
á útivelli gegn Ov-
arense og Madeira.
Franska liðið hefur tapað tvívegis
í keppninni til þessa, á útivelli gegn
Madeira en það kom verulega á
óvart er Ovarense lagði Toulon í
Frakklandi.
Staðan í B-riðli er mjög tvísýn og
á íslenska liðið möguleika á því að
enda í efsta sæti riðilsins. Fram-
haldið á keppninni er sem stendur
nokkuð óljóst.
Toulon er samsett úr tveimur lið-
um, Hyeres og Toulon, en það eru
um 350 þúsund íbúar á svæðinu þar
sem liðið hefur aðsetur en liðið er
þekkt fyrir að hlúa vel að yngri
leikmönnum liðsins en um 500 eru
skráðir í franska félagið. Til sam-
anburðar æfa um 350 körfuknatt-
leik hjá Keflavík.
Toulon hefur lengst af leikið í 1.
deild en fyrir þremur árum komst
félagið í úrvalsdeild,
Þegar tíu umferðum er lokið í
deildarkeppninni í Frakklandi er
liðið í 10.-11. sæti með fjóra sigra
og sex töp en alls eru 18 lið í efstu
deild.
Franska landsliðið hefur náð
ágætum árangri undanfarin ár og
vann m.a. til bronsverðlauna á Evr-
ópumeistaramótinu sem fram fór í
haust í Svíþjóð.
Falur Harðarson þjálfari og leik-
maður Keflavíkur segir að franska
liðið sé vel skipað en ekki óyfirstíg-
anleg hindrun. „Við lékum illa úti í
Frakklandi gegn Toulon og ég tel
að við eigum að geta unnið þetta lið
á heimavelli. En þá þurfum við að
hitta mun betur en við gerðum í
fyrri leiknum.“ Falur segir að Toul-
on sé hávaxið lið, með góðar skytt-
ur, en að liprasti leikmaður liðsins
sé bakvörðurinn Jason Howe.
„Hann er fljótari en ljósið,“ segir
Falur og hlær. „Ég viðurkenni það
fúslega að hann slapp af og til
framhjá okkur í Frakklandi. En við
munum gera betur gegn honum á
heimavelli. Þar fær hann ekki að
stela boltanum af okkur, skjótast
fram völlinn og troða.“ En Howe er
25 ára gamall Bandaríkjamaður og
„aðeins“ 1,75 metrar á hæð. „Í lið-
inu eru einnig hávaxnar skyttur og
má þar nefna framherjann Ned-
eljko Asceric sem skoraði 18 stig
gegn okkur en hann er 38 ára gam-
all og var fyrstur fram í hraðaupp-
hlaupin.“
Falur telur að heimavöllurinn
muni skipta miklu máli. „Við ætlum
okkur að ná góðum árangri á
heimavelli og teljum að við séum
með lið til þess að gera þeim erfitt
fyrir,“ segir Falur.
Allir leikmenn Keflavíkur eru
heilir heilsu en síðustu leikir liðsins
í riðlakeppninni fara fram í Portú-
gal. Sá fyrri gegn Ovarense, þriðju-
daginn 16. desember og sá síðari á
eyjunni Madeira þann 18. desem-
ber. Madeira er eyja undan vest-
urströnd Afríku og er um tveggja
tíma flug frá Porto til Madeira.
Morgunblaðið/Sverrir
Jón Nordal Hafsteinsson á flugi með knöttinn í leik með Keflvíkingum gegn Madeira á dögunum.
Falur Harðarson segir að Keflvíkingar geti lagt
franska liðið Toulon að velli í bikarkeppni Evrópu
„Lékum illa í
Frakklandi“
FRANSKA liðið Toulon mætir Íslands- og bikarmeistaraliði Keflavík-
ur í kvöld í bikarkeppni Evrópu en leikurinn fer fram í Keflavík.
Þetta er þriðji heimaleikur Keflvíkinga í keppninni og jafnframt síð-
asti heimaleikur liðsins í riðlakeppninni. Suðurnesjaliðið hefur lagt
portúgölsku liðin Ovarense og Madeira á heimavelli en tapaði hins-
vegar fyrir franska liðinu á útivelli, 107:91. Falur Harðarson þjálfari
og leikmaður Keflvíkinga segir að ágætir möguleikar séu gegn
Toulon í kvöld.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
Loksins sigur
hjá Orlando
OLE Gunnar Solskjær, norski
landsliðsmaðurinn í knattspyrnu
hjá Manchester United, verður
ekki klár í slaginn með liðinu um
jólin eins og vonast var eftir. Sol-
skjær var skorinn upp á hné í sept-
ember og nú þykir ljóst að hann
mæti í fyrsta lagi til leiks í janúar.
ALAN Smith, sóknarleikmaður
hjá Leeds, er efstur á óskalista hjá
Arsenal, sem mun kaupa nýjan
sóknarleikmann þegar markaður-
inn verður opnaður í Evrópu í jan-
úar. Manchester United hefur
einnig áhuga að fá hann til sín.
JEAN Alain Boumsong, varnar-
maður Auxerre og franska lands-
liðsins í knattspyrnu, hefur ákveð-
ið að ganga til liðs við Glasgow
Rangers fyrir næsta tímabil. Liv-
erpool, Arsenal og Inter Mílanó
vildu öll fá hann til liðs við sig.
BOUMSONG sagði við Daily Re-
cord í gær að hann hefði ráðgast
við Jacques Santini, landsliðsþjálf-
ara Frakka, áður en hann tók
ákvörðun sína, og Santini hefði
mælt með því að hann veldi Rang-
ers. „Liðið spilar ávallt í Meist-
aradeild Evrópu eða í versta falli í
UEFA-bikarnum. Ég hef rætt við
Liverpool, Arsenal og Inter, sem
öll vildu fá mig en sögðu mér samt
að bíða um sinn. Ég ætla ekki að
bíða fyrst Rangers sýnir mér
svona mikinn áhuga,“ sagði Boum-
song.