Vísir - 04.02.1981, Blaðsíða 3
Miövikudagur 4. febrúar 1981
39 fóstrur í Kópa
vogi hófa verkfaili:
„Göngum út
20. tedp.”
„Við erum ekki allskostar
ánægðar meö það sem koma átti i
okkar hlut og ákváöum á fundi I
fyrradag, að ganga út af vinnu-
stöðum 20. febrúar n.k. Við höfum
þegar sent bréf varðandi þessa
ákvöröum til bæjarráðs”, sagði
Heiðrún Sverrisdóttir við Visi.
Sagði Heiðrún að þær hefðu
fengið 12. launaflokk i siðustu sér-
kjarasamningum, auk tveggja
undirbúningstima i viku. Hins
vegar hefði verið sett fram krafa
um 13. launaflokk og aldurshækk-
anir, og hefði verið lögð mikil
áhersla á siðarnefnda atriðið.
Samkvæmt þvi hefðu fóstrur átt
að fá 14. launaflokk eftir 2 ár og
15. eftir fjögur ár, hefði verið
farið að kröfum þeirra.
„1 starfsmannafélaginu i Kópa-
vogi fá allir starfsmenn eins
flokks hækkun eftir 15 ára starf,
og það á einnig við um okkur”,
sagði Heiðrún.
Fóstrur i Reykjavik, Hafnar-
firði, Seltjarnarnesi, Garðabæ, og
Akureyri hafa einnig boðað
vinnustöðvun. Frestuðu hinar
siðastnefndu uppsögnum, sem
koma áttu til framkvæmda 1.
febrúar og er gert ráð fyrir að
þær láti koma til vinnustöðvunar
um leið og fóstrur i Kópavogi.
Fóstrur i öðrum bæjarfélögum
hafa sagt upp frá og með 1.
febrúar.
Þá samþykkti Borgarráð
Reykjavikur i s.l. viku að fóstrur
skyldu fá tvo undirbúningstima á
viku, en Björgvin Guðmundsson
formaður Launamálanefndar
Reykjavikurborgar hefur látið i
ljós þá skoðun, að ekki sé tækt að
ganga lengra til móts við þær að
sinni. Fóstrur i Reykjavik munu
þvi standa við fyrri ákvörðun um
boðaða vinnustöðvun, vegna
óánægju með launaflokkana, að
þvi er Arna Jónsdóttir tjáði Visi.
—JSS.
vtsm
Það varð uppi fótur og fit hjá yngri kynslóðinni á Akureyri á laugardagsmorguninn, þegar þaö uppgötvaðist að um nóttina hafði snjóað
mikið — og það var „snjókarlasnjór”. Mörg listaverk uröu til viðsveg ar um bæinn og margir þeir eldri rifjuðu upp kunnáttu sina við
listsköpun úr snjó. Þessi myndarhjón búa við Helgamagrastrætið. GS/Akureyri.
FisKveröiö 09
siómanna-
samningar:
FRA RIKISSTJÚRNINNI"
„EKKERT LIGGUR FYRIR
„Það kemur undarlega fyrir
sjónir að almennt fiskverð, verð á
loðnu, rækju og hörpudiski skuli
ekki enn vera ákveðið, þegar þess
er gætt að rikisstjórnin sagði á
gamlársdag að Verðjöfnunarsjóði
sjávarútvegsins verði útvegað
nægilegt fjármagn til að tryggja
eðlilega afkomu fiskvinnsl-
unnar,” sagði Matthias
Bjarnason alþingismaður i spjalli
. viö fréttamanna Visis.
„Ekkert hefúr legið fyrir, frá
hendi rikisstjórnarinnar i þessum
efnum og þvi hafa aðilar I yfir.
nefnd verðlagsráðs ekki getað
gengið til fiskverðsákvörðunar.
Þeir vita ekki hvernig atvinnu-
vegurinn stendur. Þetta er
ástæðan fyrir að ekkert fiskverð
er tilbúið og að engir kjarasamn-
ingar sjómanna hafa verið gerðir.
Það er eðlilegt að sjómennirnir
séu að verða órólegir, vegna þess
að 22—23% launahækkun og verð-
bætur, sem aörir fengu i október
og 1. desember.
Svo er þáttur útgerðarinnar
hörmulegur, hún hefur orðið að
taka á sig stórfelld útgjöld vegna
mikillar verðbólgu. Oliugjaldið
rann út um áramót og útgerðin
veit þar af leiðandi ekkert
hvernig staða hennar er.
Helst mun vera talaö um innan
stjórnarinnar að láta i
Verðjöfnunarsjóð sjávarút-
vegsins og jafnvel færa þar á
milli deilda, en til þess þarf laga-
heimild og þaö er alveg vitaö mál
að hagsmunaaðilar munu aldrei
ljá máls á þvi að færa á milli
deilda.”
— Sv.
UTSOLUMARKAÐUR
(hús J. Þorláksson & Norðmann)
, Mikið Buxum-
úrval af skvrt™
peysum— úlpum — jökkum
— bolum — o.fl. o.fl.
Stórkostleg
verðlækkun
Vinnufatabúðin Skúlagötu 30
ifll