Vísir - 04.02.1981, Side 24
wimm
Miövikudagur 4. febrúar 1981
síminner 86611
Veðurspá
dagsins
Um 300 km vestur af
Snæfellsnesi er 990 mb lægð,
sem þokast austur. Enn dýpri
lægð vestan við Grænland á
hreyfingu norður. Draga mun
úr frosti og vestan til á landinu
verður orðið frostlaust með
kvöldinu, en sennilega kólnar
aftur fljótlega. Veðurhorfur
næsta sólarhring:
Suðurland tii Breiðafjarðar:
Suðaustan og sunnan kaldi eða
stinningskaldi með dálitilli
snjókomu og siðar slyddu i
dag, alihvöss suðaustanátt eða
hvasst og rigning i kvöld,
gengur i nótt i suðvestan eða
vestan stinningskalda með
slydduéljum.
Vestfirðir:
Suðaustan og austan
stinningskaldi i dag, en all-
hvasst i kvöld og nótt, dálitil
snjókoma eða slydda, einkum
er á liður.
Strandir og Norðurland
vestra:
Suðaustan gola og siöan
stinningskaldi, snjókoma með
köflum.
Norðurland eystra til Aust-
fjaröa:
Hæg breytileg átt og bjart
veður i dag, suðaustan kaidi
eða stinningskaldi og dálitil
snjókoma i kvöld og nótt.
Suöausturland:
Stillt og bjart veður i fyrstu,
suðaustan kaldi og snjókoma
siðdegis, fyrst vestan til.
Slydda i nótt.
VeöPiö hér
og par
Veður kl. 6 i morgun:
Akureyri léttskýjað -4-15,
Bergen skýjað 0, Helsinki
snjókoma h-4, Kaupmanna-
höfn skýjað 2, Osló léttskýjað
4-4, Reykjavik snjókoma 4-7,
Stokkhólmur skýjað 0, Þórs-
höfn hálfskýjað 4-2.
Veður kl. 18 i gær:
Aþena heiðskirt 10, Berlín
skýjað 5, Chicagoskýjað. Nuuk
skýjað 4-7, London skúr 7,
Luxemborg rigning 4, Las
Plamasléttskýjað 7, Maliorka
léttskýjað 10, Montreal
léttskýjað -15, N-Yorkskýjað
4-4, Paris rigning 9, Róm
þokumóða 8, Malaga heiðskirt
13, Vin skýjað 10, Winnipeg
skafrenningur 4-17.
Loki segir
t>að er alrangt að halda þvi
fram, að Björgvin Guðmunds-
son, borgarfulltrúi Aiþýðu-
flokksins, sé kærulaus — eins
og sumir hafa viijað halda
fram — allavega siðan hann
fékk á sig kæru fyrir verðlags-
brot hjá BÚR!
Steingrímur tregur til aö leyfa vaxtahækkun:
„BANKARHIR KOMU
VEL OT í FVRRA”
„ Bankarnír komu ákaf lega vel út á sfðasta ári, og miklu betur en maöur var lát-
inn halda fram eftir árinu, þannig að það verður að fara mjög varlega í það að
leyfa hækkanir á vöxtum útlána".
Þetta sagði Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegs- og samgönguráðherra,
þegar blaðamaður Vísis spurði hann í morgun álits á tillögum Seðlabankans í
vaxtamálum.
A fundi rikisstjórnarinnar i grimi Hermannssyni og Svavari og taka ákvarðanir i þeim efn
gær var þremur ráðherrum. Gestssyni falið að ræða vif um.
Gunnari Thoroddsen, Stein- Seðlabankann um vaxtamálin Steingrimursagði að það væri
ýmislegt i tillögum Seðlabank-
ans sem hann gæti ekki fallist á.
— sem dæmi nefndi hann,að sér
þætti miður að ekki skyldi vera
gert ráð fyrir vöxtum af sex
mánaða innlánum. Alvar-
legast væri þó ef tillögurnar
hefðu i för með sér almenna
hækkun á útlánsvöxtum, þar
sem ekki lægi fyrir að bankarnir
þyftu á þvi að halda.miðað við
afkomu þeirra á siðasta ári. P.M
Banasiys
Fjórtán ára drengur frá Þor-
lákshöfn, Olvir Gunnarsson
drukknaði siðdegis i gær.
ölvir var i fjöruferð i Þorláks-
höfn ásamt bekkjarfélögum og
kennara er slysið varð. Hann
hafði hætt sér m jög nærri sjónum
en mikið brim var á þessum slóð-
um og aðfall. ölvir stóð á bjargi
einu i fjörunni þegar mikið brim
skall yfir, og bar hann út á svip-
stundu. Slysið átti sér stað um
klukkan 15.30 en um klukkustund
siðar bar sjórinn lik piltsins að
landi.
ölvis Gunnarsson var fæddur,
5.10 1966 til heimilis að Reykja-
braut 14, Þorlákshöfn. _as
Bragi Guðmundsson
Bragl Guömundsson
læiur ai störfum
Um þessi mánaðaihót lætur
Bragi Guðmundsson, ritstjórnar-
fulltrúi Visis, af störfum hjá blað-
inu. Bragi hefur sett á stofn eigið
fyrirtæki, Krákus s.f.
Bragi Guðmundsson hefur
lengstan starfsaldur þeirra sem
nú starfa á ritstjórn blaðsins.
Hann hóf störf i júni 1962, fyrst
sem ljósmyndari en síðustu árin
sem ritstjórnarfulltrúi.
Visir vill þakka Braga fyrir
hans góðu störf i þágu blaðsins og
samstarf, sem verið hefur með
miklum ágætum. Honum er óskað
velgengni i nýju starfi.
Tvennir minningarhljómleikar um breska Bitilinn John Lennon, sem myrtur var í Bandarikjunum
fyrir skömmu, voru haldnir i Austurbæjarbiói i gær. Húsið var þéttsetið I bæði skiptin og eins og sjá má
á myndinni urðu allnokkrir að láta sér nægja að sitja á góifinu. Illjómleikarnir voru iátiausir, en vand-
aðir — enda komu fram margir af virtustu popptónlistarmönnum landsmanna, og voru undirtektir
áheyrenda mjög góðar. Visismynd:GVA
.JU.MN6T AB VÍÐ
QRÆNUM A LOKUN'
- segir Jón Sigurðsson. framkv.st). Járnblendiverksmlðjunnar
„Þessi lokun er engán veginn
gerð i ókkar þágu og sú fuliyrð-
ing, aö við högnumst á henni, er
alröng”, sagði Jón Sigurðsson,
framkvæmdastjóri járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundartanga,
i samtali við Visi.
„Vkð vonum hins vegar að við
förum sléttir út úr þessu með
þeim greiðslum, sem samið var
um. Þó erum við að taka vissa
áhættu. Þegar upp verður staðið
gætum við hafað tapað sölum
vegna þess að frameiðslan var
alveg stöðvuö.”
—■ Er ekki sölutregða á járn-
blendi núna?
,,JÚ, það er alveg rétt og við er-
um með nokkrar birgðir. Salan
gengur þó ekki verr en það, að við
getum lent i þeirri stöðu að verða
uppiskroppa með efni verði fram-
leiðslustöðvunin langvinn”.
— 1 hverju fefast greiðslurnar
'til ykkar?
„Við fáum launagreiðslur
starfsmanna greiddar og annan
hlaupandi kostnað sem á okkur
fellur. Vaxtakostnað fáum við
hins vegar ekki uppiborinn nema
að mjög litlp leyti”, sagði Jón
Sigurðsson.
—ATA
...næst ZUZUKi..og svo bústaöurinn