Vísir - 21.02.1981, Page 7
Laugardagur 21. febrúar 1981.
Molar
Jill Clayburgh og Walter Matt-
hau leika aðalhlutvekin i mynd-
inni First Monday in October se.m
nu er verið að gera í Bandarikj-
unum. Matthau leikur hæstarétt-
ardómara i frjálslyndara lagi en
Clayburgh leikur lögfræðing sem
verður fyrsta konan til að setjast I
hæstarétt Bandaríkjanna. Hún er
í ailra ihaldsamasta lagi og það
kemur til árekstra milli þeirra
tveggja. Annars er það helst talið
til tiðinda í umfjöllun banda-
riskra blaða um þessa væntan-
legu mynd að þetta verður vafa-
laust i fyrsta sinn sem Walter
Matthau leikur i mynd þar sem
hann þarf ekki að spranga um á
nærbol og röndóttum nærbuxum.
Sú fræga blaðakona, Oriana
Fallaci, var eitt sinn spurð hvaða
persónur sögunnar hún vildi helst
eiga viðtal við. Hún fékk 18 val-
kosti:
1.-2. Adam og Eva. (Þau komu
þessu öllu af stað.)
3.-5. Jesús Kristur, Júdas og
Maria Mey. (Ég er viss um að
Júdas hefur haft sitthvað að segja
um Meistarann. Og svo er þessi
spurning um meydóm Mariu.
Ætli það hafi verið einhver sætur
rómverskur hermaður? Og hvar
var sonur hennar milli 12 og 30
ára aldurs?)
6. Alexander mikli. (Dásamlegt
fifl).
7. -8. Hómer og Shakespeare.
(Sumir segja að Hómer hafi ald-
rei verið til. í viðtalinu myndi ég
ganga rækilega úr skugga um
það, til dæmis með þvi að fá að
lita á fæðingarvottorðið).
9. Spartacus. (Einhver mesti
maður sem lifaö hefur.)
VISIR
10-12.*. M'Ósfe's..*.Sþlómon og.
Dorttningin af Saba. ( Hvernig
gæti ég undanskilið þau?).
13.-14. Hitler og Napoleon.
(Hvað var Hitler alltaf að fitla við
Evu Braun? Og ég myndi spyrja
skepnuna Napoleon um listaverk-
in sem hann stal frá Flórens.)
15. Jóhanna frá örk. (Hlaut,
sem kvenréttindakona, aö taka
hana með.)
16.-17. Lenin og Marx.
(Auðvitað varö ég að hafa Lenín
með. En til hvers að tala við
Lenin án þess að lala við Marx?
Það þyrfti t.a.m. að spyrja hann
um meðferðina á eiginkonunni.
Hvar var vinnuverðgildiskenn-
ingin i þvi sambándi? Hann fór
með hana eins og lénsherra með
leiguliða sem hann á með húð og
hári. Immanuel Kant hefði
áreiðanlega haft eitthvað til mál-
anna að leggja um þetta mis-
ræmi).
18. Maður eða kona frá öðrum
hnetti — eða Dinósárus. (Ég
minntist ekki á Davið, Machia-
7
velli, Marco Polo, Tróju-Helenu,
Dante, Xerxes, Rimbaud. Þvi
miður varð ég að undanskilja þau
öll. Þvi, i sannleika sagt, langar
mig að nefna siðast menn eða
konu frá öðrum hnetti. Aö þvi er
virðist kemur það fortiðinni ekki
við en ég er þó ekki viss. Mann-
legri greind fer hrakandi og ég er
hrædd um að þegar risaeðlurnar
skriðu um svörðinn hafi mann-
skepnurnar verið nógu klárar til
að komast tl annarra hnatta án
hjálpar NASA.)
PH LEX-orlof shús
TILBÚIN TIL UPPSETNINGAR
145 þús.
jeprasen
> :
•t--
herbergi
5,5 ferm
bað
4 ferm
Stofa
17 ferm
forstofa
3 ferm 4^--
ferm
Borðstofa
herbergi
5,5 ferm
ii eldhús
!! 4 ferm
ii --
Skemmtilega hannað — er í einingum.
Innréttingar í eldhús, bað og svefnherbergi fylgja
Einangrað samkvæmt íslenskum staðal.
Grófbylgjaðar Etirnit plötur á þaki.
Hannað fyrir íslenskar aðstæður.
Upplýsingar í síma 13843
Rós í hnappagatið
Yorum að taka heim
gullfalleg eikarhúsgögn
fró Svíþjóð
\ö'
e
sJÍr
<$■
s
Síðumúla 23 — Sími 84200