Vísir - 21.02.1981, Blaðsíða 31

Vísir - 21.02.1981, Blaðsíða 31
Hilmar Björnsson Á hádegisverðarfundi Samtaka um vestræna samvinnu i dag, laugardag, mun Sverre Hamre, hershöíðingi og æðsti yfirmaður varna Noregs ræða um sjónarmið Norðmanna i varnarmálum og varnir á norðurslóðum. Ekki er aö efa að skoöanir Hamre eiga erindi til islendinga og þá ekki sist vegna þeirra um- ræðna sem fram hafa farið um varnarmál að undanförnu. Fundurinn er haldinn i Átt- hagasal Hótel Sögu, og hefst kl. 12 á hádegi. EKTACHROME litframköllun SAMDÆGURS EKTACHROMEog FUJICHROME E-6 litfilmur lagöar inn fyrir hádegi, afgreiðast samdægurs. Við framköllum samkvæmt ströngustu kröfum efna- og vélaframleiðenda um gæðaeftirlit, m.a. með daglegum ,,densitometer''-pruf um. Okkur þætti vænt um, ef þú vildir treysta okkur fyrir dýr- mætum filmum þínum. Verslið hiá • fagmanninum LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F. I Alir.4VFOI17R RFYKJAVIK SIMI 85811 Visls-bio a morgun Arabisk ævintýri nefnist bió- myndin sem blaðsölubörnum Vis- is gefst kostur á að sjá á morgun. Þessi ævintýramynd er spenn- imm ■■■«■■■■■■ ■ andi og skemmtileg og er hún i lit meö íslenskum texta. Arabisk ævintýri verða sýnd i Regnbog- anum og hefst sýning þeirra klukkan 13. Leiklð gegn Austurriki í dag: Allir klár- ir í slagínn Sigmundur Steinarsson blaðamaður Visis á B-keppninni í handknattleik skrifar frá Lyon i Frakklandi. „Leikurinn gegn A-Þjóðverj- unum sem við unnum sigur i um siðustu helgi tilheyrir nú fortið- inni og einnig úrslit hans i okk- ar augum. Við förum til leiksins i dag gegn Austurriki til þess að berjast eins og hver getur, það verður ekkert gefið eftir”. Þetta sagði Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari íslands i hand- knattleik, en islenska liðið leik- ur i dag sinn fyrsta leik i B-keppninni, gegn Austurriki og fer leikurinn fram i St. Etienne. Talið er vist að Hilmar tefli fram nær óbreyttu liði og sig- raði Þjóðverjana i Laugardals- höll um sfðustu helgi. Allir leik- menn Islands eru friskir og til- búnir i slaginn, og ákveðnir i að gera sitt besta. Þeir sem höfðu kaskótryggt bna sina hjá Samvinnutryggingum fá allt foktjónbætt. (Visismynd: EÞS) Samvinnutryggingar breyta skilmálum kaskðtrygginga: Allt foktjón bætt „Tjón á bilum vegna áfoks, það er þegar hlutir fjúka á híla og skemma þá, hefur ekki veriö bætt með kaskótryggingu tii þessa, en þeirri reglu höfum við nú ákveðiö að breyta”, sagði Bruno Hjaltested, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samvinnu- trygginga, á fundi með frétta- mönnum i gær. „Skilmálabreytingin gildir frá og með deginum áður en ó- veörið skall á 16. og 17. febrúar, og þvi er ljóst að allir þeir, sem höfðu kaskótryggt bila sina hjá Samvinnutryggingum, fá allt foktjón bætt”. Ennfermur sagði Bruno, að heimilistryggingar Samvinnu- trygginga bættu allt tjón, sem orðið hefði á innbúi af völdum ó- veðursins, og húseigendatrygg- ing bætti óveðurstjón á hinni tryggðu húseign. Hins vegar geta húseigendur, sem ekki hafa tekið þessar tryggingar, ekki búist við að fá bætt tjón á húseign sinni af völd- um foks, ábyrgðatryggingin ein nægir ekki til þess. _ATA Verður halís landfastur vlð Norður- og Norðausturiand?: „Niðurstöður rannsóknarinnar um ástand sjávar og hafísinn benda til þess að isinn geti enn rekið i átt til landsins og jafnvel rekið upp að öllu Norður og Norð-austurlandi þegar liður á veturinn... — Þetta ber ekki að skoða sem „spá”, heldur sem túlkun á göngum og hugsanlegum horfum samkvæmt þvi... Þetta segir m.a. i tilkynningu sem Hafrannsóknarstofnunin hefur sent frá sér i kjölfar sjó- rannsóknarleiðangurs Arna Friðrikssonar 2.-17. febrúar s.l. 1 skýrslunni segir að rétt sé að vara við þvi að svipað ástand og var i þessum málum 1979 og á isa- árunum 1965-1970, eða jafnvel verra geti skapast og að það þurfi ekki að koma á óvart. gk- JElsti ylirmaður varna Noregs: RÆÐIR VARNIR Á NORDURSLÚÐUM ‘ Láugárclagur '21. februar 1981 Stórar sðlur á lagmeti tii Sovétmanna: Soyétmem gafíalbita Samningar hafa náðst við sovétmenn um sölu til þeirra á gaffalbitum fyrir um 17 milljónir króna (1,7 milljarð gkr.). Sölustofnun lagmetis samdi við fyrirtækið „Prodintorg” um sölu á gaffalbitum fyrir 10 milljónir króna, og við sovéska samvinnu- sambandið um sölu fyrir 7 milljónir króna til viðbótar, með aðstoð Iðnaðardeildar SIS. Sovétmenn hafa sýnt áhuga á að kaupa aðrar lagmetistegundir af okkur og er vonast til að samningar takist um það á næst- unni. I nýjum viðskiptasamningi Islands og Sovétrikjanna er gert ráð fyrir þvi að sovétmenn kaupi af okkur lagmeti fyrir upphæð sem getur numið um 43 milljón- um króna eða um 4.3 milljörðum ekr. gk-. „Ekki spá heldur túlkun á gögnum" Greiðslujðfnuður og gjaldeyrir 1980: ðhagstæður við- skiptajðinuður Samkvæmt yfirliti frá Seðlabanka Islands um þróun ýmissa þátta greiðslujafnaðar og gjaldeyrismála, 1980 kemur m.a. í Ijós að mikil aukning varð á útf lutningi frá fyrra ári eða um 16.2% aukning. Aukning innflutnings varð þó heldur meiri en útf lutnings og munar þar mestu um stóraukinn flugvélainnflutning. Innflutnings- aukning milli ára var 17,3%. Varðandi þætti i greiðslujöfnuði við útlönd kemur fram að vöru- skiptajöfnuður, þjónustujöfnuður og viðskiptajöfnuður voru óhag- stæðari en á árinu 1979. Bráðabirgðatölur um þjónustu- jöfnuð benda til þess að hann hafi orðið óhagstæðurum 43 milljarða króna, sem er 20 milljörðum ó- hagstæðara en árið áður. Þá má ætla að viðskiptajöfnuður hafi orðið óhagstæður um 32 milljarða króna og er viðskiptahallinn áætl- aður um 2,5% en var 0.9% 1979. Þá kemur fram varðandi fjár- magnsjöfnuð að nettóaukning langra lána hafi numið um 63 milljörðum króna á móti 44 milljarða aukningu 1979, reiknað á sama gengi. Fjármagnsjöfnuð- ur, sem er yfirlit yfir þær eigna- hreyfingar sem eiga sér stað vegna viðskipta við útlönd, var hagstæður um 59 milljarða, þar sem jöfnuður á öðrum fjár- magnshreyfingum var óhagstæð- ur um 4 milljarða króna. Þá kemur fram i yfirliti Seðla- bankans að gjaldeyrisstaða bank- anna hefur batnað á árinu 1980 um 27.6 milljarða króna, reiknað á gengi i árslok, en batnaði um 29.7 milljarða árið 1979. Frá ársbyrjun til ársloka árið 1979 hækkaði gengi erlendra gjaldmiðla um 26.5% en á siðasta ári um 54.3%. —AS 9

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.