Vísir - 21.02.1981, Page 12

Vísir - 21.02.1981, Page 12
VlSIR Laugardagur 21. febrúar 1981. Mauratónlist Sú hljómsveit sem einna mesta athygli hefur vakiö i Bretlandi undanfarið er Adam and the Ants. Þessi hljómsveit hefur átt hvert lagið af ööru á vinsældarlistanum yfir smáskifur þar i landi og um tima voru þau 4 talsins lögin með Adam and the Ands sem gistu listann. Einnig hefur breiðsklfan Kings of the Wild Frontier haldið toppsætinu um nokkurra vikna skeiö. avari; — „ hvitír i onar Nafn trommarans Phil Collins er tengt nær órjúfanlegum böndum nafni hljóm- sveitarinnar Genesis. Allt frá því Collins steig úr trommarasæti sínu og hóf upp raust sina er Peter Gabriel yfirgaf Genesis um miðjan síðasta áratug og til dagsins í dag, hefur Collins haft lag á að koma mönnum i opna skjöldu. Pönk En hvaða fyrirbæri er þetta eiginlega kynni einhver að spyrja. Adam Ant forsprakki hópsins er lærður myndlistar- maður og stofnaði fyrstu útgáf- una af hljómsveitinni árið 1976 um svipað leyti og Sex Pistols gerðu garðinn frægan. Komst Adam brátt i tæri við Malcolm McLaren klámbúðareiganda og umboðsmann Sex Pistols og annar aðili i sömu starfsgrein Jordan að nafni gerðist umbi Adams og mauranna. Jordan tókst með bellibrögðum að bóka hljómsveitina á ýmsa klúbba á fölskum forsendum og hafði það ýmsarmiður góðar afleiðingar i för með sér. Þegar pönkkvik- myndin Jubilee var i fram- leiðslu tokst Jordan að koma Adam and the Ants i hlutverk i myndinni. Skapaði þetta hljóm- sveitinni nokkra hylli. Ekki gekk þeim þó allt i haginn. Litil sjálfstæð hljómplötuútgáía tók að sér að gefa út nokkrar litiar plötur með hljómsveitinni og eina breiðskifu, en aldrei komu inn neinar tekjur fyrir gerð þessara piatna. Einn á báti Árið 1979 stóð Adam uppi með nafnið á hljómsveitinni en enga liðsmenn þarsem Malcolm McLaren hafði hreinlega stoliö hljómsveitinni (heitir nú Bow Wow Wow), frá honum. Adam var þó ekki á þvi að gefast upp þó pönkguðinn McLaren hefði rekið hann útúr paradis. Raunar segist Adam vera McLaren mjög þakklátur fyrir að hafa gert sér þetta þvi það var ekki fyrr en eftir að þetta gerðist að hjólin fóru að snúast honum i hag. Adam skaut á fundi með gitarleikaranum Marco, setti hljómsveit á lagg- irnar og saman pældu þeir i hvaða stefnu þeir ættu að taka. Þeir leituðu til Afriskrar þjóð- legrar tónlistar m.a. tónlistar Zulu manna, könnuðu tónlist ameriskra indiána og annarra frumstæðra þjóðflokka og reyndu að sameina áhrifin hefð- bundnu rokki. „Við ákváðum að finna tónlistinni okkar mjög ein- kennandi hljóm sem auðvelt væri að þekjkja hana á.Einsog þegar þú heyrir i Abba, þa veistu að það eru Abba”, segir Adam Ant. „Pólarnir tveir i tón- list okkar eru tveir trommuleik- arar og Adam annast sjálfur sönginn, Marco leikur á gitar og þeir semja einnig allt efni hljómsveitarinnar. Krafturinn er svo i trommuleiknum og bassaleiknum. Textarnir fjalla um Antmusic og Sexpeople, eða einsog segir i einum textanum, að þá dreymir um nýtt skeið mauratónlistar. Music for the future / don’t be square be there / all good clean fun / Antmusic for Sexpeople / Sexpeople for Antmusic. Vinsældir Adams and the Ants eruef til vill aðeins loftbóla sem á eftir að springa, en það kemur i ljós með næstu plötu þeirra hvort þeim tekst aö halda at- hyglinni jafn óskiptri og nú siðustu vikurnar. —jg Fjölbreytni Þaö átti enginn von á öðru en að dagar Genesis væru taldir er andlit hljómsveitarinnar, söngvarinn og leikarinn Peter Gabriel tilkynnti brottför sina árið 1975. Þaö kom mönnum þvi verulega á óvart hversu kraft~ mikill söngvari Phil Collins reyndist vera. Þessi trommari sem i æsku hafði fengist við leiklist, er á meðal bestu trommara Breta i dag þó hann sé ákaflega umdeildur. Vinsældir Genesis eru gifurleg- ar og virðast þeir geta boðið ádáendum sinum næstum hvað sem er án þess að styggja þá einsog v insældakosningar Melody Maker sl. ár sýndu glöggt. Genesis vann yfirburða- sigur á flestum sviðum i þeim kosningum, þrátt fyrir að platan Duke sem út kom i fyrra hafði ekki fengið sem besta dóma. Phil Collins er sá þeirra þremenninga sem skipa Genesis sem auöveldast á með að vinna með ólikustu tónlistar- mönnum. Meðal þeirra sem hann hefur leikiö með eru Robert Fripp, Brian Eno, Peter Gabriel, John Martyn og John Stevens, auk þess hefur hann djammaö með Pete Townsend. Einnig hefur hann verið meölimur jazzrokk sveitarinnar Brand X, meö skrykkjum frá þvi hún var stofnuð. Face Value 1 viðtali við Melody Maker sem birtist nýlega i tilefni nýút- kominnar sólóplötu hans Face Value, kemur m.a. fram að Genesis eru að vinna að nýrri plötu um þessar mundir. Einnig kemur ýmislegt annað fram, s.s. þaö aö skoöanir þeirra Genesismanna stangast nokkuð á hvaö úrvinnsluaðferðir snertir. Phil er mjög hneigður aö svartri tónlist og á sólóplötunni sinni notar hann m.a. jazzrokk bassistann Alphonso Hohnson, blásarasveit Earth Wind & Fire og kór blökkubarna til aö fá fram soul áhrif i tónlistina. Útse.triingar eru allar léttari og frjálsari en hjá Genesis og meiri tilfinning rikir i flutningi laganna. Genesis plata ,,Ég átti mjög mikið af lögum sem ekki voru Genesis-leg” segðir Phil Collins. „Og lög sem hefðu ekki komið til með að hljóma einsog ég vildi ef ég hefði látið Genesis spila þau inn”. Um nýju Genesis plötuna sem er i bigerð segir Phil m.a. „Viö eigum nóg efni á tvær plöt- ur” og að auki segir hann að hver um sig eigi nægjanlegt efni á fleiri sólóplötur. Þau lög sem hljóðrituð verða fyrir næstu Steve Winwood — Arc of a Diver Island ILPS 9576 Steve Winwood á margt sameiginlegt með nafna sin- um Wonder. Báöir hófu þeir feril sinn mjög ungir að árum og vöktu strax mikla athygli. Þeir eru báöir verulega snjallir að handleika hin ýmsu hljóðfæri og semja mjög góö lög sem hreinlega setjast aö i huga manns. Steve Winwood sendir nd sina aðra sólóplötu á markaðinn og vinnur hann allt sjálfur d þessari plötu. Hin til- finningarika söngrödd Win- woods nýtur sin mjög vel á lögunum sjö sem eru á plöt- unni eru. Gamla Traffic til- finningin svifur yfir vötnunum án þess þó aö brjótast i gegn að verulegu leyti og i heildina er þessi plata mjög þétt og heilsteypt. Textasmiðirnir þrir sem S.W. fær til liðs viö sig hafa smiðaö visur sem falla vel að lögunum. Hljóð- færaleikurinn er einfaldur en þó mjög smekklegur og kemst Winwood mjög vel frá honum. Arc of a Diver er plata sem sækir sjálfkrafa á fóninn eftir að hdn er einu sinni komin i grennd við hann. Genesis plötu verður allt saman efni sem þeir hafa unnið i sam- einingu. I viötalinu i MM kemur einnig fram að þegar Keith Moon trommari Who lést, bauðst Phil til aö segja starfi sinu i Genesis lausu til að taka sæti Keiths i Who. Pete Townshend var hins- vegar nýbúinn að ráða Kenny Jones i starfið og eiga Genesis aðdáendur Kenny þessvegna ýmislegt að þakka. Phil segist vera ánægður með stefnu Genesis og ætla að halda starfi sinu áfram til að reyna ýmislegt s.s. að stofna nýja hljómsveit á næstunni, en bætir siöan viö „Það verður ekki á kostnað Genesis”. • — jg 1965- 80 Adam & the Ants Basement 5 — 1965 — 1980 Is- land ILPS 9641 Basement 5 er rokk/reggae trió/kvartett, sem um margt minnir á frumherja pönksins. Forsprakki hópsins Dennis Morris er svartur semog bass- istinn Leo og gitaristinn J.R., en trommarinn Richard Du- danski sem er hvitur, starfaði áður með Public Image. Hann virðist vera eins konar auka- meðlimur hljómsveitarinnar. Dennis ólst upp á meðal hvitra barna og þar var þaö rokkið fremur en reggaeiö sem átti hug hans. Þegar pönkiö hóf innreið sfna fylgdist hann meö þvi, fyrst sem „freelance” ljósmyndari en siðar sem starfsmaður Island útgáf- unnar. NU er Dennis söngvari og hugmyndarfræöingur Basement 5, pólitiskrar hljómsveitar sem hellir úr reiðiskálum sinum á plötunni 1965—1980. Tónlistin er þungt og hrátt rokk annarsvegar og hinsvegar grunnt reggae eða dub sem bassinn keyrir aðal- lega áfram. Að minu mati er B.5 ein athyglisveröasta hljómsveit Breta i dag og plata þessi verulega góð áheyrnar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.