Vísir


Vísir - 26.02.1981, Qupperneq 28

Vísir - 26.02.1981, Qupperneq 28
mm Fimmtudagur 26. febrúar 1981. síminner 86611 Veðurspá úagsins Klukkan 6 var um 995 mb smálægð skammt suöur af Hornafirði á hreyí'ingu noröur og siðan norðvestur. Um 1077 mb hæð yfir Norðurlöndum. Austanlands hlýnar nokkuö en annars verður hiti nærri lrost- marki. Suðurland til Breiðafjarðar: Austan eða norðaustan 3-5 og sumstaðar dálitil él i dag, en siðar suðaustan 3-5 og él. Yestf irðir til Norðurlands eystra: Gengur i noröaustan eða norðan 5-7 með snjókomu i dag, fer að lægja i nótt. Austurland að Giettingi og Austfirðir: Gengur íljótlega i suðaustán 7-9 .með rigningu en fer að lægja i kvöld. Suðausturland: Austan 3-9 og rigning austan til, en hægari vestar, fer að lægja i nótt. Veðríö hér og har Klukkan ti i inorgun: Akureyri skýjað 1, Bergen skýjað -=-1, Ilelsinki skyjaö •5-5, Kaupmannahöfn léttskyj- að -5-2, Osló alskyjaö h-3, Heykjavik skyjaö 1, Stokk- liólmur þokumóða -5-1, l>órs- liöfn alskýjaö 5. Klukkan 13 i gær: Aþena iéttskýjaö 3, Bcrlin heiðskirt -5-1, t'hieago létt- skýjað 6, Feneyjar skyjaö 3, Krankfurt þokumóða 3 Nuuk léttskýjað -5-13, Londonmistur 1, Luxemburg þokumóöa 5-1, Las 1‘almas skýjaö 13, Mall- orkaskýjað9, New Yorksnjó- él 5, l’aris þokumóða 2, Kóm rigning 7, Malaga skýjaö 14, Yin heiðskirt 1. SERFRÆÐINGAR HAFRANNSOKNARSTOFNUNAR FUNDUÐU I GÆR: ATELJA HARÐLEGA FRAMKOMU EYJÖLFS Fjölmennur fundur scrfræð- inga ilafrannsóknarstofnunar geröii ályktun um loönumælingar stofnunarinnar i janúar og febrúar og lýsti þvi yfir, að bæði aðferöir og niður- stöður væru áreiðanlegar. ~ F'undarmenn lýstu trausti á Hjálmar Vilhjálmsson og Pál Reynisson, leiðangursstjóra, og „átelja harðlega framkomu Eyjólfs Friðgeirssonar i þessu máli og vænta þess að ekki verði endurtekning á slikum vinnu- brögðum i samskiptum við starfsmenn stofnunarinnar og aðra". Eyjólfur var i morgun spurður álits á þessari sam- þykkt, og sagði þá að hann harmaði að málið skuli hafa verið „blásið út i fjölmiðlum, en hins vegar hefur það orðið til þess að það var te'kið fyrir mál- efnalega i fyrsta sinn innan stofnunarinnar á fundinum i gær”. Hann sagði ennfremur, að hann og Hjálmar Vilhjálmsson hefðu verið saman á Bjarna Sæmundssyni. ,,Við unnum saman og beittum sömu aðferð- um, en okkur greinir hins vegar á um niðurstöður. Jón Jónsson hefur i fjölmiðlum reynt að kasta rýrð á þær aðferðir, sem ég beiti og gera þær tortryggi- legar. Þessar starfsaðferðir for- stjórans eru fyrir neðan allar hellur”, sagði Eyjólfur enn- fremur. Hundalif og mannlif i Austurstræti. Visismynd: Friðþjófur. Strand Heimaeyjar: SJÚPRÚF HÚF- USTí MORGUN Sjópróf vegna skipsstrands Heimaeyjar VE 1 hófust i morg- un i Vestmannaeyjum. Heimaey VE 1 er enn á strand- stað, tekist hefur að þoka henni nær flæðarmálinu, en minnkandi straumur hefur ekki enn gert það kleift að ná skipinu á flot. Siys í Straumsvík: Steig niður í rauf á álkeri Maður, sem starfað hefur hjá Alverinu i Straumsvik i 10 ár, skaðbrenndist á aðfararnótt þriðjudags er hann féll niður um 30 sentimetra rauf, er liggur langsum eftir álkeri. Alið er um 980 stiga heitt en maðurinn var við sýnistöku og virðist hafa stigið upp á kerkantinn og skrikað fótur. Hann brenndist upp að hnjám en einnig á hendi, þarsem hiti er gifurlegur i nánd við ker þessi. Hann liggur nú á sjúkra- húsi illa haldinn. Einar Guðmundsson verkfræð- ingur i álverinu var að þvi spurð- ur hvort ekki ætti að vera ör- yggisgrindur yfir raufum þess- um, og svaraði hann þvi til að til þess að taka sýni eigi ekki að þurfa að stiga upp á kantinn, eins og hann hefur gert. Annars eru tildrög slyssins ekki fyllilega ljós. Rannsóknarlögreglan sér um at- huganir á vinnuslysum og hefur nú mál þetta til rannsóknar. —AS. LOKI seglr „Helmingurinn af þeim mál- um, sem eru lögð fram á Alþingi, er tóm vitleysa". Ilver sagði þetta? Einhver táðurrifsmaðurinn, sem er að ráðast á þingið? Nei, það var einn þingmannanna, Guðrún lielgadóttir, sem lýsti þessu yfir ivitKaiif sjónvarpinu. Er ncma von að almenningi litist ekki á þingheim? „SVONA GETUR ÞETTA EKKI GENGIB LENGUR - segir Frlðrik Einarsson. forstöðumaður um málelni sjúks aidraðs fölks ,,Eg hef oft lýst þvi áliti ntinu að ég tel þessi mál vera i agaleg- unt ólestri, ég nota orðið agalegt um þetta, það er öllum ljóst hvernig ástandið er” sagði Frið- rik Einarsson forstöðumaður Ilafnarhúða, en þarcrrekin lang- legudeild fyrir aldrað sjúkt fólk. Við ræddum við F'riðrik i frain- haldi þeirrar umræðu sem orðið hefur að undanförnu um málefni aldraðra, og ber öllum saman um að þar sé brýnna úrbóta þörf, sjúkrarými vantar svo tilfinnan- lega fyrir þetta fólk. „Hér i Hafnarbúðum eru rúm fyrir 25 sjúklinga og viö rekum einnig dagspitala. I 21 af þessum 25 rúmum eru sjúklingar sem biða dauða sins og losna þau rúm ekki fyrr en einhver deyr. Legu- plássin eru eingöngu fyrir skurð- lækningadeild Borgarspitalans og þar biða 15-20 manns eftir plássi hér og annað eins á Lyflæknis- deildinni af gömlu innlyksa fólki sem hefur forgang varðandi þessi pláss”. — Hvað er hægt að gera til úr- bdta, hvað er brvnast að þinu rnati?. „Ég jr i nefnd sem heitir Þjón- ustuneind aldraðs fólks og við höldum fundi einu sinni i viku þar sem við börmum okkur og berum saman bækur okkar varðandi það hvað hægt sé að gera, en satt að segja erum við ráðalitil. Hið opin- bera verður auðvitað að byggja, eða þá að einstaklingar taki sig saman um einhverjar fram- kvæmdir, þetta getur ekki gengið svona öllu lengur.” Sjá einnig bls. 3- gk-.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.