Morgunblaðið - 16.02.2004, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 46. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Gleyma ekki
afmælum
Hjónin Þorsteinn og Þóra eru fædd
sama daginn | Daglegt líf
Fasteignablaðið | Fyrsta heimili Þorgerðar Katrínar 18
hæða hús í Kópavogi Íþróttir | Óvænt úrslit í körfubolt-
anum Eyjakonur unnu góðan sigur í Frakklandi
Fasteignir og Íþróttir í dag
NÝ reglugerð Evrópusambandsins
heimilar samkeppnisyfirvöldum að leita
á heimilum stjórnenda fyrirtækja þegar
rökstuddur grunur er fyrir því að þar
séu geymd gögn er varði brot á sam-
keppnisreglum, sagði Jóna Björk Helga-
dóttir lögfræðingur á málþingi Orators í
Háskóla Íslands í gær. Kemur reglu-
gerðin til framkvæmda síðar á árinu.
Með því er brugðist við þeirri þróun að
gögn sem varða samráð er síður að finna
í starfsstöðvum viðkomandi fyrirtækja.
Jóna Björk sagði að Bretar hefðu
breytt löggjöf sinni árið 2002 þannig að
nú væri bresku samkeppnisstofnuninni
heimilt að koma fyrir hlerunarbúnaði og
eftirlitsmyndvélum í íbúðarhúsnæði,
hótelum og einkabifreiðum við rannsókn
á samráðsbrotum fyrirtækja.
Heimir Örn Herbertsson lögmaður
taldi að ekki væri knýjandi að breyta lög-
um á Íslandi ef samkeppnisyfirvöld vildu
fara inn á þá braut að gera húsleit heima
hjá starfsfólki fyrirtækja. Heimildir til
rannsóknar væru geysilega opnar.
ESB-reglur um
samkeppnismál
Húsleit heima
hjá starfsfólki
heimiluð
Efast/6
FJÓRIR menn, tveir Íslendingar og tveir Lithá-
ar, eru eftirlýstir af lögreglu í tengslum við lík-
fundinn í Neskaupstað á miðvikudag. Hafa lög-
regluembættum víða um land verið sendar
ljósmyndir af fjórmenningunum og hefur lög-
reglan á Keflavíkurflugvelli leitað mannanna í
hópi farþega á leið úr landi.
Þar er enn unnið hörðum höndum að því að
skoða myndir af fólki sem kom til landsins með
flugi síðustu daga og bera saman við teikningu
og ljósmynd af líkinu, en í iðrum mannsins fund-
ust fíkniefni við krufningu og er því talið að hann
hafi verið nýlega kominn til landsins.
Þá hefur lögreglan í Fjarðabyggð óskað eftir
því að allir þeir ökumenn sem voru á ferð um
Fagradal og Oddskarð eftir miðnætti aðfara-
nætur mánudags, þriðjudags og miðvikudags í
síðustu viku, hafi samband við lögreglu.
Til viðbótar því að rannsaka ferðir á svæðinu
mun lögregla hafa til skoðunar hverjir tóku bíla-
leigubíla dagana áður en líkið fannst, hverjir
flugu innanlands, bókuðu gistingu á svæðinu og
annað í þeim dúr. Einnig er hægt að rekja ferðir
manna með því að skoða hvaða símstöðvar far-
símar þeirra hafa skráð sig inn á og ekki ólíklegt
að lögregla reyni að rekja ferðir fjórmenning-
anna með þessum hætti. Greiðslukortafærslur
geta einnig gefið mikilvægar upplýsingar.
Tíu manna hópur lögreglumanna, þar af sex
rannsóknarlögreglumenn frá embætti ríkislög-
reglustjóra, vinnur nú í Neskaupstað að rann-
sókninni. Enginn hefur enn verið handtekinn.
Fjórir eftirlýstir vegna
líkfundarins í Neskaupstað
Lögreglumaður að störfum í gær á bryggj-
unni í Neskaupstað þar sem líkið fannst.
Myndum af mönnunum dreift til lögregluembætta víða um land
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
ÖFLUGUR jarðskjálfti, 5,7 á Richter, varð að minnsta kosti 22 mönnum
að bana og eyðilagði hundruð húsa í Norður-Pakistan í fyrrakvöld. Þessi
fjölskylda missti allt, sem hún átti, en illa gekk að koma björgunarliði á
vettvang vegna skriðufalla og skemmda á vegum. Fannst skjálftinn víða
um land og meðal annars í höfuðborg landsins, Islamabad. Nokkrir eft-
irskjálftar fylgdu stóra skjálftanum og sumir allmiklir.
Reuters
Misstu allt sitt í jarðskjálfta
PAUL Bremer, ráðsmaður Bandaríkjastjórn-
ar í Írak, sagði í gær, að hún væri til tals um
málamiðlun hvað varðaði valdaskipti í Írak en
fréttir eru um, að ágreiningur sé um þau innan
Bandaríkjastjórnar.
Bremer sagði í viðtali við tvær bandarískar
sjónvarpsstöðvar, að enn væri stefnt að því að
afhenda nýrri íraskri ríkisstjórn völdin í hend-
ur 30. júní næstkomandi en hins vegar yrðu til-
lögur Sameinuðu þjóðanna, sem eru væntan-
legar eftir viku eða 10 daga, teknar til
gaumgæfilegrar athugunar.
Bandaríkjastjórn hefur stefnt að því, að full-
er. Ágreiningur er innan Bandaríkjastjórnar
um tímasetningu væntanlegra valdaskipta að
því er fram kemur í bandaríska tímaritinu
Newsweek. Sagt er, að Bremer og menn nánir
Bush vilji umfram allt, að valdaskiptin fari
fram fyrir kosningar eins og Bush hefur lofað
en aftur á móti standi varnarmála- og utanrík-
isráðuneytið saman aldrei þessu vant og hafi
stungið upp á, að þau verði dregin fram á
næsta ár. Þar óttast menn, að komið geti til
borgarastríðs í Írak verði ríkisstjórn skipuð án
beinna kosninga í landinu og það yrði mar-
tröðin mesta.
trúaþing víðs vegar um Írak tilnefni menn í
væntanlega stjórn en Ali al-Sistani, leiðtogi
sjíta, sem eru í meirihluta í landinu, er andvíg-
ur því. Vill hann beinar kosningar en Banda-
ríkjamenn telja ekki nægan tíma til að skipu-
leggja þær fyrir 30. júní.
Bremer viðurkenndi, að öryggisvandamálin í
Írak myndu ekki verða leyst með fyrirhuguð-
um valdaskiptum en minnti á þau orð George
W. Bush forseta, að Bandaríkjamenn myndu
ekki hlaupa burt frá hálfunnu verki. „Verkið er
að koma á fót lýðræðislegu, stöðugu og samein-
uðu Írak og það tekur sinn tíma,“ sagði Brem-
Ljá máls á málamiðlun í Írak
Ágreiningur sagður í Bandaríkjastjórn um væntanleg valdaskipti
Washington. AP, AFP.
ELITE-fyrirsætufyrirtækið, sem kom á
framfæri stjörnum á borð við Claudia Schiff-
er, Naomi Campbell og Cindy Crawford,
hefur lýst sig gjaldþrota.
Í gjaldþrotsbeiðninni er ástæðan sögð vax-
andi kostnaður vegna yfirvofandi málaferla
en Elite og raunar önnur fyrirsætufyrirtæki
hafa meðal annars verið sökuð um verð-
samráð. Þá krefst einn fyrrverandi starfs-
maður Elite næstum 300 millj. ísl. kr. í bætur
fyrir heilsutjón, sem hann segist hafa orðið
fyrir vegna óbeinna reykinga.
Elite orðið
gjaldþrota
New York. AFP.
ÞÝSKA lögreglan ætlar að virkja almenning
um allt Þýskaland í baráttunni við glæpa-
menn og helsta vopnið verður farsíminn.
Verða fólki send SMS-skilaboð með upplýs-
ingum um afbrot eða glæpamenn og það beðið
að láta vita, búi það yfir einhverri vitneskju.
Þessi starfsemi hefst almennt í dag og mun
að sjálfsögðu aðeins ná til þeirra, sem það
samþykkja, en hún hefur verið stunduð frá
haustinu 2002 í 11 lögregluumdæmum og gef-
ið mjög góða raun.
SMS-skilaboð til lögreglunnar kosta ekkert
og er sérstaklega vonast eftir góðri þátttöku
atvinnubílstjóra, til dæmis strætisvagna- og
leigubílstjóra, en þeir eru mikið á ferðinni og
verða vitni að einu og öðru.
Lögreglan nefndi þetta sem dæmi um
skilaboð frá lögreglunni: „Bankarán, lög-
reglan leitar tveggja manna á fertugsaldri.
Gallabuxur, svartir jakkar. Flýðu á brúnum
BMW, Dortmund-númer.“
SMS gegn
glæpunum
Frankfurt. AFP.
♦♦♦