Morgunblaðið - 16.02.2004, Síða 12

Morgunblaðið - 16.02.2004, Síða 12
ERLENT 12 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ BRÚÐAN hjalar og skríkir eins og lítið barn. Hún notar snuð, ropar eftir máltíðir, geispar og sofnar. Ef hún er vakin með hávaða, fer hún að gráta. Þessir mannlegu eiginleikar Annabell, vinsælustu dúkkunnar í Sádi-Arabíu, eru ein ástæða þess að hún verður fljótlega bönnuð í landinu. Í desember tilkynnti innanríkisráðuneytið að banna ætti innfluttar dúkkur og tuskudýr, búðar- eigendur fengu þrjá mánuði til að losa sig við þau. Bannið nær til leikfanga sem tákna heilagar per- sónur, eru í laginu eins og brúður eða dýr, sýna naktar manneskjur eða hafa á sér merki þjóða sem ekki eru íslamskar, eins og krossa, Davíðs- stjörnu eða Búdda. Samkvæmt ströngum túlk- unum á íslömskum lögum er bannað að búa til eft- irmyndir af lifandi verum og hluti sem sýna einhverja hluta kvenlíkamans. Brúðan Annabell, sem framleidd er í Kína, brýtur þessi lög. Barbie-dúkkur hafa þegar verið bannaðar í meira en áratug. Trúarlögreglan, sem kallast muttawa, fer oft í herferðir gegn Barbie í búðum, gerir dúkkurnar upptækar og sektar þá sem selja þær á svörtum markaði, þar sem þær kosta að minnsta kosti 3.500 krónur. En af hverju að banna dúkkur sem líta út eins og börn? Þetta snýst allt um pólitík segja sumir íbúar landsins, stjórnvöld eru áfjáð í að sýna fram á að þeim sé umhugað um íslömsk gildi á meðan þau eiga í stríði við herskáa íslamska trúarhópa í land- inu. Almenningur ósáttur við bannið Búðareigendur og neytendur eru hins vegar orðlausir yfir banninu. „Þetta er fáránlegt,“ sagði Amal, 28 ára gömul móðir sem var að versla með Hessu, 8 ára gamalli dóttur sinni. „Eins og flestar stelpur, ólst ég upp við að leika mér með dúkkur og get engan veginn skilið ástæðuna fyrir slíkum aðgerðum.“ Hinn 19 ára gamli Khalid var að leita að gjöf handa 7 ára systur sinni. „Hversu miklum skaða geta þessir líflausu hlut- ir valdið fólki, þegar við berum saman skaðann sem hryðjuverkamenn hafa valdið í landinu mínu? Ekki mikinn. Reyndar ekki neinn,“ sagði hann. Bæði óskuðu þau eftir því að vera ekki lýst nánar af ótta við að fá óþægilega athygli frá íhalds- sömum yfirvöldum. Hvað sem líður brúðubanninu hafa líka verið stigin skref í framfaraátt. Stjórnvöld ákváðu að ráðast gegn herskáum múslimum eftir að 52 lét- ust í sjálfsmorðsárásum í höfuðborginni, Riyadh í fyrra. Hundruð manna sem grunaðir voru um að vera herskáir harðlínusinnar voru handteknir og yfirvöld lýstu yfir stríði gegn ofstækisfullri hugs- un. Meðal annars báðu þau háttsetta klerka um að leggja áherslu á friðsamlegan boðskap íslam og trúarlegar kennslubækur voru endurskrifaðar. Ofstækismenn með mikil völd í samfélaginu Konungsfjölskyldan í Sádi-Arabíu notar wah- abisma til að treysta valdastöðu sína, en það er hugmyndafræði byggð á sérlega strangri túlkun á Kóraninum. Þannig hefur hún veitt wahabíta- klerkum mikil völd í samfélaginu og leyft trúar- lögreglunni að leika lausum hala. Í maí í fyrra missti Jamal Khashoggi starf sitt sem ritstjóri dagblaðsins al-Watan eftir að hafa birt greinar þar sem leitt var getum að því að íslamskt trúarof- stæki, sem konungsfjölskyldan hefði lengi leyft að viðgangast, leiddi til hryðjuverka. Í mars 2002 var Mohammed Moktar al-Fal ritstjóri dagblaðsins Al-Madina, rekinn að skipan innanríkisráðuneyt- isins eftir að blaðið birti ljóð þar sem ráðist var gegn íslömskum dómurum landsins. Ahmed Turkistani háskólaprófessor leggur til að stjórnin treysti valdastöðu sína með því að efla hófsamari öfl í samfélaginu. „Til að bjarga landinu og koma á friði og ró í samskiptum við umheiminn verðum við að finna leiðir til að taka á ofstæki og finna bæði skammtíma- og langtímalausnir á þessu fyrirbæri.“ sagði hann á ráðstefnu um trú- arofstæki Mekka á dögunum. „Við verðum að þróast í takt við tímann og það er mikilvægt að skoða hvort sumt af fornum íslömskum kennisetn- ingum passar inn í Sádí-Arabíu nútímans.“ Á meðan seljast brúður og bangsar sem aldrei fyrr, landsmenn hópast í leikfangabúðir til að kaupa brúður og bangsa áður en þeir verða end- anlega bannaðir. Brúðurnar bannaðar í Sádi-Arabíu AP Khalid Rashid skoðar dúkku sem hann hyggst gefa dóttur sinni, í leikfangaverslun í Ryiadh. Riyadh. AP. ’ Hversu miklum skaðageta þessir líflausu hlutir valdið fólki? ‘ BÚIST var við því, að öldunga- deildarþingmaðurinn John Kerry myndi vinna sigur í forkosningum demókrata í Wisconsin í gær og jafnvel, að það yrði til þess, að keppinautar hans gæfust upp. How- ard Dean kvaðst þó mundu halda áfram hver sem úrslitin yrðu í Wis- consin. Kerry vann örugga sigra í Nev- ada og í höfuðborginni, Wash- ington, á laugardag og virðist nú fátt geta komið í veg fyrir, að hann takist á við George W. Bush forseta í kosningunum í haust. Fékk hann 47% atkvæða í Washington og 63% í Nevada og var raunar eini fram- bjóðandinn, sem kom þar fram á fundum. Al Sharpton varð annar í Washington með 20%, Howard Dean með 17% og John Edwards með 10%. Í Nevada varð Dean ann- ar með 17% og Edwards með 10%. Ljóst er, að repúblikanar eru farnir að líta á Kerry sem forseta- efni demókrata og hafa þegar birt sjónvarpsauglýsingar þar sem ráð- ist er á hann og hann sakaður með- al annars um að ganga erinda ým- issa sérhagsmunahópa. Hafa Kerry og hans menn svarað þeim fullum hálsi og segja, að það sé hámark hræsninnar þegar repúblikanar hafi þennan áróður uppi. Segja þeir, að Bush sé ókrýndur konungur sér- hagsmunanna og benda á, að hann hafi tekið við miklum framlögum frá olíu- og gasfyrirtækjum, bönk- um og fjárfestingarfyrirtækjum og jafnvel frá Enron-fyrirtækinu áður en það varð gjaldþrota. Hafi þess- um fyrirtækjum líka verið launaður greiðinn. Kerry við að innsigla framboðið Var spáð sigri í Wisconsin en Dean ætl- ar ekki að gefast upp Washington. AFP. AÐ minnsta kosti 90 manns fór- ust í tveimur eldsvoðum í Kína í gær og álíka margir eða fleiri slösuðust. Eldur kom í gærmorgun upp á fyrstu hæð fimm hæða hárrar verslanamiðstöðvar í borginni Jilin í Norðvestur-Kína og fórst þá að minnsta kosti 51 maður og meira en 70 slösuðust. Tókst mörgu fólki á neðstu hæðunum að forða sér út en aðrir leituðu ofar í húsið til þess eins að verða reyknum að bráð. Fórust flestir á þriðju og fjórðu hæð hússins en sumir lifðu af en slösuðust mikið við að kasta sér út um glugga. Í Haining-borg í Zhejiang- sýslu fórust 39 pílagrímar er eldur kom upp í musteri aðeins nokkrum klukkustundum eftir fyrri eldsvoðann. 90 farast í tveimur eldsvoðum Peking. AP, AFP. FJÓRIR járnbrautastarfsmenn lét- ust og einn slasaðist alvarlega þegar lestarvagn rann á þá í gærmorgun. Voru mennirnir að vinna við braut- arteinana milli London og Glasgow. Talsmaður Virgin Trains, sem sér um lestarsamgöngur á þessum slóð- um, sagði, að slysið hefði átt sér í bænum Tebay og svo virtist sem einn vagn hefði losnað frá öðrum og runnið á mennina þar sem þeir voru við vinnu sína. Hefur lögreglan hafið rannsókn á málinu en ferðum lesta eftir brautarteinana var hætt um stund. Fjórir létust í brautarslysi London. AFP. AÐ minnsta kosti 28 manns fórust og 110 slösuðust er glerþak yfir sund- laug og heilsuræktarstöð í Moskvu hrundi undan snjóþunga í fyrra- kvöld. Telja margir slysið mikinn áfellsidóm yfir yfirvöldum, sem hafa leyft miklar byggingarframkvæmdir í borginni án þess að fylgjast með því, að farið sé eftir byggingarreglu- gerðum. Björgunarmenn notuðu krana og stórar vinnuvélar við að ná líkum þeirra, sem fórust, undan rústunum en þeir, sem komust af, flýðu hálf- naktir út í kuldann en frostið var um 15 gráður. 110 manns voru flutt á sjúkrahús og þótti tvísýnt um líf fjögurra. Sergei Shoigu, neyðarástandsráð- herra Rússlands, sagði í gær, að 17 manna væri saknað. Hefði fatnaður fólksins verið í búningsklefunum en það sjálft ekki fundist. Bjóst hann því við, að tala látinna ætti eftir að hækka. Shoigu fór hörðum orðum um byggingaræðið í Moskvu á síðustu árum. Sagði hann, að margar há- reistar byggingar hefðu þotið upp til þess eins að hrynja saman. „Við verðum að hætta þessu brjálæði og koma böndum á byggingariðnað- inn,“ sagði hann. Um 1.000 manns unnu að björg- unaraðgerðunum. Þeir, sem komust af, margir slasaðir og veinandi af kvölum, hrópuðu upp nöfn ástvina sinna eða vina, sem þeir höfðu verið með andartaki áður. „Það kvað við mikill brestur og síðan þagnaði allt. Allt þakið féll yfir okkur,“ sagði einn starfsmaður heilsuræktarstöðvarinnar Transvaal Park. Kona nokkur sagði grátandi, að sonur sinn hefði verið ofan í laug- inni. „Þeir segja, að einhver börn hafi farist,“ sagði hún. „Ég veit ekk- ert um drenginn minn.“ Rússneskar fréttastofur sögðu fyrst, að sprenging hefði valdið slys- inu en yfirvöld vísa því á bug. Talið er líklegast, að það hafi látið undan snjóþunga. Hefur lögreglan í Moskvu hafið sakamálsrannsókn á slysinu en sagt er, að við byggingu heilsuræktarstöðvarinnar hafi verk- takarnir aðallega notað vinnuafl frá Tyrklandi. Fjöldi manna fórst er glerþak yfir heilsuræktarstöð í Moskvu hrundi niður AP Björgunarmenn í rústum Transvaal Park. Notaðir voru hundar við leitina og heitu lofti dælt ofan í brakið til að auka líkur á því að fólk lifði af. „Ég veit ekk- ert um dreng- inn minn“ Grunur leikur á að sviksamleg vinnubrögð hafi valdið slysinu Moskvu. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.