Morgunblaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Sérflug Heimsferða 7 nætur – Varadero - Havana Ótrúlegt tækifæri til að kynnast þessari stórkostlegu eyju Karíbahafsins á verði sem aldrei hefur sést fyrr. Þú bókar 2 sæti en greiðir bara fyrir eitt og getur að auki valið um góð hótel hvort sem er í Havana eða í Varadero. Ferð til Kúbu er ævintýri sem lætur engan ósnortinn, því ekki aðeins kynnist maður stórkostlegri náttúrufegurð eyjunnar, heldur einnig þjóð sem er einstök í mörgu tilliti. Gamla Havana er ein fegursta borg frá nýlendu- tímanum, lífsgleði eyjaskeggja er einstök og viðmót fólksins heillandi. Að upplifa Kúbu nú er einstakt tækifæri, því það er ljóst að breytingar munu verða í náinni framtíð. Síðustu 19 sætin Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Verð kr. 39.950 M.v. 2 fyrir einn. Flugsæti kr. 72.000/2 = 36.000. Flugvallarskattur kr. 3.950. Netverð. Úrval hótela í boði 2 fyrir 1 til Kúbu 2. mars frá 39.950 Munið Mastercard ferðaávísunina ÚTLIT er fyrir að skortur verði á nautakjöti á næstunni að sögn Hermanns Árnasonar, stöðvar- stjóra Sláturhúss Suðurlands á Selfossi. Hann segir að vissar sveiflur séu alltaf í framboðinu, sum ár sé miklu slátrað en önnur lítið og nú stefni í lægð, en fyrir tveimur árum var miklu slátrað. Hann segir ástæðuna fyrir skortinum þó aðallega felast í því að bændur, sem hafa fengið lágt verð fyrir kjötið sitt að undan- förnu, hafi dregið saman í nauta- eldi og einbeitt sér enn frekar að mjólkurframleiðslu. Nyt kúnna sé meiri en áður og því minni þörf hjá bændum að stunda eldi til að viðhalda henni. Hann segir þessa búháttarbreytingu, að bændur einbeiti sér að mjólkuframleiðslu í stað nautaeldis og samþjöppun á mjólkurkvóta, áhyggjuefni fyrir nautakjötframleiðsluna. Hann segir nautakjötsneyslu hafa aukist undanfarna fjóra mán- uði og segist telja skýringuna m.a. felast í því að nýjar aðferðir séu notaðar við að hengja kjötið upp, sem geri það 30% meyr- ara en áður. Þessar aðferðir voru teknar upp í sláturhúsinu á Selfossi sl. sum- ar og segist Hermann telja að þetta geti verið ein helsta skýringin á auk- inni neyslu. Hann segir að nú sé ekki mikið flutt inn af nautakjöti til landsins en þegar skortur verði í innlendri framleiðslu sé opnað fyrir þann möguleika og að það sé áhyggju- efni sem beri að huga að. Sláturfélag Suðurlands á Sel- fossi framleiddi rúm 1.218 tonn af nautgripakjöti, þ.e. ungneyta- og kýrkjöti, á sl. ári. Á síðasta ári var sala nautgripakjöts 3.524,2 tonn en 3.579,4 tonn árið áður. Framleiðsla á nautakjöti á síðasta ári var heldur minni en árið áður eða 3.624,5 tonn en 3.639 tonn 2002. Örlítil aukning varð á síð- asta ári í fjölda slátraðra gripa. Minna um nautakjöt BJÖRGUNARSVEITIN Káraborg á Hvammstanga var kölluð til að bjarga hópi hrossa sem var í sjálf- heldu á litlum hólma í Víðidalsá á föstudag. Fjórir björgunarsveit- armenn fóru út í ána í flotgöllum, óðu út í hólmann og komu múl á eitt hrossanna. Þeir teymdu hross- ið síðan yfir ána og létu hin elta. Segir í fréttatilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg að björgunin hafi gengið vel og engu hrossanna hafi orðið meint af. Var þetta fjórða útkallið hjá björgunarsveitinni Káraborg á viku. Fyrsta útkallið var upp á Holtavörðuheiði vegna slæms veð- urs. Næst var sveitin send til að moka snjó af þaki sundlaug- arbyggingar á Hvammstanga og að kvöldi sama dags var sveitin send í verðmætabjörgun á Hrúta- fjarðarhálsi eftir að flutningabíll hafði oltið þar. Hrossum bjargað úr sjálfheldu Ljósmynd/Gunnar Sveinsson LYDIA Geirsdóttir hefur í nógu að snúast um þessar mundir en fyrir helgina var henni boðið starf við hjálp- arstarf í Írak og fer hún utan nú í vikubyrjun, lík- lega til ársdvalar. Lydia er mjög spennt, segir þetta drauma- vinnuna en hún er með meistarapróf í þróun og alþjóða- samvinnu frá Gautaborgarhá- skóla. Hún mun stofna skrifstofu í Er- bil í N-Írak, sem hefur það verkefni að samhæfa starf einkarekinna hjálp- arstofnana sem vinna á svæðinu. Lydia segir að hugmyndin sé að koma í veg fyrir að starf hjálparstofn- ana skarist og fylgjast með því að hjálpinni sé vel dreift þannig að ein- hver svæði eða hópar verði ekki út- undan. „Ég verð ein á svæðinu, reynd- ar með öryggisverði og íraskan aðstoðarmann, en bækistöðin er í Bagdad. Ég verð að mestu leyti að ferðast á milli ólíkra hjálparstofnana, safna saman upplýsingum, halda fundi og annað með þessum ólíku hjálparstofnunum um hvað er verið að gera og hvar er verið að vinna.“ Þann- ig verði búinn til gagnabanki fyrir hjálparstarfsmenn á svæðinu. Hún segir að engar upplýsingar liggi fyrir um hversu margar hjálp- arstofnanir séu að störfum í Erbil en þær geti verið á bilinu 10 til 30. Öryggisástandið að þróast í neikvæða átt Lydia segir mjög mismunandi að hvaða verkefnum hjálparsamtökin einbeiti sér að, sum geti unnið að framgangi menntunar, önnur leggi vegi og þau þriðju afli hreins vatns. En þótt samtök einbeiti sér að ólíkum sviðum mannlífsins geti þau skipst á upplýsingum, t.d. um öryggis- ástandið. Lydia segir að þetta sé þó ekki ein- falt, því ekki sé löng hefð fyrir því að hjálparsamtök vinni saman, það hafi byrjað fyrir um áratug. „Eftir að stríðinu lauk í Afganistan mættu um það bil 1.000 hjálparsamtök og hafði stærsta samhæfingarskrifstofan 60 meðlimi. 60 af 1.000 völdu það að taka þátt í þessum samtökum og reyna að samhæfa sig við aðra,“ segir Lydia, en bendir á að á hinn bóginn mætti segja að það hefði verið ómögulegt að sam- hæfa 1.000 samtök. Fyrsti samningur Lydiu er til sex mánaða en segir hún líklegt að áfram- haldandi styrkur fáist frá Evrópusam- bandinu og þá verði líklega framlengt í sex mánuði. „Þetta verður mjög spennandi. Þetta er náttúrlega mjög óöruggt svæði og maður veit ekkert hvernig það þróast,“ segir Lydia og bendir á að ástandið hafi verið talið öruggara í N-Írak, en það gæti verið að breytast. „Það er að þróast í neikvæða átt, en það eru harðar öryggisreglur sem maður verður að fylgja, það er bannað að fara út eftir myrkur og reglur um hvert við megum og megum ekki fara. Ég verð með bílstjóra svo þetta á allt eftir að ganga vel, það gerir það að lokum.“ Hún segir þetta draumastarfið en bætir við að það eigi ekki eftir að vera neinn dans á rósum. „Ég held þetta eigi allt eftir að ganga ef maður fer bara rólega í þetta og notar réttar aðferðir. Ég er bara 28 ára og þetta er mín fyrsta vinna af þessu tagi erlendis og það er ekki auðvelt að koma og segja t.d. fimmtugum manni sem er yfir einhverjum hjálparsamtökum og búinn að vinna við þetta í þrjátíu ár hvernig hann á að gera hlutina. En á móti kemur að allir vilja að hjálpin sé sem mest og best. Leiðin að því getur þó verið erfið því hjálparsamtök eru í samkeppni við hvert annað um styrki fyrir sína starfsemi,“ segir Lydia. Lydia Geirsdóttir er á leið í draumastarfið í hálft ár Mun samhæfa starf hjálp- arstofnana í Norður-Írak Lydia Geirsdóttir SVEITARSTJÓRN Vopnafjarðar- hrepps hefur sent frá sér ályktun þar sem ítrekað er mikilvægi þess að jarðgöng undir Hellisheiði eystri fái forgang og að Samband sveitarfé- laga á Austurlandi beiti sér fyrir slíkum göngum. „Sveitarstjórn Vopnafjarðar- hrepps fagnar miklum framkvæmd- um og uppbyggingu, sem á sér stað í Fjarðabyggð og Mið-Austurlandi með virkjana- og stóriðjufram- kvæmdum. Með framkvæmdunum er enn meira knýjandi en áður, að tengja byggðirnar norða Smjörfjalla við Mið-Austurland með jarðgöng- um undir Hellisheiði eystri. Árið 1979 ályktaði Samband sveitarfélaga á Austurlandi að forgangsverkefni í vegagerð á Austurlandi ætti að vera jarðgöng frá Fljótsdalshéraði yfir til Vopnafjarðar, þannig að eðlileg sam- skipti við aðra hluta Austurlands gætu átt sér stað árið um kring. Á aðalfundi SSA árið 2001, var síðan samþykkt að næstu jarðgöng hér á Austurlandi yrðu undir Hellisheiði. Vopnfirðingar krefjast þess að við ákvörðun næstu jarðgangafram- kvæmda verði það haft sem megin- markmið að standa við þær sam- þykktir sem gerðar hafa verið, þannig að Vopnfirðingar geti í raun talist til Austurlands og tekið þátt í þeirri atvinnubyltingu sem nú á sér stað í landshlutanum. Að öðrum kosti munu Vopnfirðingar sjá sig knúna til að endurskoða þátttöku sína á vettvangi SSA.“ Taka yfirlýsinguna alvarlega Formaður Sambands sveitarfé- laga á Austurlandi, Soffía Lárusdótt- ir, segir fulla ástæðu til að taka yf- irlýsinguna alvarlega og hefur hún verið rædd á vettvangi SSA í vik- unni. Halda á yfirgripsmikla ráð- stefnu um samgöngumál á Austur- landi í marsmánuði þar sem forgangsröðun jarðganga eystra verður m.a. rædd. Íhuga endurskoðun á þátttöku í SSA Vopnfirðingar vilja jarð- göng undir Hellisheiði ÍSLANDSKLUKKA Halldórs Lax- ness fær prýðisdóma í bókagagnrýni sunnudagsblaðs The New York Tim- es, en bókin kom nýlega út á ensku í fyrsta skipti, í þýðingu Philips Roughton hjá bókaútgáfunni Vintage International. Segir gagnrýnandinn, Brad Leithauser, að ljóðrænum lýs- ingum bókarinnar megi helst líkja við vangveltur um fölva hvalsins Moby Dick og lestarferðina til Miðvestur- ríkjanna í The Great Gatsby. „Íslandsklukkan gerist við lok 17. aldar, á tímum mikilla þjáninga, í landi þar sem sagan hefur einkennst af erfiðleikum og vosbúð,“ segir Leit- hauser og bætir við að Laxness hafi oft raskað ró samlanda sinna með lýs- ingum sínum á ömurleikanum og erf- iðri baráttu landans. „Íslandsklukkan gæti vel geymt allra hráslagalegustu lýsingu á heimalandi hans. Ísland er, á dögum skáldsögunnar, staður þar sem þrjótar ráða lögum og lofum – danskir nýlenduherrar einoka versl- un og fara ránshendi um hinar fáu auðlindir landsins – sem er byggt ölv- uðu, örvæntingarfullu og lötu fólki sem finnur eingöngu ánægju í því að verða vitni að opinberum grimmdar- verkum. Íslandsklukkan endurskap- ar, í meira mæli en nokkur önnur skáldsaga sem ég þekki, heim þar sem Pieter Bruegel hefði verið á heimavelli, ekki eingöngu vegna hrifningar á rugludöllum (smákrimm- um, sjóndöprum vaktmönnum) og hinu forljóta (andlitslausum holdveik- issjúklingum, hangandi líkum), en einnig vegna ójarðnesks hæfileika til að finna fegurð í landslagi örbirgðar og visku í samfélagi glópa.“ Bókardómur The New York Times á Íslandsklukku Laxness Líkt við Moby Dick og Great Gatsby

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.