Morgunblaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 23
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 23 ✝ Ólöf Erla Hjalta-dóttir fæddist í Reykjavík 18. sept- ember 1933. Hún lést á heimili sínu í Borgargerði 9 að- faranótt föstudags- ins 6. febrúar síðast- liðins. Foreldrar hennar voru hjónin Hjalti Björnsson, vagnstjóri hjá SVR, f. 13. maí 1907, d. 23. feb. 1993, og kona hans Svanborg Þór- mundsdóttir, f. 9. des. 1910 á Bæ í Bæjarsveit í Borgarfirði, d. 22. des. 1995. Erla giftist Magnúsi Einars- syni, fv. aðstoðaryfirlögreglu- þjóni í Reykjavík og síðar yfir- lögregluþjóni í Kópavogi, 18. september 1956. Foreldrar hans voru Einar Sigurjón Magnússon bifreiðastjóri, f. 14. okt. 1906, d. 20. júní 1989, og kona hans Anna Guðmundsdóttir, f. 3. júní 1916, d. 14. sept. 1990. Börn Erlu og Magnúsar eru: 1) Svanborg Anna, f. 29. okt. 1956, maki Guð- mundur H. Davíðsson, bóndi í Miðdal og oddviti í Kjós, f. 2. júní 1959. Þeirra börn eru Hjalti Freyr, f. 26. des. 1985, Ólöf Ósk, f. 10. sept. 1986, og Andrea, f. 10. des. 1990. 2) Hjalti, f. 19. okt. 1959, bifvéla- virki í Reykjavík, kvæntur Susönu Pa- pazian, f. 18. apríl 1972. Þeirra sonur er Einar Magnús, f. 28. feb. 2001. 3) Anna Sigríður, f. 21. okt. 1962, verslun- armaður. Hennar maður er Atli Þór Kárason bifreiðaviðgerðar- maður, f. 11. júlí 1964. Þeirra börn eru Sævar Már, f. 10. des. 1990, og Sylvía, f. 14. sept. 1994. Erla ólst upp í Reykjavík, naut almennrar skólagöngu og vann við afgreiðslustörf í verslun þar til hún greindist með berkla að- eins 17 ára og var vistuð á Vífils- staðahæli en náði heilsu og kröft- um á ný. Útför Erlu fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Væri hægt að velja sér mömmu, hvernig ætti hún þá að vera? Á kveðjustund kom þessi hugsun í hugann, því við höldum að vart verði fundin betri mamma en við áttum. Ef við værum skáld myndum við yrkja til hennar fögur kvæði og sönglög ljúf og blíð. Hún sá alltaf um að matur væri á réttum tíma. Föt til skiptanna. Að við vöknuðum á morgnana á réttum tíma í skólann, næðum stírunum úr augunum og fengjum eitthvað í svanginn, áður en út í vetrarsortann kom. Ef eitthvert óhapp varð var nóg að hún ræddi málið eða kyssti á bágtið. Plásturinn hennar var besti plástur í heimi. Peysurnar sem hún prjónaði á okkur voru þær hlýjustu og þéttustu peysur sem við þekkt- um. Myndirnar sem hún saumaði og voru á veggjunum heima til skrauts þær fallegustu, eins og Krýningin og Kóngamóðirin. Síðustu þrjú árin átti hún mjög erfitt og þrátt fyrir góða aðstoð lækna og starfsfólks lungnadeildar A6 og súrefnisþjónustu gaf þrekið sífellt eftir. Á kveðjustund þökkum við fyrir að hún varð mamman okkar. Guð geymi hana. Svana, Hjalti og Anna. Erla, góða Erla, ég á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kvöldljóð, því kveldsett löngu er. Hart er mannsins hjarta að hugsa mest um sig. Kveldið er svo koldimmt, ég kenndi í brjósti um mig. Dýrlega þig dreymi, og drottinn blessi þig. (Stefán Sigurðsson.) Takk fyrir allt, elsku amma. Hvíl í friði. Sævar Már og Sylvía. Amma mín, ég elska þig ávallt, hvað sem gerist mun ég elska þig. Amma mín, ég sakna þín svo mik- ið. Mig langar alltaf að fara til þín og knúsa þig. Amma mín, af hverju tók guð þig frá okkur? Ég sakna þín svo mikið því ég elska þig. Þú verður ávallt í hjarta mínu. Amma mín, mundu eftir mér, fylgstu með mér. Ég mun aldrei gleyma þér, því þú verður ávallt í hjarta mínu. Andrea Guðmundsdóttir. Elsku amma, nú er komið að kveðjustundinni. Hún er auðvitað erfið en við vissum að hverju stefndi vegna veikinda þinna. Það auðveld- ar hana líka að vita að nú ertu kom- in á betri stað. Við minnumst þín með miklum söknuði og þökkum fyrir allar þær stundir sem við átt- um saman. Verndi þig englar, elskan mín, þá augun fögru lykjast þín; líði þeir kringum hvílu hljótt á hvítum vængjum um miðja nótt. Nei, nei, það varla óhætt er englum að trúa fyrir þér; engill ert þú og englum þá of vel kann þig að lítast á. (Steingr. Thorst.) Blessuð sé minning þín. Hjalti Freyr og Ólöf Ósk. Andlát vinar kemur næstum allt- af á óvart, jafnvel þó um langvar- andi veikindi sé að ræða. Hún Erla er látin, fyrst úr okkar hópi til að kveðja. Við byrjuðum í saumaklúbb fyrir 44 árum, ungar og hressar konur, og höfum haldið hópinn síðan með „smábreytingum“. Oft höfum við rifjað upp ýmsar uppákomur, ásamt eiginmönnum okkar í gegnum árin, saumaklúbbs- böllin, útileguna frægu í Þjórsár- dalnum, sumabústaðaferðirnar og ótal margt fleira. Hún Erla veiktist af berklum ung stúlka og bar þess merki alla ævi. Hún fylgdi okkur í öllu sem við tók- um okkur fyrir hendur. Hún hélt sig kannski aðeins til hlés, en hafði örugglega lúmskt gaman af öllum okkar uppátækjum. Þrátt fyrir að líkamlegt þrek væri ekki mikið, fæddi hún og ól upp þrjú börn, dyggilega studd af eiginmanninum, Magnúsi Einarssyni, sem stóð við hlið hennar í blíðu og stríðu og öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Við áttum margar ánægjustundir á heimili þeirra og höfum notið frá- bærrar gestrisni þar í gegnum árin. Fyrir það skal þakkað. Elsku Magnús, Svana, Hjalti, Anna Sigga og fjölskyldur, hjartans kveðjur og samúðarkveðjur til ykk- ar. Mig dreymdi hamingjuna Hún kom til mín sveipuð svartri blæju, strauk höfuð mitt löngum hvítum höndum og hvíslaði þýðlega í eyra mér: Þú mátt sofna barnið mitt. (Vilborg Dagbjartsdóttir.) Elsku Erla. Takk fyrir samfylgdina, Guð geymi þig. Eyrún, Stella, Inga, Ólöf, Þóra og eiginmenn. Í dag kveðjum við yndislega, hægláta og hæverska konu. Þegar ég hugsa til Erlu og Magga sé ég fyrir mér þær mörgu stundir sem við áttum á spjalli í eld- húsinu í Borgargerði 9. Við Maggi sátum við eldhúsborð- ið, alltaf vel útilátnar veitingar. Bestu stundirnar voru þær þegar Erla tyllti sér niður hjá okkur með sína góðu nærveru eða var í talfæri í stofunni. Tíminn var fljótur að líða og ýmislegt spjallað í andrúmslofti þar sem ég fann fyrir svo mikilli um- hyggju og jafnvægi hjá þessum yndislegu hjónum. Það eru ekki margar stórákvarð- anir í lífi mínu í seinni tíð sem hafa verið teknar án þess að fá góð ráð hjá Erlu og Magga og ávallt hefur það reynst mér vel. Magnús, kæri vinur og fyrir- mynd, ég veit að þú bjargar þér þó að Erla sé ekki hérna lengur. Þú átt það sem allir sækjast eftir og munt alltaf eiga, þú ert góður maður og reyndist konunni þinni vel. Börnum og barnabörnum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Erling Þór Júlínusson. ÓLÖF ERLA HJALTADÓTTIR Ráðhildur Ellertsdóttir leit dags- ins ljós mánudaginn 9. október 1961 á Sólvangi í Hafnarfirði. Hún var yngst sjö systkina og ólst upp með þeim í foreldrahúsum. Hún varð skjótt augasteinn þeirra allra. Eftir að faðir hennar dó fyrir tæpum tveimur áratugum bjó hún hjá móð- ur sinni, þar til fyrir hálfu þriðja ári, er hún flutti á Sólvang. Þar dvaldi hún í faðmi starfsfólks hjúkr- unarheimilisins til æviloka. Á sama gangi þar og hún lenti fyrir rúm- lega fjörutíu og tveimur árum, hóf hún sig á loft í sína hinstu för á nýj- um vængjum. Það var mánudaginn 9. febrúar. Ráðhildur var gullfalleg þegar hún kom í þennan heim, eins og glöggt má líka sjá á mynd af henni tveggja ára gamalli. Þar skína björt augu í fagurri umgjörð. En á bak við annað augað, utan við sálina, leyndist óvættur, sem átti eftir að teygja anga sína um heilabú hennar og ásjónu. Þetta var æðaflækja við heilann, sem gerði lífshlaup hennar svo bratt, æ brattara, með hverju ári sem leið. Og unglingsárin hafa vafalítið verið þung, og tími hinnar ungu konu fór hjá. En hún mælti aldrei æðruorð. Lífið er bara brekka, voru hennar orð. Viku áður en hún kvaddi þennan heim var ljóst að hún átti eina brekku eftir. Og hún var há. Þegar sú var að baki, hjartað hætt að slá, hjaðnaði valbráin hægt. Andlits- vöðvarnir slöknuðu og þjáningar- svipurinn, sem hún bar þó svo vel, hvarf. Mild kyrrð færðist yfir andlit hennar, sem bar allt í einu fjar- lægan æskuljóma. Hún hafði fengið langþráða líknandi hvíld. Nú, þegar hún hefur náð síðasta hjallanum, sem svo lengi hefur bor- ið við loft, blasir við henni sýn sem þeir einir fá að sjá sem brattann sækja. Af þessum hjalla líður hún vænt- anlega inn í eilíft ljós og þar munu vængir hennar aldrei bráðna. Við sem höfum ekki haft fjallið í fangið um ævina, höfum ekki held- ur haft himininn fyrir augunum eins og Ráðhildur, þangað sem hún hefur náð nú. Í stað þess að láta andann svífa, spyrjum við í kvört- unartón: Hvar er hvollinn sem lyft- ir loftinu? Hvar er vindurinn undir vængjum okkar? Hvar eru fjaðr- irnar? Og ævi okkar hefur verið slík flatneskja, að himinn og hauður hafa runnið saman fyrir augum okkar í fjarlægu grámistri. Og þar blæðir sólinni á kvöldin. En við væntum þess að Ráðhildur svífi of- ar þeim rauða eldi inn í heiðríkjuna, sem svo lengi hefur beðið hennar. Sigurður V. Sigurjónsson. Elsku Ráða frænka. Þá hefur þú fengið hvíldina eftir erfið veikindi og við vitum að þér líður vel þar sem þú ert. Þegar við systkinin rifj- um upp minningar um þig getum við lítið annað en brosað. Þú varst alltaf svo einstök með þitt stóra hjarta og skemmtilegu sérvisku. Þótt þú værir orðin mikið veik var oft stutt í brosið, stríðnina og húm- orinn. Þín er sárt saknað og þú átt stóran stað í hjörtum okkar og munt alltaf eiga. Elsku Ráða, takk fyrir allt. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku amma, megi guð gefa þér styrk. Jóhann Örn og Þórdís. Okkur langar að kveðja hana föð- ursystur okkar með nokkrum orð- um. Hún hefur barist hetjulega við mikil veikindi nánast allt sitt líf eða frá tveggja ára aldri. Nú þegar við setjumst niður og látum hugann reika rifjast margar dýrmætar minningar upp. Sérstaklega er okk- ur minnisstætt eitt sumarið þegar amma fór í ferðalag og við vorum hjá þér á meðan. Þá var mikið spjallað langt fram eftir kvöldum og við skiptumst á leyndarmálum. Margar stundir er hægt að rifja upp af eldhúsumræðum heima hjá ömmu. Mikið skarð þykir okkur nú hafa myndast við fráfall þitt, elsku frænka, þín verður sárt saknað. Við huggum okkur við þá trú okkar og von að nú sért þú á góðum stað, heilbrigð og verkjalaus hjá skap- aranum. Já, elsku frænka, minning- in um þig mun lifa. Takk fyrir okk- ur, við erum svo sannarlega rík að hafa fengið að kynnast glaðlyndu baráttukonunni henni Ráðu frænku. Við biðjum algóðan Guð að styðja og styrkja ömmu, sem misst hefur svo mikið. Hildigunnur, Elsa Hrönn og Heimir Bæringur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTINN GUÐMUNDSSON húsasmíðameistari og byggingaeftirlitsmaður, Langagerði 74, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 10. febrúar, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 20. febrúar kl. 15. Ólafía Pálsdóttir, Guðmundur Pálmi Kristinsson, Ragnheiður Karlsdóttir, Sigríður Hrönn Kristinsdóttir, Brynjólfur Helgason, Ólafía Pálmadóttir, Halldór Már Sverrisson, Karl Pálmason, Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir, Kristinn Pálmason, Unnur Eir Björnsdóttir, Pálmi Örn Pálmason og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn, bróðir og mágur, ÓLAFUR PÉTUR SVEINSSON Áshamri 63, Vestmannaeyjum, sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. febrúar, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 20. febrúar kl. 14.00. Aðalheiður M. Pétursdóttir, Þóra S. Sveinsdóttir, Henry Á. Erlendsson, Þórey Sveinsdóttir, Einar Sveinbjörnsson, Hjörleifur Sveinsson, Kristbjörg Sveinsdóttir, Pétur F. Hreinsson og fjölskyldur þeirra. Elskuleg dóttir okkar, móðir, tengdamóðir, amma og systir, HERDÍS BJÖRNS HALLDÓRSDÓTTIR Flatahrauni 16b, Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring- braut föstudaginn 13. febrúar sl. Elísabet S. Jónsdóttir, Halldór M. Ólafsson, Þórir E. Jónsson, Marianne B. Jónsson, Sarah, Glenn, Renate, Guðrún Halldórsdóttir, Ólafur Á. Halldórsson.  Fleiri minningargreinar um Ráðhildi Ellertsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.